Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 17
64 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 AUGLÝSING AUGLÝSING MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 65 Grétar Hjartarson: Sjómenn ættu að kynna sér Pétur Ég hef kynnt mér starfsferil Péturs Thorsteinssonar og kom- ist aö þeirri niðurstöðu, að hann sé hæfastur af þeim frambjóð- endum, sem gefa kost á sér til hins virðulega embættis, sem kosið verður til hinn 29. júní næstkomandi. Ég var lengi á sjó, stundaði sjómennsku í meira en 25 ár. Mér finnst ekki fjarri lagi að líkja starfsferli eða öllu heldur starfsvettvangi Péturs við þann vettvang, sem sjómaðurinn velur sér. Þau störf sem Pétur hefur unnið í utanríkisþjónustunni í 36 ár eru ekki veigaminni en störf annarra þegna þessa lands, hvort sem er til sjávar eða sveita þau eru oftast unnin í kyrrþey og ekki borin á torg. Þegar að því kom, að ég fór að leita fyrir mér um starf í landi, urðu ýms ljón á veginum. Þá nefni ég það fyrst, að starf farmannsins gefur honum ekki sömu tækifæri og öðrum mönnum til að kynnast vel fólki í landi eða hafa við það varanleg tengsl. Þessvegna verður það oft tafsamt fyrir farmann að fá vinnu í landi. En hér kom það til, að ég átti samt nokkra trausta vini og félaga í landi sem leita mátti til. Það sem knúði mig til að stinga niður penna, er aðallega, að margir segja Pétur alls óþekktan meðal landa sinna. Þetta má ef til vill til sanns vegar færa, því að störf sendi- ráðsmanna eru ekki daglega í kastljósinu. En Pétur hefur unn- ið að fjölda mála á erlendum vettvangi, er skipta þjóð okkar miklu máli. Þar vil ég sérstak- lega nefna viðskiptasamninginn við Sovétríkin 1953, eftir að Bretar settu löndunarbann á íslenskan fisk, þegar við færðum út landhelgina 1952. Þá var Pétur fyrirliði samninganefnd- arinnar. Þá vil ég og nefna, að Pétur var ráðuneytisstjóri utanríkis- ráðuneytisins, þegar við færðum út í 50 mílur og einnig þegar við börðumst fyrir viðurkenningu á 200 mílna landhelginni. Þá kom sér sannarlega vel að hafa í því starfi jafn hæfan mann og Pét- ur, sem kunni skil á öllum málum. Ég vil hvetja alla landsmenn, og þó sérstaklega sjómenn, til að kynna sér manninn Pétur Thorsteinsson, ágæt og fjölþætt störf hans heima og erlendis, áður en þeir ákveða hvern þeir kjósa til forseta. Pétur hefur aldrei hirt um að kynna sig eða störf sín í fjöl- miðlum. Því þarfnast hann ef til vill meiri kynningar en aðrir frambjóðendur. En við stuðn- ingsmenn hans göngum hiklaust fram fyrir skjöldu því að í kosningum er ekkert eins gott og að berjast fyrir málstað, sem maður hefur trú á. Grétar Hjartarson. Björgvin Halldórsson: Auðvelt að sam- einast um Pétur Það er ékki vandalaust að velja jér þjóðhöfðingja, og hver og einn verður að meta og vega kosti og hæfni þeirra, sem í framboði eru, áður en ákvörðun er tekin. Ég efast ekki um, að allir frambjóðendur í þessum forsetakosningum eru ágætum kostum búnir, hver á sínu sviði. Ég hef hins vegar ákveðið að styðja Pétur Thorsteinsson í embætti forseta íslands. Það geri ég vegna þess, að ég tel hann hæfastan þeirra, sem í framboði eru, til að