Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980
Skólaskákmót S-Múlasýslu:
Unnu alla and-
stæðinga sína
Skólaskákmót S-Múlasýslu
1980 var haldið á Eskifirði 15.
mars s.l. Kcppt var í eldri flokki,
7.-9. bekk og yngri flokki,
1,— 6. bekk. í eldri flokki voru
keppendur 10 frá 7 skólum í
sýslunni.
Skólaskákmeistari varð Þor-
valdur Logason. Ncskaupstað,
sigraði alla andstæðinga sína 9
að tölu.
Röð efstu manna:
Vinningar
Þorvaldur Logason, Nesk. 9
Magnús Steinþórsson, Egilss. 8
Óskar Bjarnason, Nesk. 6
Guðjón Antoníuss. Eiðum 6
í yngri flokki voru keppendur 9
' frá 5 skólum. Hermann Hlöðvers-
son, Eskifirði, varð skólaskák-
meistari, sigraði alla andstæðinga
sína.
Röð efstu manna:
Vinningar
Hermann Hlöðversson, Eskif. 8
Hlynur Áskelsson, Eskif. 5
Helgi Hansson, Nesk. 5
Stefán Guðjónsson, Stöðvarf. 5
Tveir efstu menn í hvorum
flokki halda áfram í Kjördæmis-
mót sem haldið verður í apríl. Þar
verða einnig meðal keppenda 2 úr
A-Skaftafellssýslu og 2 úr
N-Múlasýslu. Sigurvegari í Kjör-
dæmismóti vinnur sér rétt til
þátttöku i landsmóti þar sem
keppt verður um titilinn Skóla-
skákmeistari íslands.
Við upptöku á fimmtudagsleikriti útvarpsins; leikstjórinn, Stefán Baldursson, er lengst til hægri á
myndinni. Ljósm. Kristján Einarssun.
Mars-hefti Heima
er best komið út
Flutt af leiklistanemum
ÚT ER komið mars-hefti tíma-
ritsins Heima er bezt. sem er
þjóðlegt heimilisrit og kemur út
mánaðarlega.
Meðal efnis er forsíðuviðtal við
Soffíu Gísladóttur frá Hofi í
Svarfaðardal, frásögn eftir Svein
48 fórust
Mexico-borg, 8. apr. AP.
FJÖRTÍU og átta manns létust á
þriðjudag þegar fólksflutningabíll
á leið frá Tijuna til Mexicoborgar
fór út af veginum og þeyttist niður
grýtta fjallshlíð og niður í á.
Þrjátíu og sex manns slösuðust, þar
af sumir alvarlega.
Einn þeirra sem komust af sagði
að alltof margir farþegar hefðu verið
í vagninum og bílstjórinn keyrt mjög
ógætilega.
frá Elivogum ásamt mörgum öðr-
um frásögnum, ljóðum, fram-
haldssögu, bókadómum og fleiru.
í hverju hefti Heima er bezt eru
kynntar bækur sem meðlimum
Bókaklúbbs Heima er best stendur
til boða að kaupa á sérstöku
tilboðsverði. í mars-heftinu eru
tvær bækur boðnar saman á 5000
krónur, en þær eru Um margt að
spjalla eftir Valgeir Sigurðsson og
Maðurinn frá Moskvu eftir Gre-
ville Wynne. Bækur þessar fást
aðeins hjá Bókaklúbbi Heima er
bezt, eins og gildir reyndar fyrir
allar bækur sem þar eru á boðstól-
um.
Utgefandi Heima er bezt er
Bókaforlag Odds Björnssonar á
Akureyri, ritstjóri er Steindór
Steindórsson frá Hlöðum og
blaðamaður Guðbrandur Magn-
ússon.
I kvöld, fimmtudags-
kvöldið 10. apríl klukkan
20.30 verður í útvarpi leik-
ritið „Börn mánans"
(Cancer) eftir Michael
Weller. Þýðinguna gerði
Karl Ágúst Ulfsson, en
leikstjóri er Stefán Bald-
ursson. Nemendur úr
Leiklistarskóla íslands
fara með öll stærstu hlut-
verkin. Meðal leikenda
eru: Jóhann Sigurðsson,
Karl Ágúst Úlfsson, Guð-
jón Pedersen, Guðmundur
Ólafsson, Hanna María
Karlsdóttir og Sigrún
Edda Björnsdóttir.
Tæknimaður er Friðrik
Stefánsson. Flutningur
leiksins tekur rúmar 100
mínútur.
Leikritið fjallar um
ungt fólk í leiguíbúð í New
York á tímum Viet-
namstríðsins. Þar ríkja
ekki viðteknar skoðanir á
málum líðandi stundar,
þar er frjálsræði í ástum,
og sameiginleg er óbeitin
á öllum valdsmönnum,
hverju nafni sem þeir
nefnast. En þrátt fyrir
alvarlegan undirtón,
bregður víða fyrir glettni
og léttleika, enda kallar
höfundur verk sitt gam-
anleik.
Michael Weller er
bandarískur, en verk hans
vöktu fyrst athygli á sviði
í Englandi, og þar var líka
„Börn mánans“ frumsýnt
sumarið 1970. Af öðrum
leikritum hans má nefna
einþáttungana „Now
There’s Just the Three of
us“, „The Bodybuilders"
og „Grant’s Movie“.
