Morgunblaðið - 26.03.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.03.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980 Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjómarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 230 kr. eintakið. Ranglæti í skattheimtu Naumast er talað um annað meir þessa dagana en þá miklu og ranglátu skattheimtu, sem ríkisstjórnin gengur nú svo röggsam- lega fram í að leggja á þjóðina. Raunar má segja, að varla líði svo dagur, að nýjar skattahækkanir séu ekki boðaðar. Fyrir helgi snerist allt um 12. útsvarsprósentið, að koma því í gegnum neðri deild, á mánudaginn voru nýju tekju- og eignarskattsstigarnir lagðir fram og í gær var lagt fram frumvarp um 60% hækkun á flugvallargjaldi. Nýjar bensínhækk- anir eru í deiglunni með tilsvarandi hækkunum opinberra gjalda. Á sama tíma kveður við þann undarlega tón hjá ráðherrunum gagnvart öllum öðrum, að þeirra hlutur verði að liggja eftir: Atvinnuvegirnir eiga að láta sér nægja minna og almenningur verður að láta sér nægja minna. Á meðan tekur ríkissjóður að sama skapi meira til sín og vel það. Eins og fram hefur komið minnkuðu þjóðartekjur á sl. ári og sama þróunin heldur áfram á þessu. Frá ársbyrjun 1979 til ársloka hækkaði almennt verðlag um 61% en launatekjur um 51% eða svo. Þetta gefur í grófum dráttum mynd af þeirri kjaraskerðingu, sem orðin er síðan í fyrra og áfram sigur á ógæfuhliðina. Við þvílíkar kringumstæður mætti ætla, að ríkisstjórnin legði sig fram um að halda skattaálögunum a.m.k. innan sama ramma og í fyrra, en það er síður en svo. Fjárlagaafgreiðsl- an sýnir, að eyðslustefnan er alls ráðandi og að þrátt fyrir verulegar skattahækkanir minnka framlög rikisins til verklegra framkvæmda. Það kostaði mikla baráttu fyrir frjálshyggjumenn að koma beinu sköttunum niður. í því sambandi var einkum bent á, að skattskráin er í engu samræmi við líferni fólks og felur raunar í sér, að stighækkandi tekjuskattar eru fyrst og fremst launþegaskattar, sem leggjast þyngst á þá, sem vinna mest. Af þessum sökum draga þeir úr sjálfsbjargarvið- leitni og verðmætasköpun. Miklu heilbrigðara er að skattleggja eyðsluna. Nú hefur ríkisstjórnin ákveðið að taka 50% tekjuskattsþrep upp að nýju, þannig að heildarálögurnar fari upp í 64%. Þá eru 36 krónur eftir af hverjum 100 hjá þeim, sem aflaði teknanna. Ekki sýnir þetta rausn eða sanngirni hjá stjórnvöldum enda hlýtur það óhjákvæmilega að leiða til aukinna skattsvika, þar sem menn þykjast illa haldnir í svikamyllu mikillar vinnu og svimandi skatta. Allra verst er þó, að þetta bitnar harðast á þeim, sem sízt skyldi, ungu fólki, sem leggur dag við nótt til þess að koma undir sig fótunum. Þetta fólk fær sannarlega að kenna á nýju tekjuskatts- og útsvarsstigunum síðari hluta þessa árs, þegar ráðstöfunartekjurnar verða orðnar enn minni en nú vegna verðlags- og launaþróunarinnar í iandinu. Sannleikurinn er að sjálfsögðu sá, að fólk getur ekki unað þessari skattpíningu áfram. Hún var mikil í fyrra, og hún verður enn meiri í ár. 50% skattþrepið er kornið sem fyllir mælinn. Nóg var samt. Ekki sízt, þegar hliðsjón er af því höfð, að það skiptir sáralitlu máli fyrir ríkissjóð, en öllu frá mannlegu sjónarmiði og sanngirnis. Bensínið drýp- ur í ríkissjóð Enn ein bensínhækkunin er yfirvofandi. Hún hefur verið samþykkt í verðlagsráði, en bíður afgreiðslu í ríkisstjórninni og felur í