Morgunblaðið - 26.03.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
13
mælingin á flúormagninu í
neysluvatninu gerð með skökk-
um hætti. Tveir vísindamenn frá
Heilbrigðisrannsóknarstofnun
Bandaríkjanna (National Institute
for Health) fóru yfir athuganirnar
og vísuðu þeim algjörlega á bug.
Aðrar rannsóknir framkvæmdar
af sama vísindamanni og aöstoö-
armanni hins hafa verið hraktar
viö síöari athuganir. Samt sem
áöur tilfæra andstæöingar flúor-
blöndunnar sífellt Texasathugun-
ina sem sönnun þess aö flúoríð
valdi krabbameini.
Enn ein athugun, sem nú fær
vaxandi rúm í andróöursbækl-
ingum gegn flúorblöndun, er
rannsókn á bananaflugunum,
sem gerö var áriö 1963. Einnig
þar er ályktun sem dregin er af
rannsókninni gjörsamlega röng.
Tvær tegundir bananaflugna sem
höföu fengiö frá 20 til 50 ppm af
flúoriði í fæöunni sýndust fá
æxlisvöxt út frá litarfrumum húö-
arinnar. Flúorandstæöingar túlk-
uöu þetta þannig, aö flúor ylli
krabbameini. Þaö reyndist þó
ekki vera svo skv. athugunum
vísindamanna viö Krabbameins-
rannsóknarstofnun Bandaríkj-
anna (National Cancer Institute).
Þótt segja megi aö menn séu
líffræöilega skyldir músum og
öörum spendýrum, er skyldleiki
þeirra viö flugur allnokkuð fjar-
lægari.
Litarfrumuvöxtur banana-
flugna er ekki þaö sama og
krabbamein hjá spendýrum.
Vöxturinn er fremur skyldur örvef
og er hann gagnstætt krabba-
meinsæxlum hvorki illkynja né
skaðlegur. Orsökina getur verð
aö finna í ýmsum efnum, t.d.
nokkrum fjörefnum, og einnig
lysin og tryptofan, sem eru
amínósýrur mikilvægar fyrir vöxt
og heislu manna. Bananaflugur
geta fengiö illkynja æxli, en engin
sönnun er fyrir aö flúor hafi
nokkru sinni orsakaö þaö. Raun-
ar hafa athuganir á mörgum
dýrum, t.d. rottum, músum,
hömstrum, hérum, marsvínum,
hundum og búfé aldrei bent til aö
flúoríö valdi krabbameini.
6. fullyrðing:
Flúoríð veldur
kransæða-
sjúkdómum
í Wisconsin hafa andstæð-
ingar flúorblöndunar oft haldiö
því fram aö flúoríð auki dánartölu
af völdum kransæöasjúkdóma.
Þeir grundvalla sína staöhæfingu
á tölum er sýna fjölgun dauös-
falla af völdum hjarta- og æöa-
sjúkdóma í bænum Atnigó, þar í
ríkinu, eftir aö flúorblöndun
neysluvatns hófst.
Rannsóknarstofnunin í heilsu-
fræöi og lungnasjúkdómum (Nat-
ional Health and Lung Institute)
hefur sagt þessar fullyröingar
„rangtúlkun í tölulegum skýrsl-
um“. Eins og einn vísindamaður
hefur bent á: „Sú þekkta staö-
reynd aö kransæöasjúkdómar
aukist meö aldrinum viröist hafa
farið framhjá mönnunum“. Eftir
aö flúorblöndun neysluvatns
hófst í Antigó áriö 1949 hefur
fjöldi aldraöra í borginni tvöfald-
ast. T.d. fjölgaði fólki 75 ára og
eldri í bænum um 106% milli
1950 og 1970. Þegar þetta er
tekiö með í dæminu, hverfur
fullyröingin um áhrif flúors.
