Morgunblaðið - 05.06.1980, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1980
+ Faöir minn, JÓNMUNDUR EINARSSON, andaöist aö Hrafnistu þriöjudaginn 3. júní. Fyrir hönd vandamanna, Jóna Jónmundadóttir.
t Móöir okkar GUDNY GUDMUNDSDÓTTIR, Hofsvallagötu 20, andaöist í Landakotsspítala 3. júní. Elísabet Magnúsdóttir, Björn Magnússon.
t Faöir okkar, STEINGRÍMUR MAGNÚSSON, fyrrvorandi fiskmatsmaöur, sem andaöist í Vífilstaöaspítala 30. maí, veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík, laugardaginn 7. júní kl. 10.30 f.h. Börnin.
t Eiginmaöur minn, ÓLAFUR F. ÓLAFSSON, Víóimel 32, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 6. júní kl. 1.30. Fyrir hönd vandamanna, Sólveig Stefánsdóttir.
t Þökkum innilega sýnda samúö og vináttu viö andlát og útför ERNU ÞORARINSDÓTTUR, Fannarfelli 12. Halldór Bjarnason, Þórarinn Halldórsson, Ragnhildur Brynjólfsdóttir, Margrét Þórarinsdóttir, Sigurfinnur Vilmundarson.
t Alúöarþakkír færum víö öllum þeim, er sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og jaröarför JÚLÍU ÁRNADÓTTUR, Ártúni 1, Selfossi. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 13, Landspítalanum. Árni Halldórsson, Rosemary Halldórsson, Sveinn Halldórsson, Gunnlaug Emilsdóttir, Guðni Halldórsson, Lilja Guörún Pétursdóttir og barnabörn.
t Innilegar þakkir fyrir auösýnda vináttu og samúö viö fráfall og jaröarför ÁSTVALDAR HELGA ÁSGEIRSSONAR, Gnoöarvogi 68. Ásta Ágústsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
t Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför sonar okkar, ÓLAFS ÓLAFSSONAR, Hamrahlíö 33, Reykjavík. Drífa Garöarsdóttir, ólafur Jónsson, Edda Ólafsdóttir, Kristín Hildur Ólafsdóttir, Garöar Ólafsson.
I t Þökkum af alhug auösýnda samúö viö andlát og útför mannsins míns, GUOMUNDAR HALLDÓRSSONAR. Fyrir hönd barna minna, tengdabarna oo barnabarna, Gróa Ólafsdóttir.
Minning:
Guðmundur Einar Guðjónsson
kafari, Magnús Rafn Guðmunds-
son og Kári Valur Pálmason
Guðmundur Einar Guðjóns-
son
Fæddur 23. marz 1931.
Dáinn 23. april 1980.
MaKnús Rafn Guðmundsson
Fæddur 6. desember 1959.
Dáinn 23. april 1980.
Kári Valur Pálmason
Fæddur 21. desember 1959.
Dáinn 23. april 1980.
Enn einu sinni hefur sjórinn
höggvið skarð í íslenska fjölskyldu
og höggvið stórt. Nú eru það
feðgar sem farast ásamt þriðja
manni, er bát þeirra hvolfir út af
Vestmannaeyjum þann 23. apríl
síðast liðinn.
Faðirinn, Guðmundur Einar
Guðjónsson, var lands-þekktur
sem einn af bestu sjókortagerðar-
mönnum landsins og einnig og
ekki síður var hann jjekktur fyrir
köfunarstörf. í báðum þessum
sérhæfðu störfum verður slíkt
skarð fyrir skildi við fráfall hans,
að seint verður fyllt.
Guðmundur var fæddur í
Reykjavík 23. marz 1931, sonur
hjónanna Guðjóns Sveinbjörns-
sonar vélstjóra, sem starfaði nær
allan sinn vélstjóraferil hjá
S.V.F.Í. og andaðist þann 18.3. s.l.,
og Oddnýjar Guðmundsdóttur, til
heimilis að Ásvallagötu 10,
Reykjavík. Guðmundur ólst upp í
foreldrahúsum og hlaut þaðan
veganesti sem reyndist vel. Hann
heillaöist snemma af sjónum og
fannst hann verðugt rannsóknar-
efni fyrir ungan íslending.
Ungur fékk hann starf á sjó-
mælingabátnum Tý, og vann þar
jafnframt gagnfræðanámi eftir
því sem tími leyfði.
Það kom fljótt í ljós, hver
efniviður í honum var og því
hvöttu forráðamenn Vita- og
Hafnarmálaskrifstofunnar hann
til að fara til Danmerkur og læra
þar sjókortagerð, en það fag var
þá ónumið hér á landi.
