Morgunblaðið - 26.03.1980, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
17
GuAlaugur Þorvaldsson. Guðmundur Magnússon. 1*" Slgurðsson. hag- Jónas Haralz. Lands- Paul Stahnkr
rikissáttasemjari háskólarektor rannsóknastjóri bankastjóri
Ráðstefna hag- og viðskiptafræðinga um verðbólgu:
Vilja tengja alþjóðlega
verðbólguumræðu og ís-
lenzkan verðbólguveruleika
FÉLAG viðskiptafræðinga og
hagfræðinga hefur um nokkurt
skeið unnið að undirbúningi
ráðstefnu um verðbólgu, þar
sem saman kæmu innlendir og
erlendir sérfræðingar og
áhugamenn. auk forystumanna
á ýmsum sviðum þjóðiífsins til
skoðanaskipta um þetta flókna
vandamál.
Ráðstefnan verður haldin í
orlofsbúðum BSRB í Munaðar-
nesi dagana 28.-29. mars n.k.
Föstudaginn 28. mars flytja
bandarísku hagfræðingarnir
David Colander og Paul
K. Stahnke framsöguerindi, en
þeir koma hingað fyrir milli-
göngu Menningarmálastofnunar
Bandaríkjanna.
David Colander mun í fram-
söguræðu sinni einkum fjalla á
fræðilegan hátt um verðbólgu-
kenningar. Colander er 32 ára
gamall. Hann stundaði háskól-
anám við háskólann í Birming-
ham, en 1976 brautskráðist hann
með Ph.D. gráðu frá Columbia
University. Colander starfar nú
sem aðstoðarprófessor við Uni-
versity of Miami.
Landi Colanders, Paul K.
Stahnke, mun í sinni framsögu-
ræðu einkum gera grein fyrir
aðgerðum stjórnvalda til höml-
unar verðbólgu og félagslegum
og hagrænum vandamálum sem
samfara eru verðbólguhjöðnun.
Paul K. Stahnke er 56 ára að
aldri og starfar nú sem ráðu-
nautur sendinefndar Bandaríkj-
anna hjá OECD.
Að Ioknum framsöguerindum
fyrri dags ráðstefnunnar verða
umræður og fyrirspurnir, en um
kvöldið gefst ráðstefnugestum
kostur á að hittast og spjalla
saman.
Síðari dag ráðstefnunnar
hlýða þátttakendur á erindi Jón-
asar H. Haralz, Landsbanka-
stjóra, sem fjallar um verð-
bólgureynslu íslendinga.
Síðastur frummælenda er
Próf. Dr. Pieter de Wolff. Dr. de
Wolff er hollenskur hagfræðing-
ur, 67 ára að aldri. Hann var á
sínum tíma lærisveinn Jan Tin-
bergen, Nóbelsverðlaunahafa í
hagfræði. Dr. de Wolff er í
fremstu röð hollenskra hagfræð-
inga og var m.a. um tíu ára skeið
forstjóri „Central Planning Bur-
eau“ í Hollandi, sem hafði það
hlutverk að vera ríkisstjórninni
til ráðgjafar í efnahagsmálum.
Dr. de Wolff þekkir vel til
íslenzkra aðstæðna og íslenzkra
efnahagsmála. Sumarið 1978 var
hann leiðsögumaður 28 hag-
fræðistúdenta frá háskólanum í
Amsterdam, sem hér voru á ferð
og tóku íslenzk efnahagsmál
fyrir sem sérstakt verkefni. Dr.
de Wolff mun væntanlega greina
frá rannsóknum stúdentanna,
jafnframt því sem hann greinir
frá viðhorfum útlendings sem
hefur haldgóða þekkingu á
íslenzkum efnahagsmálum. Að
erindi Dr. de Wolff loknu verða
umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri verður Guðlaug-
ur Þorvaldsson ríkissáttasemj-
ari. Eftir hádegi verður dag-
skránni fram haldið með pall-
borðsumræðum. Umræðustjóri
verður dr. Guðmundur Magnús-
son, rektor. Auk þeirra fram-
sögumanna sem hér hafa verið
taldir, mun Jón Sigurðsson hag-
rannsóknastjóri taka þátt í um-
ræðunum.
Ráðstefna þessi er tvímæla-
laust viðamesta verkefni sem
Félag viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga hefur ráðist í. Með
ráðstefnuhaldinu vill félagið
leitast við að tengja alþjóðlega
verðbólguumræðu og íslénzkan
verðbólguveruleika og stuðla að
fræðilegum og hagnýtum skoð-
anaskiptum um vandamálið.
45 lóðum út-
hlutað í gær
Á FUNDI borgarráðs í gær voru ákveðnar lóðaúthlutanir í
Reykjavík samkvæmt tillögum lóðanefndar. Var úthlutað 10
raðhúsalóðum í Seljahverfi og 35 einbýlishúsalóðum á Eiðis-
grandasvæðinu. Á fundinum var lögð fram tillaga lóðanefndar
um eftirgreindar úthlutanir á raðhúsalóðum við Kaldasel:
Kaldasel 6: Karl J. Ottósson,
Krókahrauni8
Kaldasel 8: Ólafur Ólafsson,
Blikahólum 2
KaldaseMO: Egill Ólafsson,
Yrsufelli
Kaldasel 12: Jóhannes H.
Jóhannesson, Flúðaseli 91
Kaldasel 14: Einar Þ. Dag-
bjartsson, Melási 10, Garðabæ.
