Morgunblaðið - 05.06.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.06.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JUNI 1980 Vandi frystiiðnaðar Haraldur Sturlauifsson Jón Póll Halldórsson ólafur Gunnarsson Haraldur Sturlaugsson, Akranesi: „Ég sé ekki hvernig á að leysa þenn- an hnút“ — Hjá okkur horfir þetta þann- ig við, hvað viðkemur frysti- geymslunum, að við eigum geymslurými fram í miðja næstu viku og höfum ekki fengið ákveð- in svör um hvort við losnum við fisk fyrir þann tíma, sagði Har- aldur Sturlaugsson, fram- kvæmdastjóri Haralds Böðvars- sonar og co. hf. á Akranesi. — Það hefur verið reynt að halda húsunum gangandi með því að taka smávegis frá hverjum framleiðanda, jafnvel til geymslu erlendis. Þetta er ekki aðeins hér hjá okkur, heldur á þetta við um hin húsin hérna í kring, það eru allir í erfiðleikum. — Við þetta bætist að búið er að tilkynna okkur, að við megum ekki vinna flök á Rússland lengur. I maímánuði voru skipin að mestu leyti á karfa og grálúðu vegna þess að það var lítið þorskfiskirí og togararnir í banni. Við höfum verið að heil- frysta grálúðu á Rússlands- markað, það er leyft enn þá, en sem dæmi um vandann má nefna að með því að heilfrysta fyllirðu klefana enn fyrr en ella og eitt vandamálið tekur því við af öðru. — Þetta er ekki nóg. Nú á að fara að setja upp einhverja „formúlu" um að menn framleiði ákveðið hlutfall af þorskflökum á móti blokk á Bandaríkjamark- að og í því sambandi er talað um 40% af flakaframleiðslunni í fyrra. — Margir halda að lausnin sé að hengja upp í skreið, en það tel ég hæpið. Að vísu er mögulegt að hengja upp smærri fisk eitthvað lengur, en með stærri fisk getur brugðið til beggja vona um hvort menn lenda í maðk eða ekki. Ég held að enginn hafi efni á að sjá aðeins beinin hangandi á hjöll- unum í haust. Að vísu hefur verið reynt að nota efni á fiskinn til að verja hann, svipað og gert er með ávexti erlendis. Það er jú árangur af þessu, en hins vegar lítil reynsla og auk þess var sumarið í fyrra kalt og ekki er þar með sagt að slíkt endurtaki sig í ár. Þá má ekki rigna á þetta efni, því þá rennur það af. — Dæmið gengur engan veg- inn upp og ég sé ekki hvernig á að leysa þennan hnút, nema þá á þennan hefðbundna hátt, með gengislækkun, sem gerir það að verkum að verðbólgan magnast og hringavitleysan heldur áfram. Ég get ímyndað mér að frystihúsin hér á Akranesi greiði um 50 milljónir króna á viku í laun til starfsfólks í fiskvinnsl- unni. Það kæmi einhvers staðar við ef þessi starfsemi hætti einn góðan veðurdag. — Ég trúi því vel, að fólki gangi illa að skilja þann vanda, sem við er að glíma, þegar aflabrögð eru eins góð og á þessu ári. Hvernig á fólk líka að skilja þetta dæmi, þegar við gerum það varla sem stöndum í þessu, sagði Haraldur Sturlaugsson að lok- um. Jón Páll Halldórsson, ísafirði: „Samdráttur í flakafram- leiðslu hefur í för með sér bullandi tap“ I SVONA byggðarlögum eins og hér fyrir vestan þar sem lífið er freðfiskur er alveg ljóst, að menn eru áhyggjufullir og ástandið er vægast sagt uggvæn- legt, sagði Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri Hraðfrysti- hússins Norðurtangans á ísa- firði. — Birgðir eru með mesta móti hjá frystihúsunum, reynd- ar meiri hjá allflestum heldur en áður á þessum árstíma og sums staðar er ekkert frystirými. Næstu daga eru væntanleg þrjú skip og þá rýmkast eitthvað um. — Það breytti í rauninni ekki miklu fyrir okkur þegar við urðum að hætta að framleiða flök fyrir Rússlandsmarkað. Hitt er miklu alvarlegra hjá okkur að þurfa að draga saman framleiðslu þorskflaka fyrir Bandaríkjamarkað og það hefur í för með sér bullandi tap. — Hinn umtalaði núllpunktur