Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 25 Frá Svalbarða. Samningahorfur á norðurslóðum Skömmu eftir að íslendingar og Norðmenn hafa átt viðræður sínar um Jan Mayen málið hér í Reykjavik 14. og 15. apríl n.k. mun sendinefnd undir forystu Jens Evensens hafréttarfræðings halda frá Ósló til Moskvu tið viðræðna við stjórnvöld þar um óleyst deilumál Norðmanna og Sovétmanna á norðurslóðum. Þessar viðræður sovéskra og norskra embætt- ismanna hafa legið niðri um nokkurra ára bil, en 1977 tókst samkomulag um skiptingu veiðisvæða í Barentshafi milli landanna og þykir mörgum, að í því efni hafi Norðmenn látið um of undan sovéskum kröfum. Auk markalínunnar milli land- anna hafa þau ekki komið sér saman um yfirráðin yfir landgrunninu umhverfis Svalbarða, sem Norð- menn telja sína eign en Sovétmenn telja hluta af eyjaklasanum og þar með, að þeir hafi rétt til olíuvinnslu á því samkvæmt vildarkjörum alþjóða- samningsins um hann. í grein þeirri, sem hér birtist fjallar John C. Ausland um þau atriði, sem upp kunna að koma í væntanlegum viðræðum. Hann er gjörkunnugur þessu máli og hefur kynnt sér alla þætti í viðræðum við þá embættismenn, sem um það f jalla. Greinin birtist upphaflega í Verdens Gang. Bj.Bj. Úr því að Sovétmenn lögðu til, að á ný yrðu teknar upp viðræður um ágreining þeirra og Norð- manna á norðurslóðum, hljóta menn að velta því fyrir sér, hvað fyrir þeim vaki og hvaða líkur séu á að samkomulag takist. Vegna þeirrar leyndar, sem yfir öllu hvílir í lokuðu samfélagi ráðstjórnarinnar, er fátt jafn vonlaust og reyna að geta sér til um það, hver séu áform Sovét- manna. í því máli, sem hér um ræðir, eru álitaefnin mörg. Tillaga Sov- étmanna um að hefja samninga- viðræður gæti einfaldlega verið þáttur í viðleitni þeirra til að sýna Vestur-Evrópubúum, að það sé þeim og Bandaríkjamönnum í hag að láta eins og ekkert hafi í skorist í sambúð þeirra og Sovétríkjanna, þrátt fyrir innrásina í Afganistan. En í tilmælum Sovétmanna kynni einnig að felast, að þeir séu loks til þess búnir af einhverjum sérstök- um ástæðum að ganga til alvar- legra samningaviðræðna um þau flóknu vandamál, sem bíða úr- lausnar í norðurhöfum. Sé seinni tilgátan sú rétta, stendur norska ríkisstjórnin frammi fyrir erfiðri þraut. Fram til þessa hefur það verið afstaða ríkisstjórnar Noregs, að leysa beri vandamálin á norðurslóðum hvert fyrir sig. Hún hefur viljað, að aðilar einbeittu sér fyrst að því að ná samkomulagi um markalínuna í Barentshafi. Norska stefnan byggist á því, að dregin verði miðlína milli Noregs og Sovétríkj- anna í Barentshafi, en Norðmenn hafa lýst sig reiðubúna til að ræða málamiðlun, þar sem hugað veri að línu milli miðlínunnar og svo- nefndrar „sektor-línu“, sem Sovét- menn krefjast að verði markalín- an (þ.e. dregin verði lína frá landamærum Sovétríkjanna og Noregs beint á Norðurpólinn og hún látin skipta yfirráðasvæðum þeirra. Innsk. þýðanda). Sovétmenn hafa lýst sig and- víga því, að fjallað verði um markalínuna eina sér, og segjast vilja finna „heildarlausn". Hug- myndir þeirra liggja ekki enn Ijósar fyrir, en augljóst er, að þær muni ná til landgrunnsins um- hverfis Svalbarða og taka mið af öryggishagsmunum Sovétríkj- anna. Ástæðurnar fyrir því, að Sovét- menn krefjast heildarlausnar eru bæði augljósar og skiljanlegar. Þeir gruna Norðmenn (á röngum forsendum) um að vinna nú þegar að því með bandamönnum sínum að finna leiðir til að nýta auðæfin á landgrunninu umhverfis Sval- barða. Sovétmenn líta á þetta sem samsæri gegn sínum hagsmunum og óttast, að þeir tapi trompi í samningaviðræðunum semji þeir sérstaklega um markalínuna í Barentshafi. Norðmenn eru greinilega and- vígir heildarlausn á þeim grund- velli, að hún myndi hafa í för með sér, að þeir yrðu að láta af lögmætum kröfum sínum um einkaeign á landgrunninu um- hverfis Svalbarða. Þessum kröfum er þó erfitt að halda til streitu með skipulegum athöfnum. Þótt Norðmenn séu farnir að fram- fylgja olíustefnu sinni af meiri festu en áður, get ég trauðla ímyndað mér, að norsk ríkisstjórn ráðist í að bora eftir olíu á svæði, sem bæði bandamenn hennar og Sovétmenn telja vafasamt, að hún hafi eignarhald á. Yrði í