Morgunblaðið - 05.06.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.06.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1980 Þjóðminjasafn: Áframhaldandi rann- sóknir á Stóru-Borg „STÓRA-Borjí undir Eyjafjóllum verður eina stórvirkið á okkar dagskrá í sumar,“ sagði Þór Magnússon þjóðminjavörður, er Mbl. spurði hann, hvaða forn- leifarannsóknir yrðu á vegum Dauði prinsessu: Starfsfólk Flugleiða með undirskriftir gegn sýningu STARFSFÓLK Flugleiða hefur safnað undirskriftum undir áskoranir um að sýningu sjón- varpsmyndarinnar Dauði prins- essu verði frestað eða hún felld niður. Sveinn Sæmundsson blaða- fulltrúi Flugleiða sagði í samtali við Mbl. í gær, að þessi undir- skriftasOfnun væri framtak starfsfólksins, en engan veginn á vegum félagsins. „Ég veit að það er mikill uggur i starfsfólkinu vegna þessarar myndar,“ sagði Sveinn. „Við vitum öll, hvernig Saudi-Arabar hafa brugðizt við henni og þótt sýning hennar kæmi ekki í veg fyrir pílagríma- flug Flugleiða, þá óttast menn að félagið og starfsfólk þess verði fyrir fjandskap hennar vegna.“ safnsins í sumar. „Það hefur verið unnið við þennan uppgröft i tvö sumur og við munum leggja allt kapp á að koma verkinu eins langt og hægt er i sumar, þótt ekki búumst við við þvi að ljúka því,“ sagði Þór. „Stóra-Borg er mikil forngripa- náma. Þar hafa varðveitzt vel ýmsir hlutir, sem annars staðar hafa rotnað og þessi staður var í byggð allt frá miðöldum fram til 1840, en þá var bærinn fluttur vegna sjávarágangs," sagði Þór. „Þarna hafa líka verið kirkja og kirkjugarður, sem hægt hefur verið að rannsaka." Þór sagði, að bæjarhóllinn, sem unnið er í, stæði nú í fjöruborðinu og hefði Þórður Tómasson safn- vörður í Skógum bjargað mörgum forngripum undan sjó áður en fornleifarannsóknirnar hófust. „I fornum heimildum er talað um stöðuvatn fyrir framan bæinn og drjúga leið til sjávar, þannig að þarna hefur mikil landeyðing orð- ið,“ sagði Þór. Þjóðminjavörður kvaðst ekki geta sagt til um að svo komnu máli, hversu miklu fé yrði varið til rannsóknanna í sumar eða hversu mikill hluti af ráðstöfunarfé safnsins færi til þeirra. „Þetta er eina verkefnið af rannsóknataginu og það er dýrt,“ sagði hann. „Önnur meginverkefni verða við- gerðastörfin við gömlu bygg- ingarnar, sem stöðugt þarf að vinna að og endurnýja." Listahátíð: „MIÐASALAN gengur svona sæmi- lega. Þetta er þó heldur minna en oft áður,“ sagði Guðriður Þórhalls- dóttir í miðasölu Listahátiðar í samtali við Mbl. í gær. Guðríður sagði uppselt á tvær af þremur sýningum Leikfélags Akur- eyrar í Iðnó á Beðið eftir Godot, einnig seldist vel á Els Comediants í Þjóðleikhúsinu á föstudag, Min Tan- aka í Laugardalshöll á laugardaginn og tónleika Pavarottis í lok Lista- hátíðar. „Það er einnig talsverður áhugi á dagskránni um Jóhann Sigurjónsson þann nítjánda, en ann- ars er það oftast svo, að hreyfingin er mest tvo síðustu dagana fyrir sýningu," sagði Guðríður. Á Lista- hátíð í dag eru síðari sýning f Þjóðleikhúsinu á leikriti Kjartans Ragnarssonar, Snjó, og gítartónleik- ar Göran Söllscher í Háskólabíói. Mbl. spurði Guðríði, hvað það kostaði að sækja alla viðburði Lista- hátíðar og sagði hún þá upphæð vera á bilinu 80—90.000 krónur. Dýrastir eru aðgöngumiðar að tónleikum Pav- arottis; kosta 10.000 krónur, miða- verð á tónleika í Háskólabíói er frá 3.500—5.000 krónur, leikhúsmiðar kosta 3.600 og 4.000 krónur, en 5.000 á listdanssýningu og finnska sýn- ingu á Þremur systrum, 3000 krónur kostar á tónleika í Bústaðakirkju og á atriði í Laugardalshöll kosta miðar 4.000—6.000 krónur, sem er miða- verðið á tónleika Stan Getz Quintet, en á tónleika Pavarottis kostar 10.000 krónur sem fyrr segir. , tfcyJtej. ■» - , «<S. í gær millilenti á Reykjavíkurflugvelli gömul orrustuflugvél af gerðinni Sea Fury, sem verið var að ferja