Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 Olíugjald til fiskiskipa: Vandi veiða og vinnslu Matthias Bjarnason Pétur Sigurðsson Umræður um lækkun olíugjalds til fiskiskipa var fram haldið í gær í neðri deild Alþingis, en þeim þurfti að fresta í önnum þin&s á síðasta starfsdegi fyrir páskahlc. Þingmenn stjórnarandstöðu gerðu harða hríð að formönnum þingflokka Alþýðuhandalags og Fram- sóknarflokks, sem fullyrt höfðu í Tíma og Þjóðvilja, að málþóf hefði tafið framgang þingmála á síðustu starfsdögum fyrir páska. Bæði á mánudag og þriðjudag í vikunni fyrir páska hefði þurft að fresta þingfundum, þvívegis hvorn daginn um sig, vegna beiðni stjórnar- liða, sem ekki höfðu samstöðu um mál sín. Síðan hafi verið ætlast til að mál væru afgreidd án umræðna eða þinglegrar meðferðar. Hér á eftir er lauslega rakinn efnisþráður úr þingræðum Matthíasar Bjarnasonar og Péturs Sigurðssonar við 1. umræðu málsins. Staða fiskvinnslu og fiskveiða Matthias Bjarnason (S) sagði í umræðu um olíugjald á Alþingi að staða fiskveiða og fiskvinnslu kæmi m.a. fram í vanskilum við Fiskveiðasjóð og Byggðasjóð. Heildarvanskil um áramót við Fiskveiðasjóð einan hafi nálgast 7700 milljónir króna, auk vaxta og dráttarvaxta. Heildarvanskil við Byggðasjóð vóru hvorki meira né minna en rúmlega einn milljarður króna — og vextir í vanskilum án dráttarvaxta vóru um 600 m.kr. Þegar vanskil við Fiskveiðasjóð verða öll fram komin, vextir og dráttarvextir, hugsa ég að ekki verði fjarri að þau fari hátt í 14 milljarða króna. Fiskverð MBj sagði forsætisráðherra hafa orðið á í messunni er hann sagði hraðfrystiiðnaðinn það vel í stakk búinn að hann þyldi kostn- aðarauka án bóta. Og viðskipta- ráðherra hefur orðið sér til stór- skammar vegna gagnstæðra yfir- lýsinga og framkvæmdar í gengis- ákvörðunum. Almennar launabætur 1. marz sl. urðu 6.67%. Sjómenn töldu sig eiga rétt á samskonar verðbótum — enda búa þeir við sömu verð- bólgu og aðrir. Skiptaverð til sjómanna hækkaði hins vegar um 4%. Hlutur útgerðar í fiskverði hækkar um 0.6% — það er allt og sumt. Nú spyr ég sjávarútvegsráð- herra, sagði MBj, hvort hann telji þetta nægja til að útgerðin geti staðið undir öllum tilkostnaðar- hækkunum, m.a. vegna áhrifa gengislækkunar á verð erlendra aðfanga og gengistryggðra skuld- bindinga? Og telur hann ekki að sjómenn eigi sama rétt og aðrir landsmenn í verðbótum á laun? MBj sagði að þessi fiskverðs- hækkun flytti vanda fiskvinnsl- unnar yfir á útgerðina. Vegna launahækkana 1. marz vegna gengissigs, sem senn yrði 8%, breyttist afkoma útgerðarinnar nú úr 1% hagnaði í 4% tap af veltu. Þetta er því hressilegt spor aftur á bak. Og þetta er „niður- talning" sem vægi hefur. Samkomulagi rift MBj vitnaði til bókunar fulltrúa útgerðarinnar í verðlagsráði sjáv- arútvegsins: „Þegar fiskverð var ákveðið 24. janúar sl. var samkomulag um að olíugjald yrði 5% allt árið 1980. Og það staðfest með lagasetningu á Alþingi með samhljóða atkvæðum. ... Með þessari ákvörðun er því samkomu- lagi rift af oddamanni yfirnefndar að kröfu ríkisstjórnarinnar. Samningar við ríkisstjórn virðast ekki halda, þó bundnir séu af lögum. Lækkun á olíugjaldi úr 5% i 2'A% lækkar tekjur útgerðarinn- ar um 3000 m.kr. á ári. MBj sagði stjórnvöld vera að ganga á bak orða sinna í þessum efnum. Sumum sé máske sama um, hvort efnd séu orð gefin útgerðarmönnum og sjómönnum, en það hljóti þó að vera hagur ríkissjóðs ekki síður en almenn- ings að haldið verði uppi eðlilegri framleiðslu í landinu og hjól atvinnulífsins snúist. Ríkisstjórn- in „veður áfram í villu og svima. Hún getur ekki sagt satt frá degi til dags eins og gengisyfirlýsingar hæstvirts viðskiptaráðherra vitna