Morgunblaðið - 26.03.1980, Side 3
rvivisjoAMdrr
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
3
Um 45% tekna íslenzku þjóðarinnar
til hins opinbera:
„Skattheimtu-
hlutíall aldrei
hærra en nú“
— sagði Hjalti Geir
Kristjánsson á,
fræðslufundi VI
um skattamál
„Á þessu ári má búast við að i
skatta og gjöld til hins opinbera
renni 45% af tekjum islenzku
þjóðarinnar. Hefur skattheimtu-
hlutfallið því aldrei verið hærra
en nú,“ sagði Hjalti Geir Krist-
jánsson formaður Verzlunarráðs
lslands í ávarpi sínu á fræðslu-
fundi VÍ um skattamái i gærdag.
„Talið er, að í fyrra hafi rúm-
lega 44% af þjóðartekjum runnið
til hins opinbera, þannig að enn er
stefnt upp á við. Sé og litið aftur í
tímann, var hlutfall skattheimtu
hins opinbera af þjóðartekjum
25% árið 1950, tæplega 35% árið
1960 og nær sama hlutfall árið
1970,“ sagði Hjalti Geir ennfrem-
ur.
Þá sagði Hjalti Geir að hlutfall-
ið hefði því nær staðið í stað á
tímabilinu 1960—1970 eftir tals-
verða hækkun á áratugnum á
undan. „En hvað hefur gerzt á
líðandi áratug? Hlutfall skatt-
heimtu hins opinbera af þjóðar-
tekjum hefur aukist úr rúmum
35% í rúm 45%. íslendingar þurfa
að greiða 10% meira af tekjum
sínum i skatta og gjöld í ár en þeir
gerðu 1970. Þetta gerist þrátt fyrir
vaxandi tekjur einstaklinga, sem
að óbreyttum sköttum hefðu því
einnig aukið tekjur hins opin-
bera,“ sagði Hjalti Geir.
„Þá má einnig líta með svolítið
öðrum hætti á skattheimtuna.
Fróðlegt er að líta í þessu sam-
bandi á og athuga hversu mikið
skattar á mann hafa aukist á
föstu verðlagi síðustu tvo áratugi.
Er skemmst frá því að segja, að
skattar á mann hafa rúmlega tvö-
og hálffaldast frá árinu 1960. Á
sama tíma hafa rauntekjur ein-
staklinga um það bil tvöfaldast,"
sagði Hjalti Geir ennfremur.
Frá blaðamannafundi Tómasar Árnasonar Ljósm.: Kristján Einarsson
á hvern hátt vandi fiskvinnslunnar
yrði þá leystur, að minna mætti á
að gengissig frá áramótum væri um
4,5%, og væri búist við áframhald-
andi gengissigi, ákveðið hefði verið
að hætta við fyrirhugaða minnkun
afurðalána, vaxtahækkun hefði ekki
verið framkvæmd hinn 1. mars og
fleira mætti telja. Um það hvort
hann teldi þessar ráðstafanir nægi-
legar til að leysa vanda fiskvinnsl-
unnar sagði Tómas: „Ég vil ekkert
fullyrða um það.“
Þá kom fram að ríkisstjórnin
staðfesti ekki á fundi sínum í gær
bensínhækkun, þar sem meðal ann-
Blaðamannafundur Tómasar Arnasonar í gær:
„Gengisfelling
ekki á döfinni“
En áframhaldandi gengissig
„ÞAÐ ER engin gengisfelling á
döfinni yfirleitt, hvorki nú á næst-
unni né siðar á árinu,“ sagði
Tómas Árnason viðskiptaráðherra
á blaðamannafundi í gær, þar sem
hann kynnti samþykkt rikisstjórn-
arinnar frá 20. þessa mánaðar um
niðurtalningu verðlags, en Mbl.
hefur áður skýrt frá meginefni
hennar.
Tómas kvaðst vona að samkomu-
lag væri um það innan ríkisstjórn-
arinnar að ekki yrði gripið til
gengisfellinga, og víst væri að þa
væri ekki á stefnuskrá ráðherra
Framsóknarflokksins að fara þá
leið. Um það hver væri stefna
annarra ráðherra í málinu sagðist
Tómas ekkert vilja segja, hann
talaði aðeins fyrir sig. Kvaðst hann
þó vilja benda á að hann væri
bankamálaráðherra og þyrfti
ákvörðun um gengisfellingu því að
fara um sínar hendur, en það væri
sem sagt ekki á döfinni.
Tómas sagði, er hann var spurður
ars átti að hækka hvern lítra um 37
krónur vegna skattheimtu ríkisins.
Um það hvort ríkið myndi aftur
notfæra sér heimild til að hækka
gjöld af bensíni í samræmi við
útreikning byggingarvísitölu hinn
1. apríl kvaðst ráðherrann ekki geta
tjáð sig.
Á fundinum kvaðst Tómas vona
að verðhækkun á þessu ári frá
upphafi til loka þess yrði ekki meiri
en 31% sem væri ein af meginfor-
sendum efnahagsmála ríkisstjórn-
arinnar, en viðurkenndi þó að erfitt
yrði að ná því marki.
hvílíkur munur
Ajax þvottaefni losar úr bletti og óhreinindi strax í forþvotti.
Það er sama hvort um er að ræða hvítan, mislitan eða mjög
viðkvæman þvott, sama hvaða hitastig er notað eða þvotta-
stilling. Með Ajax skilar árangurinn sér í tandurhreinum cfe
Ll.iJ._l____1____J-J.1 ■
blettalausum þvotti
\ja\ lágfrcydandi
rirallan þvott
þvottacfni
Ajax
skilar tandnrhrcinu