Morgunblaðið - 10.04.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980
Út í hött að skipa mér
á bekk með Margeiri,
Jóni L. og Helga — ennþá
— segir Jóhann Hjartarson, nýkrýndur íslandsmeistari i skák
„ÉG FÉKK fljúgandi start á skákþinginu og þakka því fyrst og
fremst sigurinn. Ég hef ekki æft umfram venjulega en aukin
reynsla hefur reynst mér drjúg. Ég hef teflt 250 kappskákir og þær
hafa hert mig i ólgusjó skáklistarinnar,“ sagði hinn 17 ára gamli
Jóhann Hjartarson — nýkrýndur íslandsmeistari í skák. Jóhann
skipaði sér á bekk með stórmeisturunum Guðmundi Sigurjónssyni
og Friðriki Ólafssyni að því leyti, að hann eins og þeir er aðeins 17
ára þegar hann vinnur Skákþing íslands. Hins vegar er Jón L.
Árnason yngsti íslandsmeistari frá upphafi — aðeins 16 ára vann
hann Skákþing íslands.
Áttirðu von á að sigra á
Skákþinginu?
Nei, ég átti ekki von á titlinum
en góð byrjun gaf mér vissulega
byr undir báða vængi. Sigurinn
var auðvitað ekki öruggur fyrr en
eftir sigurinn við Helga Ólafsson.
Um tíma hélt ég, að ég væri að
tapa fyrir honum en mér tókst að
snúa á hann. Yfirleitt tefli ég
margar byrjanir og ég held að
það hafi hjálpað mér hvað alhliða
taflmennsku snerti. Þá hef ég
stúderað nokkuð endatöfl og það
kom sér vel. Margir skákmenn
eru mjög íhaldssamir í byrjunum
en mér finnst betra að halda mig
við margar byrjanir. Það gefur
líka meiri yfirsýn yfir ýmsar
stöður sem koma upp.
Hver er þinn uppáhaldsskák-
maður?
Eg veit ekki hvað segja skal.
Jú, mér finnst Spassky mjög
skemmtilegur. Hann er svo fjöl-
hæfur, góður í öllum þáttum
skákarinnar. Hann hefur fjöl-
breytt byrjanaval, er sterkur í
miðtaflinu og eins endataflinu.
Hins vegar er ég ekki eins mikið
fyrir þá Petrosian og Karpov þó
að árangur þeirra sanni auðvitað
hve öflugir skákmenn þeir eru.
Áttu einhverja uppáhaldsskák-
bók?
Nei, ekki get ég sagt það. Ég á
nú mikið safn skákbóka — alls
um 120 bækur. Þá held ég mikið
upp á árbók FIDE, Informator,
en því er eins háttað með mig og
marga skákmenn, að ég sæki
mikinn fróðleik í þá bók.
Nú segja margir að þú teflir
afleitlega erlendis. Hvað segir þú
um það?
Mér finnst ekki beint hægt að
segja að mér hafi gengið illa
erlendis, allavega ekki rosalega
illa. Það er jú rétt að mér gekk
afleitlega á Heimsmeistaramóti
unglingalandsliða. 1. borðið þar
var með 29% vinningshlutfall en
það er eiginlega eina mótið, þar
sem mér hefur gengið afleitlega.
Mér hefur ekki gengið illa á HM
sveina. Teflt þar tvívegis og orðið
í sjötta sæti af 40. Það er
þokkalegt í sjálfu sér. Þá náði ég
alveg viðunandi árangri á opnu
móti í Noregi, fékk 6 vinninga af
níu, en Guðmundur Sigurjónsson
bar þar sigur úr býtum. Ég tefldi
þar við alþjóðlega meistara og
gekk alveg þokkalega. Hitt er svo
annað, að þær kröfur sem gerðar
eru til íslenzkra skákmanna eru
gífurlegar, allt of miklar, —
stráka eins og þeirra Margeirs
Péturssonar, Jóns L. Árnasonar
og Helga Ólafssonar. Sérstaklega
þegar hafður er í huga sá mikli
aðstöðumunur, sem þeir þurfa að
búa við í samanburði við Sovét-
'menn, Bandaríkjamenn og Eng-
lendinga — þar eru bæði mun
meiri peningar og eins hafa
efnilegustu skákmenn þessara
þjóða þjálfara.
Eftir að skákmenn hér á landi
hafa náð vissum styrkleika, bygg-
ist framför þeirra alveg á sjálfs-
námi. Þeir Jón L. Árnason, Mar-
geir og Helgi hafa engan þjálf-
ara. Það er hlúð mjög vel að
ungum strákum í Taflfélagi
Reykjavíkur en eftir að vissum
styrkleika er náð, þá verða þeir
að klára sig sjálfir. Ég held að
Jóhann Hjartarson — nýkrýnd-
ur íslandsmeistari í skák, að- •
eins 17 ára.
brýnt sé að reyna að þoka þessu
lengra en eins og málin standa í
dag, þá stendur Taflfélag Reykja-
víkur í byggingu og féð rennur
þangað. Ég held að það sé algjört
einsdæmi í V-Evrópu að taflfélag
eigi sitt eigið húsnæði, það eitt
sýnir hve TR er sterkt.
Nú skipar fólk þér á bekk með
þeim Jóni L., Margeiri og Helga.