Samkvæmt rannsókn Heilsu-
fræöi- og lungnarannsóknastofn-
unarinnar frá árinu 1972 sýnir
samanburöur á flúorríkun og
flúorsnauðum svæöum angan
mun á dauösföllum af völdum
hjarta- og æðasjúkdóma. Enn-
fremur var í skýrslum stofnunar-
innar sagt frá, aö rannsóknir á
fólki, sem alla ævi haföi drukkiö
vatn meö háu flúorinnihaldi,
heföu aldrei sýnt neinar skaðleg-
ar verkanir á hjarta- og æöakerfi.
Staöreynd:
í Antigó
iæröu menn
af mistökunum
Enginn hinna margvíslegu
sjúkdóma, allt frá krabbameini í
mönnum til hægðartregðu í
hundum, sem flúorblöndun hefur
veriö kennt um, hefur nokkru
sinni verið sannaður. Eina hætt-
an af flúorblönduðu neysluvatni
stendur ekki í neinu sambandi
viö neyslu þess. Sjúklingar sem
fá meöferö í gervinýrum geta
þurft 50 til 100 sinnum meira
vatn en heilbrigðir. Því ráöleggur
Rannsóknarstofnunin í liða- og
efnaskiptasjúkdómum (National
Institute of Arthritis and Meta-
bolic Disease) aö flúoríö, kalsí-
um, megnesíum og kopar sé
fjarlægöur úr vatni áður en þaö
er notaö í gervinýru. Aö þessu
frátöldu er engin ástæöa til aö
láta flúorblöndun neysluvatns
neitt á sig fá.
En áriö 1960 voru íbúarnir í
Antigó í Wisconsin óvitandi þess
að þær ógnvekjandi sögur sem
andstæðingar flúorblöndunar
héldu a loft, væru ósannar.
Antigó samþykkti aö hætta flúor-
blöndun eftir að hafa notið henn-
ar í 11 ár. Þessi ákvöröun leiddi
til, aö heilbrigöisyfirvöld borgar-
innar hófu rannsókn á því hvaöa
áhrif þaö heföi á tannheilsu
barna aö hætta flúorblöndun
neysluvatnsins í borginni.
Áriö 1960 rannsakaöi tann-
lækningastarfslið Wisconsinsrík-
is (Wisconsin Division of Health)
flest öll börn í leikskólum, ásamt
2., 4. og 6. bekk skólanna í
Antigó. Fjöldi skemmdra tanna
og útdregnar eöa viögeröar
tennur voru skráöar hjá hverju
barni. Fjórum árum síðar var
rannsóknin endurtekin hjá börn-
um í sömu bekkjum, aö undan-
skildum 6. bekk.
Leikskólabörnin höföu nú 92%
meiri tannskemmdir en sami
árgangur fjórum árum áöur. í 2.
bekk höfðu tannskemmdir í full-
oröinstönnum aukist um 183%. í
fjóröa bekk varö aukningin 41%.
Síöari rannsókn á 6. bekkjum
sýndi aukningu tannátu um 91%.
Áriö 1965 samþykktu íbúar Ant-
igó aö hefja flúorblöndun á nýjan
leik.
Þrátt fyrir áframhaldandi staö-
hæfingar andstæöinga flúor-
blöndunar um aukin dauösföll af
völdum hjarta- og æöasjúk-
dóma, drekka íbúar Antigó enn
þann dag í dag flúorblandað
drykkjarvatn. Enn eru þó 100
milljónlr Bandaríkjamanna sem
fara þess á mis vegna þess ótta
sem andstæðingar flúorblöndun-
ar hafa vakið. Sannleikurinn er
sá, aö enginn vísindalegur
ágreiningur er um öryggi flúor-
blöndunar. Aöferöin er örugg,
ódýr og gagnleg. Aö ennþá skuli
llfa orörómurinn um meintan
ágreining vísindamanna um ör-
yggi flúorblöndunar drykkjar-
vatns, er að dómi Neytenda-
samtaka Bandaríkjanna hinn
mesti sigur sem skottulækningar
hafa unniö gegn vísindunum á
vorum tímum.