er miðaður við að allt sé sett í flök og bestu nýtingu hráefnis, en frá og með 1. júní er okkur uppálagt að 40% af framleiðslu á þorskflökum í hverjum mánuði í fyrra, megi nú fara í flök, hitt þurfi að setja í blokk, salta eða hengja upp í skreið. Fyrir aðal- fund SH var lögð tillaga um að hætta alveg flakaframleiðslu, en VANDI fiskvinnslunnar hefur mjög verið til umræðu undanfarið og mun sjálfsagt verða áfram næstu vikurnar. Söluerfiðleikarnir á helztu mörkuðum hafa skapað mikla erfiðleika. í því sambandi má nefna, að ákveðið hefur verið að draga verulega saman framleiðslu á þorskflök- um fyrir Bandaríkjamarkað. Sömuleiðis er búið að framleiða um 3 þúsund tonnum meira, en samningar við Sovétmenn á flökum gerði ráð fyrir og Rússar hafa ekki enn svarað tilboði sölusamtakanna um að þeir kaupi mejra magn af þessum afurðum. Á sama tíma og við vanda í sölu afurða er að etja hefur orðið mikil framleiðsluaukning og frystigeymslur víðast hvar um iandið eru nú fuliar og hafa menn víða orðið að grípa til þeirra ráða að fá inni með afurðirnar í frystigeymslum annarra fyrirtækja. Um síðustu mán- aðamót varð 11,7% kaupgjaldshækkun og í gær var síðan ákveðin 11,7% hækkun á fiskverði. Sú ákvörðun var tekin með atkvæðum fiskseljenda og oddamanns gegn atkvæð- um fiskkaupenda. Til að grennslast nánar fyrir um stöðu hraðfrystiiðn- aðarins ræddi Morgunblaðið í gær við þrjá framkvæmda- stjóra frystihúsa, þá Harald Sturlaugsson á Akranesi, Jón Pál Halldórsson á ísafirði og Ólaf Gunnarsson í Neskaupstað. niðurstaðan varð sú að fram- leiða mætti þessi 40% fyrst um sinn, en verið er að vinna að einhvers konar kvótakerfi á frystihúsin. — Við hér á Vestfjörðum höf- um einbeitt okkur að því í áraraðir að framleiða flök fyrir Bandaríkjamarkað og þetta kemur sér því ákaflega illa fyrir okkur. Hins vegar gera allir sér Ijóst, að það er tilgangslaust að hrúga upp flökum, sem ekki er unnt að selja. Maðkatíminn fer nú í hönd og það er því mikið happdrætti að hengja upp í skreið þó markaðsástand á skreiðinni sé gott. Önnur hús eru með saltfiskverkun jafnhliða, og þeir munu væntanlega auka hana á næstunni, en staðreyndin er eigi að síður sú, að í heildina eru menn ekki búnir að átta sig á því hvernig þeir bregðast við þessum vanda, sagði Jón Páll Halldórsson að lokum. ólafur Gunnarsson, Neskaupstað: „Rekum okk- ur alls staðar upp undir á mörkuðunum“ — ÞAÐ MÁ eiginlega segja, að okkar vandi sé fólginn í því, að við erum stöðugt að reyna að selja verðbólguna og núna geng- ur okkur illa að selja hana, sagði Ólafur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. — Nú er svo komið, að við erum farnir að reka okkur alls staðar upp undir á mörkuðunum og það tel ég stóra málið í þessu. Það er ekki fyrr en nu nýlega, að við höfum áttað okkur á því hversu lág þessi takmörk eru. — Ég reikna með að afkoman versni um 10% vegna hækkana á launum og hráefni, tap vegna óhagræðis við framleiðsluna tel ég nema 5—6% og að auki reikna ég tapið 3% meira vegna vanreiknaðs vaxtakostnaðar, sem Þjóðhagsstofnun tekur ekki með inn í dæmið. Samkvæmt þessu er frystiiðnaðurinn nú rekinn með 18—19% tapi og það segir sig sjálft, að það gengur ekki að reka fyrirtæki þannig. — Þegar ég tala um óhagræði í framleiðslu á ég við, að búið er að skrúfa fyrir framleiðslu á Rússlandsmarkað og farið er að skammta húsunum hvað þau mega framleiða í neytenda- pakkningar á þorski fyrir Bandaríkin. Ekki er endanlega búið að ákveða hvað kemur í hlut hvers húss, en þeim mun hærri sem kvótinn verður, þeim mun lengri tíma tekur okkur að komast út úr þessum vanda. Við höfum verið með á milli 60— 70% í þessar neytendapakkn- ingar. — Það hefur verið