Morgunblaðið - 10.04.1980, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1980
43
Norræn vefjarlist
á Kjarvalsstöðum
SÝNINGIN Norræn veíjarlist
II verður opnuð á Kjarvals-
stöðum á laugardaginn kemur.
Þetta er i annað sinn sem slík
sýning er sett upp hér á landi,
fyrri sýningin var einnig á
Kjarvalsstöðum fyrir þremur
árum, í janúar og febrúar 1977.
Sýningin er ávöxtur samstarfs
vefara og textílhönnuða á Norð-
urlöndunum. Árið 1974 kom
saman vinnuhópur veflistar-
manna í Danmörku til þess að
leggja drög að umfangsmikilli
sýningu sem gæfi hugmynd um
það sem væri að gerast í vefjar-
list á Norðurlöndunum. Áður
höfðu veflistarmenn haldið
sjálfstæðar sýningar í heima-
löndum sínum og einstaka vefar-
ar tekið þátt í samsýningum
annarra myndlistarmanna,
ennfremur höfðu norrænir vef-
arar vakið athygli á alþjóðlegum
vefjarlistsýningum — en nú
skyldi með sameiginlegu átaki
vinna vefjarlistinni fastari sess í
vitund fólks sem sjálfstæðri
listgrein.
Eftir mikla undirbúnings-
vinnu var fyrsta Norræna vefj-
arlistsýningin opnuð í Listasafn-
inu í Álaborg 1976, sem síðan fór
um öll Norðurlönd og hlaut
hvarvetna mikla aðsókn og lof-
samlega dóma gesta og gagnrýn-
enda.
í upphafi var ákveðið að
stefna að því að koma upp slíkri
sýningu þriðja hvert ár og var
önnur sýningin opnuð í
Röhsska-listiðnaðarsafninu í
Stærsta verkið á norrænu vefj-
arlistsýningunni sem verður
opnuð á Kjarvalsstöðum á laug-
ardag er þetta verk finnsku
listakonunnar Yosi Anayu.
Verkið er 13 metrar að lengd,
er batik og nefnist „í virð-
ingarskyni við Níger". Litli
hnokkinn sem situr á verkinu
gefur til kynna stærðarhlutföll-
in. Ljósm. Mbl. ól.K.M.
Ragna Róbertsdóttir við verk sitt „Kirkjugarðinn" á norrænu
vefjarlistsýningunni, sem verður opnuð á Kjarvalsstöðum á
laugardag. Ljósm. ól.K.M.
Þorbjörg Þórðardóttir við verk
á Kjarvalsstöðum.
Gautaborg í fyrrasumar. Þá var
sá háttur hafður á, að skipuð var
dómnefnd í hverju landi, sem
valdi síðan verkin á sýninguna. I
íslensku dómnefndinni voru
Hrafnhildur Schram, Hörður
Ágústsson og Magnús Pálsson.
Alls bárust 29 íslensk verk og
voru átta þeirra valin til sýn-
ingar. Eru þau eftir listamenn-
ina Guðrúnu Auðunsdóttur, Ás-
gerði Búadóttur, sem á tvö verk,
Gerlu Geirsdóttur, Hildi Hákon-
ardóttur, Rögnu Róbertsdóttur,
Þorbjörgu Þórðardóttur og Guð-
rúnu Þorkelsdóttur.
Sýningin hefur nú farið um öll
Norðurlöndin og lýkur ferðinni
- hér á Kjarvalsstöðum. Á sýning-
unni eru 93 listaverk eftir 87
listamenn frá öllum Norðurlönd-
unum, að Færeyjum meðtöldum.
Sýningin er sölusýning, en þegar
„Skyggni ágætt1* á sýningunni
Ljósm. Mbl. ól.K.M.
hafa mörg verkanna selst. Fyllir
sýningin báða sali Kjarvalsstaða
og alla ganga, og þar kennir
margra grasa, þ.á m. er mynd-
vefnaður, textílþrykk, batik,
ísaumur, rýavefnaður, ofinn
skúlptúr og ýmis blönduð tækni.
Að undirbúningi og uppsetn-
ingu sýningarinnar hafa annast
þær Ásgerður Búadóttir, Ásrún
Kristjánsdóttir, Guðrún Gunn-
arsdóttir, Ragna Róbertsdóttir,
Þorbjörg Þórðardóttir og þeir
Guðmundur Benediktsson og
Stefán Halldórsson.
