Morgunblaðið - 05.06.1980, Side 36

Morgunblaðið - 05.06.1980, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1980 MORödKf kaf r/Nö fc BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Af hverju gerði hann þetta, er spurning, sem stundum gerist áleitin og krefst jafnan svars. Það finnst stundum og þá er mótleikur hugsanlegur. Norður gaf, allir voru á hættu. Norður S. 9875 H. ÁD5 T. DG6 L. Á86 Vestur Austur S. D6 S. 1042 H. G10842 H. K93 T. 102 T. K875 L. KDG10 Suður S. ÁKG3 H. 76 T. Á943 L. 932 L. 754 Suður varð sagnhafi í 4 spöðum eftir þessar sagnir: Norður 1 tígull, suður 1 spaði, norður 2 spaðar, suður 3 tíglar, norður 3 spaðar og suður 4 spaðar. Útspilið var laufkóngur, fékk slaginn en drottningin var tekin með ás, trompi spilað á ásinn og síðan hjartadrottningu svínað. Austur tók með kóng, næsta slag fékk vestur á lauftíu og hann losaði sig úr spilinu með hjarta- gosa, sem tekinn var með ásnum. Þessu næst spil’aði sagnhafi tíguldrottningu frá blindum. Hún fékk slaginn og tígulgosinn þann næsta. Einkennilegt! Spurningin vaknaði. Af hverju lagði austur ekki kónginn á gos- ann. Hvers vegna hélt hann dauðahaldi í kónginn? Og svarið kom fljótlega. Eina hugsanlega skýringin var, að austur vildi að sagnhafi þyrfti að spila frá blind- um. En hvers vegna vildi hann það? Aftur þurfti að svara og eina svarið, sem vit var í virtist: Hann vill, að trompinu sé svínað. Og minnugur orða Culbertsons, að lítið gagn væri að góðri tækni án þekkingar í sálfræði, spilaði sagnhafi næst trompi á kónginn og vann sitt spil þegar drottningin kom í. Líkindareikningur stærðfræð- innar mælti mjög gegn þessari spilamennsku en mannlegi þáttur- inn vó þyngra og réð úrslitum í þetta sinn. COSPER Vi Hann er heldur framlágur um þessar mundir. blessaður. .. gamlir þorskar gleyma sérw I stuttum þætti í Kastljósi sjónvarpsins 30. maí kom fram, án þess að mótmælt væri, harla alvarleg ásökun í garð skóla og kennara. Það var sem sé fullyrt að krakkar í grunnskólum fengju enga fræðslu um áfengi og áfeng- ismál annað en það sem kæmi frá Áfengisvarnaráði eða S.Á.Á. Sé þetta rétt er um að ræða stór- kostlega vanrækslu hjá skólunum svo að ekki væri ofmælt að þeir svikjust um það sem þeim er falið og trúað til. Annað mál er það að ég hélt að siðir manna og hættir í Reykjavík væru nú þannig að verulegur hluti skólabarna hefði nokkra beina reynsluþekkingu af því hver áhrif áfengisneyslu eru. Fróðlegt væri að kanna í 11 og 12 ára bekkjum hvort einhverjir nemendur telja sig þekkja til einhvers sem háður er áfengi. Kennarar, skólastjórar og fræðsluskrifstofur svara að sjálf- sögðu fyrir sig og skal sú hliðin ekki frekar rædd hér. En annað langar mig að nefna í þessu sambandi. Einu sinni samþykkti Alþingi ályktun um að nýta sjónvarpið í þágu áfengisvarna í samráði við áfengisvarnaráð og aðra sem sinna vilja áfengisvörnum. Þessi Kastljósþáttur hefur kannski átt að vera þáttur í þvi. En nú spyr ég: Hefur sjónvarpið leitað eftir þessu samráði sem Alþingi bauð? Hvernig væri nú að stjónvarpið tæki að birta fréttir um áfengis- mál? Áfengisvarnaráð kemur ýmsu á framfæri við fjölmiðla. Það er sitthvað fréttnæmt sem þessi mál varðar og mætti vekja til umhugsunar. Það mætti láta sjonvarpinu í té ýmislegt sem á Húsmæðraskólinn á Laugum 50 ára Fimmtugasta starlsári IIús- mæðraskólans á Laugum var að Ijúka. sunnudaginn 11. maí sl. Við skólaslitin voru margir gestir, þ.