Þá var samþykkt samkvæmt
útdrætti sem fram fór á fundin-
um milli þeirra sem höfðu 88
stig skv. reglum um lóðaúthlut-
un að úthluta eftirtöldum rað-
húsalóðum við Kaldasel:
Kaldasel 18: Guðmundur
Þórkelsson, Vesturbergi 120
Kaldasel 20: Ágúst Þ. Odd-
geirsson, Unufelli 21
Kaldasel 22: Kristín Guð-
mundsdóttir, Flúðaseli 89
Kaldasel 24: Björn H.
Björnsson, Þórufelli 12
Kaldasel 26: Jón R. Od-
dgeirsson, Tunguseli 6
Þá var á fundinum lögð fram
tillaga lóðanefndar varðandi út-
hlutun á Eiðisgrandasvæðinu og
féllst borgarráð á eftirfarandi
úthlutanir, en þar er um að
ræða einbýlishúsalóðir:
Benedikt Skarphéðinsson,
Bræðraborgarstíg 25
Þorsteinn Steingrímsson,
Víðimel 27
Sæmundur Rögnvaldsson,
Flókagötu 61
Friðrik Adólfsson, Faxa-
skjóli 26
Ingvar Sveinbjörnsson, Hað-
arstíg 12
Eiríkur Trvggvason, Æsu-
felli 4
Óskar G. Jónsson, Flyðru-
granda 6
Atli Þ. Ólason, Hraunbæ
102d
Friðrik A. Þorsteinsson,
Hvassaleiti 155
Grétar Bergmann, Erlu-
hraun 5, Hf.
Guðmundur Matthíasson,
Granaskjól 36
Guðrún Ingólfsdóttir, Haða-
land 5
Hilmar T. Björnsson, Dala-
land 9
Jóhann Hákonarson, Kapla-
skjólsvegi 93
Kjartan Ólafsson, Efstasund
51
Kristinn Bergsson, Lindar-
braut 43, Seltj.
Kristján K. Víkingsson, Ein-
arsnes 25
Sveinn Þorgrímsson, Kapla-
skjólsvegi 91
Brynhildur Ingvarsdóttir,
Eiríksgötu 27
Hjörtur Hjartarson, Ægis-
síðu 76
Þá var samþykkt samkvæmt
útdrætti, sem fram fór á fundin-
um þar sem dregið var milli
þeirra er höfðu 88 stig skv.
úthlutunarreglum, að veita eft-
irtöldum lóð undir einbýlishús,
einni og á Eiðisgrandasvæðinu:
Arnar Sigurðsson, Háaleitis-
braut 25
Eðvarð Guðmundsson, Álf-
heimar 50
Friðjón Margeirsson, Arn-
arh. Kjalarnesi
Gunnar B. Björnsson, Glæsi-
bæ 10
Hafsteinn Þ. Stefánsson,
Hraunbæ108
Halldór Gíslason, Leirubakka 2
Helgi Björnsson, Sörlaskjól 32
Kjartan Gíslason, Kaplaskjóls-
vegi 55
Sigurbjörg Guðjónsdóttir,
Skógargerði 6
Sigurður Antonsson, Safamýri
75
Sigurður Hermannsson, Vallar-
braut 11, Seltj.
Sigurður Sigurðssón, Tómas-
arhaga 27
Skarphéðinn S. Bjarnason,
Flyðrugranda 6
Stefán Melsted, Nesveg 47
Þórður Jónsson, Meistaravellir
7
rir áramót
dlaga fresti
— Byrjunin er góð, en við
erum svo sem búnir að upplifa
ýmsar breytingar á tillögum
stjórnar SVR þegar um vagna-
kaup er að ræða þar sem málið
á eftir að fara fyrir Innkaupa-
— segir Nýja
bílasmiðjan
um afhending-
una verði
skipt við hana
stofnun, borgarráð og borgar-
stjórn svo að við hyggjumst
bíða og sjá til hver endanleg
afgreiðsla málsins verður,
sagði Ásgeir Gunnarsson hjá
Velti sem umboð hefur fyrir
Volvo-vagna. Ásgeir sagði að
samkvæmt útboðinu yrði að
taka ákvörðun fyrir apríllok
og síðan væri gert ráð fyrir
þriggja mánaða afgreiðslu-
fresti eftir að pöntun hefur
verið gerð. Kvað hann því
sennilegt að fyrstu bílarnir
gætu komist á götuna um
áramót væri Nýja bílasmiðjan
í stakk búin til að ljúka smíði
yfirbygginganna.
Höskuldur Jónsson hjá Nýju
bílasmiðjunni kvað fyrirtækið
reiðubúið að semja um smíði
yfirbygginganna. Sagði hann
að miðað við að fyrstu vagn-
arnir kæmu til landsins í
október væri hægt að afhenda
tvo um áramótin og síðan einn
vagn á 45 daga fresti. Þýddi
það vinnu í 2*/2 ár hjá fyrir-
tækinu og yrði starfsmönnum
þess fjölgað um 6—8, en þeir
eru nú um 22. Kvað Höskuldur
fyrirtækið auk þessarar
nýsmíði, ef til kæmi, geta
annað annarri nýsmíði svo og
viðgerðarverkefnum eins og
verið hefði.
Bergur Ólafsson fulltrúi
vagnstjóra í stjórn SVR, sem
bar fram tillögu um að keyptir
yrðu Volvo-vagnar, kvaðst að
svo stöddu ekki vilja tjá sig
um málið, meðan það hefði
ekki hlotið endanlega af-
greiðslu, en kvaðst þó vona að
sjónarmið vagnstjóra yrðu
virt.