Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.04.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980 27 Sighvatur Björgvinsson: Stjórnleysi tef- ur þingstörf Fundum frestað þrí- vegis á mánudag — og jafn oft á þriðju- dag fyrir páskahlé Formenn þingflokka stjórnar- andstöðu vóru kallaðir á fund forsætisráðherra kl. 6.30 á pálmasunnudag til að ræða verk- stjórn og málsmeðferð í þinginu þessa síðustu tvo til þ'rjá daga fyrir páskahlé, sagði Sighvatur Björgvinsson, formaður þing- flokks Alþýðuflokksins, í um- ræðu utan dagskrár á Alþingi sl. viku. Við féllumst á að afgreiða tiltekin mál. en tókum fram, að söluskattshækkun upp á 11 millj- arði króna á heilu ári þyrfti lengri athugunar við, svo og samráðs að lögum við aðila vinnumarkaðar. Afgreiðsla þess fyrir páska kæmi því ekki til greina af okkar hálfu. Við færð- um síðan þingflokksfundartíma okkar til á mánudegi, frá 4 síðdegis til 11 árdegis, til að greiða fyrir þingstörfum, og höf- um setið kvöld og næturfundi í sama skyni í fyrradag og í gær. En hvern veg flýta stjórnarliðar fyrir störfum þingsins, spurði Sig- hvatur Björgvinsson. Á mánudag í upphafi þings biður einn stjórnar- flokkanna um fundarhlé, vegna innbyrðis ósamkomulags að því er virðist um söluskattsmálið. Síðan þarf tvívegis að fresta fundi síðar um daginn vegna þess að fjármála- ráðherra mátti ekki vera að því að gegna þingskyldum sínum. I gær var fundi frestað hvað eftir annað og þingfundir hófust ekki fyrr en eftir að venjulegur fundatími var úti. Borið var við vöntun þingskjala en vitað var að ástæðan var ágreiningur í stjórnarliðinu og algert skipulagsleysi í störfum þess. Fundahöld stóðu síðan fram undir 4 um nóttina. Stjórnarand- staðan sat kvöld- og næturfundina, til þess að mál mættu ræðast, en í gærkvöldi og nótt var aðeins 1 ráðherra af 10 viðstaddur umræð- una að nokkru ráði. Sighvatur Björgvinsson sagði sjálfsagt að fjárlög og jafnvel olíugjald fiskiskipa fengi af- greiðslu — en hinsvegar fælist vanvirðing við þingið í því að krefjast þess, að jafn stórt mál og söluskattshækkunin er væri af- greitt án þeirrar umfjöllunar, sem jafn veigamikið mál þyrfti að fá, bæði í þingnefnd og þingdeildum, og raunar í samráði við aðila utan þings, og á jafn skömmum tíma og ætlast væri til. Ríkisstjórnin gæti við engan sakast nema sjálfa sig, hve málið hefði verið síðbúið, illa að því staðið á alla lund sem og hvern veg hefði verið farið með starfs- og fundatíma þings sl. mánudag og þriðjudag — vegna stjórnleysis. Davíð Aðalsteinsson: Bændur fái aðild að Ferðamálaráði Davíð Aðalsteinsson (F) hefur lagt fram frumvarp til laga um aðild bænda að Ferðamálaráði, enda sé eðlilegt að þeir verði virkir þátttakendur í mótun heildarstefnu i ferðamálum. Eins og nú er skipa 10 fulitrúar Ferðamálaráð, 7 tilnefndir af ýmsum aðilum en 3 án tilnefn- ingar af viðkomandi ráðherra. Frumvarp Davíðs gerir ráð fyrir að Stéttarsamband bænda til- nefni ellefta fulltrúann. I greinargerð segir m.a.: Hagsmunir íslenskra bænda eru samofnir ferðamálum í landinu. Bændur eru víða landeigendur án- ingarstaða ferðafólks og hafa oft og tíðum hagsmuna að gæta í sam- bandi við veiði í ám og vötnum. Bændur sjálfir og fulltrúar þeirra hafa iðulega verið talsmenn um- hverfis- og náttúruverndar, en eins og kunnugt er hefur Ferðamálaráð m.a. það hlutverk á hendi, að þróun ferðamála verði samhliða náttúru- og umhverfisvernd. Sala landbúnaðarafurða er mik- ilvægur þáttur í ferðamannaþjón- ustunni. Það er brýnt hagsmunamál bænda, að landbúnaðarafurða sé neytt í vaxandi mæli í landinu sjálfu. Neysla erlendra gesta á þeim afurðum jafngildir í raun útflutn- ingi, en án þess að til útflutnings- bóta komi. Ferðamannavérslun fer sífellt vaxandi víða um land, m.a. þar sem