Sýningin verður opnuð kl.
14.00 laugardaginn 12. apríl. Við
það tækifæri flytur Árni Gunn-
arsson, formaður Menningar-
málanefndar Norðurlandaráðs,
ávarp og menntamálaráðherra
Ingvar Gíslason opnar síðan
sýninguna.
sitt
Höfn:
Hafist handa við fyrsta
áfanga f jarvarmaveitu
Höfn Hurnafirði. ]. april.
SAMKVÆMT upplýsingum Þor-
steins Þorsteinssonar, formanns
hitaveitunefndar Hafnarhrepps,
þá stendur yfir vinna við fyrsta
áfanga fjarvarmaveitu og er það
lögn frá kyndistöðinni inn i
miðjan eldrihluta bæjarins,
ásamt dreifikerfi að hverju húsi á
þessu svæði.
Þessum áfanga er fyrirhugað að
ljúka 1. júlí n.k. t apríl og maí er
áformað að bjóða út annan og þriðja
áfanga. Annar áfangi tekur yfir
svæðið frá Bogaslóð að Víkurbraut
og þriðji áfangi verður svo lagður
inn að Víkurbraut í þann hluta
bæjarins, sem ekki er rafhitaður,
ásamt nyja hverfinu innst í bænum.
Bygging kyndistöðvar er komin
vel af stað og er stefnt að því að
setja hana í gagn í haust. Áætlaður
kostnaður vegna dreifikerfis hita-
veitunnar var um 500 milljónir
króna í marz 1979. Áætlanir gera
ráð fyrir að orkukostnaður verði um
90% af rafhitunartaxta og heim-
taugargjöld sambærileg við það sem
gerist hjá öðrum nýlegum hitaveit-
um, eða um 6— 700 þúsund krónur á
hvert íbúðarhús miðað við verðlag í
dag og er gert ráð fyrir því að það
greiðist í þrennu lagi innan tveggja
ára.
Síðan sagði Þorsteinn að fyrst um
sinn notaði kyndistöðin afgangs-
orku frá dísilstöðinni og í því
sambandi mætti nefna dæmi um þá
orku sem færi forgörðum miðað við
olíunotkun sl. ár og verðlag í dag.
Væri þarna um að ræða orku fyrir
um 200 milljónir króna, sem færi út
í veður og vind. Að lokum sagði
Þorsteinn að Hornfirðingar gerðu
sér miklar vonir með að tengjast
landskerfinu svo fljótt sem mögu-
legt væri til þess að losna sem fyrst
■við raforkuframleiðslu með dísilvél-
um.
Discótek og lifandi músik á fjórum hæðum...
<& SJúbbutinn t£>
\ Fimmtudagur takk„. \
Opiö á öilum hæðum hjá okkur í kvöld. Enda veitir ekki
af — Allir þrælhressir eftir gott páskafrí og tilbúnir í
fjörið á nýjan leik. Já, og svo eru skólarnir ekki byrjaðir.
Hljómsveitin Goðgá sér um lifandi músik á fjórðu hæð.
W
Að venju fáum við
Módelsamtökin i
heimsókn með
frábæra tisku-
sýningu.
Módelsamtökin
bregðast aldrei.
Athugið Ljósmyndafyrirsætur á aldrinum 18—25 ára verða valdar
úr hópi gesta. 10—12 stúlkur fá ferðaverðlaun, Útsýnarferö.
Munið svo að koma i betri gallanum og hafið með
ykkur nafnskirteini — Klossar ganga ekki hjá okkur
/ kvöld er það
KARON
Á fimmtudagskvöldum
er oröin hefð að fólk fari á
góðar-tízkusýningar.
í kvöld eins og alltaf á
fimmtudögum koma hin
frábæru Karon sýningar-
samtök og sýna fatnað frá
Verzl. Dalbæ og Kap-
ellu, Kjörgarði.
Sýningin hefst kl. 11.15.
Komið hress í
bragði í
Þorgeir Ástvaldsson mætir
svo á svæðið í kvöld og velur
vinsældarlistann með aðstoð
gesta afsinni alkunnu snilld.
HQLLyWððÐ
— Einar