Morgunblaðið - 28.06.1980, Page 1
48 SÍÐUR
143. tbl. 67. árg.
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Risu gegn
Rússum
Nýju Dclhi. 27. júní. AP.
AFGHANSKIR hermenn felldu
10 rússneska skriðdrekahermenn
og kveiktu i vopnabúri i uppreisn
skammt frá Kabul fyrir einni
viku samkvæmt fréttum frá Af-
Khanistan i dag.
Um 15 Rússar og rúmlesa 30
Afghanir særðust og ótiltekinn
fjöldi Afghana beið hana i bar-
daganum sem var háður í Pol-I-
Charki þar sem 4. sovézka bryn-
varða herfylkið hefur bækistöð.
Nokkrir afghanskir og sovézkir
skriðdrekar og brynvagnar urðu
eldi að bráð samkvæmt fréttinni.
Skriðdrekarnir voru af sömu gerð
og Rússar fluttu burtu þar sem
þeir henta ekki til hernaðar í
hrjóstrugu landslagi.
81 fórst
með DC-9
Palermo, 27. júní. AP.
DC-9 flugvél ítalska
flugfélagsins Itavia virð-
ist hafa farizt í kvöld
með 81 manni um borð,
þar af 77 farþegum, á
leið frá Bologna til Pal-
ermo á Sikiley. Ferja var
í kvöld á leið á slysstað-
inn norður af Sikiley.
Þegar ekkert hafði
spurzt til flugvélarinnar
þremur tímum eftir
áætlaðan lendingartíma
sagði flugfélagið að hún
væri talin af.
Hermenn hafa lagt undir sig háskólann í San Salvador, eitt helzta vígi vinstrisinna í E1 Salvador. Hér sjást
hermenn hafa gætur á hópi stúdenta. Minnst 100 voru handteknir eftir tveggja tíma skotbardaga, sem kostaði
minnst þrjá lífið. Stjórnin segir að leitað verði í hverju herbergi stofnunarinnar.
Khomeini hótar
nýju öngþveiti
Tchcran. 27. júni. AP.
KHOMEINI trúarleiðtogi gerði óvenjuharða hríð að stjórn Abolhass-
an Bani-Sadr forseta í dag og gaf sterklega í skyn að hann mundi
fyrirskipa nýtt stjórnmálaumrót i Iran ef stjórnin yndi ekki bráðan
bug að þvi að leysa fjölmörg vandamál landsins.
Bandaríkin heita
Thailandi aðstoð
Kuala I.umpur. 27. júnl AP.
BANDARÍKIN hafa lofað að veita Thailandi aukna
hernaðaraðstoð frá og með næstu viku að því er
utanríkisráðherra Thailands, Siddhi Savatsila, til-
kynnti í dag. Ilann sagði að Edmund Muskie utanríkis-
ráðherra hefði heitið þessu í viðræðum sem þeir áttu í
dag. í Washington sögðu starfsmenn bandaríska
utanríkisráðuneytisins að í athugun væri að senda
flugleiðis létt vopn, skotfæri og stórskotavopn í stað
vopna sem Thailendingar hefðu notað í landamærahar-
dögum við Víetnama að undanförnu.
og Kambódíu, þar sem kyrrt var í
dag eftir fjögurra daga bardaga.
Utlendingarnir eru tveir starfs-
menn Rauða krossins, Bretinn
Robert Ashe og Frakkinn Pierre
Starfsmenn Alþjóða Rauða
krossins rannsökuðu í dag fréttir
um að víetnamskir hermenn
hefðu tekið fjóra útlendinga til
fanga á landamærum Thailands
Perrin, og tveir bandarískir
ljósmyndarar, George Lienamann
og Richard Franken.
Víetnamar og Rauðir Khmerar
börðust í dag nálægt flótta-
mannabúðunum Nong Chan og
bardagar halda áfram milli Víet-
nama og stuðningsmanna Pol Pot
suðvestur af landamærabænum
Aranyaprathet.