verslanamiðstöðvar eru í höndum samvinnufélaga. í sumum þéttbýliskjörnum má líkja verslun ferðamanna við jólaös. Alkunna er, að bændur hafi um árabil verið í tengslum við hótelrekstur og má í því sambandi minna á Hótel Sögu og Hótel KEA á Akureyri. Ýmis dæmi fleiri mætti rekja, sem bera vitni rekstaraðild bænda að þjón- ustu við ferðamenn. Að lokum skal þess getið, að nýlega voru stofnuð Landssamtök ferðamannabænda. Á einum stað í samþykktum félagsins segir svo: „Tilgangi sínum hyggjast samtökin ná með því að stuðla að góðri samvinnu milli bænda og þéttbýlis- búa varðandi aðstöðu fyrir fólk til byggingar eða afnota sumarbústaða og greiða fyrir því, að allir hafi aðgang að landinu til útivistar." Bændur eiga meginhluta landsins og er því góð samvinna milli þeirra og þéttbýlisbúa forsenda þess, að unnt sé að tryggja öllum lands- mönnum og þeim, sem sækja landið heim, aðgang að landinu með þeim hætti, að sem flestir geti vel við unað.“ Frá Sigrúnu Gísladóttur, fréttaritara Mbl. i Svíþjóö Atvinnurekendur frestuðu verkbanni fram á sunnudag Frá Sigrúnu Gísladóttur. fréttaritara Mbl. í Svíþjóð, 9. apríl. ATVINNUREKENDUR í Svíþjóð frestuðu í dag að setja verkbann á meðlimi sænska alþýðusambandsins, en það átti að koma til framkvæmda í dag. En atvinnurekendur frestuðu verkbanni sínu aðeins fram á sunnudag. Sáttanefnd átti í dag fundi með fulltrúum atvinnu- rekenda og sænska alþýðusam- bandsins og eftir mikinn þrýst- ing sáttanefndar drógu atvinnurekendur verkbann sitt til baka. Hins vegar stendur yfirvinnubann verkalýðsfélag- anna ennþá. Það er mál manna hér í Svíþjóð, að þunglega horfi með samkomulag og ástandið hafi ekki verið jafn ískyggilegt og síðan i verkföllunum árið 1909. Kjarasamningar í Svíþjóð hafa verið lausir síðan í nóvem- ber sl. Meðan enn var óljóst um stefnu Svía í orkumálum gerðist þó lítið í samningaviðræðum. Að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð kjarnorkuveranna var því fyrst grundvöllur fyrir samningagerð og nú eru þau mál efst á baugi hér í Svíþjóð. Launþegasamtökin setja fram kröfur um kauphækkanir sem nema rúmlega ellefu prósent. Árið 1979 var gott ár hjá flestum sænskum iðnfyrirtækjum og mörg þeirra skiluðu arði til hluthafanna. Á þeirri forsendu m.a. telja launþegar að fyrirtæk- in eigi að geta borgað starfsfólki sínu hærri laun. Atvinnurekend- ur eru ekki á sama máli og segja að þær upphæðir sem greiddar hafi verið til hluthafa séu alls ekki nægilegar til þess að standa undir kauphækkunum. Myndaðar hafa verið tvær sáttanefndir, annars vegar fyrir opinbera starfsmenn og hins vegár fyrir aðra launþega, sem eiga að vinna að samningaum- leitunum í nánu samstarfi við ríkisstjórnina. Til þessa ráðs var gripið þar sem viðræður voru komnar í sjálfheldu. Þetta breytti þó ekki ákvörðun verka- lýðsfélaganna um yfirvinnubann sem tók gildi 27. marz. Stjórnin ætlar sér ekki að taka beinan þátt í viðræðum og ákvarðana um kaup og kjör, því það mundu launþegasamtökin aldrei sam- þykkja. En hugmyndin er sú að stjórnin muni á þeim tíma sem unnið er að samningum beita sér fyrir ákvörðunum í efnahags- málum, sem geti leitt til þess að launþegasamtökin gefi eftir af kröfum sínum um beinar kaup- hækkanir. í framhaldi af þessti innleiddi stjórnin nýlega almenna verð- stöðvun sem gildir til 9. maí en verður þá tekin til endurskoðun- ar. Auk verðstöðvunar hefur stjórnin lofað lægri sköttum, jafnframt að fyrirtæki verði skuldbundin til þess að leggja 25 prósent rekstrararðs í ákveðna sjóði. í staðinn eiga launþegar að samþykkja óbreytt laun. Þannig hljóða tillögur stjórnarinnar til þess að auðvelda kjarasamn- ingana. Thorbjörn Falldin, forsætis- ráðherra, bendir á að þetta séu engir úrslitakostir. Launþegar eigi ef til vill eftir að velja aðrar leiðir. En