Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 12
60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980
Cleartone-
talstöðvar
□ Fyrirferðalítil. □ 3 rásir.
□ Innbyggður hátalari. □ 25 watta sendistyrkur.
Bitstál - Hamarshöfði 1 - Sími 31500.
Má bjóða þér
bíl
um helgina?
Þveginn, bónaðan, skráðan
og skoðaðan,
- með tómum öskubökkum
og fullum bensíntanki -
tryggðan og tilbúinn beint á götuna.
p.s./Við bjóðum líka hagstæð kjör
- gáðu að því.
rf
r
LOFTLEIDIR Bl'LALEIGA
2?21190
Hér er mynd af hinni landsþekktu 24 feta plasttriilu frá Mótun h/f, sem framleidd er eftir færeyskri
fyrirmynd. Hafa nú verið framleiddir á annað hundrað bátar af þessari gerð hjá fyrirtækinu, sýnir það
hversu vinsælir þeir eru. Tii xamans má geta þess að ein af þessum 2.2 tonna trillum kom að landi með 3.1
tonn af handfærafiski úr einni sjóferð nú íyrir stuttu.
Aukin fjölbreytni í plast-
bátaframleiðslu hér á landi
Fyrir stuttu lagði ég leið mína í
plastbátaverksmiðju Mótunar h/f í
Hafnarfirði til þess að kynnast
betur starfseminni, sem þar fer
fram í 900 m2 húsakynnum fyrir-
tækisins. Utan dyra mátti sjá eina
fimmtán báta á mism. framleiðslu-
stigi. Er inn kom blasti við frum-
skógur af bátum, sem var verið að
vinna við. Eg hitti að máli
framkv.stj. Mótunar h/f, Regin
Grímsson, sem sýndi mér fram-
leiðsluna og húsakynnin, sem fyrr
segur eru um 900 m2. Virtist mér
gott skipulag á hlutunum og mikil
gróska virðist vera á plastbáta-
framleiðslu Mótunar h/f. Starfa
þar nú 15 manns að staðaldri.
Sannarlega er það ánægjulegt
hvað íslendingar virðast hafa hasl-
að sér traustan völl í plastbáta-
framleiðslu hér heima. Reginn
sýndi mér m.a. nýja gerð af mjög
athyglisverðum 20 ft. hraðbáti,
sem fyrir stuttu var hafin fram-
leiðsla á hjá fyrirtækinu. Þessi
bátur er með mjög sérkennilegt
botnlag, er gefur bátnum mikla
sjóhæfni að mínu mati og mýkt í
sjó, að auki vel lagaða og fallega
yfirbyggingu, sem mér virðist sér
hönnuð fyrir íslenskar aðstæður
enda alíslensk smíð frá grunni.
Ég spurði Regin m.a. hvenær
fyrirtækið Mótun h/f var stofnað
og hvert markmiðið hafi verið.
Fórust honum þannig orð: Það var
Umsjón HAFSTEINN
SVEINSSON
ir betur að íslenskum markaði,
þ.e.a.s., fiskimönnunum fengið
betra athafnapláss við veiðar og
stjórnun á bátunum, jafnframt því
að allur aðbúnaður hæfir einnig
fjölskyldubát. Um áramótin
1978—9 hóf Mótun h/f framleiðslu
á 28 feta (5.5 tonna) fiskibáti, sem
hannaður var hjá fyrirtækinu af
Guðmundi Lárussyni. Stuðst var
við reynslu af þeim færeyska og
reynt að hanna sem best, traustan,
ódýran en gangmikinn fiskibát
með hagkvæmri vélarstærð. Sú
stutta reynsla sem fengin er lofar
góðu um að áður nefndum tak-
mörkum hafi verið náð.
Á fyrstu bátasýningu sinnar
tegundar, sem haldin var á íslandi
vorið 1979, á vegum Snarfara, var
kynnt 23 feta snekkja. Þessi bátur
nær því að geta kallast „úthafs-
fjölskyldubátur" (ocean going fam-
ily cruicer). Skrokklagið hentar
mjög vel við íslenskar aðstæður.
