Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 16
AUGLÝSING
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980
63
BLAÐ STUÐNINGSMANNA
PÉTURS J. THORSTEINSSONAR
KOSNINGASKRIFSTOFUR
Reykjavík
Aðalskrifstofa stuðnings-
manna Péturs J. Thorsteinsson-
ar er að Vesturgötu 17 í
Reykjavík, símar 28170 og 28171.
Þar liggja frammi kjörskrár og
þar er veitt hvers konar upplýs-
ingaþjónusta.
Forstöðumaður er Óskar V.
Friðriksson.
Hafnarfjörður
Kosningaskrifstofa verður
opnuð bráðlega í Sjónarhóli við
Reykjavíkurveg.
Patreksfjörður
Kosningaskrifstofan er að
Urðargötu 7, sími 94-1129. For-
stöðu skrifstofunnar hefur Ólaf-
ur Guðbjartsson.
ísafjörður
Á Isafirði er opin kosn-
ingaskrifstofa fyrir Vestfirði að
Hafnarstræti 12, sími 4232.
Málfríður Halldórsdóttir veitir
skrifstofunni forstöðu.
Hvammstangi
Egill Gunnlaugsson annast
forstöðu kosningaskrifstofu á
Hvammstanga, sími 95-1358.
Sauðárkrókur
Kosningaskrifstofan er í
Sjálfsbjargarhúsinu við Sæm-
undargötu, sími 95-5700. For-
stöðumaður er Björn Björnsson.
Skrifstofan er opin 17—19 og
20.30-22.
Akureyri
Stuðningsmenn Péturs á Ak-
ureyri hafa opnað skrifstofu þar
fyrir Norðlendingafjórðung.
Hún er á 2. hæð í Amarohúsinu,
Hafnarstræti 101, símar 25300
og 25301. Skrifstofan er opin alla
virka daga kl. 14—19. Forstöðu-
menn eru Halldóra Ingimars-
dóttir og Herdís Elín
Steingrímsdóttir.
Húsavík
Kosningaskrifstofa verður
bráðlega opnuð á Húsavík. Þang-
að til gefur Hákon Aðalsteinsson
allar upplýsingar. Heimilisfang
hans er að Skjólbrekku 6, símar
41260 og 41261.
Egilsstaðir
Kosningaskrifstofan verður að
Bláskógum 2. Síminn verður
tilkynntur síðar.
Vestmannaeyjar
Skrifstofan er að Skólavegi 2,
sími 98-1013. Frú Sigríður Jak-
obsdóttir sér um störfin á
skrifstofunni.
Keflavík
Kosningaskrifstofa hefur ver-
ið opnuð að Grundarvegi 23,
Njarðvík. Síminn er 92-2144.
Forstöðu fyrir skrifstofunni hef-
ur Jóhanna Björgúlfsdóttir.
Fundur í
Hafnarfirði
Stuðningsmenn Péturs
Thorsteinssonar í Hafnarfirði
boða til fundar með Pétri í
Bæjarbíói í Hafnarfirði mið-
vikudaginn 28. maí kl. 20.30.
Fundurinn verður nánar aug-
lýstur í blöðum og útvarpi.
Ragnar Jónsson í Smára:
Styð Pétur Thorsteinsson
RAGNAR Jónsson í Smára lýsti
því yfir í gær, þegar hann hitti
Pétur Thorsteinsson að máli, að
hann hefði ákveðið að styðja hann
til forsetaembættis. Mbl. spurði
Ragnar Jónsson, hvað hann vildi
segja frekar um afstöðu sína.
