Morgunblaðið - 10.04.1980, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 10.04.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 11 lífi sínu rétti hann fram arminn í Nazistakveðju. Þetta var óhugn- anlegt. Ég snerist á hæl og hljóp að útgöngudyrunum þar sem verðirnir hímdu. En ég dvaldi ekki lengi þar, því ég bjóst við að Hitler myndi á hverri stundu binda endi á líf sitt. Ég skundaði í fordyri skrifstofunnar og fann þar púðurlykt. Það hafði þá þegar gerzt. Þótt ég væri við öllu búinn, gat ég ekki fengið mig til þess að fara einn inn í herbergið. Ég gekk í setustofuna, þar sem menn höfðu safnazt saman um Martin Bormann. Ég gaf Bormann merki og bað hann að fylgja mér inn til Hitlers. Ég opnaði dyrnar, og við gengum inn. Hann fölnaði og starði hjálparvana fram fyrir sig. Á legubekknum sátu Hitler og Eva Braun. Þau voru andvana. Hitler hafði skotið sig í gagnaug- að með 7.65 mm skammbyssu sinni. Bæði hún og 6.35 mm skammbyssa, sem hann hafði til vara, lágu á gólfinu. Höfuð hans sneri örlítið til veggjar, og blóð háfði dropið á gólfteppið. Honum á hægri hönd sat kona hans. Hún hafði dregið að sér fæturna. Krampakenndir andlitsdrættirn- ir báru vitni um að hún hefði fyrirfarið sér á blásýru. Askjan sem eitrið hafði verið í var á borðinu. Ég ýtti henni til hliðar til þess að fá svigrúm. Meðan Bormann fór fram til þess að sækja burðarmenn sveipaði ég líkin ullarteppum. Þegar Rússarnir yfirheyrðu mig, mundi ég eftir því að ég hafði alls ekki horft framan í Hitler, og vissi því ekki hvar kúlan hafði hæft hann. Mér var það efst í huga að forða mér sem fljótast. Fyrst báru menn Evu Hitler út. Bílstjóri Hitlers, Erick Kempka, bar hana í fanginu, en varð að láta annan taka við, af því að hann gat ekki valdið henni. Ég tók undir höfuðið á Hitler, og tveir liðsforingjar báru líkam- ann vafinn inn í teppi út úr byrginu. Við lögðum líkama hans við hliðina á líkama Evu, rétt við innganginn. Við helltum bensíni yfir þau og reyndum að kveikja í úr nokkurri fjarlægð. Það reynd- ist ómögulegt vegna sogsins sem myndaðist við eldhafið allt um kring. Stórskotahríð Rússanna gerði það ennfremur að verkum Hinztu leifar Hitlers og Evu Braun geymdu Rússarnir í þessari kistu. Sérfræðingar rannsökuöu leifarnar, en skýrsla frá þeim hefur aldrei verið birt. að ómögulegt var að komast að líkunum. Þá gekk ég inn og bjó til skutlu úr fréttatilkynningum sem Hitler voru ætlaðar. Bor- mann kveikti í skutlunni, og ég kastaði henni að líkama Hitlers sem stóð samstundis í ljósum loga. Við hófum að lokum hand- legginn að Nazistasið í hinztu kveðju. Síðan héldum við aftur inn í loftvarnarbyrgið. Fyrst Hitler hafði falið mér að brenna allar persónulegar eigur sínar, gat ég ekki skipt mér af líkunum frekar, en það logaði ennþá í þeim um hálfáttaleytið. Ég brenndi gólfteppið með blóðinu, einkennisbúning Hitlers, og lyfin fóru sömu leið. Tveimur dögum síðar var ég tekinn til fanga af Rússunum. Um 150 manns sóttu skemmtunina. F élagslíf aldraðra á Suð- urnesjum í miklum blóma Gardi. 31. marz. MIKILL fjöldi aldraðs fólks eða nálægt 150 manns voru saman komin i samkomuhúsinu sl. laug- ardag. Það var Styrktarfélag aldraðra á Suðurnesjum sem stóð fyrir skemmtuninni en alls eru haldnar sex slíkar skemmtanir á vetri hverjum. Scrstakt félag er starfrækt hér i Garðinum, Styrktarfélag aldraðra í Garði, og eru í því um 60 meðlimir. Stendur það fyrir ýmsum skemmtunum til að stytta gamla fólkinu stundir og sá það einnig um skemmtunina scm fram fór sl. laugardag. Skemmtunin hófst með því að þrjár ungar stúlkur spiluðu á blokkflautur en síðan bauð sókn- arpresturinn, sr. Guðmundur Guðmundsson, fólkið velkomið og hélt stutta tölu. Þá voru bornar fram veitingar og á meðan á þeim stóð sungu innansveitarmenn nokkur lög við harmoniku- og gítarundirleik. Þá var farið með stuttan leikþátt sem fólkið hafði mjög gaman af. í lokin kom Rútur Hannesson með harmonikkuna og var stiginn dans. Síðasta skemmtun gamla fólks- ins verður vorfagnaður 26. apríl í Grindavík. í sumar mun styrktarfélag aldraðra gangast fyrir sólarferð til Porto Roz og verður lagt af stað 22. maí. Þá eru fyrirhugaðar ferðir innanlands. Éinnig eiga nokkrir kost á því að dvelja á Löngumýri í Skagafirði í júní í sumar. Arnór. Þessar ungu dömur spiluðu fyrir gamla fólkið. Skeggrætt yfir kaffibolla. Dansinn dunar. Ljósm. Arnór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.