Morgunblaðið - 10.04.1980, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
81. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Irakar og Iranir
eigast við í lof ti
9. apríl. AP.
TIL loftbardaga kom yfir landamærum íraks og írans í dag, að því er
íranska sjónvarpið skýrði frá í kvöld. Var sagt að þar hefðu átzt við
írakskar þyrlur annars vegar og írönsk Phantom-þota og þyrlur hins
vegar. Ekki var þess getið að flugvélar hefðu vcrið skotnar niður í
þessari viðureign. en sagt var að fimmtán íranskir „byltingarvcrðir“
hefðu særzt. Að því er næst varð komizt tók stórskotalið þátt í
bardaganum, auk þess sem eldflaugum var beitt.
Ghotbzadeh utanríkisráðherra
írans lýsti því yfir í dag að
íransstjórn hefði ákveðið að ráða
niðurlögum „hinna illu afla í
írak“, eða stjórn Baath-flokksins.
Khomeini trúarleiðtogi sagði í
útvarpsávarpi í dag, að rétttrúaðir
menn í írak og íran myndu sjá til
þess að stjórn Baath-flokksins
fengi makleg málagjöld og verðug-
an samastað, sem væri „ösku-
tunna mannkynssögunnar". Shiit-
ar eru nokkuð öflugir í Irak og
telja kunnugir að Khomeini
mundi veitast auðvelt að æsa þá
gegn stjórn Saddam Husseins.
Flokkur Husseins, Baath, hefur
hin vegar öll ítök í her íraks, en
Sunni-menn eru í í flestum áhrifa-
stöðum í landinu. í útlegð sinni
frá íran var Khomeini lengst af í
Irak.
I Bagdað hefur ekkert verið sagt
um átökin á landamærunum, en
stjórnin þar skýrði frá því í dag,
að afhjúpað hefði verið samsæri
um undirróður. Hópur irakskra
öfgamanna hefði þar átt hlut að
máli, en samsærið hefði þó verið
að undirlagi stjórnarinnar í íran.
Mikil harka er greinilega að
færast í leikinn en að undanförnu
hefur hvað eftir annað komið til
átaka á landamærum ríkjanna.
Um árabil hefur ágreiningur verið
milli Iraks og írans um þrjár
eyjar í mynni Persaflóa, þar sem
nú eru Sameinuðu furstadæmin.
Ghotbzadeh brigzlaði Saddam
Hussein í dag um að vera hand-
bendi Bandaríkjastjórnar, en
hingað til hafa írakar verið álitnir
eindregnustu andstæðingar
Bandaríkjanna í Austurlöndum
ísraelsmenn
inn í Líbanon
Beirút, 9. apríl. AP.
ÍSRAELSKIR hermenn fóru í
brynvörðum bifreiðum yfir suð-
urlandamæri Libanons i dag og
tóku sér stöðu á gæzlusvæði SÞ
við Beit Yahoun og Kounin. sjö
og átta km frá iandamærunum,
að sögn talsmanns friðargæzlu-
sveitanna.
Vestrænir diplómatar
segja að þessi ráðstöfun ísraels-
manna sé grcinilega liður í nýj-
um aðgerðum gegn árásum Pale-
stinumanna yfir landamærin og
hún fylgir í kjölfar skæruliðaár-
ásarinnar á samyrkjubúið Mis-
gaw í Efri-Galíleu í gær þegar
firír ísraelsmenn voru drepnir.
sraelsmenn felldu árásarmenn-
ina, fimm talsins, og sögðu að
þeir hefðu sótt yfir gæzlusvæði
SÞ í Suður-Líbanon.
Diplómatar sögðu að ísraelskir
hermenn hefðu líka verið sendir
til svæðis gæzlusveita frá Ghana,
um 10 km austur af stöðvum á
írska svæðinu. Þetta svæði er
Shakra, 1.5 km inni á svæði SÞ.
Um 100 ísraelskir hermenn virð-
ast vera að koma sér þar fyrir.
10 þúsund Kúbu-
menn leita hælis
Lima, Perú. 9. apríl. AP.
STARFSLIÐI sendiráðs Perú í
Havanna hefur verið f jölgað um
helming til að undirbúa brott-
flutning þeirra tiu þúsund póli-
tísku flóttamanna, sem hafast
við á sendiráðslóðinni. Ekkert
riki hefur boðizt til að taka við
flóttamönnunum, en stjórnarer-
indrekar frá Bóliviu, Kolumbíu,
Equador. Venezuela og Perú
reyna nú í sameiningu að finna
lausn á vanda þessa fólks.
Stjórnir þessara rikja höfðu
gert sér vonir um að Banda-
rikjastjórn féllist á að taka við
þessum andstæðingum komm-
únistastjórnar Castrós Kúbufor-
seta, en embættismenn í Wash-
ington segja að umsóknir þeirra
Kúbumanna, sem fluttir verði
til Perú, verði teknar til athug-
Njósnari til A-Þýzkalands
Berlin, 9. apríl. AP.