Árið 1950 fer svo Guðmundur til
Kaupmannahafnar og kemst þar
að sem nemandi hjá „Det Konge-
lige Sökort Arkiv". Þaðan lauk
hann prófi fjórum árum síðar,
með frábærum námsárangri og
þegar hann hóf störf árið 1954, hjá
Vita- og Hafnarmálaskrifstof-
unni, var hann fyrsti íslenski
sjókortagerðarmaðurinn.
Meðan á námi hans í Kaup-
mannahöfn stóð, kynntist hann
þáverandi frægasta manni dana í
köfun, Jan Uhre, en hann var af
mörgum talinn besti froskkafari
Evrópu, og vann meðal annars það
afrek að synda neðansjávar yfir
Eystrasalt, en þar er 22ja km leið.
Guðmundur hreyfst samstundis
af þessari nýju köfunaraðferð og
sá þegar í hendi sér þá möguleika
sem hún skapaði heima á Islandi.
Hann hóf því að læra köfun hjá
Jan Uhre og með þeim þróaðist
einlæg vinátta, sem entist til
dauðadags. Jan Uhre dáði mjög
þennan unga og kjarkmikla nem-
anda sinn og gerði hann að
nánasta samstarfsmanni sínum og
aðstoðarkennara.
Um þetta leyti hitti hann eftir-
lifandi eiginkonu sína, Björgu
Björgvinsdóttur, sem starfaði í
Kaupmannahöfn, en þau giftust er
þau komu heim til Islands, árið
1954. Björg er kona sem ekki
gleymist þeim sem kynnast heill-
andi persónuleika hennar. Hún er
ættuð í föðurætt úr Langadal við
ísafjarðardjúp og móðurætt úr
Hreppum, báðar ættir stofnar,
sem ekki er hætt við að brotna
þótt á móti blási. Hún hefur verið
manni sínum sá styrkur og sú stoð
sem er hverjum manni nauðsyn í
þeim ýmsu erfiðleikum, sem lífið
býður öllum að kynnast meira og
minna, á löngum ferli. Hún bjó
manni sínum og börnum yndislegt
heimili að Bogahlíð 18, og jafn-
framt heimilisstörfum stjórnar
hún og starfar við fyrirtæki,
Efnalaugina Hreinn, sem þau
hjónin opnuðu að Hólagarði í
Breiðholti árið 1976, en þau höfðu
áður átt og rekið efnalaug í
Starmýri 2, um tveggja ára skeið,
en selt hana.
Er Guðmundur kom heim frá
Danmörk, hóf hann þegar störf
hjá Vita- og Hafnarmálaskrif-
stofunni við sjókortagerð, en sjó-
kort höfðu ávallt áður verið gerð
og gefin út af dönum, og kom
fyrsta kortið eftir hann út árið
1956 og er jafnframt fyrsta kortið
sem fullgert er hér á landi.
Hann vann störf sín af slíkri
alúð og vandvirkni, að sjómenn
telja kort hans einhver þau bestu
sem þekkjast af íslenska land-
grunninu og ber þar sennilega
hæst kort sem hann gerði af
Húnaflóa, en hann er ein af
varasömustu siglingaleiðum í
kringum landið.
Þar sem Guðmundur var fyrsti
og eini froskkafari landsins, bár-
ust fljótlega beiðnir að frá ungum
mönnum, sem vildu læra þessa
íþrótt. Hann stofnaði því skóla
sem kenndi froskköfun og var
námið bæði bóklegt og verklegt,
en bóklega kennslan var aðallega
lífeðlisfræði kafara, en hún er
undirstöðuþekking og algjör
lífsnauðsyn þeim sem ætla sér að
starfa við köfun.
Ekki leið á löngu þar til hann
útskrifaði stóran hóp nemenda og
eru margir froskmenn landsins
útskrifaðir úr þessum skóla. Hann
stofnaði síðan Kafarafélag
Islands, en árið 1966 stofnar hann
eigið fyrirtæki, Kafaraþjónusta.
Guðmundar Guðjónssonar. Hann
tók að sér mörg af vandasömustu
verkefnum sem unnin hafa verið
neðansjávar hér á landi, svo sem
við lagningu á vatnsveituleiðslu til
Vestmannaeyja og einnig viðgerð
og lögn á rafstreng til Eyja, sem
varð fyrir miklum skemmdum
vegna eldsumbrotanna 1973, sem
hann raunar kortlagði án þess að
um væri beðið. Þrek hans var
nánast ótrúlegt, enda sögðu danir
þeir sem unnu með honum við
þessi störf við Eyjar, hann vera
einn af örfáum mönnum í heimin-
um sem þyldi að starfa sem
froskkafari niður á 40 metra dýpi.
Leiðir okkar Guðmundar lágu
fyrst saman er hann kom heim frá
Danmörku og ég varð fyrir þeirri
gleði að eignast vináttu hans, en
hana áttu fáir. Hann var mjög
sterkur og um margt sérstæður
persónuleiki sem laðaði fólk að og
t.d. bjó hann yfir mjög fínlegri og
oft á tíðum heillandi kímnigáfu.