Hann sagði:
„Nú er vor í lofti og fuglasöngur
í öllum görðum hér í Vesturbæn-
um og ástæða til að gleðjast yfir
ýmsu því, sem leitar á hugann,
t.a.m. fimmtíu ára afmæli Tón-
listarfélagsins og heimsókn pían-
ósnillingsins Rudolfs Serkins og
fjölskyldu hans af því tilefni. Það
er því vel við eigandi að taka af
skarið og lýsa yfir stuðningi við
Pétur Thorsteinsson, listrænan
húmanista, sem mundi skipa for-
setaembættið með sóma. Muggur
frændi Péturs er minn uppá-
haldsmálari og það sem hann
hefur bezt gert er öðru betra í
íslenzkri myndlist. Mér finnst þeir
frændur vera þó nokkuð líkir og
þykist vita, að Pétur Thorsteins-
son eigi eftir að flytja með sér inn
á Bessastaðaheimilið það látlausa
listræna andrúm, sem fylgir þessu
fólki.“
(Frítt í Mbi. þríðjud. 20 m»f 1980) Arni Kristjánsson, pianóleikari, og Ragnar Jónsson í heimsókn hjá Pétri Thorsteinssyni þann 19. maí.
Kjósum þann sem
við treystum best
Hátt á fjóröa þúsund
manns hafa komiö á
fyrstu þrjá fundi stuön-
ingsmanna Péturs J.
Thorsteinssonar í Reykjavík. Tveir
voru haldnir í Sigtúni á sumar-
daginn fyrsta og á uppstigningar-
dag, en sá þriöji var í Laugarás-
bíói laugardaginn 3. maí s.l.
Þar fyrir utan hefur Pétur
heimsótt fjölda vinnustaöa og
svarað fyrirspurnum um störf sín
og viöhorf til embættis forseta
íslands.
Þaö hefur veriö einkennandi,
hversu góöar undirtektir málflutn-
ingur Péturs hefur fengiö, og
jafnframt hefur komiö í Ijós, aö
langstærstur hluti kjósenda hefur
enn ekki gert upp hug sinn og vill
kynnast sjónarmiöum forsetaefna
áöur en þeir taka ákvöröun. Er
eftirtektarvert, hversu margir lýsa
yfir stuöningi við Pétur eftir að
hafa hlýtt á sjónarmiö hans.
Mikilvægasta embætti
landsins
Á þessum fundum hafa stuön-
ingsmenn Péturs flutt ávörp. Þaö
er grunntónninn í þessum ræö-
um, aö forsetaembættið sé alls
ekki áhrifalaust viröingarembætti,
þar sem aðalstarf forsetans er aö
taka á móti gestum. Þvert á móti
sé hlutverk forsetans mjög mikil-
vægt í stjórnkerfinu og miklu
skipti aö hinir hæfustu menn skipi
þaö embætti. Þaö hefur veriö
bent á, aö fyrri forsetar voru allir
mjög kunnugir málefnum þjóöar
sinnar og þaö hafa veriö tekin
dæmi af því, þegar áhrifa forset-
ans hefur verulega gætt um stjórn
landsins.
Vitanlega gætir áhrifa forset-
ans minna, þegar friöur er um
stjórn landsins og lítil ólga í
alþjóöamálum, en óstööugt
stjórnarfar, — tíðar stjórnar-
kreppur og alþingiskosningar, —
svo og hættuástand í alþjóöamál-
um veldur því, aö mikilvægi
forsetaembættisins eykst.
Eiga aörir að ráöa
hvað þú kýst?
Ræðumenn hafa m.a. gert aö
umtalsefni þann áróöur, sem víöa
er rekinn, aö Pétur J. Thor-
steinsson sé án efa hæfastur
frambjóöenda til þess aö gegna
embætti forseta íslands, hann
hafi yfirburöaþekkingu á utan-
ríkismálum, sem skipti mjög
miklu máli nú, þegar viösjár
aukast nær daglega meö stór-
veldunum, og sama sé aö segja
um þekkingu á sögu lands og
þjóöar og stjórnkerfi lýðveldisins.
En — Pétur hafi hins vegar ekki
nægjanlegt fylgi til þess aö hljóta
kosningu og þess vegna beri aö
kjósa aöra menn, aö vísu ekki
eins hæfa en fylgismeiri. Þessum
áróðri er auðsvarað. Kjósendur
hljóta aö kjósa þann mann þjóö-
höfðingja, sem þeir treysta best,
og þaö er ábyrgöarlaus afstaða
aö láta gróusögur um fylgi eöa
fylgisleysi ráöa, hver kosinn er.
Har.BI.