IMELDA Verrept, belgísk kona,
sem starfað hefur við vélritun í
aðalstöðvum NATO í Brussel,
hefur flúið til Austur-Þýzkalands
og sótt þar um hæli sem pólitísk-
ur flóttamaður. að því er austur-
þýzka fréttastofan ADN skýrði
frá í dag. Ástæðuna fyrir flóttan-
um sagði fréttastofan þá að
konan „hefði gert sér ljóst hversu
háskaleg stefna NATO væri“, um
leið og sagt var, að hún hefði haft
aðgang að fjölda „leynilegra
áætlana“.
Hóta fjöldamorði verði
Iranir beittir hervaldi
9. apríl. AP.
ÖFGAMENNIRNIR í
sendiráði Bandaríkjanna í
Teheran hóta að myrða
alla gísla sína, 50 að tölu,
og brenna þá til ösku, ef
Bandaríkjastjórn beiti
íran hervaldi. Þessi yfir-
Jan Mayen:
Norðmenn vonlitl-
ir um samkomulag
A..ia n ..í c.z i..„ r„u, i __á • ^ i > _ ! • fi í w
Ósló, 9. apríl. Frá Jan Erik Lauré,
fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSKA sendinefndin,
sem kemur að samninga-
borði í Reykjavík á
mánudaginn, er vondauf
um að samkomulag tak-
ist um fiskveiðilögsögu
og önnur óleyst vanda-
mál varðandi Jan Mayen.
Talið er víst að íslend-
ingar séu reiðubúnir að
fallast á útfærslu Norð-
manna við eyna að því
tilskildu að Norðmenn
fallist á móti á hinar
ýmsu kröfur þeirra. Þess
ar kröfur eru þó svo
víðtækar og óaðgengi-
legar frá sjónarmiði
Norðmanna, að embætt-
ismenn í norska utan-
ríkisráðuneytinu gera
sér litlar vonir um að
samningar takist, að þvi
er heimildamenn Morg-
unblaðsins þar segja.
Sú krafa, sem Norðmönnum
þykir einna sízt aðgengileg, er að
Islendingar fái umráðarétt yfir
öllu landgrunninu utan 12 mílna
landhelgi við eyna. Þá telja þeir
sig ekki geta fallizt á þá tilhögun
að íslendingar taki einir ákvörð-
un um heildarloðnukvóta við Jan
Mayen, en auk þess segja heim-
ildamennirnir í ráðuneytinu að
íslendingar vilji fá helming alls
afla, sem veiðist innan hinnar
norsku fiskveiðilögsögu við eyna.
lýsing kom eftir að banda-
rískir embættismenn létu
að því liggja í dag, að til
greina kæmi að hindra
skipaferðir til írans ef
efnahagslegar og stjórn-
málalegar refsiaðgerðir
Carters forseta bæru ekki
tilætlaðan árangur, þ.e. að
fá gíslana lausa, sem nú
hafa verið á valdi öfga-
mannanna í rúma fimm
mánuði.
Bandaríkjastjórn hefur
farið þess á leit við banda-
menn sína í V-Evrópu og
Japan að þeir styðji refsiað-
gerðirnar, en margt bendir
til þess að slíkur stuðningur
verði fremur í orði en á
borði, en mörg þessara ríkja
eru mjög háð olíukaupum í
íran.
Alsír hefur tekið að sér að
gæta hagsmuna írans í
Bandaríkjunum eftir að
stjórnmáíasambandi hefur
verið slitið, og svissneska
sendiráðið í íran mun gæta
hagsmuna Bandaríkjanna
þar.
Starfsmenn íranska sendi-
ráðsins í Washington eru
komnir til írans, en í sam-
tali við fréttamenn á Heath-
row-flugvelli í morgun sagði
Agah, fyrrum sendiráðu-
nautur, að brottrekstur
sendiráðsfólksins í Wash-
ington mundi engin áhrif
hafa á það hvort gíslunum
yrði sleppt eða ekki.
Flug-
ræningi
til Kúbu
Los Angeles, 9. apríl. AP.
ÞEGAR áhöfnin kom um borð
í Boeing 727 þotu American
Airlines á Ontario-flugvelli í
Kaliforníu skömmu áður en
lagt skyldi af stað til Chicago
hitti hún fyrir vopnaðan
mann, sem krafðist þess að
verða fluttur tii Kúbu án
tafar.
Áhöfnin hafði samband við
flugturn og tókst að koma í veg
fyrir að farþegar kæmu um
borð. Að sögn var flugræning-
inn vanstilltur mjög þar til
eftir flugtak.