Morgunblaðið - 28.06.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐÍÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980
UnniA að slökkvistarfi í Heiðmörk i gær.
Ljósm. Júlíus.
ELDUR 1 MOSA í HEIÐMÖRK
ELDUR kom í gær upp í mosa
austast í Heiðmörk og vann
Slökkvilið Reykjavíkur ásamt
starfsfólki Skógræktar Reykja-
víkur að því að ráða niðurlögum
eidsins. Eldurinn mun hafa
kviknað vegna þess að barn fór
ógætilega með eldspýtur en mos-
inn er þarna skraufþurr. Engar
skemmdir urðu á skógi vegna
þessa elds en mosi á svæði, sem
er um 40 metrar á hvorn veg
brann.
Slökkviliðið var kallað út rétt
eftir klukkan tvö og fóru menn
með tvo siökkvibíla upp í Heið-
mörk en þar sem eldurinn var á
svæði, sem var töluvert frá
veginum, var ekki hægt að koma
bílunum að því. Starfsfólk
Skógræktarinnar var á staðnum,
þegar eldurinn kom upp og vann
það að slökkvistarfinu ásamt
slökkviliðsmönnunum. Grafnir
voru skurðir umhverfis svæðið
og á sjötta tímanum fóru
slökkviliðsmenn af staðnum en
starfsfólk Skógræktarinnar varð
eftir til að gæta þess að eldurinn
breiddist ekki út.
Fóðurbætisskatturinn
Bóndi með 30 kýr þarf að
greiða 1 milljón á mánuði
Ræða skatt-
inn við
ráðherra
ALIFUGLA- og svínabændur
áttu í gær fund með fram-
kvæmdanefnd Framleiðsluráðs
landhúnaðarins til að ræða hugs-
anlegar endurgreiðsiur til þeirra
á nýálögðum fóðurbætisskatti.
Engar formlegar tillögur komu
fram á þessum fundi en Pálmi
Jónsson landbúnaðarráðherra,
hefur áður lýst því yfir að hann
telji rétt að endurgreiða framleið-
endum eggja, kjúklinga og svína-
kjöts hluta skattsins en þó ekki
þann hluta, sem svarar til niður-
greiðslna Efnahagsbandalagsins á
fóðrinu.
Alifugla- og svínabændur eiga í
dag fund með Pálma Jónssyni,
landbúnaðarráðherra og á þriðju-
dag er fyrirhugaður fundur í
Framleiðsluráði landbúnaðarins,
þar sem þetta mál verður til
umræðu.
INNLENT
BÓNDI með 30 kýr í fjósi, sem
hafa um 20 kg nyt og fá daglega
6 kg af kjarnfóðri, þarf að nota
5,4 tonn af fóðurblöndu á mán-
uði. Sé tekið dæmi af svonefndri
B-kúafóðurblöndu kostuðu þessi
5,4 tonn fyrir álagningu 200%
fóðurbætisskattsins bóndann 799
þúsund krónur en eftir að skatt-
urinn var lagður á kosta þau
hann 1.831 þúsund krónur. Þessi
mjólkurframleiðandi þarf því að
greiða vegna fóðurbætisskattsins
1 milljón og 32 þúsund krónur og
hefur kostnaður hans vegna fóð-
urbætiskaupanna aukist um
129%. óvíst er hversu mikið þessi
bóndi kann að draga úr fóður-
bætisgjófinni í kjölfar fóðurbæt-
isskattsins.
Þessar upplýsingar fékk Morg-
unblaðið hjá Sigurði Á. Sigurðs-
syni hjá Innflutningsdeild SÍS í
gær. Sé tekið dæmi um hækkun á
einstökum fóðurvörutegundum
vegna álagningar fóðurbætis-
skattsins hækkar verð á hverju
tonni af íslenskri A-kúafóður-
blöndu, köggiaðri og sekkjaðri, úr
15.000 kr. í 333.900 kr. eða um
126%. Dönsk A-kúafóðurblanda,
köggluð og sekkjuð, hækkar úr
131.200 kr. í 373.100 kr. tonnið eða
um 185%. Danskt svínaeldisfóður
16% hækkar frá SÍS úr 147.300 kr.
tonnið í 391.900 eða um 166% en
danskt heilfóður 13% fyrir
hænsni hækkar úr 158.300 kr.
tonnið í 409.300 kr. eða um 159%.