Hvasst stefni veldur því að bátur-
inn sker vel öldur og er hann því
mjúkur í öldugangi. Mikill botn-
flötur gerir það að báturinn getur
„planað" á lágum hraða, eða um
16—17 hnútum. Bátinn má útbúa
með einni 145 ha dieselvél og er
ganghraði með þeirri vél um 30
hnútar, eða tveim bensínvélum.
Þessa fjóra báta geta menn fengið
á mism. byggingarstigi og einnig
sem „kit“ þ.e., skrokkinn með öllu
sem til þarf, til að fullgera bátinn.
Ekki má svo skilja svo við innlenda
framleiðslu á bátum að ekki sé
minnst á það misrétti, sem núgild-
andi tollareglur setja. Nær öll
aðföng önnur en plast og trefjar,
bera mun hærri tolla en fullsmíð-
aðir innfluttir bátar, sem fluttir
eru inn í landið nær ótollaðir.
Sérstaklega á þetta þó við um báta
undir 6 metrum. Um innlenda
framleiðslu á þeim bátum verður
vart að ræða við núgildandi reglur.
Þessum aðstöðumun tengist einnig
Siglingamálastofnun ríkisins.
íslenskir bátaframleiðendur eru
fegnir strangri túlkun reglna varð-
andi styrk og búnað báta, sem
notast skulu við íslandsstrendur,
þar sem mikil og snörp veðrabrigði
og hafnleysur eru. Væri vel ef
þeirri ágætu stofnun tækist að
koma sínum kröfum á innflutta
báta eins og þeir hafa innlenda
framleiðslu í hendi sér og auka þar
með öryggi sjófarenda. Nú í vetur
var hafin framleiðsla á 20 feta
hraðbát. Við hönnun á honum var
stuðst við norskan hraðbát, sem er
þekktur sem óvenjugóður sjóbátur
með mikinn ganghraða. Hugmynd-
in var að koma með á markaðinn
ódýran skemmtibát þar sem gert
er ráð fyrir að hann kosti ekki
meir en um 6—7 millj. fullbúinn,
sem margir gætu ráðið við. Báðir
þessir skemmtibátar eru sérstak-
lega hannaðir fyrir okkar köldu
veðráttu, þannig að stýrimaður er
inni í húsi þar sem hann getur
staðið uppréttur og eftir atvikum
er hægt að loka húsinu með þili.
Einnig er gert ráð fyrir að menn
geti vel athafnað sig úti með
veiðarfæri því allt sjósport hér-
lendis virðist hafa fiskveiðar sem
einhverskonar rúsínu í pylsuend-
anum. Káetan er höfð þannig að
tveir til fjórir geti sofið og eldað,
einnig er gert ráð fyrir klósetti,
þannig að bátarnir eru einskonar
sumarbústaðir þó sérstaklega 23
feta snekkjan.
Þetta er 23 feta sportbátur frá Mótun h/f mjög rumgoóur, mikið fley,
minnsta kosti á fsienskan mæiikvarða. Frágangur allur hinn
vandaðasti og um leið snyrtilegur. Ilann er með 145 hö Mercuriser
dieseivél og nær um 30 sjómilna ganghraða, sem verður að teljast góð
yfirferð.
í mars 1977, sem fyrirtækið Mótun
h/f í Hafnarfirði var stofnað.
Tilgangur félagsins var að fram-
leiða báta úr trefjaplasti, með
þeirri aðferð, sem nágrannar okk-
ar Bretar og Skandinavar hafa
notað og þróað í tugi ára og með
því móti tekist að gera smábáta að
almenningseign. Mótun h/f leitaði
til frænda okkar Færeyinga um
mót af 24 feta fiskibáti, sem þar
hafði verið framleiddur í nokkur
ár við mjög góðar undirtektir
þarlendra, enda hér um að ræða
aldagamalt skrokklag, sem að
sjálfsögðu hefur verið stílfært með
tilkomu véla í báta. Mótun h/f
hefur framleitt alls rúmlega 120
báta með þessu skrokklagi og um
20 pantanir liggja fyrir hjá fyrir-
tækinu. Síðastliðinn vetur voru
gerðar nokkrar breytingar á fyrir-
komulagi í bátunum og þeir sniðn-
Hér er verið að sjósetja 28 feta (5.5 tonn) plastfiskibát frá Mótun h/f,
sem hannaður var hjá fyrirtækinu af Guðmundi Lárussyni og er þvi
alíslenskur frá grunni.