Morgunblaðið - 26.03.1980, Síða 28

Morgunblaðið - 26.03.1980, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980 Svona á að framreiða eldtungusteikt kjttt á teini! Dásamlegt sumarírí þarna norður á íslandi. Aldrei þurr dagur í fjórar vikur. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Slæmur er samningurinn, hugs- ar þú sjálfsagt þegar þú lítur á spilin í skemmtilegri úrspilsæf- ingu. Suður gaf spilið og er sagnhafi í þrem gröndum en andstæðingarnir hafa báðir alltaf sagt pass. Norður S. 62 H. 109854 T. G63 L. KG9 Suður S. Á108 H. ÁD32 T. ÁD8 L. ÁD8 COSPER Ég byrja alltaf á naflanum! Vill þjóðin að geðsjúkdómar séu feimnismál? Til Velvakanda. Ég verð að segja að ég dáist að listamanninum og alkóhólist- anum, sem kom fram í sjónvarp- inu laugardagskvöldið 15. þ.m. og sagði sögu sína umbúðalaust og af einlægni og hreinskilni. Það hefur orðið slík breyting á málefnum áfengissjúklinga síðan AA-samtökin og S.Á.Á. tóku til starfa, að hulunni hefur verið svipt af því sem áður var talið feimnismál. Nú þykir ekkert sjálfsagðara en að þessir sjúkl- ingar séu iagðir inn um tíma, rétt eins og um sykursjúklinga sé að ræða, þeir taka svo til starfa á ný í þjóðfélaginu og reyna eftir beztu getu að ná fótfestu aftur. Sjúk- dómurinn er ekki læknaður, en honum haldið niðri af þeim sjálf- um. En einn er sá hópur sjúklinga, sem of hljótt er um enn sem komið er, og eru það geðsjúklingar. Heilafrumur hljóta að hafa sama tilverurétt og aðrar frumur líkam- ans. Þess vegna ætti ekki að gera neinn greinarmun á geðsjúkdóm- um og öðrum sjúkdómum, félags- lega séð. Sjálf þekki ég mikið af vel gefnu og menntuðu fólki, sem einhvern tíma á lífsleiðinni hefir þurft að vera á geðdeildum lengri eða skemmri tíma, sumir jafnvel á hverju ári, sem sagt virkir geð- sjúklingar eða óvirkir. Allir þessir sjúklingar ná sér á köflum, sumir hverjir alveg. Margir sjúkl- inganna kvarta undan neikvæðum viðbrögðum fólks, þegar þeir koma út í lífið á ný, og geta heilsu sinnar vegna farið að umgangast fólk og vinna. Er ekki kominn tími til að þessi hópur fái tækifæri til að tjá sig í fjölmiðlunum? Þá gæti margt komið fram í dagsins ljós, sem gæti breytt neikvæðri afstöðu fólks til geðsjúkra og þeim erfið- leikum er þeir eiga við að stríða. Eða vill þjóðin að geðsjúkdómar séu feimnismál? Áhugamaður um geðvernd Sjálfsagt hefðir þú frekar vilj- að, að makker þinn spilaði fjögur hjörtu en gegn gröndunum þrem spilar vestur út spaðakóngi. Þú gefur tvo fyrstu slagina á spaða, tekur þann þriðja en þá þarf að ákveða framhaldið? Auðvitað erum við sammála um, áð ekki fást níu slagir án hjarta- litarins. Og sé þess nokkur kostur það að gerast þannig, að vestur fái ekki slag á litinn, því eðlilegt er, að búast við báðum spöðunum, sem vantar, á hendi hans. Til greina kemur að taka strax á hjartaásinn. Þá fær vestur ekki á kónginn blankan. En það er næst- besta leiðin. Við leitum að þeirri bestu og finnum hana. Spilum lágu laufi á gosann og síðan hjarta frá blind- um. Vestur S. KDG43 H. G76 T. K92 L. 43 Austur S. 975 H. K T. 10754 L. 107652 Og þegar kóngurinn kemur fær austur að eiga slaginn. Þá er fullkomlega tryggt, að vestur fær ekki slag á litinn en við í allt níu. En væri spilið þannig, að austur léti lágt þegar hjartanu var spilað tækjum við á ásinn, spiluðum aftur laufi á blindan og síðan hjarta að drottningunni. Og með því hefðum við gert okkar besta. Ný kapella í Fossvogi VIGÐ hefur verið ný kapella í Fossvogi og annaðist biskup Islands hr. Sigurbjörn Einarsson vígsluna að viðstöddum dóm- prófasti, sr. Olafi Skúlasyni og mörgum prestum Reykjavík.urprófastsdæmis auk ýmissa starfsmanna og gesta. Organisti var Sigurður Isólfsson, sem jafnframt stjórnaði söng. Frá vígslu kapellunnar, biskupinn fyrir altarinu og vigsluvottar til hliðar. Kapellan rúmar allt að 60 manns í sæti og er ætluð til afnota fyrir kistulagn- ingarathafnir og fámennari útfarir. Jafn- framt byggingu hinnar nýju kapellu hafa líkgeymslur verið endurnýjaðar og útbúin hafa verið sérstök herbergi á kirkjuloft- inu fyrir presta og þá sem við þá eiga þar erindi. Ólafur Sigurðsson arkitekt teikn- aði og sá um breytingar þessar og Leifur Breiðfjörð hefur gert steinda glugga í kapelluna. Segir að lokum í frétt frá Kirkjugörðum Reykjavíkur að breytingar þessar stórbæti alla aðstöðu útfararþjón- ustunnar fyrir starfsmenn, presta og þá sem sækja hinar ýmsu athafnir. Nýja kapellan í forgrunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.