sér, að lítrinn muni hækka úr 370 kr. í 423 kr. Af því rennur mikill meiri hluti eða nær 70% af hækkuninni beint í ríkissjóð í formi margvíslegra skatta og eykur tekjur ríkissjóðs um 3,5 milljarða á þessu ári, eins og fram kom í ræðu Birgis Isleifs Gunnarssonar alþingismanns í umræðunni utan dagskrár á Alþingi í gær. Þessi hækkun er enn eitt dæmið um það, hvernig ríkisstjórnin grípur hvaða tækifæri sem til er til þess að draga meira fé í ríkissjóð en ella. Hinar gífurlegu hækkanir á olíuvörum, sem yfir hafa dunið á síðustu misserum, gefa vissulega ekki tilefni til þess, að skattheimta ríkissjóðs verði hlutfallslega jafn mikil og áður. Það hlýtur að auka á margvíslegt misræmi og ranglæti í þjóðfélaginu, þar sem einkabílar eru farnir að teljast til munaðar, eins og nú horfir. Það er lýsandi um ástandið, að árið 1971 runnu 50% af bensínverði í vegasjóð en aðeins rúm 20% nú eins og fram kom í ræðu Sverris Hermannssonar í gær. Það var svo ekki nema eftir öðru að fjármálaráðherra skyldi nota þetta tækifæri, þegar bensínhækkanirnar voru ræddar á alþingi, til þess að lýsa því yfir, að dregið yrði úr framkvæmdamætti vegaáætlunar miðað við það sem áður hafði verið ákveðið. Ekkert sýnir ljósar en þetta, hvers konar ginnungagap ríkissjóður er orðinn og hversu fjármál hins opinbera eru komin í illt efni. Breytingar á lögreglusamþykktinni: Starfsemi knattborðs- og leiktækjastofa háð leyfum STARFSEMI knattborðs- og leiktækjastofa verður háð leyfi lögreglustjóra, að fengnu sam- þykki borgarstórnar, svo sem nú er varðandi útgáfu vínveit- ingaleyfa og fleiri leyfa. Borg- arstjórn samþykkti tillögu að þessum breytingum á fundi sinum á fimmtudagskvöld. Tillagan er árangur nefndar sem komið var á laggirnar að tilhlutan borgarráðs, en í nefndinni áttu sæti, auk full- trúa borgarinnar, fulltrúi lög- reglustjóra og fulltrúi frá dómsmálaráðuneytinu. Upphaf þessara breytinga er það að íbúar í nágrenni við tiltekna staði þar sem rekin eru leiktæki og spilakassar, hafa ítrekað kvartað vegna ónæðis af völdum starfseminnar. Auk BORGARSTJÓRN ákvað á fundi sínum nýlega að semja við Húsa- smiðjuna h.f. um kaup á timbur- húsi með tveimur kennslustofum sem settar verða niður á lóð Breiðholtsskóla. Þá verður einn- ig færanlegri kennslustofu komið fyrir við skólann. Þetta er gert til þess að 9. bekkur í Breiðholti I geti stundað nám í Breiðholts- skóla næsta vetur. Á síðasta ári sóttu nemendur 9. bekkjar í Breiðholti I tíma í Hólabrekkuskóla en í ár verður ekki rúm fyrir þá nemendur í skólanum. Lítilsháttar ágreining- ur varð í borgarstjórn um þetta mál og lýsti Albert Guðmundsson þeirri skoðun sinni að sú upphæð sem áætluð er til framkvæmdanna sé ekki nægilega sundurliðuð. Taldi hann ekki rétt að bera fram tillögu um 40.000.000.- kr. framlag til framkvæmdanna og taka þar með inn í væntanlegar byggingar- framkvæmdir hugsanleg kaup á lausamunum, án undangengins út- boðs eða frekari áætlana um leyfisskyldunnar var samþykkt að afgreiðslutími þessara staða yrði takmarkaður við tímann frá kl. 09.00 til kl. 23.30, þannig að lokunartíminn er sá sami og nú gildir varðandi kvöldsölur. Breytingar þær sem hér um ræðir eru þær að fellt er niður upphafsákvæði 2. mgr. 79. gr. lögreglusamþykktar Reykja- víkur, en í staðinn kemur: „Ákvæði 1. mgr. þessarar greinar svo og 77. og 78. gr. taka til knattborðsstofa eftir því sem við á.