Morgunblaðið - 26.03.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.03.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980 15 Átti að ráða Pinochet af dögum? Manila, 25. marz, AP. STJÓRNVÖLD á Filips- eyjum tilkynntu í dag, að þau hefðu aflýst opin- berri heimsókn Pinoch- ets Chileforseta til Man- ila, þar sem þau hefðu komist á snoðir um að útlendir hryðjuverka- menn hefðu komið til eyjanna í þeim tilgangi að ráða af dögum forset- ann og helztu fylgdar- menn hans. Tilkynningin var gefin út eftir að Pinochet sagði í Santiago, að hann væri móðgaður vegna fram- komu Filipseyinga og að tengsl landanna yrðu skert. Brezka timaritið NOW birti þessa teiknuðu mynd aí Magnúsi Magnýssyni i sjónvarpskynningu, þar sem getið er um Vikinga- þættina sem Magnús hefur gert fyrir brezka sjónvarpið, BBC, og teknir voru nýverið til sýninga þar í landi. Flokkar timaritið sjónvarpsefni i fjóra flokka, þar sem gefnar eru ráðleggingar um gildi efnisins, og eru þættirnir um vikingana settir i þriðja flokk, sem segir að þeir séu þess verðugir að fylgst sé með þeim. Solzhenitsyn um fangelsun presta: „Allsherjarsókn“ gegn trúarbrögðum New York, 25. marz. AP. SOVÉZKI rithofundurinn Alexand- er Solzhenitsyn sagði i dag að fangelsun tveggja presta rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar fyrir skömmu væri liður í „allsherjar- sókn“ sovézkra yfirvalda gegn trúarbrögðum. Hann sagði að þeir hefðu verið bornir ýmsum röngum sökum, svo sem kynvillu og að hafa efnt til drykkju- og svallveizlna í vistarver- um sínum. London. 25. mars. AP. BREZKIR iögreglumenn hafa fund- ið tvær bifreiðar sem sýnt þykir að ræningjarnir, sem rændu í gær silfri að andvirði fjögurra milljarða kr., hafi notað við iðju sina. Að öðru leyti hafa þeir ekki fengið neinar grunsemdir um hvar silfrið, Solzhenitsyn sagði að prestarnir, Dmitri Dudko, sem er 58 ára og Gleb Yakunin, sem er 46 ára, hefðu staðið fyrir óformlegum vikulegum rabb- fundum um trúmál í litlu þorpi fyrir utan Moskvu. Hefðu þeir gefið út rit um trúmál, sem komið hefði út á Vesturlöndum undir nafninu „Vonin okkar". Dudko hefði verið fangels- aður 15. janúar og Yakunin 1. nóvember. Væru þeir taldir vera í haldi í Lefortovo-fangelsinu í Moskvu. alls tíu smálestir, sé niðurkomið. Beinist rannsóknin að því að finna þann sem skýrt hefur glæpamönn- unum frá silfurflutningunum. Ránið, sem sjö menn framkvæmdu, þykir hafa verið vel skipulagt, þar sem aðgerðirnar tóku innan við eina mínútu. Veður Akureyri 0 hálfskýjaö Amsterdam 12 skýjað Aþena 20 heiðskírt Barcelona 17 hálfskýjað Berlín 5 skýjaö BrUssel 8 skýjað Chicago 2 skýjað Dublin 10 heiöskírt Feneyjar 11 þokumóöa Frankfurt 9 heiðskírt Genf 10 skýjað Helsinki 0 heiðskírt Jerúsalem 24 léttskýjað Jóhannesarborg 22 rigning Kaupmannahöfn 3 skýjað Las Palmas 19 skýjað Lissabon 16 heiöskírt London 11 heiðskírt Los Angeles 19 heiðskírt Madríd 15 skýjað Malaga 17 skýjað Mallorca 18 léttskýjað Miami 25 heiðskírt Moskva 0 heiöskírt New York 12 skýjað Ósló 0 heiðskírt Parfs 15 heiðskírt Reykjavík 1 skýjað Rio De Janeiro 37 heiðskírt Rómaborg 8 skýjað Stokkhólmur 2 heiðskírt Tel Aviv 26 lóttskýjað Tókýó 11 heiðskírt Vancouver 10 heiöskírt Vínarborg 4 skýjað Fundnir bílar silfurræningja Þetta geróist 26. marz 1979 — Fyrsti samningur um frið í Miðausturlöndum á síðari tímum undirritaður í Washing- ton. 1978 — Belgíska iðnrekandan- um Empain barón sleppt heilum á húfi nálægt París, tveimur mánuðum eftir rán hans. 1977 — Banni við tónlist Beet- hovens aflétt í Kína. 1976 — Nýr herstöðvarsamning- ur Bandaríkjamanna og Tyrkja. 