Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980
45
irv a
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
orku (sem er enn langt frá því að
vera hættulaus) vegna þess að þær
eiga engar orkulindir.
Islendingar þurfa engu að kvíða
því þeir eiga svo sannarlega of-
gnótt orkulinda og það sem meira
er, okkar orkulindir eru tandur-
hreinar af allri mengun, algerlega
hættulausar og eyðast ekki, þótt
af þeim sé tekið, meðan ár renna
og hiti helst í jarðlögum.
Það er sannarlega með ólíkind-
um að nú skuli vera ríkjandi
stjórn á landi hér, sem lemur í
borðið og neitar þjóðinni enn að
nota okkar miklu orku en leggur
blessun sína yfir hin gífurlegu
olíukaup sem stöðugt hækka í
verði.
Ömurlegt var að hlýða á núver-
andi forsætisráðherra í sjónvarpi
30. marz sl., þar sem hann lýsti því
yfir að fyrirhugaðar erlendar
lántökur, sem heyrst hefir að
verði í ár um 70 milljarðar eða
meira, fari eingöngu í virkjunar-
framkvæmdir, aðallega við
Hrauneyjarfoss. Þó sagði ráðherr-
ann að virkjunin kostaði um 30
milljarða. Þessi upphæð dreifist á
virkjunartímann. Sannleikurinn
er sá, að meginhluti erlends láns-
fjár og öll hin ferlega skattpíning,
sem stjórnin dembir nú yfir lands-
menn, fer að mestu í hið tröll-
aukna ríkisbákn. Opinberir starfs-
menn eru nú um 15 þúsund. Auk
þeirra vinna margir hjá því opin-
bera, sem ekki eru taldir opinberir
starfsmenn. Varlega áætlað vinna
því um 20 þús. manns hjá því
opinbera. Flest vinnur þetta fólk
við ýmiss konar óarðbæra þjón-
ustu. Ef miðað er við þriggja
manna fjölskyldu telur opinbera
báknið 60 þúsund manns, auk þess
gífurleg útgjöld báknsins í hús-
næði og tilheyrandi skriffinnsku-
flóði. Er það ekki einmitt þarna
sem hundurinn liggur grafinn?
Kommúnistar halda því blákalt
fram, að samneyzluna þurfi að
auka sem mest án tillits til þess,
hvort hún er nauðsyn eða ekki.
Utþensla ríkisbáknsins (stofnanir,
nefndir, ráð og starfshópar) kem-
ur í veg fyrir nauðsynlega sam-
neyzlu, svo sem tryggingar og
margs konar aðstoð við þá, sem
standa höllum fæti í þjóðfélaginu.
Hvað gerir heilbrigður maður,
þegar hann sér að tekjur nægja
ekki fyrir gjöldum? Hann gerir
annað hvort eða hvort tveggja að
auka tekjur sínar eða draga úr
neyzlu.
Nú halda kommúnistar því
blákalt fram, að skattpíning á
almenning sé kjarabót. Komma-
drós á Seltjarnarnesi hamaðist út
í ráðamenn þar að þora ekki að
bæta kjörin með skattpíningu.
Hvað skyldi koma næst frá fyrstu
stjórn sósíalista á íslandi og
stuðningsmönnum hennar? Ut-
belging ríkisbáknsins, sem er
númer eitt hjá stjórnvöldum,
ásamt því að drepa niður íslenzka
orkuframleiðslu, veldur því að
lífskjör almennings versna stöð-
ugt. Sá maður er vissulega á
villigötum, sem ekki skilur svo
augljósa staðreynd. Það er sann-
arlega uggvekjandi að Islendingar
skuli nú hafa leyft skattpíningar-
og orkuvillingum í valdastóla.
Ingjaldur Tómasson
Þessir hringdu . . .
• Dagskráin
til skammar
Charlotta Sverrisdóttir
hringdi:
Kæri Velvakandi!
Nú get ég ekki lengur orða
bundist vegna sjónvarpsins, svo
mjög gekk fram af mér á sjálfan
föstudaginn langa. Dagskráin sem
boðið var upp á í sjónvarpinu var
til háborinnar skammar. Klukkan
17.00 var endursýnd myndin
„Komdu aftur Sheba mín“, sem
var sýnd hér fyrir aðeins einu ári
og fjallaði um sálarflækjur og
drykkjuskap. Ekki gat ég hugsað
mér að sjá hana aftur, því ég man
enn hvað mér leiddist hún. Síðan
byrjuðu fréttir kl. 20 og kl. 20.15
las þulurinn dagskrána. Þar var
r
Umsjón:
Margeir Pétursson
í níu landa keppni í Berlín fyrir
stuttu kom þessi staða upp í skák
þeirra Hoi, Danmörku, sem hafði
hvítt og átti leik, og Van Baarle,
Hollandi. Hvítur hefur þegar
fórnað manni, en lét ekki þar
staðar numið.
24. Hxe5! (Enn öflugra framhald
en 24. Hf8 - Kxe7, 25. Hxh8 -
Rd7) dxe5, 25. Re4 — Rc6, 26.
BÍ5+ - Ke8, 27. Rd6 mát. Röð
efstu þjóðanna varð þessi: 1.
England 23'/z v. 2. V-Þýzkaland
23% (lægri á stigum) 3. Danmörk
19 v. 4. Frakkland 16% v.
boðið upp á tvo dagskrárliði,
„Réttað yfir Jesú Kristi" og þar
var sýnt frá fangabúðum nasista
og síðan var í lokin leikritið
Machbeth.
