Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 r Síminn á afgreiðslunni er 83033 Skattstiginn: 50% markið við 7 millj. FJÁRHAGS- og viðskipta- nefndir Alþingis fjalla á fund- um árdegis í dag um tillögur að tekjuskattstigum, sem fela í sér 25% skatt af fyrstu 3 milljónunum, 35% skatt af næstu 4 milljónum og 50% skatt af skattgjaldstekjum yfir 7 milljónir. Tillögurnar hljóða upp á 515 þúsund króna persónuafslátt og 150 þúsund krónur í barnabætur með fyrsta barni hjóna og 220 þúsund með öðru barni og fleirum, en barnabætur með börnum einstæðra foreldra verði 270 þúsund krónur. Hertir þorsk- hausar þykja herramannsmat- ur í Nígeríu Margir voru á ferð og flugi um landið á páskunum og m.a. voru notaðar þotur Flugleiða í innanlandsflugið, en þessa sérkennilegu mynd tók einn af ljósmyndurum Morgunblaðsins, Ragnar Axelsson, úr flugvél yfir Reykjavík af flugvél frá Leiguflugi Sverris. Sveitarfélög undir meirihlutastjórn sjálfstæðismanna: Hækka ekki útsvör FYRIR nokkru voru gerðir samningar um sölu á 20 þús- und pokkum af hertum þorsk- hausum héðan til Nígeríu. Verðmætið cr um 650 milljónir króna og þess má geta. að þorskhausarnir þykja hcrra- mannsmatur í Nígeríu. Mikill munur er á því verði, sem fæst fyrir þorskhausana, eftir því hvort þeir fara í bræðslu eða herzlu og lætur nærri að 16 sinnum meira fáist fyrir þorskhausana herta og er þá miðað við rýrnun vegna þessar- ar vinnsluaðferðar. Þá var fyrir nokkru gengið frá samningum um sölu á 10 þúsund pökkum af smáfiski til Nígeríu, þ.e. loðnu, spærlingi og kol- munna. Liðlega 620 milljónir króna fást fyrir þessar afurðir samkvæmt þessum samningi, en í samningagerðinni var Þör- ungaverksmiðjan á Reykhólum sérstaklega höfð í huga og þar hefur þurrkun á loðnu undan- farið verið í fullum gangi. Það eru Sjávarafurðadeild Sam- bandsins og Samlag skreiðar- framleiðenda, sem standa að þessum samningum. Óákveðið hvort Reykjavíkurborg hækkar útsvarið, segir Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgarfulltrúi „í ÞEIM bæjarfélögum, þar sem sjálfstæðismenn hafa hreinan meirihluta, mun að óbreyttu ástandi efnahagsmála hvergi verða nýtt hámark nýleyfðra útsvarshækkana,“ segir Magnús Erlendsson forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. I greininni segir Magnús, að í þessu máli megi sjá, að nú séu að verða afar skörp skil á milli vinstri manna annars vegar og sjálfstæðismanna hins vegar. A sama tíma og yfir þjóðina dynji nýir skattar næstum daglega vilji sjálfstæðismenn fara aðrar leiðir og sýni það í verki í þeim sveitarfélögum þar sem þeir hafa meirihluta. Þau sveitarfélög, sem Magnús á hér við, eru Mosfells- sveit, Garðabær og Seltjarnarnes, en í þeim öllum hafa sjálfstæð- ismenn hreinan meirihluta. Morgunblaðið sneri sér í gær til Sjafnar Sigurbjörnsdóttur, borg- arfulltrúa Alþýðuflokksins í Reykjavík, og spurði hana hvort hún teldi Reykjavíkurborg þurfa að hækka útsvarið í 12,1% úr 11%. Sjöfn kvaðst ekkert geta um það sagt fyrr en liði að helgi og búið væri að vinna fjárhagsáætlun borgarinnar endanlega. Enn væri hins vegar ekki búið að taka neina ákvörðun um það hvort útsvarið yrði hækkað og of snemmt að segja af eða á um það nú. Árni Grétar Finnsson, einn bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins í Hafnarfirði, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að ekki væri búið að ákveða hvort 12. prósentustigið yrði nýtt í Hafnar- firði, ekki hefði unnist tími til að fara ofan