Thailendingar afléttu í dag að
hluta banni frá því á mánudag við
sendingu matvæla og lyfja til
Kambódíu á sjó, en bann við
loftflutningum er enn í gildi.
Víetnamar héldu því fram í dag
að Kínverjar héldu áfram ögrun-
um og ykju stríðsundirbúning á
landamærum Kína og Víetnams.
Viðvörun Khomeini kom fram í
ræðu sem' hann hélt á fundi með
fórnarlömbum fyrrverandi ír-
anskeisara á heimili sínu. Honum
virðist hafa sérstaklega gramizt
fréttir um að tákn fyrrverandi
stjórnar sé enn að finna í stjórn-
arskrifstofum. Hann sakaði ráðu-
neyti um „dugleysi" og sagði að
þau væru „óguðleg" og „keisara-
leg“.
Meiriháttar breytingar á æðstu
forystunni gætu haft áhrif á
horfurnar á því að gíslunum verði
sleppt. Bani-Sadr telur að gísla-
málið dreifi athyglinni frá alvar-
legum innanlandsvandamálum ír-
ans og vill sleppa gíslunum eins
fljótt og hægt er.
Khomeini hefur látið í ljós
vaxandi áhyggjur af vandamálum
landsins. í ræðu sinni i dag sagði
hann að stjórnin hundsaði óskir
„auðmjúkra múhameðstrúar-
manna."
Rússar missa
njósnaflugvél
Tokyo, 27. júni. AP.
SOVEZK TU-16 sprengjuflugvél
(„Badger“), sem talið er að hafi
verið i könnunarferð. hringsóiaði
yfir japönsku herflutningaskipi i
dag og hrapaði síðan i sjóinn út af
Niigata, 300 km norður af Tokyo.
Flugvélin var önnur tveggja
flugvéla sem sáust í ratsjá og um
borð í herflutningaskipinu 110 km
út af Sado-eyju. Fjórar japanskar
F-4 orrustuþotur voru sendar á
vettvang og voru níu km frá
sovézku flugvélinni þegar hún
hrapaði.
Hin sovézka flugvélin hringsól-
aði yfir svæðinu í eina og hálfa
klukkustund eftir slysið.
Samsæri gegn
Mugabe uppvíst
Salishury. 27. júni. AP.
SAMSÆRI hægrisinnaðra hvítra manna um að
myrða Roberto Mugabe forsætisráðherra og erlenda
leiðtoga við sjálfstæðistöku landsins var bælt niður
að sögn öryggismálaráðherra Mugabe, Emmerson
Mnangagwa, í dag.
Hann sagði að samsærið
hefði verið bruggað í Suður-
Afríku, en vildi ekki saka ríkis-
stjórn málsins um að vera
viðriðin -málið. Hann sagði að
fulltrúum Suður-Afríkustjórn-
ar hefði verið skýrt frá samsær-
inu í dag, en engin mótmæli
voru borin fram.
Mnangagwa sýndi ýmis vopn
og sprengiefni er fundizt hefði í
vöruflutningabifreið sem hefði
komið til landsins frá Suður-
Afríku — þar á meðal sovézk
smíðaðar SAM-7 loftvarnaeld-
flaugar og Claymore-jarð-
sprengjur smíðaðar í Banda-
ríkjunum.
Ráðherrann sagði að starfs-
menn öryggismála hefðu komizt
á snoðir um samsærið og fundið
vopnin aðfaranótt sjálfstæðis-
tökunnar 18. apríl. Hann neit-
aði að svara því hvort einhverj-
ir hefðu verið handteknir, en
sagði að mennirnir sem komu
með vörubílnum hefðu verið
hvítir.
Óljóst er hvers vegna hann
lét tvo mánuði líða áður en
hann sagði frá samsærinu, en
tilkynning hans fylgir í kjölfar
nær daglegra staðhæfinga Mug-
abe um að stjórn hans sæti
árásum frá ýmsum aðilum.