Morgunblaðið - 05.06.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.06.1980, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 124. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kennedy vann í 5 af 8 ríkjum — en Carter hefur fengið tilskilinn fjölda kjörmanna til að fá útnefningu demókrata Ronald Reagan frambjóðandi repúblikana WashinKton. Los Angeles. 4. júní. AP. JIMMY Carter, forseti Bandaríkj- anna lýsti í dag yfir sinri sínum í baráttunni um útnefningu demó- krataflokksins til forsetafram- boðs. Bann varð þó að sætta sig við ósigur i fimm af átta prófkjörum í gær. Þar á meðal i Kaliforníu. fjölmennasta riki Bandarikjanna. Það kemur þó ekki að sök, því hann hefur fengið tilskilinn fjölda Tekjuskattstillagan í Kaliforníu: .„Nei“ við lækkun Los Angeles, 4. júní. AP. ÍBÚAR Kaliforniu höfnuðu i þjóðaratkvæðagreiðslu tillögu um að lækka tekjuskatt. Þegar talsvert var liðið á talningu atkvæða lá ljóst fyrir að tillagan næði ekki fram að ganga, 67% voru andvígir til- lögunni en 37% voru fylgjandi. Ef tillagan hefði náð fram að ganga, hefði tekjuskattur verið lækkaður um 4 milljarða doll- ara, eða sem nemur 1800 millj- örðum króna á ári. Þá höfnuðu íbúar Kaliforníu tillögu um afnám núgildandi verðlagseft- irlits með húsaleigu. kjörmanna til að hljóta útnefn- ingu i fyrstu umferð á flokksþingi demókrata. Ilann hvatti Edward Kennedy. öldungadeildarþing- mann til að hætta baráttu sinni fyrir útnefningu. Edward Kennedy sagðist þó ekki gefa árar í bát. „Baráttan er rétt að byrja,“ sagði Kennedy. Hann von- ast til þess, að leysa kjörmenn frá þeirri skyldu sinni að kjósa „sinn“ frambjóðanda í fyrstu umferð. Hann hefur boðið Carter í kapp- ræður og að þeim loknum verði kjörmönnum frjálst að kjósa þann frambjóðanda, sem þeir sjálfir vilja. Samkvæmt útreikningum AP- fréttastofunnar, þá hefur Carter stuðning 1924 fulltrúa á flokksþing- inu, Kennedy 1211. Carter sigraði í 24 ríkjum í forkosningunum en Kennedy í 10, þeirra á meðal í ýmsum fjölmennustu ríkjunum. í prófkjörunum í gær sigraði Kenne- dy í Kaliforníu, New Jersey, Rhode Island, Nýju-Mexikó og Suður- Dakota. Carter hins vegar bar sigurorð af Kennedy í Ohio, Mont- ana og Vestur-Virginíu. Ronald Reagan hafði engan virk- an mótframbjóðanda í prófkjörun- um. Helsti keppinautur hans, George Bush, hafði lýst yfir stuðn- ingi við Reagan. Það er því ljóst, að Ronald Reagan verður frambjóð- andi repúblikana. Sjá nánar frétt frá Önnu Bjarna- dóttur, sem stödd er í Los Angel- es, á bls. 23. Sargaði kirt- ilinn í sundur Sheffield, 4. júní. AP. MAÐUR nokkur liggur nú á sjúkrahúsi í Sheffield í Eng- landi. Það i sjálfu sér er ekki i frásögur færandi en það sem er óvenjulegt við sjúkrahúslegu hans nú er, að hann fékk félaga sinn til að taka úr sér hálskirtl- ana - öllu heldur, taka átti kirtlana úr með eldhúshníf og skærum, án nokkurrar deyfing- ar eða að áhöldin væru sótt- hreinsuð. Félaginn tók til við að sarga í sundur kirtla mannsins og tókst að sarga í sundur helming annars kirtilsins. Þá blæddi svo heiftar- lega að þeim félögum leist ekki á blikuna og því var farið á sjúkra- hús. „Þetta er líkast hryllingssögu frá miðöldum. Það er greinilegt að maðurinn treystir ekki lækn- um,“ sagði einn læknanna, sem stundar manninn nú. Læknar vildu ekki gefa upp nafn manns- ins, né „skurðlæknisins" en sögðu þá frá Mið-Austurlöndum. Lækn- ar segja manninn lukkunnar pamfíl því hann hefði allt eins getað látist af blóðeitrun eða aðgerðin hefði getað valdið óbæt- anlegu tjóni á talfærum hans. Maðurinn liggur nú á sjúkrahús- inu í Sheffield með einn og hálfan kirtil. Jimmy Carter ásamt konu sinni, Rosalynn, veifar til stuðningsmanna eftir að ljóst var, að Carter hafði fengið nægilegan fjölda kjörmanna til að verða útnefndur forsetaframbjóðandi demókrata. simam.vnd ap. jr Ottast að 35 hafi farist — mannskæðir felli- byljir i Nebraska Grand Island. Nebraska 4. júní. AP ÓTTAST er að 35 manns hafi farist þegar sjö fellibyljir. hver á eftir öðrum, skullu á borginni Grand Island i Nebraska i