Sem kunnugt er hefur verið
rætt um að endurgreiða svína- og
alifuglabændum hluta fóðurbætis-
skattsins en landbúnaðarráðherra
hefur lýst því sem skoðun sinni að
ekki beri að endurgreiða þeim
þann hluta skattsins, er svarar til
Telpa fyrir bíl
LAUST eftir hádegi í gær var 11
ára telpa fyrir bíl á gatnamótum
Bræðraborgarstígs og Sólvalla-
götu. Telpan var á reiðhjóli og
hjólaði vestur Sólvallagötu og
lenti fyrir bíl, sem kom norður
Bræðraborgarstíg. Telpan meidd-
ist á höfði og fæti.
niðurgreiðslna Efnahagsbanda-
lagsins á fóðrinu. Sé tekið dæmi af
dönsku svínaeldisfóðri, sem hækk-
ar við 200% fóðurbætisskattinn úr
147.300 kr. í 391.900 kr., má ætla
að ef sá hluti skattsins sem er
umfram niðurgreiðslurnar verði
endurgreiddur kosti tonnið af
svínafóðrinu um 210 þúsund krón-
ur. Nemur hækkunin þá 43% en
Eins og fram hefur kom-
iö í fréttum samþykkti rík-
isstjórnin nokkra hækkun
á brauðinu á fimmtudag, en
bakarameistarar telja þær
hækkanir ganga of
skammt. Franskbrauð
kostar nú 228 krónur, en
samkvæmt ákvörðun ríkis-
gera má ráð fyrir að hún kunni að
hafa áhrif á verð á afurðum
alifugla og svína.
Meðal bænda hafa heyrst
áhyggjuraddir um að erfiðleikar
kunni að skapast við greiðslu á
fóðurbæti eftir álagningu skatts-
ins. Fyrirhugað mun að veita
fóðurseljendum þriggja mánaða
gjaldfrest á fóðurbætisskattinum
stjórnarinnar myndi
franskbrauð hækka í 260
krónur.
Bakarameistarar
vilja hins vegar að verðið
verði 303 krónur. Normal-
brauð færi úr 200 krónum í
220 krónur ef farið verður
en reglugerð um það efni lá ekki
fyrir í gær. Óvíst er, hvort veittur
verður 3 eða 6 mánaða greiðslu-
frestur á skattinum á svonefndu
hafíssvæði, sem nær frá Horni
austurum að Hornafirði, en á
þessu svæði er heimilt að flytja
inn fóðurvörur með 6 mánaða
gjaldfresti erlendis. Fram að
þessu hafa lán sem þessi verið
vaxtalaus. Almennt fá bændur 45
daga greiðslufrest á fóðurvöruút-
tektum sínum eða 1 mánuð og það
sem eftir er af úttektarmánuðin-
um. Greiðslufresturinn er þó mis-
langur eftir viðskiptafyrirtækjum.
í sumar hefur verið innheimt
svonefnt innvigtunargjald á mjólk
og er það nú 16 krónur á lítir en
hækkar 1. júlí n.k. í 28 kr. á lítir.
Gunnar Guðbjartsson, fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs
landbúnaðarins sagði í gær, að
ætlunin væri að innheimta þetta
gjald áfram, þar sem enn væri
með öllu óljóst hversu miklar
tekjur fengjust af fóðurbætis-
skattinum.
eftir samþykkt stjórnvalda,
en í 272 krónur fái bakara-
meistari að ráða. Seytt
rúgbrauð kostar nú 250
krónur, en hækkaði í 274
krónur samkvæmt sam-
þykkt ríkisstjórnar, en yrði
302 krónur samkvæmt
hækkun bakarameistara.
