Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 i * I heilan áratug var Heinz Linge herbergisþjónn Hitlers. Hann vissi betur en nokkur annar hvad einrædisherrann hugsadi, hvað hann hræddist og hver urðu örlög hans. Hér segir hann frá síðustu dögum stryjaldarinnar Nokkrum dögum eftir afmæli sitt lét Hitler sækja mig á skrifstofu sína. Hann sagði við mig vafningslaust að hann vildi að ég færi til fundar við fjölskyldu mína. Ég tók fram í fyrir honum í fyrsta skipti og mælti að ég hefði verið með honum þegar allt lék í lyndi og myndi ekki yfirgefa hann núna. Hitler leit á mig og sagði rólega: „Ég bjóst við þessu af yður.“ Síðan bætti hann við, þar sem hann stóð við skrifborðið: „Ég hef enn eitt verkefni að fela yður. Um mig gildir sama og um aðra hermenn, að berjast til hinztu stundar, því ég er æðsti maður varna Berlínar- borgar. Sjáið um að ullarteppi og nægilegt bensín til þess að brenna tvær manneskjur séu í svefnherbergi mínu. Ég mun skjóta mig ásamt Evu Braun. Þér eigið að vefja lík okkar í ullarteppi og bera út í garðinn. Þar eigið þér að bera eld að líkunum“. Ég varð allur máttvana og gat aðeins stunið upp: „Já, foringi“. Meira gat ég ekki sagt. Ég yfirgaf hann titrandi og skjálfandi. Það hringsnerist allt í höfðinu á mér. Við kvöldtedrykkjuna í loft- varnarbyrginu var nú mest rætt um dauðann. Aðallega um hinar ýmsu sjálfsmorðsaðferðir. Allir yfirveguðu hvernig þeir vildu binda endi á líf sitt. Að minnsta kosti létust menn vera að gera það. Allt virtist skyndilega vera orðið tilgangslaust. En það er ekki satt, sem svo oft hefur verið haldið fram, að menn hafi lagzt í drykkju og viljað hlaupast undan merkjum. Meðan Hitler var enn í lifenda tölu gekk allt sinn vana- gang. Hins vegar veit ég ekki hvað gerðist í loftvarnarbyrgi sjórnarráðsins, en þar höfðu þeir leitað hælis sem ekki þurftu að búa í foringjabyrginu. Það kom fyrir maður rakst á skrifstofustúlku eða einhvern þjón sofandi á gólfinu, en vafa- samt er að Hitler hafi nokkurn tíma séð slíkt. Hitler og Eva Braun höfðu verið gefin saman þann 29. apríl. Borgardómarinn, Walter Wagner, hætti lífi sínu til þess að geta komið á staðinn og gefið þau saman, og framkvæmdi hann athöfnina klukkan eitt um nóttina í fundarsal byrgisins. Það er argasta lygi að Hitler hafi þurft að klöngrast við staf yfir dauðadrukkna menn sem höfðu skipanir hans að engu, eins og haldið hefur verið fram. Ég hafði alltaf ímyndað mér brúðkaup Hitlers á arman veg. Þegar Walt- er Wagner birtist, klæddur stormsveitarbúningi, var allt til- búið. Hitler hafði látið útbúa salinn fyrir athöfnina. Salurinn var venjulega notaður til fund- arhalda, og hafði fjórum hæg- indastólum verið komið fyrir öðrum megin við fundarborðið. Voru tveir þeirra handa brúð- hjónunum, en hinir tveir handa vottunum, Goebbels og Bormann. Wagner, sem var í jafnmiklu uppnámi og Eva Braun, hóf upp raust sína og sagði titrandi röddu: „Ég kem nú að hinu hátíðlega atriði hjónavígslunnar, og spyr ég því yður, Foringi minn Adolf Hitler, hvort þér viljið ganga að eiga ungfrú Evu Braun. Ef svo er bið ég yður um að svara játandi,,. Það gerði Hitler og einnig Eva Braun, en hana hafði Wagner spurt hins sama. Eftir nokkur lokaorð og undirskrift allra viðstaddra var vígslunni lokið. Hitler og kona hans tóku á móti hamingjuóskunum. Eftir hálfa aðra klukkustund yfirgáfu brúðhjónin okkur, en Goebbelsfjölskyldan, Bormann, Burgdorf, Hewel, Axmann, von Below, einkaritari Hitlers, Gerda Christian, sérlegur aðstoðar- maður Hitlers og ég héldum upp á brúðkaupið. A boðstólum var kampavín, smurt brauð og te. Að morgni hins 30. apríls fór ég á fund Hitlers, en hann lauk upp hurðinni í þann mund sem ég var að koma. Hafði hann legið full- klæddur á rúmi sínu og ekki orðið svefns auðið, en hið sama hafði gerzt nóttina áður. Bor- mann, Krebs og Burgdorf húktu hálfsofandi í hægindastólum vjð herbergisdyr hans með skamm- byssurnar í seilingarfjarlægð, en skrifstofustúlkurnar lágu á dýn- Heinz Linge og Bormann báru lík Hitlers og Evu Braun sveipuð teppum gegn- um neyöarútganginn (efst til vinstri á myndinni). um og biðu þess sem verða vildi. A hverri stundu gátu Rússarnir birzt. Hitler lagði fingur á munn sér og gaf mér merki um að fylgja sér. Hitler talaði símleiðis við yfirmann hersins, og var honum tjáð að vörnin hefði verið brotin á bak aftur. Rússar hefðu slegið órjúfandi hring um borg- ina og ekki væri hægt að vænta liðsauka. Að vísu bauðst Axmann til þess að flytja Hitler frá Berlín með einn skriðdreka til fulltingis og í fylgd 200 unglinga úr Hitler-æskuhreyfingunni. En Hitler neitaði boðinu með þeim ummælum að það væri hvort sem er tilgangslaust. Síðan fórum við í setustofuna, þar sem Goebbels sárbændi Hitl- er að láta tilleiðast að yfirgefa Berlín. En Hitler sagðist ekki hnika frá fyrri ákvörðun sinni, en bætti við að Goebbels væri auðvitað frjálst að yfirgefa borg- ina með fjölskyldu sinni. Goebb- els svaraði því til að það myndi hann ekki gera. Síðan studdum við Hitler báðir í herbergi sitt. Mér sortnaði fyrir augum. Brátt myndi ég verða að framkvæma hinztu skipunina. Ég var skelf- ingu lostinn, og mér varð litið til mannsins sem ég hafði þjónað dyggilega í meira en heilan áratug. Hann stóð álútur. Hárið féll niður á fölt ennið. Hann var orðinn gráhærður. Hann leit á mig og gaf mér í skyn að hann vildi draga sig í hlé. Klukkan var kortér yfir fimm. Hann mælti rólegri röddu, rétt eins og hann væri að tala um daglega hluti: „Linge, brátt mun ég skjóta mig. Þér vitið hvað gera skal.“ Hitler gekk til mín og rétti mér hendina, og í síðasta skipti í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.