gegna þessu embætti. Þetta mat mitt byggist á störfum Péturs í opinberri þjón- ustu, þar sem hann hefur komið fram fyrir íslands hönd meðal þjóðhöfðingja víða um heim. Pétur hefur um áratuga skeið verið fulltrúi þjóðar sinnar í fjölmörgum þjóðlöndum. Eru allir sem til þekkja sammála um að hann hafi verið farsæll í störfum sínum. Þetta atriði tel ég mjög mikilvægt, því að mér finnst að forsetinn eigi ekki að síður að vera verðugur fulltrúi þjóðarinnar út á við eins og sameiningartákn gagnvart þjóð- inni sjálfri. Þá tel ég það vera kost við Pétur, að hann stendur utan við stjórnmálaþrasið, sem ætti að gera þjóðinni auðveldara að sameinast um hann sem þjóð- höfðingja. Þetta eru m.a. ástæð- ur þess að ég hef ákveðið að styðja Pétur og ég vona, að sem flestir verði mér sammála, þegar gengið verður að kjörborðinu í júní. Björgvin Ilalldórsson, hljómlistarmaður. Eitt sinn er ég var stelpuhnokki, sagði ég, að það væri vond lykt af öskuköllunum, sem þá voru að moka sorpi á vörubíla á Laugaveginum. Pabbi tók mig þá á kné sér og sagði alvarlegur í bragði: — Mundu það, vina mín, að öll störf eru jafnrétthá og jafn þýðingarmikil í þjóðfélaginu, ef þau eru unnin af samvizkusemi og trúmennsku. Þessi orð hans hafa verið mér gott veganesti í lífinu. Oddný les sögu fyrir Eirík, Björgólf og Pótur. Hún hefur m.a. þýtt barnasögur úr rússnesku og lesiö þœr í útvarp. Aðlögun en ekki gagnrýni Árin okkar erlendis voru mjög viðburðarík og skemmtileg, þrátt fyrir ýmsa erfileika. Það er í mörg horn að líta, þegar maður þarf stöðugt að laga sig að nýjum aðstæðum, bæði hvað snertir venjulegt húshald, starfsaðstöðu og samstarfsfólk. Og svo eru þjóðirnar hver annarri ólíkar. Sendiráðsfólki er nauðsynlegt að átta sig á, að það er ekki sent landa á milli til að gagnrýna, heldur til að skilja það sem mestu ræður um líf og hætti þjóðanna. Aðeins þannig getur það rækt störf sín sem skyldi. En aúðvitað kemur fyrir, að manni mislíki, og ég var ekki mjúk í máli, þegar ég skýrði skólastjóra í frönskum barnaskóla frá því, að ég vildi ekki að syni mínum væri talin trú um, að Kristófer Kólumbus hefði fund- ið Ameríku. Það stóð í mann- kynssögubók eins drengsins míns. Islendingar verða sennilega aldrei eins gramir og þegar þeir heyra erlenda menn halla á land og þjóð. Fátt gerir íslendinga að meiri og betri Islendingum en það að dvelj- ast langdvölum meðal erlendra þjóða. Þegar Pétur varð ráðuneytis- stjóri, þurftum við að greiða fyrir mörgum útlendingum sem hingað komu. Ég veit hve erfitt það er að búa fjarri vinum og ættingjum í ókunnu umhverfi. Því kynnti ég islenzk málefni erlendum konum í Þetta segir Oddný Thorsteins- son. í augum nútíma jafnréttis- konu var hún talsvert á undan samtíð sinni, er hún fór út í viðskiptafræðinám í Bandaríkjun- um snemma á stríðsárunum til að geta staðið á eigin fótum í lífinu. Og þótt það yrði síðar hlutskipti hennar að skipa sér við hlið eiginmanns síns í miklum ábyrgð- arstöðum í stað þess að reka eigið fyrirtæki, hefur hún ávallt staðið á eigin fótum og sýnt sjálfstæði í orði og verki. — Það er misskilningur — seg- ir hún, — að eiginkona