það sé augljóst að ekki verði mögulegt að halda verð- stöðvun ef laun hækki. Fálldin segir enn fremur að launakröf- urnar sem lagðar hafa verið fram, séu langt fyrir ofan það sem þjóðarbúskapurinn þoli. Slíkar launahækkanir ógni vel- ferð og verðbólgan ykist. Að- gerðir stjórnarinnar væru fyrst og fremst liður í baráttunni gegn verðbólgu og atvinnuleysi — og eigi að auðvelda yfirstandandi kjarasamninga. Launþegasamtökin hafa sýnt litla hrifningu yfir tilboði stjórnarinnar. Benda á það, að síðan kjarasamningar runnu út í nóvember, hefur verðlag hækkað um 7 prósent. Forsvarsmenn verkalýðssamtakanna (LO) og sósíaldemókratar segja að að- gerðir ríkisstjórnarinnar komi og of seint og nægi því ekki. Hitt sé hins vegar jákvætt að stjórnin hafi loksins komið með tillögur. Deilan hefur harðnað milli stærsta verkalýðssambands LO og atvinnurekenda SAF vegna núverandi yfirvinnubanns. Mörg fyrirtæki í t.d. pappírs- og skóg- ariðnaði hafa orðið fyrir margra tíma stöðvun í rekstri vegna bannsins. Mjólkurbúin hafa ekki getað unnið úr allri mjólk sem borist hefur og mjólkurdreifing dregist stórlega saman. A fundi sínum rétt fyrir páska ákváðu atvinnurekendur því að boða verkbann í eina viku frá og með fimmtudeginum 10. apríl. Munu um 750 þúsund meðlimir LO þannig verða útilokaðir frá vinnu í heila viku. Þess ber að geta að 1966 og 1977 hótaði SAF sams konar verkbanni, en í bæði skiptin tókst að afstýra því á síðustu stundu. Ríkissáttanefndin hefur setið á fundum með deiluaðilum og hefur óskað eftir að SAF (at- vinnurekendur) taki til baka verkbannshótun sína og að LO hætti við núverandi yfirvinnu- bann. Báðir aðilar hafa neitað að gefa eftir og það verður ekki ljóst fyrr en síðar í dag, fimmtu- dag, hver lokasvör þeirra verða. LO gerir þá kröfu að SAF komi með tilboð um launahækk- un en SAF hefur ákveðið sagt að ekki sé grundvöllur fyrir neinum kauphækkunum að sinni. Kjósa Danir í næsta mánuði? Frá fréltaritara MorgunblaðKÍns i Kaupmannahöfn í Ka-r. FORSÆTISRÁÐHERRA Dana, Anker Jörgensen, er aftur kominn í mótbyr. allir stjórnmálaflokk- ar ræða mögulcika á nýjum kosningum og sósíaldemókratar eru viö því búnir að kosningar fari fram í maí — hvaða gagn svo sem það gerir. I gærmorgun ræddi ríkisstjórnin efnahagsáætl- unina sem breytingar hafa verið gerðar á, en aðeins orðalaginu var breytt á fundinum. Seinna ræddi þingflokkur sósíaldemókrata áætlunina á þriggja tíma fundi. Jafnframt útskýrði Svend Auken verkamálaráðherra áætlunina fyrir aðilum vinnumarkaðarins og loks var öðrum þingflokkum skýrt frá henni. Vinstri flokkurinn segir hreinskilnislega að Anker Jörgensen sé persónuleg hindrun í vegi fyrir því að samkomulag geti náðst um áætlanir. Poul Schliiter, leiðtogi Ihaldsflokksins, segir að það sé ekki á valdi annarra flokka að ákveða hverjir séu í forsæti flokks eða ríkisstjórnar. íhaldsflokkurinn hefur einnig tekið afstöðu gegn þeim áætlunum sem hafa verið lagðar fram. Samkvæmt áætlunum á að skera niður rauntekj- ur á næsta ári um fimm af hundraði. Það verður í aðalatriðum gert með álögum á orku, það er rafmagnshita, bílagjöld og bensín. Jarðgas verður eina undantekningin því að frá og með 1982 er gert ráð fyrir því að það streymi til vissra landshluta. Auk þess verða ríkisútgjöld skorin niður, aðallega á sviðum félagsmála og menntamála. Þannig verða eftirlaun miðuð við tekjur og fullorðinskennsla verður stórlega skorin niður. Ef að líkum lætur standa fyrir dyrum langvar- andi samningaviðræður ef Anker Jörgensen á að takast að fá meirihlutafylgi við áætlanir sínar. Verðbréf hafa lækkað í verði vegna fréttanna um neyðarráðstafanir og flokkarnir ræða möguleik- ann á nýjum kosningum, ef til vill í næsta mánuði. — Larsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.