um. Þetta frumvarp er eitt af mörgum svikum við atvinnulífið og varnarræða sjávarútvegsráð- herra er rökleysa. Þetta fiskverð er ákveðið af minnihluta yfir- nefndar og í fullri andstöðu við útgerðina almennt í landinu, sjó- mannastéttina og meginhluta fiskvinnslunnar." Fiskimenn sviknir Pétur Sigurðsson (S) sagði fiskimenn hafa verið svikna, hvað viðvéki „félagsmálapakka" fyrri vinstri stjórnar. Sú millifærsla Frumvarp sjálfstæðismanna: Hlutfallskosning- ar í stéttarfélögum Pétur Sigurðsson, Matthías Bjarnason, Steinþór Gestsson, Eggert Haukdal, ólafur G. Einarsson og Sverrir Hermannsson hafa lagt fram á Aiþingi frumvarp til laga um hlutfallskosningu innan stéttarfélaga með 300 félagsmenn eða fleiri til stjórnar- og trúnaðarstarfa. við kosningu fulitrúa til landssambandsþinga og þinga heildarsamtaka, ef 1/5 hluti félagsmanna krefst þess. Við kjör stjórna á iandssambandsþingum og á þingum heildarsamtaka skal viðhafa hlutfallskosningu. í greinargerð segir m.a.: „Sú lýðræðiskrafa hefur lengi verið uppi, að hlutfallskosningar verði teknar upp í stéttarfélög- um. Hafa frumvörp í þá átt verið borin fram á Alþingi. Nú nýlega hefur þessi kráfa verið ítrekuð. Á fundi verkalýðsráðs Sjálf- stæðisflokksins, sem haldinn var að Hellu á Rangárvöllum 14. og 15. október 1978, var gerð eftir- farandi samþykkt: „Ráðstefnan felur stjórn verkalýðsráðs að hefja nú þegar undirbúning að gerð lagafrum- varps um hlutfallskosningar við stjórnar- og fulltrúakjör í laun- þegasamtökunum. Stóraukið vald samtaka þessara og beiting þess á sviði efnahags- og at- vinnumála þjóðarinnar gerir þá kröfu til Alþingis, að það setji slík lög. Slík löggjöf mun draga úr hættu á því, að valdi samtak- anna sé misbeitt í pólitískum tilgangi, og tryggja eftirlit og gagnrýni lýðræðislega kjörins minni hluta." Á fundinum var samþykkt að óska eftir því við þingflokk Sjálfstæðisflokksins að taka mál þetta til flutnings á Alþingi. Nokkru síðar var haldinn sam- eiginlegur fundur verkalýðsráðs og þingflokks um þetta mál og önnur, sem rædd voru á Hellu- fundinum. I febrúar 1979 sendi þingflokk- ur og miðstjórn Sjálfstæðis- flokksins frá sér ítarlega stefnu- yfirlýsingu um efnahagsmál o.fl. og ber hún heitið „Endurreisn í anda frjálshyggju". 1 áttunda kafla þessarar stefnuyfirlýs- ingar er fjallað um kjaramál og skyld atriði. Þar er því lýst yfir, að Sjálfstæðisflokkurinn skuli stuðla að því „að koma á hlut- fallskosningum í stéttarfélög- um“. Með þessu frv. er lagt til, að innan stéttarfélaga með 300 fé- lagsmenn eða fleiri geti fimmti hluti félagsmanna krafist þess, að hlutfallskosning sé viðhöfð til stjórnar og annarra trúnaðar- starfa og við kosningu fulltrúa til landssambandsþinga og þinga heildarsamtaka. Á þingum slíkra heildarsamtaka skal kjósa stjórnir með hlutfallskosningu. Hlutfallskosningar er einn þáttur lýðræðis. Þær miða að því að tryggja rétt minnihluta. Hér á landi er hlutfallsfyrirkomulag- ið viðhaft við kosningar til Alþingis og til sveitarstjórna, en einnig til dæmis við kosningar til Búnaðarþings." innan sjávarútvegs 1978/1979, sem m.a. hafi komið niður á sjómönnum, hafi í engu verið bætt, þrátt fyrir gefin loforð. Þá áttu sjómenn enn að fá 13.1% fiskverðshækkun um sl. áramót, sagði PS, til samræmis við launa- hækkun annarra stétta, en fengu 11%. Er öðrum vóru mældar 6.67% verðbætur á laun 1. marz sl. fengu þeir, seint og um síðir, 4%. PS vitnaði til mótmæla fagsam- taka sjómanna vegna seinagangs um fiskverðsákvörðun og hvern veg hefði verið að þeim málum staðið nú — í tíð þessarar ríkis- stjórnar. PS minnti á loforð í stjórnar- sáttmála ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen varðandi