Morgunblaðið - 05.06.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1980 5
Verður að loka skóla-
bókasöfnum í haust?
í UPPSIGLINGU er all
sérstætt mál, sem snertir
skólabókasöfn á grunnskóla-
stiginu um allt land, en þó
að stærstum hluta í Reykja-
vík. Málavextir eru þeir í
stærstum dráttum, að umsjón-
armenn safnanna hafa
gjarnan verið kennarar, og
því verið ráðnir á sömu
kjörum og aðrir kennarar.
Fjármálaráðuneytið vill hins
vegar ekki lengur viður-
kenna að safnverðirnir telj-
ist til kennara, en vill þess í
stað flokka þá undir aðra
starfsmenn við skólana, en
sú skilgreining skiptir máli,
þar sem kennarar eru ráðnir
af ríkinu, en aðrir starfs-
menn skólanna, eins og
húsverðir, eru ráðnir af
sveitarfélögum. Fjármála-
ráðuneytið hefur nú látið
þau boð út ganga að skóla-
bókasafnsverðir verði frá og
með næsta hausti ráðnir eins
og aðrir opinberir starfs-
menn, en ekki sem kennar-
ar.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Asgeir Guðmundsson
formaður Skólastjórafélags
Islands að skólamönnum þætti
þetta ill tíðindi. Ásgeir sagði að
kennarar litu svo á, að skóla-
bókasöfnin væru samofin við
kennsluna, og því ættu sömu
reglur að gilda um kjör og
vinnutíma safnvarða og kenn-
ara. Ásgeir benti á, að verði af
þessari breytingu lengist vinnu-
tími safnvarðanna til muna, og
sem dæmi mætti nefna að safn-
verðir yrðu að vinna 48—50 klst.
á viku á 9 mánaða skólaári til að
skila fullri vinnu opinberra
starfsmanna. Sagði Ásgeir að
við slíkt vildu kennarar ekki una
og væru allar líkur á því að þeir
kennarar sem starfa við skóla-
bókasöfnin myndu frekar snúa
sér að kennslu aftur, og væri
mjög líklegt að ekki fengist neitt
fólk til að vinna við söfnin á
þeim kjörum sem fjármálaráðu-
neytið býður. Ásgeir sagði að
lokum að það væri mjög baga-
legt, fyrir safnverðina að búa við
slíkt óvissuástand, þar sem þeir
vissu ekki hvort þeir ættu að
ráða sig við kennslu á ný eða
yrðu áfram á sömu kjörum við
söfnin. Hafa Ásgeir Guðmunds-
son og Valgeir Gestsson formað-
ur Sambands grunnskólakenn-
ara gengið á fund menntamála-
ráðherra, og beðið hann um
liðsinni í málinu. í framhaldi af
því hafði Morgunblaðið samband
við Sigurð Helgason deildar-
stjóra í menntamálaráðuneyt-
inu, og sagði hann að málið væri
í athugun, en engin afstaða hefði
verið tekin. Sigurður sagði
ennfremur að engin reglugerð
lægi fyrir um réttindi og skyldur
safnvarða á skólabókasöfnum,
og gerði það málið erfiðara
viðfangs. Það kom og fram í
samtalinu við Sigurð Helgason
að reglugerð um þessi efni væri
þó væntanleg.
Morgunblaðið hafði einnig
samband við Fríðu Haraldsdótt-
ur, kennara og bókasafnsvörð í
Langholtsskóla, en hún er ein
þeirra safnvarða sem hér um
ræðir. Sagði Fríða m.a., að það
væri ljóst að það vantaði alla
stefnumótun í þessu máli, og
kennarar teldu það mjög mikil-
vægt að úr því yrði bætt. Enn-
fremur sagði Fríða að svo virtist
sem stjórnvöld vildu láta skóla-
bókasöfnin undir sama hatt og
almenningsbókasöfn, en á þeim
væri mikill munur og skólabóka-
söfnin hefðu þar sérstöku hlut-
verki að gegna, sem almennings-
bókasöfnin næðu ekki til. Áð
lokum sagði Fríða, að sér þætti
ótrúlegt að nokkur fengist á
söfnin á þeim kjörum sem fjár-
málaráðuneytið byði, og sér
kæmi það á óvart ef bókasafns-
fræðingar myndu vilja ráða sig í
vinnu 9 mánuði á ári við söfnin,
en þurfa að leita að annarri
vinnu þess á milli.
