Morgunblaðið - 26.03.1980, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
Einu sinni var í sjónvarpi:
Fjallað um
norræna víkinga
Þátturinn Einu sinni var er á dagskrá sjónvarps
klukkan 18.25 í dag, og eru sögumenn í þættinum þau
Ómar Ragnarsson og Bryndís Schram. Ómar sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að þessi þáttur kæmi
íslendingum svo sannarlega við, því nú yrði fjallað um
forfeður okkar norrænna manna, víkingana.
Víkingar voru þeir norrænir menn kallaðir er
herjuðu á ýmis lönd yfir sumarmánuðina, en sátu að
vetrum heima á búum sínum í Noregi, á íslandi eða
annars staðar á Norðurlöndum. Hafa þeir yfirleitt
verið taldir fremur ómenntaðir
og frumstæðir ruddar, nær
sneyddir öllu þvi sem menning
getur talist. Jafnvel hafi svo
verið fyrir þeim komið að þeir
hafi verið búnir að tapa allri
trú, og aðeins „trúað á mátt
sinn og megin“ eins og svo oft
er sagt.
Seinni tíma rannsóknir á
víkingum og víkingatímabilinu
hafa hins vegar leitt allt annað
í ljós. Hallast nú margir að því
að víkingar hafi um margt
verið mun meiri menningar-
þjóð en talið hefur verið, og er
meðal annars sýnt fram á það á
Bryndís Schram hinni miklu víkingasýningu
sem nú stendur yfir í London.
Þess má geta, að þegar Norð-
urlöndum stóð til boða að
kaupa þættina urðu Svíar mjög
óhressir með að í þeim skyldi
vera sagt frá útburði barna
meðal fornnorrænna manna.
Töldu þeir að hér væri um
óhróður að ræða. Hinn franski
umsjónarmaður gerðar þátt-
anna lét sér hins vegar hvergi
bregða við þessi mótmæli Svía,
og benti þeim á mörg dæmi
þess í íslenskum fornritum, að
börn væru borin út. En slíkar
frásagnir er víða að finna, svo
sem í sögunni af Þorsteini á
Borg og Finnboga hinum
Ómar Ragnarsson ramma.
Sjónvarp í kvöld kl. 21.05
Rudolf Nureyev og Margot Fonteyn i einu dansatriðanna sem sýnt verður i þœttinum í sjónvarpinu i
kvöld.
Ballett með Nureyev og Fonteyn
I sjónvarpi í kvöld er þáttur um hinn heimskunna landflótta Sovétmann Rudolf Nureyev, sem er einn
fremsti ballettdansari veraldar. Hann flúði land sitt, Sovétríkin, þegar skömmu eftir 1960, og hefur síðan
dansað við mjög góðar undirtektir víða um Vesturlönd.
Sem kunnugt er hafa fjölmargir ballettdansarar Sovétríkjanna síðar farið að dæmi Nureyevs og flúið
land, og var einn þeirra hér á landi síðastliðið sumar, Michail Baryshnikov.
í þættinum í kvöld, sem er á dagskrá klukkan 21.05, verður fylgst með dansaranum á æfingum, hann
dansar nokkra kunna ballettdansa, og meðal mótdansara hans í þættinum verður hin víðfræga Margot
Fonteyn.
Útvarp Reykjavík
A1IÐNIKUDKGUR
26. marz
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
gr.dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Dagný Kristjánsdóttir held-
ur áfram að lesa þýðingu
sína á sögunni „Jóhanni"
eftir Inger Sandberg (12).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðufregn-
ir.
10.25 Morguntónleikar
Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur Konsert fyrir blásara, og
Konsertpolka eftir Pál P.
Pálsson; höfundurinn stj./
Michel Beroff og Parísar-
hljómsveitin leika Píanó-
konsert eftir Igor Strav-
insky; Seiji Ozawa stj.
11.00 Við þörfnumst kristinna
mæðra
Benedikt Arnkelsson cand.
theol. les þýðingu sína á
hugleiðingu eftir Billy Gra-
ham.