talað um, að menn ættu að fara í að framleiða saltfisk eða skreið í auknum mæli. En það er ekki hlaupið að því, auk þess sem ég sé ekki að endilega sé ástæða til, að þessi samdráttur komi niður á starfsfólki frystihúsanna ein- göngu, sagði Ólafur Gunnarsson. Aðspurður um hvort Síldar- vinnslan lægi með miklar birgðir sagði Ólafur, að auk frystirýmis fyrirtækisins sjálfs, hefði tekizt að fá frystigeymslur hjá kaup- félögunum og væru fiskbirgðir Síldarvinnslunnar nú einnig í geymslu á Eskifirði og Reyðar- firði. Útvarpað í „steríóu á 50 ára afmæli hljóðvarpsins? Fáránlegar ásakanir — segir Jón Jónsson „ÞAÐ er von mín að við getum hafið sterióútsendingar á 50 ára afmæli útvarpsins þann 20. des- ember í vetur, en hvort það tekst er of snemmt að segja fyrir um,“ sagði Hörður Frímannsson, verk- MIKIL aukning hefur orðið á kærum fyrir ölvun við akstur í umdæmi Hafnarfjarðarlögregl; unnar það sem af er þessu ári. I gær höfðu 127 ökumenn verið kærðir fyrir ölvun við akstur en á sama tima í fyrra höfðu 86 fræðingur Rikisútvarpsins, er hann var spurður um fyrirhugað- ar sterióútsendingar hljóðvarps- ins. Hörður sagði, að breytingin væri í tengslum við endurnýjun á ökumenn verið kærðir. Er þetta 48% aukning frá í fyrra. I um- dæminu sjálfu hafa 60 ökumenn verið teknir nú en voru 54 í fyrra en utan umdæmisins hafa 67 verið teknir en voru 32 í fyrra. tækjakosti hljóðvarpsins og kæmu þessi tæki í stað gamalla tækja. Hér væri um að ræða nýtt útsend- inarborð og þularborð með til- heyrandi útbúnaði fyrir símalínur og línuskiptingar. Tækin eru norsk og hafa að sögn Harðar ekki enn verið afgreidd og af þeim sökum er erfitt að segja nákvæm- lega, hvenær steríóútsendingar hljóðvarpsins hefjast. Hörður sagði það von þeirra að útsend- ingar hljóðvarpsins þyrftu ekki að falla niður um stund meðan þess- um nýja tækjabúnaði yrði komið fyrir. Fram kom í samtalinu við Hörð að í fyrstu munu steríóútsend- ingar hljóðvarpsins ekki ná til allra landshluta, þar sem endur- varpsstöðvar væru sums staðar ekki búnar nauðsynlegum tækjum fyrir slíkar sendingar. Hörður tók fram að úr því yrði þó bætt í áföngum. „ÞETTA eru fáránlegar ásakan- ir. Ég mótmæli þessu harðlega,“ sagði Jón Jónsson forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, er Mbl. spurði hann, hverju hann svaraði ásökunum dr. Sidney Holt um að Jón hefði nánast aldrei sést á fundum visindanefndar Hval- veiðiráðsins. Jón sagði að síðasti fundur nefndarinnar hefði verið haldinn í New College í Cambridge og hefðu nefndarmenn gist og snætt á fundarstaðnum. „Ég kom daginn áður en fundurinn hófst og fór daginn eftir, en fundurinn tók hálfan mánuð," sagði Jón. „Vísindanefndin starfar í mörgum undirnefndum og að sjálfsögðu sótti ég helzt fundi þeirra nefnda, sem fjölluðu um þau mál, sem Island varðar mestu, eins og hvalastofna í N-Atlantshafi. Hins vegar get ég kannast við að hafa ekki verið tíður gestur á fundum, þar sem fjallað var um hvalveiðar við Ástralíu svo dæmi sé nefnt. En daglega voru haldnir fundir í vísindanefndinni sjálfri, þar sem gerð var grein fyrir því, hvað til umræðu væri í öllum nefndunum og þessa fundi sótti maður að sjálfsögðu. Þeir eru nú orðnir margir fund- irnir, sem ég hef setið fyrir íslands hönd erlendis og ég hef ekki verið gagnrýndur fyrir mín fundastörf fyrr en nú, að Sidney Holt kemur með þessar fullyrð- ingar. Ég veit satt að segja ekki, hvað honum gengur til. Eg kann- ast vel við hann sem vísindamann. Ég kann ekki aðra skýringu en þá, að hann í blindu á sinn málstað telji ósannindi geta á einhvern hátt orðið honum til framdráttar. Ölvun við akstur: Mikil aukning í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.