1972 — Nýr varnarsamningur Bretlands og Möltu. 1971 — Awami bandalagið bannað og Pakistan rambar á barmi borgarastyrjaldar. 1962 — Hvíslherferð í Kína gegn Krúsjeff og öðrum leiðtog- um Rússa. 1953 — Jonas Salk segir frá bóluefni sínu gegn lömunarveiki. 1933 — Ný stjórnarskrá í Port- úgal. 1918 — Foch marskálkur yfir- maður herja Bandamanna. 1917 — Fyrri Gaza-orustan. 1913 — Búlgarar taka Adrían- ópel af Tyrkjum. 1895 — Japanir taka Fiski- mannaeyjar á Formósusundi. 1871 — Parísarkommúnan formlega stofnuð. 1854 — Karl III, hertogi af Parma, myrtur. 1793 — Austurríki segir Frakk- landi stríð á hendur — Uppreisn franskra konungssinna í La Vendee. Afmæli. Robert Frost, banda- rískt skáld (1854-1965) - Will- iam C. Westmoreland, banda- rískur hershöfðingi (1914— —) — Tennessee Williams, banda- rískur leikritahöfundur (1914 — —) — A.E. Housman, enskt skáld (1859-1936). Andlát. 1827 Ludwig van Beet- hoven, tónskáld — 1892 Walt Whitman, skáld — 1902 Cecil Rhodes, stjórnmálaleiðtogi — 1923 Sara Bernhardt, leikkona — 1945 David Lloyd—George, stjórnmálaleiðtogi — 1957 Edouard Herriot, stjórnmála- leiðtogi — 1973 Noel Coward, leikritaskáld. Innlent. 1130 d. Sigurður kon- ungur Jórsalafari — 1860 „íslendingur" hefur göngu sína — 1960 Mesti afladagur í sögu Vestmannaeyja — 1968 Eld- flaugar úr þotu sem fórst leitað — 1973 Fimm fórust með TF- Vor Björns Pálssonar nálægt Langjökli — 1973 Húsmæður mótmæla hækkunum — 1975 Samkomulag í vinnudeilum. Orð dagsins. Ást er eins og mislingar — miklu verri þegar hún grípur um sig seint á ævinni — Douglas Jerrold, enskur rit- höfundur (1803-1857). Fréttir í stuttu máli Snjókoma á Bretlandi London. 25. marz. AP. Ofanhríð var um gjövallar Bret- landseyjar í gær, fimmta daginn í röð, og . hefur þetta vetrarríki einkum gert mönnum erfitt fyrir í norðurhluta Englands og í Skot- landi. Vegir eru þar margir teppt- ir og fólk hefur orðið að yfirgefa bifreiðar sínar á vegum úti þar sem þær hefur fennt í kaf. Afram verkfall í stálinu London, 25. marz. AP. Talsmenn stálverkamanna, sem nú hafa verið 12 vikur í verkfalli, sögðu í dag að lausn deilunnar væri ekki í augsýn og ljóst að hún mundi dragast á langinn, þar sem atvinnumálaráðherr- ann, James Prior, hefði í dag hafnað beiðni um opfnbera íhlut- un í deilunni. Verkfalli á Kastrup aflétt Kaupmannahöfn. 25. marz. AP. Hlaðmenn á Kastrupflugvelli af- léttu í gær verkfalli, sem staðið hafði í fjóra daga og valdið verulegum truflunum á flugsam- göngum. Afléttu hlaðmennirnir verkfallinu þegar verkalýðsfélag þeirra lýsti aðgerðirnar ólögleg- ar. Sterkur skjálfti í Alaska Palmer, 25. marz. AP. Jarðskjálfti að styrkleika 6,6 stig á Richterkvarða skók Ale- útaeyjar í Alaska í gærkvöldi, en fregnir herma að skjálftinn hafi ekki valdið umtalsverðu tjóni. Upptök skjálftans voru um 900 mílur suð-vestur af Anchorage. Sterling Moss keppir á ný Mallory Park. 25.marz. AP. Kappaksturshetjan Sterling Moss, sem var nærri dauða en lífi eftir óhapp á kappaksturs- brautinni fyrir 19 árum, tók á ný þátt í kappakstri í gær. Ekki byrjaði vel hjá kappanum fræga, því hann varð að hætta keppni vegna vélarbilunar. Moss sigraði í 19 Grand prix aksturskeppnum á sjötta áratugnum. Jafntefli Velden, Bad LaoterberK. 