Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980 59 Aðalfundur Landssambands lífeyrissjóða: 49 lífeyrissjóðir með 11,4 milljarða tekjur. Aðalfundur Landssambands lífeyrissjóða var haldinn 13. maí s.l. Aðildarsjóðir þess eru nú 49 að tölu og eru áætlaðar iðgjalda- tekjur þeirra á árinu 1980 um 11.4 milljarðar kr. eða um 42% af heildariðgjaldatekjum allra lífeyrissjóða á landinu. segir í fréttatilkynningu, sem Mbl. hef- ur borizt. í skýrslu stjórnar, sem formað- ur landssambandsins Bjarni Þórð- arson, tryggingafræðingur, flutti, voru m.a. rakin afskipti stjórnar- innar af fyrirætlun ríkisstjórna um að lögbinda skyldu lífeyris- sjóða til kaupa á skuldabréfum ríkissjóðs, Byggingarsjóðs ríkisins og Framkvæmdasjóðs íslands. Urðu miklar umræður um þetta mál og samþykkt svohljóðandi ályktun: „Stjórn Landssambands lífeyr- issjóða haldinn 13. maí 1980 árétt- ar afstöðu stjórnar Landssam- bands lífeyrissjóða til fyrirætlana ríkisvaldsins um að skerða frelsi lífeyrissjóðanna yfir ráðstöfun- arfé þeirra og vísar til, þess, sem segir í samþykkt stjórnarinnar 7. maí s.l.: Stjórn Landssambands lífeyr- issjóða fjallaði á fundi sínum í dag um frumvarp til lánsfjárlaga, sem lagt var fram á Alþingi 3. þ.m. í 3. gr. frumvarpsins eru ákvæði, sem gera ráð fyrir skyldu lífeyrissjóða til þess að kaupa skuldabréf ríkissjóðs, Byggingarsjóðs ríkisins og Framkvæmdasjóðs íslands fyrir a.m.k. 40% af ráðstöfunarfé sínu. Stjórnin mótmælir eindregið þessum fyrirætlunum ríkisvalds- ins um að binda í lögum ákvæði um hvar lífeyrissjóðir ávaxti fjár- muni sína og áréttar það grund- vallarsjónarmið, að lán úr lífeyr- issjóðum er og verður samnings- atriði milli aðila. Stjórnin skorar því á stjórnvöld að endurskoða hugmyndir sínar í þessu efni og er reiðubúin til viðræðna . um æskilega skipan þessara mála.“ Þá urðu einnig miklar umræður um lög um eftirlaun aldraðra, sem tóku gildi um síðustu áramót, en þau leggja þá skyldu á lífeyris- sjóðina að greiða 5% af iðgjalda- tekjum til að standa undir lífeyr- isgreiðslum til m.a. þeirra, sem aldrei hafa verið í lífeyrissjóði. Um þetta atriði var samþykkt svofelld ályktun: „Aðalfundur Landssambands lífeyrissjóða haldinn 13. maí 1980 mótmælir harðlega greiðsluskyldu þeirri, er lífeyrissjóðunum er lögð á herðar með lögum nr. 97/1979' um eftirlaun aldraðra. Aðalfundurinn álítur það rang- láta og ólöglega gerð að skerða lífeyrisréttindi sjóðfélaga, sem til þeirra hafa unnið, til að gefa öðrum, utan lífeyrissjóða, lífeyris- réttindi. Ef ríkisvaldið ætlar að bæta lífeyrisréttindi þeirra, sem utan lífeyrissjóða standa, lítur aðal- fundur Landssambands lífeyris- sjóða svo á, að það skuli gert gegnum tryggingakerfið úr hinum sameiginlega sjóði, ríkissjóði." Guðjón Hansen, tryggingafræð- ingur, flutti erindi um samskipti lífeyrissjóða varðandi flutning lífeyrisréttinda. Stjórn lands- sambandsins var endurkjörin en hana skipa: Bjarni Þórðarson, Guðmundur H. Garðarsson, Gunnar G. Zoéga, Hermann Þorsteinsson og Þórhallur Hall- dórsson. í varastjórn eru: Eyþór Þórðarson og Tómas Guðjónsson. Endurskoðendur eru: Einar Th. Magnússon og Lárus Halldórsson. Þá hefur verið skipuð sérstök framkvæmdanefnd og er formað- ur hennar dr. Pétur H. Blöndal, tryggingafræðingur. Stefnir kominnút TÍMARITIÐ Stefnir, 3. tölublað 31. árgangs, er komið út, en það er Samband ungra sjálfstæð- ismanna sem gefur ritið út. Efni blaðsins er fjölbreytt að vanda og hefur meðal annars að geyma á annan tug greina um þjóðmái, fréttir af starfi Sjálf- stæðisflokksins og margt fleira. Birgir ísleifur Gunnarsson borgarfulltrúi ritar greinina Tveggja ára reynsla af vinstri stjórn í Reykjavík; Ungt fólk taki þátt í stjórnmálabaráttunni nefnist grein eftir Anders Han- sen; Jón Magnússon ritar um innlend málefni; Einar K. Guð- finnsson um bresk stjórnmál; Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson rit- ar um deildaskiptingu Alþingis; Pálmi Jónsson og Friðrik Soph- usson skiptast á skoðunum um ríkisstjórn Gunnars Thorodd- sens. Anna Bjarnadóttir skrifar um Edward Kennedy og Jón Forsíða hins nýútkomna tölu- blaðs tímaritsins Stefnis, sem gefið er út af ungum sjálfstæðis- mönnum. Ormur Halldórsson ritar um erlend málefni. Þá er í blaðinu þýdd grein úr The Financial Times um stjórn- armyndunina í febrúar, þættir úr starfi SUS, þátturinn Úr þjóðlífinu, Stefnisviðtal er við Jón Orm Halldórsson aðstoð- armann forsætisráðherra, birtur er kafli úr óbirtri skáldsögu Guðmundar Daníelssonar rit- höfundar, sex sjálfstæðismenn svara spurningu Stefnis og margt fleira er í blaðinu að þessu sinni. Forsíðumyndin er eftir Ólaf K. Magnússon ljós- myndara. Ritstjóri tímaritsins Stefnis er Anders Hansen. AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22410 JH»r0uitMabih ** fé-f- F1SHER toppuriim í dag yöar er valið j,. ; -f rj-' Plötuspilari Timer Tónsviösjafnari Tuner Magnari Kassettutæki MT-6225 TR-3000 EQ-3000 FM-2121 CA-2030 CR-4120 Samtals kr. 215.500.- kf. 194.500,- kr. 196.500,- kr. 214.500.- kr. 1.015.000, Plötuspilari Timer Tónsviðsjafnari Tuner Formagnari Kraftmagnari Kassettutæki BORGARTUN118 REYKJAVÍK SÍMI 27099 □ c d □ □ ci □ MT-6360 TR-3000 EQ-3000 FM-2331 CC-3000 BA-6000 CR-4170 Samtals tojam:. kr. 59.500.- kr. 134.500.- kr. 264.000,- kr. 157.000,- kr. 1.775.000,-1 £ |Á|J\/A DDCDIIMIJ Þetta eru aðeins tvö dæmi lFA%lml«IDUlr I" Að sjálfsögðu eru möguleikarnir miklu fleiri frá FISHER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.