sendiherra þurfi að vera áhrifalaus skraut- fjöður. Hún getur til dæmis, eins og raunar eiginkonur allra sendi- ráðsstarfsmanna, unnið mikið landkynningarstarf. Á því sviði hef ég reynt að leggja mig fram, bæði í Moskvu, Bonn, París og Washington og einnig hér heima þau sjö ár sem Pétur gegndi starfi ráðuneytis- stjóra. Undanfarin ár höfum við hjónin kynnt ísland meðal Asíu- þjóða en áhrif þeirra í heiminum fara sívaxandi. Utanríkisþjónusta okkar getur ekki verið margmenn. Þar verður hver og einn að sýna reisn, svo að hann verði ekki fyrir vorkunnsemi vegna smæðar þjóð- arinnar. Hafnaö af því ég var kvenmaður Kjörforeldrar Oddnýjar, Oddný Stefánsdóttir og Björgólfur Stef- ánsson skókaupmaður í Reykja- vík, brutust til mennta með harð- fylgi og dugnaði. — Pabbi lauk Verzlunarskóla íslands og mamma Kennaraskólanum. Bæði vildu þau láta mig læra. Pabbi vildi að ég lærði erlend mál og sæi önnur lönd. Mamma óskaði þess að ég læsi guðfræði. En ég valdi viðskiptafræði, því að hún er hagnýt. — Ég hef alltaf fengið orð fyrir að vera praktísk, — segir Oddný. — Ég var eitt ár í viðskiptadeild Háskóla íslands, en fór síðan í Minnesotaháskóla í Bandaríkjun- um. Það vakti athygli þar, að stúlka frá íslandi var komin þangað að nema viðskiptafræði. Fáar stúlkur höfðu lagt stund á þá grein, og Bandaríkjamenn vissu heldur lítið um ísland. Ég var stundum spurð að því, hvort ég hefði komið að heiman í járn- brautarlest. Ég tók þátt í félagslífi og vann við skólablaðið. Ég sótti um að vera framkvæmdastjóri blaðsins, en var vísað frá. Samt hafði ég frétt, að rekstraráætlun, sem ég hafði gert fyrir blaðið, hefði þótt góð. Formaður nefndar þeirrar sem réð í starfið, sagði mér að kvenfólk fengi það ekki. Hann kvað mína áætlun bezta, en skóla- félagi minn, Ericson, yrði ráðinn. — Þú verður Ericson til aðstoðar á blaðinu, — sagði hann. Því undi ég ekki og sagði upp. Þar með lauk blaðamannsferli mínum. En alla tíð síðan hef ég haft samúð með minnihlutahópum. Með meðmælabréí upp á vasann Ég reyndi að ljúka náminu á sem skemmstum tíma og las sumar og vetur. Jafnframt sótti ég námskeið, m.a. í innanhússarki- tektúr. Það kom sér vel síðar er ég sá um búnað sendiherraheimila. Eftir að námi lauk vildi ég reyna mig í starfi áður en heim kæmi. Ég hélt til Kaliforníu með viðdvöl víða á leiðinni. Ég heim- sótti skóverksmiðju í St.-Louis, sem faðir minn hafði viðskipti við. Ég gekk inn í Brown Shoe Co. og bað um að fá að tala við fram- kvæmdastjórann. Honum fannst greinilega ekkert að því, að ung stúlka í köflóttum skólakjól stæði allt í einu fyrir framan hann og bæði um að fá að sjá, hvernig skór væru búnir til. Hann fór með mig um alla verksmiðjuna. En honum leizt ekki á blikuna, er ég sagðist ætla að gista hjá KFUK fyrir einn dollar og með 9 öðrum stúlkum í herbergi. Hann fór með mig heim til sín og bað konuna sína að gæta mín, þar til dvöl minni á staðnum lyki. Af þessu spratt órofa vinátta við hjónin, og ég skrifaðist á við verksmiðjueigandann þar til hann dó. Þessi vinur minn gaf mér með- mælabréf til framkvæmdastjóra stærstu stórverzlunar í Los Angel- es. Þar vann ég í