Hann hafði margháttaða hæfi-
leika og allt sem hann gerði bar
vott um alúð og snilld. T.d.
teiknaði hann og gaf út barnalita-
bók með myndum og hefst hún á
sköpun heimsins og endar á kross-
festingu Jesú. Hann kallaði hana
Biblíulitabókina og séra Bjarni
Jónsson heitinn, vígslubiskup
skrifaði um bókina og hrósaði
henni. Það eitt nægir sem með-
mæli.
Magnús Rafn, sonur þeirra Guð-
mundar og Bjargar, sem fórst með
föður sínum, var glæsilegur
drengur, á þeim aldri sem lífið er í
raun og veru að hefjast. Hann er
fæddur þ. 6.12. 1959 í Hafnarfirði
en foreldrar hans bjuggu þá að
Brekkugötu 8 þar í bæ, en fluttist
með þeim til Reykjavíkur og átti
þar heimili sitt síðan.
Hann hafði hafið nám við versl-
unardeild Ármúlaskóla, en hafði
ekki lokið því námi. Honum var í
blóð borin brennandi áhugi fyrir
sjónum og vildi því læra köfun.
Faðir hans tók hann því sem
nemanda sinn og þar sem dreng-
urinn hafði erft hæfileikana til
starfsins og sýndi oftsinnis bæði
snarræði og örugga hugsun, gerði
faðir hans hann að aðstoðarmanni
sínum.
Orðtakið segir að þeir sem
guðirnir elska deyi ungir. Sé svo
að Almættið kalli sér frekar
þjónustumenn úr röðum hinna
ungu, þá er áreiðanlegt, að Magn-
ús Rafn frændi minn, verður ekki
sístur í þeim hóp.
Þau Björg og Guðmundur gift-
ust þann 30.10. 1954 og eignuðust
þrjú börn, Guðjón Rafn f. 6.3.
1955, Magnús Rafn f. 6.12 1959,
Guðrún f. 21.12. 1962. Ennfremur
átti Guðmundur dóttur, Sigríði
Rögnu, sem búsett er á Akranesi.
Eg vil ásamt eiginkonu minni,
að loknum þessum alltof fáu
orðum, votta eiginkonu og móður,
ásamt börnum og systkinum,
ennfremur eftirlifandi móður
Guðmundar, sem einnig hefur
nýlega orðið að sjá á bak manni
sínum og lífsförunaut, svo og
öðrum ættingjum, innilega samúð
okkar hjónanna og bið Guðs al-
mætti að gefa þeim styrk í sorg
þeirra.
Ragnar Magnússon.
Það var blíðskaparverður
síðasta vetrardag 23. apríl, er
kafarabáturinn Jökultindur fórst í
fiskidrætti við Vestmannaeyjar,
og með honum Guðmundur Guð-
jónsson, kafari, 49 ára, eigandi og
skipstjóri bátsins, sonur hans og
aðstoðarkafari, Magnús Rafn, 20
ára, og líflínumaðurinn Kári Val-
ur Pálmason, 20 ára. Þeir höfðu
frá áramótum verið að störfum
við neðansjávarvinnu við lagningu
rafstrengs í Vestmannaeyjahöfn.
Við eídsumbrotin 1973 urðu
skemmdir á vatnsleiðslum og
rafstrengjum sem frá landi liggja
til eyja, en mannvirki þessi eru
Eyjabúum afar mikilvæg. Guð-
mundur hafði unnið við lagningu
vatnsleiðslunnar og rafstrengjana
er fyrst var hafist handa um gerð
þessara óvenjulegu mannvirkja,
og vann síðar að viðgerð og
endurnýjun þeirra. Þetta voru
vandaverk sem unnin voru við
erfiðar aðstæður og oft á miklu
dýpi. og ekki á færi annarra en
hæfustu kafara og þrekmanna.
Vorblíðuna og frídaginn sem í
hönd fór hefur Guðmundur viljað
nota til þess að fara til fiskjar.
Sjómennska og hafið heillaði
hann. Guðmundur var á árunum
1947 til 1949 háseti á mælinga-
bátnum Tý, sem Sjómælingadeild
Vita- og hafnamálastofnunar
gerði út til sjómælinga, undir
stjórn Péturs Sigurðssonar, nú-
verandi forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar. Pétur veitti athygli góðum
gáfum Guðmundar, listrænum
teiknihæfileika og vandvirkni.
Vegna jarðarfarar
SIGRÍÐAR E. KRISTJÁNSDÓTTUR
veröa skrifstofur vorar lokaöar fimmtudaginn 5. júní
frá kl. 10—12.
Slippfólagið í Reykjavík h.f.