25. marz. AP. Jafntefli varð í sjöundu og átt- undu skák áskorendaeinvígis þeirra Petrosian og Korchnois, en skákirnar voru tefldar um helgina. Um tíma leit út fyrir að Petrosian væri að vinna sjöundu skákina, en Korchnoi náði að jafna stöðuna og þáði jafnteflis- boð Petrosians í 38. leik. Korc- hnoi þáði einnig jafnteflisboð Petrosians í áttundu skákinni á sunnudag, en þá höfðu þeir leikið 20 leiki, og hafði Petrosian hvítt.Korchnoi varð 49 ára gam- all á sunnudag. í öðru áskorendaeinvígi gerðu stórmeistararnir Robert Híibner frá V-Þýzkalandi og Andras Adorjan frá Ungverjalandi jafn- tefli eftir að þeir höfðu setið að tafli í 70 mínútur og leikið 13 leiki. Staðan í einvígi þeirra er sú að Hiibner hefur 2,5 vinninga en Adorjan 1,5. Kínverjar ekki á Ól? Kínverskur íþróttafrömuður skýrði frá því í dag að stjórnvöld í Peking hefðu farið þess á leit við ólympíunefnd Kína, að engir kínverskir íþróttamenn yrðu sendir á Olympíuleikana í Moskvu í sumar, ef Sovétmenn hyrfu ekki skilyrðislaust með ’-erafla sinn frá Áfganistan. Verkfall Helsinki, 25. marz. AP. ÁHAFNIR finnsku ísbrjótanna tíu fóru íverkfail í dag, þar sem ekki hefur orðið við launakröf- um þeirra. Tal frestar Moskvu, 25. marz, AP. MIKHAIL Tal bað í dagum að annarri skákinni í áskorenda- einvígi hans og Polugaevskys yrði fresta, en fyrsta skákin fór í bið eftir 41 leik og verður hún til lykta leidd á morgun, miðviku- dag. Gengishœkkun Helsinki, 25. marz, AP. SEÐLABANKI Finnlands til- kynnti í dag tveggja prósenta gengishækkun finnska marks- ins. Sökktu njósnabáti Seoul, 25. marz, AP. SKIP úr sjóher og flugvélar úr flugher S-Kóreu sökktu í dag „hraðskreiðum, vopnuðum njósnabáti" frá Norður-Kóreu eftir sjóorrustu undan Pohang á suðausturströnd Kóreu í dag. Dœmdur fgrir Rússanjósnir Singapore, 25. marz, AP. FYRRUM dulmálssérfræðingur sendiráðs Singapore í Moskvu var í dag dæmdurí 10 ára fangelsi fyrir að hafa afhent starfsmanni sovézku leyniþjón- ustunnar, KGB, leynilegar upp- lýsingar á tímabilinu frá því í maí í fyrra og þar til í febrúar sl. íhaldi í A-Berlín París, 25. marz, AP. AUSTUR-Þjóðverja, sem er háttsettur starfsmaður Barna- hjálpar Sameinuðu" þjóðanna, Unesco, er haldið í stofufangelsi í Austur-Berlín og hefur honum verið meinað að hverfa til sinna starfa í aðalstöðvum Unesco í París. Hermt er að hann hafi verið neyddur til að fara til A-Berlínar er hann var í emb- ættiserindum í V-Berlin. Kona hans og dóttir eru nú i felum í París, þar sem austur-þýzkir embættismenn þar hafa gert sig heimakomna í íbúð fjölskyld- unnar þar. Lœkka olíuverö New York, 25. marz, AP. VENEZÚELA hefur ákveðið að lækka verð á hráolíufati um tvo dollara, og er það í fyrsta skipti að aðildarríki Opec tilkynnir verðlækkun á ólíu frá því bylt- ingin í íran var gerð, en í kjölfar hennar varð mikil verðhækkun á olíu. Lækkunin er sögð vera vegna markaðsástandsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.