Morgunblaðið - 05.06.1980, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.06.1980, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1980 .. þar sem Gaddgeðlar heita“ í Orkneyinga sögu er Galloway nefnt Gaddgeðlar. „I>ar mætisk Skotland ok England.“ í Hákonarsögu er héraðið nefnt Galvei. Það orð er sæmilega þjált á íslenzku og kynni að hafa festst í málinu. ef samskipti hefðu haldizt milli landanna. Ég er lítt fær að rekja orðaskýr- ingar, en ein er sú, að eldra orð (Galloviel) þýði Galli, og þeir hafi fyrstir setzt að í þessum landshluta. Þá er sú skýring, að átt sé við útlenda (norræna) menn, er blandazt höfðu fólkinu, sem fyrir var, og voru mælandi á írsku (Gall-Gáidhil). Á þjóðveldisöld íslendinga réðu smákonungar, jarlar eða lávarðar ríkjum á þessum slóðum, og bjuggu íbúarnir við talsvert sjálfræði. Þeir höfðu Frá heima- slóðum Galloway kynsins sérstök heimastjórnarlög og dómstól. Öldum saman héldu þeir þjóðþing í Urr, sem var löggjafarþing. Síðastur hinna gömlu stjórnenda dó 1233, og röskum tveim öldum síðar (1455) var héraðið, sem þá var langtum víðlendara en nú, lagt undir skozku krúnuna. Kjarni þessa héraðs, sem enn er nefnt l.mynd 2. mynd 3. mynd Galloway, eru dalir þeir og hálsar, sem verða norðan Sol- way-fjarðarins, er skilur Skot- land og England. Úti fyrir firðinum liggur eyjan Mön. Fyrr á öldum var land þetta þakið skógi, einkum skozkri furu. Þar gengu villtar hjarðir nautgripa. Gamlar sagnir eru til um kollótta gripi, og er Galloway-kynið vafalaust komið út af þeim. 1. mynd Kýr úr hjörð Biggars-feðga nálægt Castle Douglas. Eftir sameiningu Skotlands og Englands urðu kjötgæði Galloway-kynsins fljótt kunn í Englandi. Þá var farið að reka þúsundir Galloway-gripa hundruð km til Englands til fitunar á góðu graslendi fyrir slátrun og sölu í borgum. 2. mynd „Mjúkt, sætt og safaríkt." Þannig lýsir Ortelius sagn- fræðingur kjöti af gripum í Galloway, árið 1573. Ef til vill hafa einhverjir gaman af þess- ari klausu á ensku frá 1570 um Galloway: „In this region ar mony fair ky and oxin of quhilk the flesh is delicius and tender." Einstakir hlutar skrokksins af Galloway-grip eru sýndir á þessari mynd frá kjötsýningu sláturgripa í Castle Douglas haustið 1977. 3. mynd Á þessari sömu sýningu, sem markaðsnefnd slátur- gripa í Dumfries efnir til árlega, voru 207 nautgripa- skrokkar til sýnis, þar af 46 uxar og 4 kvígur af Galloway- kyni. Kjötgæði gripanna þar þóttu mjög mikil, og voru kjötkaupmenn því ánægðir. Bezta fallið var af 629 daga gömlum Galloway-uxa frá Doon af Urr. Það vó 292 kg. Sams konar verðlaun og veitt voru fyrir bezta fallið, fékk gripur úr sömu hjörð 2 árum áður. Þyngdaraukning Gallo- way-gripa á dag er mun minni en gripa af stærstu kynjum og því hefur það ekki náð þeirri útbreiðslu, sem það annars hefði. Hins vegar þarf það hvorki jafngott land né mikla kjarnfóðurgjöf. Hátíðahöld á aldarafmæli Félag ræktenda Galloway- kynsins var 100 ára 1977. Skýrsluhald um gripi byrjaði þó áður, en ýmis skjöl og skýrslur um kynið eyðilögðust í safnhúsbruna í Edinborg 1851. Hjarðbókarfærsla var aftur hafin 1862 og höfð sam- eiginleg fyrir Galloway- og Aberdeen Angus-kynið, þ.e. kollóttu kynin tvö, þótt rækt- unin væri aðskilin. 4. mynd Ýmislegt var gert til að minnast aldarafmælisins. M.a. var efnt til alþjóðlegrar ráð- stefnu um Galloway-kynið, stöðu þess nú og framtíðar- horfur. Á myndinni sjást nokkrir ráðstefnugestanna fylgjast af athygli með því, sem var að gerast. 4. mynd 5. mynd 8. mynd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.