mörgum deildum og kynntist innkaupum, sölu og markaðsmálum. Þar vann ég tæpt ár, og síðan í banka í San Fransisco. Loks vann ég að inn- kaupum fyrir verzlanir í New York í ár. Ég kom heim til íslands eftir 5 ára dvöl í Bandaríkjunum. Rússneskunám undir Kremlarmúrum Ég ætlaði alltaf að stofna eigið fyrirtæki, en það varð ekkert úr því. Við Pétur kynntumst skömmu eftir að ég kom heim. Hann var þá nýkominn heim frá Sovétríkjun- um eftir þriggja ára dvöl þar. Við giftum okkur fljótlega. Ég fór aftur í háskólann og lagði þá stund á frönsku. Við réðumst í að koma okkur upp eigin húsnæði. Við vorum nýflutt í íbúðina, þegar Pétur færði mér þau tíðindi að hann yrði skipaður sendiherra í Moskvu. Þetta þótti mér miklar fréttir. Hann var þá 35 ára, en þekkti Sovétríkin vel og verzlun- arviðskipti við þau. Nú hófst starf mitt sem eigin- kona sendiherra. Ég vildi búa mig sem bezt undir það og fór að lesa þær bækur í bókaskápnum, sem fjölluðu um rússnesk málefni og endurlas rússneskar bókmenntir, sem ég náði í. Svo fór ég að læra rússnesku. í Moskvu bjuggum við fyrstu 6 mánuðina í gistihúsi rétt við Kreml. Ég man að ég gekk á hverjum degi í garði við Kreml- armúra og þuldi rússnesk orð, sem ég hafði einsett mér að læra þann daginn. Við hjónin bjuggum sjö og hálft ár í Moskvu. Á þeim tíma fæddust okkur þrír synir, Pétur Gunnar, Björgólfur og Eiríkur. Þegar elzti drengurinn var kominn á fjór- tánda ár, lögðum við mikla áherzlu á, að fá að flytjast heim til íslands, því að við vildum að synir okkar yrðu ósviknir íslendingar. Við fluttumst síðan heim árið 1969 eftir 16 ára útivist. sendiráðum í Reykjavík. Ég heim- sótti með þeim söfn og vinnustaði. Bæði þær og ég höfðu mikið gagn af þessu. Ég sannfærðist betur en áður um það, að hér býr gott fólk og dugmikið. ... hvernig fólk hugsar og hvernig það er í opinberum samskiptum þjóða viðgangast ýmsar umgengnisregl- ur, sem mörgum utanaðkomandi virðast framandi og óþarfar. Þar ber fyrst að nefna boð, móttökur og samkvæmi. Reynsla mín er sú, að þetta hafi hagnýtum og mann- legum tilgangi að þjóna, enda hefðu samkvæmi lagzt niður ef þau hefðu ekki sýnilegt gildi. Á þessum vettvangi hef ég kynnzt ýmsum stjórnmálaleiðtogum og þjóðhöfðingjum, og koma mér þá einnig í hug tvær ólíkar konur, frú Lúbke og frú De Gaulle. Störf mín í utanríkisþjónust- unni hafa sannað mér að það er rétt sem pabbi minn sagði við mig, þegar ég var lítil. Mannvirðingar eru ekki mælikvarði á manngildi. Það skiptir mestu, hvernig fólk hugsar og hvernig það er, en ekki hvað það heitir eða hvaða starf það hefur með höndum. — ge. Það skiptir fólk hugsar mestu hvernig og hvernig það er Brot úr ræöu sr. Þóris Stephensen á fundinum í Laugarásbíói. Hann vitnar til fundar meö Pétri í Sigtúni og segir: „Hann er nógu stór til aö lúta skapara sín- um í auðmýkt“ Samkvæmt lútherskum skiln- ingi er þjóðhöfðinginn æðsti maður þjóðkirkjunnar. Mér'iék því hugur á að spyrja Pétur um afstöðu hans til trúar og kirkju. Hann svaraði spurn minni með því að segja frá því trúarlega uppeldi, sem hann hlaut hjá afa sínum og ömmu, frá bænunum, sem amma hans kenndi honum, og