til sölu í Bandaríkjunum. Ljósm. Baldur Sveinsson. íslenzkir fiskifræðingar um loðnuveiðarnar: Leggja til að byrjað verði 15. september Norðmenn vilja byrja 6. ágúst Heldur minni miða- sala en oft áður 80—90 þús. kostar að sækja öll atriðin „FRÁ lokum vetrarvertíðar til 15. september 1980 verði loðnuveiðar hannaðar meðan yngri árgangur- inn er að taka út sumarvöxt, loðnan að fitna og átuinnihald er mest,“ segir í tillögum fiskifræð- inga um takmarkanir á loðnuveið- um í ár. Þessa tillögu er að finna i riti Hafrannsóknastofnunar um „Ástand nytjastofna á íslandsmið- um og aflahorfur 1980“ og fiski- fræðingar hafa ekki breytt þessum tillögum sinum, að því er Hjálmar Vilhjálmsson sagði i samtali við Morgunblaðið í gær. Stjórnunarnefnd í fiskveiðum Norðmanna, sem hagsmunaaðilar í sjávarútvegi skipa, hafa hins vegar gert tillögu um að veiðar á loðnu úr íslenzka stofninum byrji við Jan Mayen 6. ágúst. Sömuleiðis reiknar nefnd þessi með því, að heildarafl- inn frá því í sumar til loka vetrarvertíðar 1981 verði 900 þús- und tonn. íslenzkir fiskifræðingar hafa hins vegar lagt til, að aflinn fari ekki yfir 650 þúsund tonn á þessu tímabili, en um tillögur byggðar á seiðaleiðangri á sínum tíma er að ræða og verða þær endurskoðaðar í haust. Þegar samningur íslendinga og Norðmanna um Jan Mayen gengur formlega í gildi, sem gæti orðið í lok þessarar viku, verða tilnefndir fulltrúar í fiskveiðinefnd, sem m.a. á að fjalla um loðnuveiðarnar við Jan Mayen. Einn fulltrúi verður í nefndinni frá hvorri þjóð og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins verður Jón Arnalds, ráðuneytis- stjóri í Sjávarútvegsráðuneytinu, fulltrúi íslans í nefndinni. Með þessari nefnd mun síðan starfshóp- ur íslenzkra og norskra vísinda- manna starfa. Hækkar verð á ull til iðnaðarins um 25%? Einkaþota fyrir Pavarotti: Kostar 6,5 millj. kr Listahátíðarmenn „afar óánægðir“ með viðskipti við Flugleiðir „ÞAÐ kostar sex og hálfa milljón að fá einkaþotu fyrir Pavarotti hingað og virðist nokkuð sama. hvort flogið verður frá London eða New York,“ sagði Örnólfur Árnason, framkvæmdastjóri Listahátíðar. er Mbl. spurði hann um þetta i gær. Örnólfur sagði listahátíðar- menn „afar óánægða" með við- skiptin við Flugleiði í sambandi við Listahátíð. „Bæði við og um- boðsmenn Pavarotti vestra fylgd- umst með þessu flugi til að sjá til þess, að ekki yrði fullbókað í það án þess að við fengjum sæti og við vorum enn að fylgjast með flug- inu löngu eftir að ákvörðun hafði verið tekin um að fella það niður,“ sagði Örnólfur. „Okkur er sagt, að sú ákvörðun hafi verið tekin 19. maí, en hún hefur ekki borizt til sölumanna félagsins fyrr en tals- vert löngu síðar, því eftir þennan dag var tekið við pöntuii athuga- semdalaust. Við höfum einnig farið fram á það við Flugleiðir að félagið komi til móts við okkur vegna þess aukakostnaðar, sem við fáum af komu Pavarottis og teljum Flugleiðir bera nokkra siðferðilega ábyrgð á, þótt ekkert skuli ég segja um lagalegan rétt í þessu sambandi, en svar félagsins er þvert nei. Viðskipti okkar við Flugleiðir vegna Listahátíðar nema yfir 32 milljónum króna og hefur félagið neitað okkur um nokkurn afslátt þar af, en þess skai þó getið að það hefur boðizt til að flytja frítt um tonn af farangri vegna hingaðkomu listamanna á há- tíðina. Við teljum hins vegar Listahátíð slíka landkynningu, sem Flugleiðir meðal annarra njóti góðs af, að þessi afstaða félagsins sé ekki rétt, sízt af öllu, þegar við nú auglýsum félagið ókeypis í okkar kynningu erlendis. Ég hef kynnt mér nokkuð lista- hátíðarekstur erlendis og þar njóta listahátíðir mjög mikils afsláttar á fargjöldum, hvort heldur um er að ræða ríkisrekin flugfélög eða félög í einkarekstri." Sveinn Sæmundsson, blaðafull- trúi Flugleiða, hafði samband við Mbl. vegna baksíðufréttar í gær, þar sem fram kom að Listahátíð hefði gengið frá því að fá einka- þotu til að flytja Pavarotti til Islands, þar sem Flugleiðir hefðu fellt niður flug þann dag, sem listamaðurinn ætlaði að koma. „Þessi ferð var tekin út af dagskrá í byrjun maí,“ sagði Sveinn. „Þessi maður var heldur aldrei bókaður í flugið, sem var fellt niður vegna þess að enginn var bókaður í það.