11.20 Tónleikar
David Sanger leikur á semb-
al Svítu í g-moll eftir Jean-
Baptiste Loeillet/ Barokk-
trióið í Montreal leikur Tríó
í c-moll eftir Georg Philipp
Telemann.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45. Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa
Tónlist úr ýmsum áttum,
þ.á m. léttklassisk.
14.30 Miðdegissagan: „Myndir
daganna“. minningar séra
Sveins Víkings
Sigríður Schiöth les (13).
SÍÐDEGIÐ
15.00 Popp. Dóra Jónsdóttir
kynnir.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Litli barnatiminn
Sigrún Björg Ingþórsdóttir
stjórnar og talar við tvo
drengi, Svavar Jóhannsson
(7 ára) og Eið Alfreðsson (8
ára), sem velja sögur ti)
lestrar í tímanum.
16.40 Útvarpssaga barnanna:
„Glaumbæingar á ferð og
flugi“ eftir Guðjón Sveins-
son.
Sigurður Sigurjónsson byrj-
ar lesturinn.
17.00 Síðdegistónleikar
Julian Bream leikur á gítar
Pavane eftir Maurice Ravel/
Joseph Szigeti og Claudio
Arrau leika Fiðlusónötu nr.
1 í D-dúr op. 12 eftir Ludwig
van Beethoven/ Dvorák-
kvartettinn leikur ásamt fé-
lögum úr Vlach-kvartettin-
um Sextett í A-dúr op. 48
eftir Antonin Dvorák.
KVÖLDIÐ
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Einsöngur í útvarpssal:
Elisabet Eiríksdóttir syngur
lög eftir Pál ísólfsson, Jór-
unni Viðar, Sigfús Einarsson
og Edvard Grieg; Jórunn
Viðar leikur á píanó.
20.00 Úr skólalífinu
Kristján E. Guðmundsson
sér um þáttinn og fjallar að
þessu sinni um nám í sálar-
fræði við félagsvisindadeild
háskólans.
20.45 Dómsmál
Björn Helgason hæstarétt-
arritari segir frá máli varð-
andi skyldu tryggingafélags
til að greiða bætur vegna
bifreiðartjóns, ef iðgjald er
ógreitt.
21.15 „Einu sinni var“, leik-
hústónlist eftir Lange-Möller
Willy Hartmann syngur með
kór og hljómsveit Konung-
iega leikhússins i
Kaupmannahöfn; Johan
Hye-Knudsen stj.
21.45 Ctvarpssagan: „Sólon
íslandus“ eftir Davíð Stef-
ánsson frá Fagraskógi
Þorsteinn ö. Stephensen les
(30).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Lestur Passíusálma (44).
22.40 Veljum við islenzkt?
Annar þáttur í umsjá Gunn-
ars Kristjánssonar. Fjallað
um samkeppnisgrundvöll ís-
lenzkrar iðnvöru.
23.00 Djassþáttur i umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR Umsjónarmaður örnólfur
26. mars Thorlacius.
18.00 Börnin á eidfjallinu. 21.05 Ballettdansarinn
Nýsjálenskur myndaflokk (I Am a Dancer).
ur. Annar þáttur. Bresk kvikmynd um hinn
Þýðandi Guðni Kolbeinsson. heimskunna Ballettdansara
18.25 Einu sinni var. Rudolf Nureyev.
Teiknimyndaflokkur. Fylgst er með honum m.a. að
Þýðandi Friðrik Páll Jóns- æfingum, og sýndir vinsælir
son. Sögumenn ómar Ragn- ballettar. Meðal dansfélaga
arsson og Bryndís Schram. Nureyevs í myndinni er
18.50 Hlé. Margot Fonteyn.
20.00 Fréttir og veður. Þýðandi Kristrún Þórðar-
20.25 Auglýsingar og dagskrá. dóttir.
20.35 Nýjasta tækni og visindi. 22.35 Dagskrárlok.
I_________________________________________________________/