“ Við 81. gr. kemur ný máls- grein, 2. málsgrein, svohljóð- andi: „Knattborðs- og leik- tækjastofur, þar sem rekstur knattborða, spilakassa og leik- tækja er meginhluti starfsem- innar, má ekki starfrækja innbúsþarfir hússins. Að öðru leyti lýsti Albert sig samþykkan húsakaupum þessum. Vernduðum vinnustöðum hefur ekki f jölgað i borginni síðastliðin fjögur ár, þrátt fyrir samþykkt borgarstjórnar þar að lútandi, en samþykkt sú er frá árinu 1976. Þetta kom fram í svari Egils Skúla Ingibergssonar borgar- stjóra við fyrirspurn frá Birgi ísl. Gunnarssyni, en Birgir spurði hvað liði framkvæmd til- lögunnar. nema með leyfi lögreglustjóra, að fenginni umsögn borgar- stjórnar. Borgarstjórn ákveður gjald fyrir leyfið, sem veitt skal til fjögurra ára. Knattborðs- og leiktækjastofur mega vera opn- ar frá kl. 09.00 til kl. 23.30. Ákvæði 77. og 78. gr. taka til þeirra eftir því sem við á.“ Samkeppni um veggspjald Morgunblaðinu hefur borist fréttatilkynning frá Samtökum herstöðvaandstæðinga, þar sem segir frá samkeppni um vegg- spjald, sem ætlað er að túlka á myndrænan hátt þann atburð er brezkur her sté á land á Islandi, en 10. maí eru 40 ár liðin frá því aö það átti sér stað. Veitt verða þrenn verðlaun, 1. verðlaun nema 300.000 krónum og 2. og 3. verðlaun verða 100.000 krónur hvor.í dómnefnd sam- keppninnar verða Kjartan Guð- jónsson listmálari, Árni Berg- mann ritstjóri og Hjálmtýr Heið- dal teiknari. Skilafrestur er til 5. maí og verða niðurstöður dóm- nefndar kunngjörðar 10. maí. Borgarstjóri sagði í svari sínu að ljóst væri að mjög mikil nauðsyn væri á slíkum vinnu- stöðum fyrir vissan hóp öryrkja. Borgarstjóri nefndi ýmsar hug- myndir sem til umræðu væru og ætlaðar til úrbóta á þessum mál- um. Hins vegar undirstrikaði borgarstjóri að rekstur verndaðra Vinnustaða kostaði mikið fé og væri það á valdi borgarstjórnar að taka ákvörðun um slíkt. Kennslustofum f jölgað við Breiðholtsskóla Verndaðir vinnustaðir: Ekki fjölgað í fjögur ár Vagnakaup SVR: Tveir vagnar fy — síðan 1 á 45 < STJÓRN Strætisvagna Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í fyrrakvöld að gengið yrði til samninga við Volvo og Nýju bílasmiðjuna um kaup á 20 strætisvögnum er væru afhentir á næstu misserum, eins og fram hefur komið í fréttum Mbl. Eins og kunnugt er af fréttum hafa margir fundir stjórnar SVR að undanförnu snúizt um þessi kaup og hefur verið mikið fjallað um ungverskt tilboð frá Ikarus-verksmiðj- unum, en þær buðu nokkuð lægra í vagna, en fram kom nokkur munur á tilhoði þeirra og útboðslýsingu. Mbl. íeitaði í gær til nokkurra aðila er mál þetta varðar og innti álits á ákvörðun stjórn- ar SVR. — Ég er sammála formanni stjórnar SVR, sem lét bóka að taka yrði mun meiri tíma til að skoða þessi mál, sagði Ólafur Ólafsson framkvæmda- stjóri Samafls, er hefur umboð fyrir Ikarusvagnana. Sagði Ól- afur að munurinn á útboðslýs- ingunni og tilboði Ikarus hefði verið hverfandi og einkum varðað hjörulið á stýrisstöng. Sagði hann Ungverjana hafa sagt, að útboðslýsingin ætti nánast við um Volvo og sagði hann að tilboð Ungverjanna væri hið eina er hefði fast verð, hinir hefðu tiltekið ákveðnar hækkanir á af- greiðslutímanum. Sagði Ólaf- ur Ikarus hafa boðið að greitt yrði 15% við pöntun, 10% við afhendingu vagnanna og 75% yrði síðan lánuð til 5 ára með 8% vöxtum og væri það áreið- anlega hagstæðustu greiðslu- kjörin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.