Ég hef komið inn í einar fanga-
búðir nasista í Þýzkalandi,
Auchswitz og ég hef líka séð
Machbeth áður og mig minnir líka
að það hafi einnig verið í sjón-
varpinu áður. Þvílíkan hrylling af
drápum og morðum á börnum og
konum hef ég aldrei séð áður og
hraus mér því hugur við að horfa
á dagskrána á föstudaginn langa,
því síður gat ég leyft börnum
mínum að horfa á þessi morð og
slökkti ég því á sjónvarpinu kl.
20.15. Ég hafði því kveikt á tækinu
í 15 mínútur af allri dagskránni.
Þetta er kvöld sem allir eru heima
hjá sér og hafa gjarnan hugsað sér
að horfa á dagskrána, en það var
bara ekki hægt, vegna þess hversu
ljót hún var. Hefði nú ekki verið
hægt að hafa einhverja fallega
fjölskyldumynd, sem fjölskyldan
hefði getað horft á saman eða er
það of gamaldags að sýna mynd,
sem er laus við ádeilur og morð?
Allir þeir, sem ég hef talað við,
höfðu ekki löngun til að horfa á
dagskrána frekar en ég. Ég vil því
undirstrika það að á þessum degi
var dagskráin sjónvarpinu til
skammar.
HÖGNI HREKKVISI
© i*o
McNaught Synd , Ii
Auglýsing
um aöalskoöun bifreiða í Hafn-
arfiröi, Garöakaupstaö, á Sel-
tjarnarnesi og í Kjósarsýslu í
apríl, maí, júní og til 4. júlí 1980.
Skoðun fer fram sem hér segir:
Mosfells-, Kjalarnes og Kjósarhreppur:
Mánudagur 14. apríl
Þriðjudagur 15. apríl
Miðvikudagur 16. apríl
Fimmtudagur 17. apríl
Skoðun fer fram við Hlégarð í Mosfellshreppi.
Seltjarnarnes:
Mánudagur 21. apríl
Þriöjudagur 22. apríl
Miðvikudagur 23. apríl
Skoðun fer fram við rþróttahúsið.
Hafnarfjörður, Garðakaupstaður og Bessastaða- hreppur:
Mánudagur 28. apríl G- 1 til G- 150
Þriðjudagur 29. apríl G- 151 til G- 300
Miðvikudagur 30. apríl G- 301 til G- 450
Föstudagur 2. maí G- 451 til G- 600
Mánudagur 5. maí G- 601 til G- 750
Þriðjudagur 6. maí G- 751 til G- 900
Miðvikudagur 7. maí G- 901 til G-1050
Fimmtudagur 8. maí G-1051 til G-1200
Föstudagur 9. maí G-1201 til G-1350
Mánudagur 12. maí G-1351 til G-1500
Þriðjudagur 13. maí G-1501 til G-1650
Miðvikudagur 14. maí G-1651 til G-1800
Föstudagur 16. maí G-1801 til G-1950
Mánudagur 19. maí G-1951 til G-2100
Þriðjudagur 20. maí G-2101 til G-2250
Miðvikudagur 21. maí G-2251 til G-2400
Fimmtudagur 22. maí G-2401 til G-2550
Föstudagur 23. maí G-2551 til G-2700
Þriðjudagur 27. maí G-2701 til G-2850
Miðvikudagur 28. maí G-2851 til G-3000
Fimmtudagur 29. maí G-3001 tn G-3150
Föstudagur 30. maí G-3151 til G-3300
Mánudagur 2. júní G-3301 til G-3450
Þriðjudagur 3. júní G-3451 til G-3600
Miðvikudagur 4. júní G-3601 til G-3750
Fimmtudagur 5. júní G-3751 til G-3900
Föstudagur 6. júní G-3901 til G-4050
Mánudagur 9. júní G-4051 til G-4200
Þriðjudagur 10. júní G-4201 til G-4350
Miðvikudagur 11. júní G-4351 til G-4500
Fimmtudagur 12. júní G-4501 til G-4650
Föstudagur 13. júní G-4651 til G-4800
Mánudagur 16. júní G-4801 til G-4950
Miðvikudagur 18. júní G-4951 til G-5100
Fimmtudagur 19. júní G-5101 til G-5250
Föstudagur 20. júní G-5251 til G-5400
Mánudagur 23. júní G-5401 til G-5550
Þriðjudagur 24. júní G-5551 til G-5700
Miðvikudagur 25. júní G-5701 til G-5850
Fimmtudagur 26. júní G-5851 til G-6000
Föstudagur 27. júní G-6001 til G-6150
Mánudagur 30. júní G-6151 til G-6300
Þriðjudagur 1. júlí G-6301 til G-6450
Miövikudagur 2. júií G-6451 til G-6600
Fimmtudagur 3. júlí G-6601 til G-6750
Fö&tudagur 4. júlí G-6751 til G-6900
Skoöun fer fram við Suðurgötu 8, Hafnarfirði.
Skoðun fer fram frá kl. 8.15—12.00 og 13.00—
16.00 á öllum skoöunarstöðum.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu
fylgja bifreiöum til skoðunar. Við skoöun skulu
ökumenn bifreiöanna leggja fram fullgild ökuskír-
teini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur
og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Athygli
skal vakin á því að skráningarnúmer skulu vera
læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoöunar
á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferöarlögum og bifreiðin tekjn úr
umferð hvar sem til hennar næst.
Hlé verður gert á bifreiðaskoðun í þessu umdæmi
frá 4. júlí n.k. og verður framhald skoðunar auglýst
síöar.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirdi,
Gardakaupstað og á Seltjarnarnesi.
Sýslumadurinn í Kjósarsýslu,
8. apríl 1980.
Einar Ingimundarson.
»V4MMnMl flttMaMfcMRtía
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
augi.vsinga
SÍMINN ER:
22480