Útvarp ReykjaviK
FÖSTUDM3UR
11. apríl
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Jón Gunnarsson heldur
áfram að lesa söguna „Á
Ilrauni" eftir Bergþóru Páls-
dóttur frá Veturhúsum (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. 9.15 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðúr-
fregnir.
10.25 „Ég man ])að enn“. Um-
sjónarmaður þáttarins:
Skeggi Ásbjarnarson. Sagt
írá Ilalldóri Vilhjálmssyni
skóiastjóra á Ilvanneyri og
skólanum þar.
11.00 Morguntónleikar.
Shmuel Ashkenasi og Sinfón-
íuhljómsveitin í Vín leika
Fiðlukonsert nr. 1 í D-dúr
op. 6 eftir Noccoló Paganini;
Heribert Esser stj. / Suisse
Romande-hljómsveitin leikur
„Le Carnaval", balletttónlist
op. 9 eftir Robert Schumann;
Ernest Ansermet stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikasyrpa. Dans- og dægur-
lög og léttklassísk tónlist.
14.30 Miðdegissagan: „Helj-
arslóðarhatturinn" eftir
Richard Brautigan. Hörður
Kristjánsson þýddi. Guð-
björg Guðmundsdóttir les
(4).
15.00 Popp. Vignir Sveinsson
kynnir.
15.30 Lesin dagskrá næstu
viku. 15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
SÍDDEGID
16.20 Litii barnatíminn.
Heiðdís Norðfjörð stjórnar
barnatíma á Akureyri.
16.40 Útvarpssaga barnanna:
„Glaumbæingar á ferð og
flugi" eftir Guðjón Sveins-
son. Sigurður Sigurjónsson
les (9).
17.00 Síðdegistónleikar. James
Galway og Konunglega fíl-
harmoníusveitin í Lundún-
um leika Sónötu fyrir flautu
og hljómsveit eftir Francis
Poulenc í útsetningu eftir
Berkeley; Charles Dutoit stj.
/ Leontyne Price og Placido
Domingo syngja óperudúetta
eftir Verdi / Sinfóníuhióm-
sveit íslands ieikur Rapsód-
íu op. 47 fyrir hljómsveit
eftir Hallgrím Helgason;
Páll P. Pálsson stj.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Víðsjá. 19.45 Til-
kynningar.
20.00 Sinfónískir tónleikar.
Sinfóníuhljómsveitin í
Malmö leikur. Einleikarar:
Einar Sveinbjörnsson, Ing-
var Jónasson, Hermann Gib-
hardt og Ingemar Pilfors;
Janos Fiirst stj.
a. Konsertsinfónía eftir Hild-
ing Rosenberg.
b. „Hnotubrjóturinn", ball-
ettsvíta eftir Pjotr Tsjaí-
kovský.
20.45 Kvöldvaka.
a. Einsöngur: Margrét Egg-
ertsdóttir syngur lög eftir
SKJANUM
FÖSTÚDAGUR
11. april
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Augiýsingar og
dagskrá.
20.40 Sjaldan er ein báran
stök s/h.
Syrpa úr gömlum gaman-
myndum með Stan Laurel
og Oliver Hardy (Gög og
Gokke).
Sýndar eru myndir, sem
gerðar voru meðan Laurei
og Hardy léku hvor í sínu
lagi, þá er fjallað um upp-
haf samstarfsins og sýnt,
V
hvernig persónur þeirra
taka á sig endaniega mynd.
Margir kunnir leikarar frá
árum þöglu myndanna
koma við sögu'. m.a. Jcan
Ilarlow, Chariie Chase og
Jimmy Finlayson.
Þýðandi Björn Baldursson.
22.15 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Omar
Ragnarsson fréttamaður.
23.15 Skonrok(k).
Þorgeir Ástvaldsson kynn-
ir vinsæl dægurlög.
23.45 Dagskrárlok.
Sigfús Einarsson. Guðrún
Kistinsdóttir leikur á píanó.
b. Á aldamorgni í Hruna-
mannahreppi. Síðara samtal
Jóns R. Hjálmarssonar við
Helga Haraldsson á Hrafn-
kelsstöðum.
c. Heimur í sjónmáli — og
handan þess. Torfi Þor-
steinsson í Haga f Hornafirði
segir frá Þinganesbændum á
19. öld og hestum þeirra.
Kristín B. Tómasdóttir les
frásöguna. I tengslum við
þennan lið verður lesið Ijóða-
bréf Páls Ólafssonar til Jóns
Bergssonar í Þinganesi.
d. Haldið til haga. Grímur M.
Helgason forstöðumaður
handritadeildar landsbóka-
safnsins segir frá Jóni Jóns-
syni á Þórarinsstöðum í
Seyðisfirði; síðari hluti.
e. Kórsöngur: Karlakórinn
Geysir syngur. Söngstjóri:
Ingimundur Árnason.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.40 Kvöldsagan: „Oddur frá
Rósuhúsi". Nokkrar stað-
reyndir og huglciðingar um
séra Odd V.Gíslason og
lífsferil hans eftir Gunnar
Benediktsson. Baldvin Hall-
dórsson leikari byrjar lestur-
inn._
23.00 Áfangar. Umsjónar-
menn: Ásmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.