Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 79 „Erfiðast var að kenna þeim að drekka mjólku Fimm aí yngri kynslóð víetnömsku flóttamannanna sem komu hingað til lands sl. ár hafa í vetur verið í smá- barnaskóla Selmu Júlíusdótt- ur í Breiðholti. Það eru þeir Stefán og Pétur sem eru báðir 3ja ára, Eggert og óli sem eru á sjötta ári og Torfi sem er á áttunda ári. Að sögn Selmu hefur þeim gengið mjög vel að læra íslensku og skilja þeir nú allir almennt mælt mál og þeir Litið inn í smá- barnaskóla Selmu Jónsdóttur þar sem fimm af yngri kynslóð víetnömsku flóttamannanna hafa stundað nám í vetur þrir elstu tala einnig nokkra íslensku. Hins vegar sagði Selma að þeir væru fremur tregir til þess að tala íslensk- una, töluðu helst bara við hana og svo jafnaldra sína. „Þetta var mjög erfitt hjá þeim í fyrstu", sagði Selma. „Þeir voru hálf hræddir í þessu nýja umhverfi og skildu engan. Þegar þeir voru úti að leika sér héldu þeir oftast hópinn en frá því í vor hafa þeir leikið sér jafnt við íslensk börn eins og hver við annan. Einna erfiðast var að kenna þeim að drekka mjólk. Þeir höfðu aldrei drukkið aðra mjólk en móðurmjólkina þegar þeir komu hingað. En nú drekka þeir hana með bestu lyst,“ sagði Selma. Er blaðamenn heimsóttu skólann voru þeir Eggert, Óli og Torfi að reikna og skrifa en Pétur og Stefán hjóluðu um á gólfinu. Þegar Torfi tók sig til og setti plötu með „Línu lang- sokk“ á fóninn hjólaði Stefán strax að skápnum með plötu- spilaranum, staðnæmdist fyrir framan hann og söng með. Skemmtilegasta verkefnið sem ég hef fengið er að kenna þessum drengjum. Það er svo stórkostlegt að sjá hvað þeim hefur farið mikið fram,“ sagði Selma að lokum. Þegar lærdómnum var loklA tók Oli til viA aA byggja skip. Eggert, Óli og Torfi viA skrifborAiA en Selma krýpur hjá þeim og Stefán og Pétur með þrihjólin. Fylgist meö auglýsingunum frá okkur — ný og betri Valhöll, og alltaf eitthvaö um aö vera.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.