Heldurðu að það verði erfitt að
rísa undir þeim kröfum?
Þessi sigur minn á Skákþing-
inu gerir það að verkum að
auknar kröfur verða gerðar til
mín. En hann veitir mér einnig
tækifæri, styrki til að fara út á
mót, fleiri boð, sæti í landsliði
Islands svo eitthvað sé nefnt. En
það er auðvitað út í hött að fara
að skipa mér á bekk með þeim
félögum ennþá. Þeir eru allir
titilhafar og mjög öflugir skák-
menn, mun öflugri en ég.
H. Halls.
Norrænir
leiðsögu-
menn til
fundar hér
á landi
NORRÆNIR leiðsögumenn
halda aðalfund sinn hér á
landi í dag og á morgun og
eru komnir hingað um 50
erlendir gestir auk íslenzku
þátttakendanna. í framhaldi
af aðalfundinum verður svo
haldið leiðsögumannaþing
sem lýkur á mánudag.
Júlía Sveinbjörnsdóttir, for-
maður Félags íslenzkra leiðsögu-
manna, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að auk hefðbundinna
ferða með útlendinga færu full-
trúarnir saman í ferðalög út á
landsbyggðina, þar sem erlendu
gestunum yrðu kynntar íslenzkar
aðstæður svo og hvernig íslenzkir
leiðsögumenn vinna.
Aðspurð sagði Júlía að nú væru
um 230 félagar í Félagi leiðsögu-
manna hér á landi og væru flestir
þeirra sérstaklega menntaðir til
starfsins, en hinir hefðu á móti
mikla starfsreynslu. Það nám sem
íslenzkir leiðsögumenn verða að
stunda er heilsvetrarnámskeið,
þar sem kennt er tvö kvöld í viku.
Þá sagði Júlía að á aðalfundin-
um og þinginu yrði fjallað al-
mennt um málefni leiðsögumanna
á Norðurlöndum.
Deildir SVFÍ fái
ekki áfengisleyfi
til f járöflunar
MORGUNBLAÐINU hefur borizt svohljóðandi yfirlýsing frá Ragnari
Þorsteinssyni og Huldu Victorsdóttur, fulltrúum Slysavarnafélags
íslands hjá Landsambandinu gegn áfengisbölinu:
Eins og öllu slysavarnafólki útbúnaðar björgunarsveitanna.
mun kunnugt hefur Slysavarna- Öllu slysavarnafólki mun kunn-
félag íslands, allt frá stofnun ugt um, hver slysavaldur áfengi
1928, haft að meginmarkmiði að getur verið. Samkvæmt ofan-
forða fólki frá slysum. Það hefur skráðu og að gefnu tilefni upplýs-
notað til þess öll tiltæk meðul með ist það hér með, að Slysavarnafé-
hjálp björgunarsveita sinna, sem lag íslands hlýtur að standa fast á
eingöngu eru skipaðar sjálfboða- móti því, að deildir félagsins fái
liðum. Einnig er félagið dyggilega leyfi til áfengisveitinga á
stutt af kvennadeildum þess og skemmtisamkomum sem ætlaðar
karla, sem styðja félagið með eru til fjáröflunar starfseminni.
ráðum og dáð við að afla fjár til
Myndlista- og handíðaskólinn:
Námskeið í veggmyndatækni
NÁMSKEIÐ í veggmyndatækni Jörgen Bruun-Hansen frá kon-
fyrir starfandi myndlistamenn unglegu akademíunni í Kaup-
verður haldið frá 11. apríl til 5. mannahöfn. Þátttaka tilkynnist
maí, mánudaga og föstudaga frá til skrifstofu skólans, Skiphólti 1.
kl. 18 til 22. Kennari verður
Þjóðleikhúsið 25 ára:
„Smalastúlkan og út-
lagarnir“ frumflutt
í TILEFNI 25 ára afmælis Þjóðleikhússins 24. apríl n.k.
mun verða frumflutt þann dag verkið Smalastúlkan og
útlagarnir, eftir Sigurð Guðmundsson listmálara, en
Þorgeir Þorgeirsson hefur búið verkið til leikflutnings.
Síðasta leikrit Jökuls Jakobssonar, í öruggri borg, verður
svo frumflutt 5. maí n.k. í Þjóðleikhúskjallaranum undir
leikstjórn Sveins Einarssonar.
Að sögn Árna Ibsens mun á afmælinu verða afhjúpuð
veggmynd af Jökli, sem Baltasar hefur gert, en það eru
aðstandendur Jökuls sem hana gefa.
HOOVER
ekki bara ryksuga...
Teppahreinsarinn frá HOOVER ekki aðeins
ryksugar teppið, hann hreinsar að auki úr því
margskonar önnur óhreinindi sem ryksuga nær
ekki eins og t.d. • Klistur »Þráðarenda
• Dýrahár • Sand úr botni
• Bakteríumyndandi sveppa- og gerlagróður
Jafnframt ýfir hann flosið.svo aö teppið er ætíð
sem nýtt á að líta, og það á jafnt við um
snöggtsem rya. Fjölþætt notagildi fylgihluta.
Og það er staðreynd að teppið endist þér lengur.
HOOVER
er heimilishjálp.
•-Á'T
ég banka bursta
og sýg...
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670