samráð við launþegasamtök. Hann sagði fögru orðin um fyrirheit hafa í öllu verið svikin, hvað sjómenn varðaði. Furðu mína vekur, sagði PS, hve þeir, sem hæst töluðu um „samninga í gildi“ meðan ríkis- stjórn Geirs Hallgrímssonar var og hét, eru kaldrifjaðir nú í að svíkja allt það, sem þeir töldu þá helgast. Að segja upp lögum út í bæ PS lýsti undrun sinni á þeirri rangtúlkun sjávarútvegsráðherra, Steingríms Hermannssonar, að uppsögn aðila í sjávarútvegi á fiskverði þýddi uppsögn á ákvæð- um laga um olíugjald til fiski- skipa. Lögum, sem Alþingi sam- þykkti, væri ekki hægt að segja upp út í bæ. Löggefin fyrirheit ber að standa við — út gildistíma laganna. Þegar lögin um olíugjald vóru samþykkt í janúar þá reikn- uðu aðilar, er lögin snerta, með því, að hægt væri að reikna með þessu lögákveðna olíugjaldi a.m.k. út þessa vertíð; að löggjafinn myndi standa við þessa skuldbind- ingu sína. Tekjur sjómanna PS vék að ummælum viðskipt- aráöherra, Tómasar Árnasonar, þess efnis „að ráðstöfunartekjur sjómanna hafi aukizt meira á undanförnum árum en hjá launþ- egum í landi ...“. Þá hafi sami ráðherra gert mikið úr „róttækum breytingum um borð í skipum til betri vinnuaðstöðu". Hér sé í engu tekið tillit til þess vinnutíma og vinnuálags, sem aflahrotur leggi á sjómenn, fjarvista frá heimili né þess að mismunandi aflabrögð og veiðitakmarkanir setji strik í tekj- uöflun þeirra. PS vitnaði til þess Reykjavíkurtogara, sem aflahæst- ur var 1979, Bjarna Benediktsson- ar. fagmaður um borð í þessu toppskipi í afla (netamaður) hafði sem svarar 600 þús. krónur í mánaðarkaup að meðaltali. En þessi maður skilar 494 dagvinnutí- maeiningum í mánuði, sem þýðir þá kr. 1.235,- í tímakaup — eða kr. 214.125,- á mánuði ef miðað er við 40 klukkustunda vinnuviku. PS ráðlagði stjórnarherrum að fara með þetta má af fullri gát, hafa samráð við aðila í sjávarútv- egi, þ.a.m. samtök sjómanna. Fjórir nýir varaþingmenn Ellert SÍKKeir Sveinn GuAmundur Fjórir varaþingmenn tóku sæti á Ai- þingi í gær: • — Ellert B. Schram, 2. varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í fjarveru Geirs Hall- grímssonar, erlendis. 1. varaþingmaður flokksins í Reykjavík, Ragnhildur Helgadóttir, gat ekki tekið sæti á Alþingi vegna meiðsla í slysi. • — Siggeir Björnsson bóndi, í fjar- veru Eggerts Haukdals. • — Sveinn Jónsson, Egilsstöðum, í fjarveru Helga F. Seljan (Abl). • — Guðmundur Gíslason. kaupfé- lagsstjóri, í fjarveru Tómasar Árna- sonar viðskiptaráðherra (F). Þrenn lög í efri deild: Sjúkratryggingargjald á gjaldstofn útsvara — Land- flutningasjóður Efri deild Alþingis afgreiddi þrenn lög 2. apríl sl. • í fyrsta lagi lög um sjúkra- tryggingargj ald. Gjaldstofn sjúkratryggingargjalds skal vera hinn sami og gjaldstofn álagðra útsvara 1980, að frádregnum bót- um samkvæmt lögum nr. 67/1971 og 650 þús. krónur í viðbót við þær fjárhæðir elli- og örorkulífeyris- bóta, sem frá eru dregnar sam- kvæmt 23. grein laga nr. 8/1972. Skal gjaldið vera 1.5% af fyrstu 4'A m. kr. gjaldstofni og 2% af því sem umfram er hjá hverjum gjaldanda. Um álagningu og inn- heimtu gilda sömu reglur og um tekiuskatt. — Ekknabætur • í öðru lagi lög um að einstæð móðir, ógift systir eða sambýlis- kona, sem annast hafa heimili viðkomandi um árabil, eða ekki skemur en 5 ár fyrir andlát hans, geti, ef stjórn lífeyrissjóðs sjó- manna metur svo, fengið greiddan lífeyri svo sem um „ekkju væri að ræða.“ • í þriðja lagi lög um landflutn- ingasjóð (breyting á lögum frá í maí 1979) þ.e. um 1% gjald á allan rekstur vöruflutningabifreiða (á aðstöðugjaldsstofn) í stofnlána- sjóð vörubifreiða á flutningaleið- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.