Morgunblaðið - 05.06.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1980
7
Morgunblaöiö
og forseti Skák-
sambandsins
Dr. Ingimar Jónsson
var um síóustu helgi kjör-
inn forseti Skáksam-
bands islands. Hann er
kunnur af þátttöku sinni í
margvíslegu félagsstarfi
og þá ekki síst á þeim
vettvangi, sem tengist
alls kyns vináttustarfi við
kommúnistaríkin í
Austur-Evrópu. En dr.
Ingimar er menntaður í
Austur-Þýskalandi.
Eitt af mörgum trúnaö-
arstörfum dr. Ingimars er
það, að hann er formaður
Islensku friðarnefndar-
innar svonefndu, sem lík-
lega starfar í tengslum
við svonefnt Heimsfriðar-
ráð, en það er stofnun,
sem telur heimsfriðnum
best borgið með því, að
sovéska hervélin mylji
undir sig sem stærstan
hluta veraldar og svarar
spurningum um Afgan-
istan á svipaðan hátt og
Jón Múli, útvarpsþulur,
sem sagði í Morgunblað-
inu 10. janúar sl., þegar
hann var spurður um
innrás Sovétríkjanna í Af-
ganístan: „Mér er ekki
kunnugt um að Sovét-
stjórnin hafi hernumið
Afganistan og ég tel mig
tala af reynslu af hernámi
þar sem Bandaríkjamenn
hafa nú í mörg ár her-
numiö ísland.“l!
Einmitt þegar Jón Múli
veitti ofangreint svar
sneri Morgunblaöiö sér
einnig til dr. Ingimars
Jónssonar formanns ís-
lensku friðarnefndarinn-
ar og spurði hann um
innrásina í Afganistan. i
blaðinu stendur um við-
brögð Ingimars: „... sagði,
að nefndin hefði ekki
rætt máliö, en hann vildi
að öðru leyti ekki tjá sig
um það þar sem Mbl.
hefði einhverju sinni haft
rangt eftir honum þegar
leitaö var til hans og
hann myndi sjálfur koma
skoðun sinni á framfæri,
sæi hann ástæðu til
þess.“
Þótt bráðum sé liðið
hálft ár frá innrásinni í
Afganistan og þar hafi
síðan verið háðir blóðugir
bardagar hefur hvorki dr.
Ingimar né friöarnefnd
hans séð ástæðu til að
segja álit sitt á þessum
stríösaðgerðum, enda
hlutverkið að syngja Sov-
étmönnum lof. Hins veg-
ar sá dr. Ingimar ástæðu
til að segja blaöamanni
Morgunblaðsins frá því,
að hann ætlaði að bjóða
sig fram gegn Einari S.
Einarssyni innan Skák-
sambandsins og virtist
hann þá ekkert óttast, að
rangt yrði eftir sér haft,
þegar blaðið leitaði til
hans.
Selluforinginn
Borgþór Kjærnested er
maður nefndur og hefur
hann tekið sér á herðar
að vera fréttaritari fyrir
fjölmarga aðila á Noröur-
löndum og skýra þeim frá
því helsta sem fréttnæmt
er frá íslandi. Vegna
Norðurlandaráösfundar-
ins hér á landi sl. vetur
komast Borgþór sjálfur
svo í fréttirnar vegna
fréttaskeyta, sem hann
sendi, um vændi og full-
trúa á Noröurlandaráös-
þingi. Enn er Borgþór
kominn í fréttirnar í þetta
sinn er frá því skýrt á
baksíöu Þjóðviljans, að
hann hafi verið kjörinn til
að vera hverfisstjóri hjá
Alþýðubandalaginu í
Reykjavík, en áður fyrr
nefndu kommúnistar
slíka menn selluforingja.
Þaö þarf ekki að taka
fram, að Borgþór telur
það einhverja ómakleg-
ustu árás á sig, ef hann er
vændur um afskipti af
stjórnmálum. Þó er ekki
að efa, að hann hafi sent
viðskiptavinum sínum á
Norðurlöndunum frétt
um pólitískan frama sinn.
Ný heimild
Eins og þeir vita sem
hafa lagt það á sig að
fylgjast með skrifum
Þjóðviljans um alþjóða-
mál, þá hengir blaöið
jafnan hatt sinn á ein-
hvern fjölmiðil eða stofn- I
un fyrir vestan járntjald í i
heimildaöflun sinni og
leitar að sjálfsögðu uppi |
þann aðila, sem það telur ,
best hæfa málstaðnum: >
ísland úr NATO — Herinn I
burt.
Nú hefur blaðið tekiö I
stofnunina Center for i
Defense Information í '
hóp átrúnaðargoöanna, |
en hún telur sem kunn- .
ugt er nauðsynlegt, að I
hér á landi séu kjarn- I
orkuvopn miðað við
skynsamlega hernaöar- |
lega áætlanagerö. Verður ■
fróölegt að fylgjast með '
baráttu Þjóöviljans fyrir |
þessu markmiði. Og .
sama dag og blaðið held- I
ur sjónarmiöum stofnun- |
arinnar og forstjóra
hennar á loft í forystu- |
grein (sjá Þjóðviljann í ,
gær) birtir það grein um '
samskipti austurs og I
vesturs að sjálfsögöu úr
sinni gömlu heimild In- I
formation í Danmörku. i
En meginuppistaðan er 1
tilvitnun í grein, sem það |
blað birti eftir Herbert .
Scoville og Þjóðviljinn >
kynnir hann með þessum I
hætti: „Hann hefur þá
reynslu aö baki oröum I
sínum, að hafa veriö >
varaforstjóri bandarísku '
Inyniþjónustunnar CIA |
sem og ACDA, banda- .
rískrar stjórnarskrifstofu I
sem hefur eftirlit með |
vígbúnaði á sinni könnu.“
Hvers vegna lætur |
Þjóðviljinn þess ekki get- ,
ið aö Scoville er í ráð- '
gjafaráði Center for De- I
fense Information?
Einu sinni var...
... þvottaherbergi í hverju húsi. Þar voru
þvottabalar, bretti og snúrur. En nú er öldin
önnur, skot í horni eldhúss eða baðs gegnir
sama hlutverki. Þar hefur þú bæði þvottavél
og þurrkara, sem taka ekki meira rými en
eitt tæki.
Þetta er PHILCO samstæðan.
Gólfplássið, sem PHILCO samstæðan tekur
er 61x55 cm (hxd). Milli þvottavélar og
þurrkara er handhægt útdregið vinnuborð,
sem eykur enn á þægindin.
PHILCO þjónustu getur þú treyst.
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
3ja—4ra herb. íbúð
óskast til leigu
Knattspyrnudeild Vals óskar eftir 3ja—4ra herb. íbúö
til leigu í Reykjavík, helzt í Hlíöunum, þó ekki skilyrði.
Góöri umgengni og skilvísum greiöslum heitiö.
Tilboö sendist augld. Mbl. merkt: „Valur — 6145“
sem fyrst.
S'*'**ifc«*í**!*****>fc**®'*****s*æ*aj*88i«æ>«*8Rææ*w***æ88*æa8w*****ík***8t'.#*æaB88****af
Jektorar
Suction^
Driving liquid
Fyrlr lensingu I bátum og fiskvinnslustöðvum.
SöyoUmogjyir ©®
ESTABLISHED 1V25 - TELEX; 20S7STURLA-!S — TELEPHONES 14610 & 1)210
masmm. w«ww*W***WW*****'»r'
Aðaiskrifstofa Brautarhoiti 2, (áður Hús-
gagnaverslun Reykjavíkur).
Símar: 39830,39831 og 22900.