Þýtl úr Contumar Rsports,
égútt 1978, moð leyfi
Bandarítku Neytendatamtakanna.
Haraldur Henrysson:
Eftir hverju
bíðum við?
Bílbeltin hafa stórlega
dregið úr umferðarslysum
Á undanförnum árum hefur
oft verið til umræðu hér,
hvort gera ætti notkun ör-
yggisbelta í bifreiðum að
skyldu. Menn hafa ekki verið
sammála um þetta fremur en
um svo margt annað og af
þessu hefur ekki orðið.
Nú munu tæplega 30 þjóðir
hafa lögleitt notkun bílbelta.
í skýrslu Ólafs Ólafssonar,
landlæknis, og Hauks Ólafs-
sonar M.A. um umferðarslys
og öryggisbelti segir, að á
alþjóðaþingi um umferðar-
mál, sem haldið var 1977,
hafi eftirfarandi komið fram
um árangur slíkrar lögfest-
ingar:
Dánartíðni í umferðarslys-
um lækkar að jafnaði um
25%.
Fækkun innlagna í sjúkra-
hús nemur 25%.
Alvarlegum meiðslum í
umferðarslysum fækkar að
jafnaði um 30%.
Veikindadögum vegna um-
ferðarslysa fækkar um 30%.
Sé litið til Norðurlandanna
í þessu sambandi kemur í
ljós skv. skýrslunni, að milli
áranna 1973 og 1977 dró
mjög greinilega úr dán-
artíðni, sé litið á heildar-
fjölda látinna og slasaðra í
umferð, á öllum Norðurlönd-
um nema íslandi. þar sem
hlutfall látinna jókst um allt
að 30%. Á hinum Norður^
löndunum var lögleidd notk-
un bílbelta á árunum 1975 og
1976.
Mér þykja þessar tölur
tala svo skýru máli, að ekki
þurfi frekar vitnanna við.
Auðvitað væri æskilegast að
unnt væri að koma á al-
mennri notkun bílbelta án
þess að gera hana að skyldu.
Bílbelti hafa verið almennt í
bifreiðum hér í allnokkur ár.
Könnun á vegum Umferðar-
ráðs á sl. sumri gaf til kynna,
að notkun beltanna væri
nokkuð dræm eða u.þ.b. 13—
14% meðal ökumanna. Ég tel
því mjög ólíklegt að unnt
verði að ná fram almennri
notkun nema með því að
skylda hana, enda er það og
reynsla annarra.
Ég vona að almenningur
og ráðamenn fái bráðlega
tækifæri til að kynnast
framangreindri skýrslu
þeirra Ólafs og Hauks og að í
framhaldi þess verði ákveðið
að stíga það skref að skylda
notkun þessa öryggisbúnað-
ar. Hér eru svo ríkir hags-
munir í húfi að ekkert getur
réttlætt frekari bið. Jafn-
framt er full ástæða til að
hvetja alla ökumenn og far-
þega í bifreiðum til að bíða
ekki slíkrar lögleiðingar
heldur hefja þegar í stað
notkun bílbelta hafi þeir ekki
gert það nú þegar.
Haraldur Henrysson.
HAFA Classic
Nýtísku
Hafa
baðinnréttingar
í baðherbergið
ykkar
Útsölustaðir:
Málningarþjónustan
Akranesi,
Atlabúðin Akureyri,
Bústoð Keflavík,
Valberg Ólafsfirði,
J.L-húsið Reykjavík,
G.Á.B. Selfossi,
Brimnes
Vestmannaeyjum,
Har. Jóhannesson,
Seyðisfirði,
Húsgagnaverslun
Patreksfjarðar
og flest kaupfélög um land
allt.
Vald Poulsen h/f
Suðurlandsbraut 10.
Sími 38520- 31142.