á.m. skólanefndin. en hana skipa sr. Sigurður Guðmundsson, Grenjaðarstað. formaður, Teitur Björnsson. oddviti. Brún, Ilelga Jósepsdóttir. Laugahrekku. Helga Valborg Pétursdóttir. Reynihlíð. og Jónína Hallgrímsdóttir, Húsa- vík. Fulltrúar voru frá Kvenfé- lagasamhandi Suður-Þingeyinga. fulltrúar frá Kvenfélagi Reyk- dæla. fyrrverandi kennarar o.fl. velunnarar skólans. Skólinn hefur starfað samfellt í hálfa öld. Þessi ár hafa verið misjafnlega blómleg, og með dálítið mismunandi starfsemi, sérstaklega nú hin síðari ár. Flestum er kunnugt um það að húsmæðraskól- arnir í landinu hafa átt við vissa erfiðleika að stríða undanfarin ár, bæði vegna nemendafæðar og einn- ig vegna vandkvæða á ýmissi fyrir- greiðslu frá æðri stofnunum. Hafa því nokkrir skólar orðið að leggja niður sína starfsemi. Þeir sem fara með stjórn menntamála í þessu landi eru ekki á eitt sáttir hvaða stefnu eigi að taka varðandi hús- mæðrafræðslu í næstu framtíð. Húsmæðraskólinn á Laugum hefir reynt að breyta starfshátíum sínum í samræmi við breyttan tíðaranda, og í því skyni skipt starfsári skólans í 2 námstímabil. Fyrra námstímabilið er frá hausti til áramóta. Þá er nemend- um úr Laugaskóla og Barnaskólan- um á Litlulaugum heimilisfræði, en á kvöldin eru ýmiskonar námskeið fyrir fólk úr héraðinu. Þessi nám- skeið eru mislöng, allt frá einu kvöldi uppí 10 kvöld. En þau eru eingöngu ætluð til þess að fylla upp í kennsluskyldu fastra kennara, svo að færri komast að en vilja. Seinna námstímabilið er frá ára- mótum fram í miðjan maí. Þá er starfrækt 4 mánaða hússtjórnar- námskeið, þar sem allir nemendur eru í heimavist (24). Þessum námstíma er í stórum dráttum skipt þannig niður, að nemandinn fær 1 viku í algengum haustverkum og sláturgerð, 2 vikur í vefnaði, 2 vikur í fatasaum, 3 vikur í al- mennri handavinnu og 7 vikur í almennri hússtjórn. Auk þessa næringafræði, heilsufræði, uppeld- isfræði, heimilishagfræði, áhaida- fræði, vöruþekkingu, híbýlaum- gengni, leikfimi, o.fl. Á þessu námstímabili, sem er að ljúka, útskrifuðust 19 nemendur, en samtals hafa um 90 manns notið kennslu í skólanum í vetur. Föstudaginn 9. maí sl. heimsóttu skólann 10, 20 og 30 ára nemendur, um 60 að tölu og færðu honum góðar gjafir. Laugardaginn 10. maí héldu nemendur handavinnusýningu í skólanum, og seldu kaffi. Ágóðann gáfu þeir í hljómtækjasjóð skólans. Um 130 manns skrifuðu sig í gestabók skólans þennan dag. Hæstu einkunn við brottfarar- próf hlaut að þessu sinni Vala Eiðsdóttir frá Vogum á Vatns- leysuströnd, 8,75. Einnig hlaut hún árlega viðurkenningu Lionsklúbbs- ins Náttfara fyrir prúðmannlega framkomu og ástundun í námi. Húsmæðraskóla Þingeyinga á Laugum hafa þegar borist margar veglegar gjafir í tilefni 50 ára afmælisins. Halldóra Sigurjónsdóttir, fyrr- verandi skólastjóri, sendi skólanum kr. 500.000.- er verja skyldi í skrúðgarðinn. Sl. haust afhentu erfingjar Kristínar og Unnar Jakobsdætra frá Hólum í Reykjadal bókasafn þeirra systra, en Kristín var lengi vefnaðarkennari við skólann. Við skólaslitin afhenti Hólmfríður Pét- ursdóttir, fyrir hönd Kvenfélaga- sambands S-Þing., mynd af Jónínu Sigurðardóttur frá Draflastöðum, en það var einmitt hún sem átti einn mestan þátt í því að Hús- mæðraskóli Þingeyinga komst á fót. Við sama tækifæri afhenti Aðal- björg Pálsdóttir gjafabréf kr. 1.000.000 frá Kvenfélagi Reykdæla, sem varið skyldi til kaupa á 10 stólum og 2 sófaborðum í bókastof- una, sem Kvenfélagasambandið (þ.e.a.s. kvenfélögin í sýslunni) hefur gefið fjárframlög til á undan- förnum árum. Páll H. Jónsson hefur ritað sögu skólans. Þau hjónin Páll og Fanney Sigtryggsdóttir, fyrrverandi kenn- ari, hafa afhent skólanefnd hand- ritið og gefið skólanum það í tilefni afmælisins. Áætlað er að saga Húsmæðra- skólans komi til birtingar í næstu árbók Þingeyinga. Miklar framkvæmdir eru nú að hefjast við skólann. Er það endur- nýjun á vatnslögnum í húsinu og algjör endurnýjun í eldhúsálmunni. Undanfarin ár hefur staðið yfir endurnýjun á gluggum. Þessum breytingum á að vera lokið fyrir haustið. Umsóknarfrestur um skólavist næsta vetur verður til 1. september nk., en umsóknir eru þegar farnar að berast. Skólastjórinn, Hjördís Stefáns- dóttir, Laugabóli, tekur á móti umsóknum og veitir upplýsingar varðandi skólann. (Frá Húsmæðra- skólanum á Laugum).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.