frá fundunum, sem sr. Friðrik Friðriksson hélt með þeim drengjunum í Hafnarfirði. Hann sagði, að sá grundvöllur, sem þarna var lagður, væri enn hornsteinninn í hans andlega lífi, og við sannfærðumst um það öll, sem þarna vorum, að í Pétri Thorsteinssyni mundum við, ef til kæmi, eignast þjóðhöfðingja, sem væri nógu stór til þess að lúta skapara sínum í auðmýkt og biðja hann, — biðja „Guð vors lands" að varðveita íslenska þjóð, líf hennar og starf og sækja til hans styrk til vanda- samra verkefna. Tryggvi Haröarson: Mér leið vel í návist hans Á námsárum mínum í Kína kynntist ég Pétri Thorsteinssyni nokkuð. Hann var þá sendiherra í mörgum ríkjum Asíu og kom að jafnaði tvisvar á ári til Kína. Vil ég hér greina lítillega frá kynnum okkar. Dag nokkurn þegar ég kom heim úr skólanum lágu fyrir mér skilaboð þess efnis að íslenski sendiherrann væri staddur í Pek- ing, og að hann hefði áhuga á að hitta okkur, tvo íslenska nemend- ur, sem þá voru við nám þar. Islendingar eru sjaldséðir gestir i Peking og því hlakkaði ég til að hitta Pétur. En satt best að segja var ég ekki alltof bjartsýnn, því að álit mitt á embættismönnum ríkisins var takmarkað. Skyldi þetta nú vera- einhver leiðihda hrokagikkur sem væri að rubba af einhverjum embættisskyldum? En hvað um það. Ég lagði af stað ríðandi á hjólhesti mínum þessa tuttugu km leið sem skilur að Pekingháskóla og Hótel Peking. Pétur tók ljúfmannlega á móti okkur og bauð okkur sæti. Síðan var rabbað saman góða stund og sagði Pétur okkur upp og ofan af því markverðasta sem var að gerast á íslandi. Það gekk greitt, því að Pétur virtist vel heima í öllum málum og var gagnorður og laus við allar málalengingar. Hann vissi ná- kvæmlega hvað var fréttnæmt og hvað ekki og datt mér í hug, að blaðamenn gætu mikið af honum lært. Þá spurði hann um hagi Kínverja. Olíkt flestum öðrum spurði hann af mikilli þekkingu og skilningi. Og brátt kom það í ljós, að þekking Péturs og skilningur náði ekki aðeins til Kínverja og aðstæðna í Kína, heldur átti þetta jafnt við um allar þjóðir og öll ríki veraldar. En maðurinn er meira en vits- munavera. Hann er líka mann- eskja og standa þar allir jafnt. En þó svo að allir standi jafnt, þá standa þó sumir upp úr. Pétur er einn þeirra. Hann er aðlaðandi persóna, hógvær en samt höfðing- lundaður. Og svo að ég svari nú spurningunni, sem kom upp í huga mér, þegar mér bárust boð Péturs og nefnd er hér í upphafi, þá er það sem kalla mætti „embætt- ismannahroka" ekki til í fari Péturs. Ég hitti Pétur oft eftir þessi fyrstu kynni okkar og alltaf var hann jafn hlýr og hress. Mér leið vel í návist hans. Þó svo að einn góður vinur minn, sem nú stundar nám í Kína, láti í ljós áhyggjur sínar yfir því, að verði Pétur kosinn forseti leiði það óhjákvæmilega til þess að hann missi hinn ágæta sendiherra sinn, þá læt ég það ekki aftra mér frá því að styðja Pétur heilshugar í forsetaembættið. Og einhvern veginn er því þannig farið, að þeir sem þekkja Pétur mest, styðja hann best. Nú geri hver sem betur getur, vinnum vel og styðjum Pétur! Tryggvi Harðarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.