“ „MIÐAÐ við þær niðurgreiðslur, sem þegar hafa verið ákveðnar á ull, nemur verðhækkun á islenskri ull til okkar um 25%,“ sagði Pétur Eiriksson, framkvæmdastjóri Ála- foss í samtali við blaðið. Við hækk- un á verði iandbúnaðarvara 1. júni sl. var ákvaðið að verð á ull hækkaði til samræmis við hækkun á verði kindakjöts og að auki, sem næmi þeirri hækkun, er átti að verða á gærum. Rikistjórnin samþykkti að greiða niður þá hækkun, sem flutt var frá gærunum yfir á ullina og voru niðurgreiðslur á hverju ull- arkilói i þeim tilgangi hækkaðar um 174 krónur. Ákvarðanir um frekari niðurgreiðslur á ull i kjölfar siðustu verðhækkunar hafa ekki verið teknar, en gert er ráð fyrir að rikisstjórnin fjalli um skipun starfshóps, sem gera á tillögur i þessum efnum á fundi sinum á morgun, fimmtudag. Ríkisstjórnin hefur, að sögn Pálma Jónssonar, landbúnaðarráðherra, í hyggju að setja á stofn starfshóp, sem ætlað er að taka til athugunar verðlagningu á ull í framtíðinni. Jafnframt verður það fyrsta verkefni starfshópsins að athuga, hvort og hversu mikið sé nauðsynlegt að greiða niður af ullarverðshækkun- inni frá 1. júní sl. Ekki er enn afráðið hvernig verður háttað skipun þessa starfshóps, en líklegt er að í honum eigi sæti fulltrúar frá landbúnarar- ráðuneytinu, Félagi ísl. iðnrekenda, Iðnaðardeild Sambands ísl. sam- vinnufélaga og sexmannanefnd. Pétur Eiríksson sagði, að meðal- verð á hverju kílói af óhreinni ull til iðnaðarins hefði við verðhækkunina 1. júní sl. hækkað úr 1295 kr. í 1622 kr. Niðurgreiðsla ríkissjóðs á hverju ullarkílói er nú 863 krónur. „Þessi verðhækkun er enn eitt dæmið um að sexmannanefnd ákveði verðhækkun á ullinni hreinlega út í loftið og þeir virðast ekki hafa neina viðmiðun við heimsmarkaðsverð á ull. Eina við- miðunin, sem þeir virðast hafa er sú hækkun, sem verður á verðlags- grundvelli landbúnaðarvara, og þá er ullin látin taka sömu hækkun,“ sagði Pétur. Fram kom hjá Pétri að afkoma ullariðnaðarins væri mjög óljós með- an þessi hráefnishækkun væri yfir- vofandi. „Ástandið skánaði heldur í apríl og mái vegna þess að þá var töluvert gengissig. Nú um mánaða- mótin kom hins vegar nýtt áfall, sem var launahækkunin og þessi óvissa hráefnishækkun,“ sagði Pétur og tók fram að útreikningar varðandi áhrif þessara hækkana á afkomu ullariðn- aðarins lægju ekki enn fyrir. Varafréttastjóri útvarpsins: ---------------------- Astæðan var annir á fundartímanum útvarpsráðs klukkan fimm,“ sagði Sigurður. „Ég taldi það óframkvæm- anlegt á þessum tíma vegna anna við undirbúning fréttatíma og Víðsjár.“ Markús Örn sagði í Mbl., að þetta hefði verið önnur tilraun útvarpsráðs til að fá fulltrúa fréttastofu útvarps- ins á sinn fund til viðræðna um fréttaflutning fréttastofunnar um kjarnorkuvopn og aðgerðir her- stöðvaandstæðinga. Sigurður kvaðst ekkert vita um fyrra tilfellið og Mbl. tókst ekki að ná tali af Margréti Indriðadóttur fréttastjóra. „ÁSTÆÐA þess, að fulltrúi frétta- stofunnar gat ekki mætt á fund útvarpsráðs í gær voru annir á fréttastofunni, þegar fundurinn var haldinn, og ekkert annað," sagði Sigurður Sigurðsson varafréttastjóri útvarpsins, er Mbl. spurði hann um þetta atriði í framhaldi af ummælum Markúsar Arnar Antonssonar út- varpsráðsmanns í Mbl. í gær. „Fréttastjórinn er í fríi og fram- kvæmdastjóri útvarpsins kom að máli við mig í gær og spurði, hvort ég kæmi því við að mæta á fund

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.