olíu- vinnslu ráðist við þessar aðstæð- ur, mætti búast við margþættum gagnráðstöfunum Sovétmanna. Þeir kynnu að efna til skotæfinga á svæðinu, þar sem Norðmenn ætluðu að bora, eða Sovétmenn kynnu sjálfir að ráðast í olíubor- anir á þessum slóðum eins og þeir telja sig hafa rétt til með vísan í alþjóðasamninginn um Svalbarða. Fram til þessa hafa Norðmenn komist hjá því að kröfur þeirra um að hver þáttur deilumálanna á Norðurslóðum verði leystur fyrir sig leiddu til beinna árekstra. En þetta hefur þeim tekist, af því að Sovétmenn hafa enn ekki lagt fram fastmótaðar tillögur. Nú á eftir að koma í ljós, hvort slíkar sovéskar tillögur koma fram í viðræðunum, sem fyrir dyrum standa. Verði þær lagðar fram, getur norska ríkisstjórnin ekki auðveldlega neitað að taka þær til athugunar. Hún gæti að vísu eftir að hafa kynnt sér þær haldið fast í kröfu sína um að hver þáttur málsins yrði leystur fyrir sig, en málið hefði tekið nýja stefnu — ekki síst ef Sovétmenn birtu tillögur sínar opinberlega. Komi til þess með einum eða öðrum hætti, að alvarlegar samn- ingaviðræður um norðurslóðir hefjist, þurfa Norðmenn að ákveða, hvernig þeir ætla að fara með hagsmuni bandamanna sinna. Með hliðsjón af því, sem gerst hefur síðustu ár, ætti þetta ekki að verða erfitt. Helsti vandi Norðmanna verður í því fólginn að sætta kröfur Sovétmanna um að olíuumsvifum bandamanna Nor- egs verði settar þröngar skorður í Barentshafi, og óskum vestrænna olíufélaga, um að þau fái að athafna sig þar. Þessi olíufyrir- tæki hafa þegar látið sér lynda að sæta margvíslegum takmörkunum og minnkandi hlutdeild í norska landgrunninu, svo að þau ættu ekki að vera óviðráðanleg í norð- urhöfum. Til álita kemur, hvort Sovét- menn muni leitast við að tengja viðræðurnar um norðurslóðir and- stöðu sinni við þær aðgerðir, sem Norðmenn hafa gripið til í því skyni að efla varnir sínar. Þótt ekki sé unni að útiloka, að Sovét- menn muni gera þetta, finnst mér það harla ólíklegt.'Áróðursherferð þeirra er þegar farin að hafa öfug áhrif, þar sem hún hefur flýtt fyrir því, að Norðmenn og Banda- ríkjamenn geri samning um geymslu á hergögnum í Noregi fyrir bandaríska landgönguliða. Það myndi hvetja Norðmenn til að auka varnarviðbúnað sinn enn frekar og koma í veg fyrir samn- inga um norðurslóðir, ef þssi tvö mál yrðu tengd saman. eftir John C. Ausland Hayek áritar sma Út hafa verið gefin 50 innbundin eintök af bókinni LEIÐINNI TIL ÁNAUÐAR eftir Friedrich A. Hayek, nób- elsverðlaunahafa í hagfræði. Eru þau árituð og tölusett af höfundi og kosta 25 þús. kr. eintakið. Bókin Leiðin til ánauðar kom út á vegum Almenna bókafélagsins og Félags frjáls- hyggjumanna í tilefni komu Hayeks til landsins í byrjun mánaðarins. Að sögn Skafta Harðarsonar, sem sér um bókaþjónustu Félags frjáls- hyggjumanna, hefur mikill áhugi verið á því að kaupa þessi árituðu eintök, og aðeins örfá eru eftir. Þeir, sem vilja kaupa þau , sem eftir eru, geta snúið sér til Skafta í síma 21850 eða 85298 á kvöldin. Skafti sagði, að engum kæmi á óvart þessi mikli áhugi, því að Hayek væri þegar einn kunn- asti stjórnmálahugsuður tutt- ugustu aldarinnar og ætti vafalaust eftir að verða enn frægari og þá væri vitanlega mikill fengur að áritaðri bók eftir hann. Skipað í Jan Mayen- nefndina VIÐRÆÐUNEFND íslands vegna væntanlegra viðræðna íslend- inga og Norðmanna varðandi Jan Mayen í Reykjavík dagana 14. og 15. þ.m. hefur verið skipuð og eiga þessir sæti í nefndinni: Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, formaður, Steingrímur Hermannsson, sj ávarútvegsráðherra, Matthías Bjarnason, alþingismaður, Ólafur R. Grímsson, alþingismaður, Sighvatur BjörgVinsson, alþingismaður, Hans G. Andersen, þjóðréttarfræðingur, Pálí Ásg. Tryggvason, sendiherra, Jón Arnalds, ráðuneytisstjóri, Ólafur Egilsson, sendifulltrúi, ritari, Guðmundur Eiríksson, deildarstjóri, Már Elísson, fiskimálastjóri, Gunnar G. Schram, prófessor, Jakob Jakobsson, fiskifræðingur, Björn Ó. Þorfinnsson, fulltrúi sjómanna, Kristján Ragnarsson, fulltrúi útvegsmanna. Viðræðurnar munu hefjast á mánudagsmorgun og fara fram í Ráðherrabústaðnum við Tjarn- argötu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.