Heimdallur:
Mikil gróska hjá
skólanefndinni
„SKÓLANEFNDIN er vettvang-
ur fyrir framhaldsskólanemend-
ur innan Ileimdallar. þar sem
þeir geta komið saman og borið
saman bækur sínar. Öðru hverju
höfum við boðið upp á fræðslu
fyrir framhaldsskólanema og má
þar nefna að sl. sumar gekkst
nefndin fyrir velheppnuðum
námskeiðum sem vörðuðu blaða-
skrif. almenna framkomu á fund-
um og alþjóðastjórnmál,'4 sagði
Árni Sigfússon form. skólanefnd-
ar Heimdallar er Mbl. snéri sér
til hans vegna fyrirhugaðra nám-
skeiða sem nefndin mun gangast
fyrir í sumar
Hver verða helstu atriði á þess-
um námskeiðum í sumar?
„Helstu námskeið má telja
„Vandamál þróunarlanda" þar
sem kynntar verða tillögur um
aðstoð o.fl., Varnarmál íslands og
Nato, stóriðja og erlent fjármagn,
„innræting", einnig verða teknir
fyrir nokkrir þættir úr atvinnulíf-
inu s.s verslunarmál , neytenda-
mál o.fl. Fyrirkomulag námskeið-
anna verður í stórum dráttum
þannig að þau taka u.þ.b. eina
kvöldstund hvert og þegar tilefni
gefst til verður farið í skoðunar-
ferðir. Reynt verður að fá sérfróða
menn á hverju sviði til að fjalla
um þau mál sem um er að ræða.
Það er mikilvægt atriði að þeir
sem áhuga hafa láti vita af sér
m.a. vegna undirbúnings.
Árni Sigfússon
Bíldudalur:
Sölvi Bjarnason land-
aði 660 lestum í maí
Bildudal. 3. júni.
TOGARINN Sölvi Bjarnason
landaði hér á laugardaginn
rúmlega 79 lestum. mest grá-
lúðu. Hann hefur þá landað í
400 Færey-
ingar hafa
séð „Land
og syni“
UM 400 manns höfðu í gær séð
íslensku kvikmyndina „Land og
synir" í Þórshöfn í Færeyjum.
Sýningar þar hófust sl. föstudag
og mun þeim haldið áfram að
minnsta kosti út þessa viku, að
sögn forstjóra Havnar bíós, Jóg-
vans Jacobsen. Myndin hefur
fengið góða dóma í blöðum þar
ytra og sagðist Jógvan vona að það
myndi glæða aðsóknina.
mánuðinum fimm sinnum, sam-
tals rúmlega 660 lestum.
Hörpudiskveiðin hefur gengið
mjög vel það sem af er og hefur
aflanum verið landað hjá Rækju-
veri. Þá hefur einn 15 tonna
bátur stundað línuveiðar að und-
anförnu og hefur aflað um 73
lestir.
Póstsamgöngur hafa verið
hreint hörmulegar hér að undan-
förnu. Fyrir það fyrsta flýgur
Arnarflug hingað einungis á
þriðjudögum og fimmtudögum,
þannig að við fáum engan póst
frá föstudegi fram á þriðjudag.
Þegar hætt var að fljúga með
póstinn til Patreksfjarðar var
okkur lofað því, að fá póst í
gegnum ísafjörð þrisvar í viku,
en við það hefur ekki verið
staðið, nema endrum og eins. Það
virðist vera þannig, að mest
áherzla sé lögð á að koma
brennivínssendingum á þessa
staði.
—Páll.
'O
INNLENT
Stefán Bjarnason
varaforseti EFEO
Á AÐALFUNDI Evrópusamtaka
flugvélstjóra, sem haldinn var í
Rómaborg í síðasta mánuði, var
Stefán Bjarnason kosinn varafor-
seti samtakanna til tveggja ára, en
Stefán var fulltrúi Flugvirkjafé-
lags íslantis á fundinum. FVFÍ
gekk í samtökin í mars sl. því það
hafði áhuga á að ná samstarfi við
starfsbræður sína, flugvirkja/flug-
vélstjóra, erlendis en ekki voru
nein milliríkjasamtök flugvirkja
fyrir hendi.
Aðildarfélög að EFEO eru nú frá
Belgíu, Hollandi, Ítalíu, Spáni,
Portúgal, Frakklandi, Grikklandi,
Kýpur og íslandi en umsókn flug-
vélstjóra í Danmörku liggur fyrir.
L9TOFRA*
EHSKURINN
Ryksugan sem svífur
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun, vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogsfyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rumar 12 litra, já 12 lítra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasfa ryksuga sem völ er á, hún liður umj|i
gólfið á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig. svo létt er hun.
Verö kr.
i Egerléttust...
búin 800Wmótor
og12lítra rykpoka.
(Made inUSA)
105.730
FALKIN N
SUOURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
_ HOOVER er heimilishjálp
Pekkinq