dag. Fellibyljirnir lögðu yfir 100 hús í rúst, og á annað hundrað manns slösuðust. Sjúkrahús borgarinnar, sem telur um 45 þúsund íbúa, fylltust bæði af slösuðu fólki. Rafmagnslínur til borgarinnar slitnuðu, tré lágu eins og hráviði, einnig glerbrot og viða streymdi gas úr leiðsl- um. Allt símakerfi borgarinnar var úr lagi. Leitarflokkar fóru í dag hús úr húsi í leit að fólki, sem óttast var að lægi í rústum þeirra. Maraþonfundur v-þýzku stjórnarinnar: Deilt um Brtissel- samkomulagið Bonn. 4. júni. AP. RÍKISSTJÓRN Helmut Schmidt. kanslara V-Þýzkalands, sat í dag á 10 klukkustunda löngum mara- þonfundi, þar sem deilt var um „Brusselsamkomulagið- svo- nefnda en það er málamiðlun milli Breta og annarra bandalagsrikja Efnahagsbandalags Evrópu um fjárframlög til bandalagsins. Samkvæmt Brússelsamkomulag- inu minnka fjárframlög Breta til EBE verulega og leggjast einkum á V-Þjóðverja, sem greiða tæplega V/z milljarð dollara meir en verið hefur. Deilur voru innan ríkisstjórnar Helmut Schmidt. Eftir fundinn, sem lauk undir kvöldið, neitaði talsmaður stjórnarinnar að skýra frá niðurstöðum hans en sagði að Hans Matthöfer fjármálaráðherra mundi skýra frá niðurstöðunum á morgun (fimmtudag). Fyrir fundinn í dag lýstu þeir Helmut Schmidt kanslari og Hans Matthöfer fjármálaráðherra yfir stuðningi sínum við Brilsselssam- komulagið. Matthöfer með þeim fyrirvara þó, að auknum fjárfram- lögum til EBE yrði mætt með sparnaði á öðrum liðum fjárlaga en ekki lántökum eða auknum skött- um á almenning og fyrirtæki. Klaus Bölling innanríkisráð- herra sagði síðdegis á fundi með fréttamönnum, að í meginatriðum væri afstaða ráðherranna „já- kvæð“. Deilur stóðu einkum um hvernig afla skyldi fjár til að mæta hinum aukna kostnaði. Sýning á kínverskum og vestrænum vopnum Nýja Dehli, 4. júní. AP. AÐ SÖGN Kabúlútvarpsins fer nú fram sýning á bandariskum, v-þýzkum og kínverskum vopn- Rauði krossinn um „bátafólkiö“: Fjórir af hverj- u m tiu hafa farist Genf, 4. júní. AP. FJÓRIR af hverjum tíu Víet- nömum, sem siglt hafa á haf út i bátum sínum. hafa farist og sennilega helmingur „báta- fólksins“ hefur mátt sæta árás- um sjóræningja að minnsta kosti einu sinni, að því er nefnd á vegum Rauða krossins heldur fram. „Aðeins rikisstjórnir við- komandi ríkja geta með sam- ræmdum aðgerðum komið i veg fyrir þessa glæpi,“ segir i fréttabréfi Rauða krossins. Ekki liggja fyrir neinar áreið- anlegar tölur um árásir sjóræn- ingja á „bátafólkið" en í yfirlýs- ingu nefndarinnar segir: „Það hefur verið áætlað, af sjónar- vottum, að einn af hverjum tveimur Víetnömum verði fyrir árásum sjóræningja, einu sinni eða oftar og að 40% nái ekki lifandi til hafnar." í fréttabréfi Rauða krossins, þar sem þetta kemur fram, segir að margir sjóræningjanna séu fiskimenn, sem hafi yfir að ráða mun betri bátum en skip strandgæsluríkj- anna við Síamsflóa. Rauði kross- inn hefur lánað thailensku strandgæslunni hraðbát til að kljást við sjóræningja. Á Kra- eyju eru margir flóttamenn og að sögn, þá er ungum stúlkum nauðgað reglulega. um í Kabúl. Vopnin voru tekin af skæruliðum, sem berjast gegn innrásarher Sovétmanna og stjórnarhernum. Þá sagði að efnavopn hefðu verið' tekin af skæruliðum. Ferðamaður, sem í dag kom til Nýju Dehli frá Kabúl, sagði að þar hefði verið um að ræða venjulegt táragas, sem lögregla á Vesturlöndum notar. Song Zhiguang, aðstoðarutan- ríkisráðherra Kína sagði í dag, að Kínverjar hefðu hingað til ekki haft neitt beint samband við skæruliðahreyfingar í Afganistan. Hann sagði það sannfæringu sína, að svo ætti þó að vera. Hann sagði, að Pakistanir væru undir miklum þrýstingi frá Sovétríkjunum og ef útþenslustefna Sovétmanna í Af- ganistan heppnaðist þá myndu Sovétmenn næst snúa sér að Pakistan og Iran. Hann sagði að vinslit Kínverja og Sovétmanna hefðu verið vegna þess, að „Sovét- menn reyndu að ná völdum í Kína. Á meðan Sovét.uenn halda áfram útþenslu og árásarstefnu sinni getur samband ríkjanna ekki komist í eðlilegt horf,“ sagði Zhiguang.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.