í þau mál eftir að fjárlagafrumvarpið var samþykkt á Alþingi fyrir páska. Árni sagði hins vegar, að þegar fjárhagsáætl- unin hefði verið lögð fram á sínum tíma, hefði aðeins veið gert ráð fyrir 11% útsvari. Þá sagði Árni, að minna mætti á að Hafnarfjarð- arbær hefði á sínum tíma ákveðið að veita 10% afslátt af fasteigna- gjöldum og nýtti þann tekjustofn því ekki til fulls. Meirihluta bæj- arstjórnar Hafnarfjarðar mynda sjálfstæðismenn og óháðir borgar- Rotterdammarkaður: Enn frekari lækkan- ir á bensíni og olíu ENN frekari lækkanir hafa orðið á skráðu verði á bensíni og olíu á Rotterdammarkaði að undanförnu, samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér í Framleiðsla frystihúsa SH 18% meiri en í fyrra Aukning birgða mun meiri en fram- leiðsluaukningin 3 fyrstu mánuði ársins VERULEG framleiðsluaukning varð hjá frystihúsum innan Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna fyrstu þrjá mánuði þessa árs miðað við sama tímahil í fyrra. Aukningin í framleiðslu þorskaf- urða nam 36% á milli ára. Frystihúsin liggja nú með um- talsverðar birgðir og miðað við þrjá fyrstu mánuði þessa árs og sama tímabil í fyrra er um 65% aukningu birgða að ræða hjá húsunum. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson for- stjóri SH sagði í gær, að fram- leiðslan þrjá fyrstu mánuði þessa árs hefði verið 27.300 tonn á móti 23 þúsund tonnum á sama tíma í fyrra. Er því um 18% framleiðslu- aukningu að ræða í heild, en að vísu eru loðnuafurðirnar ekki inni í þessari mynd. Aukningin í fram- leiðslu þorskafurða er hins vegar 36% þannig að aukningin er öll í þorski og rúmlega það. Birgðir voru um síðustu mánaðamót 17.700 tonn, en voru 10.700 í lok marzmánaðar í fyrra. Aðspurður um hverju þessi birgðaaukning sætti sagði Eyjólf- ur, að þar væri fyrst og fremst að nefna framleiðsluaukninguna, en einnig hefði mikið að segja hvor- um megin við mánaðamót afskip- anir lentu. Einnig mætti nefna að lítið hefði verið selt af frystum fiski til Englands síðastliðna tvo mánuði. Fyrst og fremst væri birgðaaukningin þó vegna þess að framleiðsluaukningin væri öll í sömu tegundinni. Eyjólfur var spurður hvort gætt hefði söluerfiðleika á Bandaríkja- markaði. — í sjálfu sér er ekki hægt að tala um söluerfiðleika, en hins vegar hljóta að vera takmörk fyrir því hve mikla aukningu er hægt að setja á markaðinn á einu ári án þess að það hafi áhrif, sagði Eyjólfur. Þarna er um 36% aukn- ingu að ræða í þorski og það eru hvorki meira né minna en 5 þúsund tonn á þremur mánuðum. Það sem þó skiptir eðlilega mestu máli í þessu er hver heildarfram- liðslan verður á árinu, sagði Eyj- ólfur ísfeld Eyjólfsson. gær. Hinn 3. apríl var skráð verð á bensíni 341 dollar hvert tonn og hafði lækkað um u.þ.b. 35 dollara á hálfum mánuði. Þeg- ar bensínverð var hæst í fyrra fór það í 412,5 dollara. Skráð verð á gasolíu var 278 dollarar 3. apríl og hafði lækkað um u.þ.b. 20 dollara á hálfum mánuði. Þegar gas- olíuverð var hæst í fyrra fór það í 395 dollara hvert tonn. Skráð verð á svartolíu var 145 dollarar 3. apríl sl. og hafði verið svipað um nokkra hríð. Þær bensínbirgðir, sem fljótlega fara í sölu hér inn- anlands, eru keyptar á nokkru hærra verði en nú er gildandi eða á um 378 dollara hvert tonn. Þá er þess að geta að talsvert gengissig hefur verið að undanförnu en greiðslu- frestur sem Sovétmenn og Portúgalir veita vegna olíu- kaupa eru 105 dagar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.