Skákmeistar-
arnir áttu undir
högg að sækja
HELGARSKÁKMÓT hófst á hót-
elinu í Borgarnesi siðdegis í gær
og meðai 28 þátttakenda eru
margir af sterkustu skák-
mönnum íslendinga. Tveir þeirra
fengu óvænta mótspyrnu í fyrstu
umferðinni frá tveimur 13 ára
Bolvikingum, bráðefnilegum
skákmönnum. Þannig mátti Frið-
rik ólafsson gera sér að góðu
jafntefli við Halldór Einarsson
og Margeir Pétursson varð að
sætta sig við jafntefli í skák sinni
við Július Sigurjónsson.
í dag verða tefldar tvær um-
ferðir og hefst sú fyrri klukkan 9.
Á morgun verða siðustu tvær
umferðirnar tefldar, sú fyrri
klukkan 8.30, en sú síðari klukkan
14. Teflt er eftir Monrad-kerfi og
má því búast við mörgum spenn-
andi skákum í dag og á morgun.
Það er tímaritið Skák, sem gengst
fyrir þessu móti eins og öðrum
helgarskákmótum, sem haldin
verða í sumar.
Portisch
vill ekki
tefla hér
BLIKUR eru nú á lofti varð-
andi skákeinvigi þeirra Lajos
Portish og Roberts Húbners,
sem halda átti i Kópavogi i
næsta mánuði. Portisch hefur
lýst sig mótfallinn því að tefla
á íslandi og setur einkum
fyrir sig, að Guðmundur Sig-
urjónsson, aðstoðarmaður
Húbners, verði á heimavelli og
eigin ókunnugleika á landinu
og öllum aðstæðum hér.
Portisch hafði sjálfur mest-
an áhuga á að einvígið færi
fram á Spáni, en þar sem enn
hefur ekki tekizt að finna stað
fyrir keppnina, hefur Portish
verið að kanna möguleika á að
tefla á Ítalíu. Enn er ekki útséð
um hvort tekst að finna stað
undir keppnina þar, en Friðrik
Ólafsson, forseti FIDE, hefur
gefið Portish og hans mönnum
frest fram yfir helgi.
Fari svo að Portish finni
ekki stað undir keppnina, sem
Hubner getur sætt sig við,
kemur málið til kasta Friðriks
Ólafssonar á ný. Dr. Ingimar
Jónsson formaður Skáksam-
bands íslands, sagði í gær, að
undirbúningi fyrir einvígið
hefði verið hætt fyrir nokkru.
r- Fari svo, að Islendingum
verði á ný boðið að halda
mótið, verður staðan skoðuð
upp á nýtt og alls ekki er víst,
að SÍ verði þá tilbúið að halda
mótið, sagði Ingimar.
Sáttafundur
á mánudaginn
„ÉG reikna með að launaliðirnir, eins
og aðrir þættir, verði ræddir bæði
milli ríkisstjórnarflokkanna og við þá
BSRB-menn fljótlega eftir helgina,"
sagði Ragnar Arnalds, fjármálaráð-
herra, er Mbl. spurði hann, hvort
unnið væri að nýju tilboði varðandi
launaliði í samningaviðræðum við
BSRB, en næsti fundur með sátta-
semjara er boðaður klukkan 16 á
mánudaginn.
Haraldur Steinþórsson formaður
sjömannasamninganefndar BSRB,
sem fer með kjaramálin, sagði í
samtali við Mbl. í gær, að nefndin
væri að vinna að ýmsum smærri
atriðum, en stærri málin hefðu ekkert
verið rædd milli aðila síðustu dagana.
Mbl. spurði Harald, hvort og þá
hvaða áhrif staðan í samningamálum
VSÍ og ASÍ hefði á samningamál
BSRB. „Ég veit það bara ekki,“
svaraði Haraldur. „ Hún þarf ekki að
hafa nein áhrif. Við getum út af fyrir
sig samið hennar vegna, ef grundvöll-
ur er til samninga. En þegar við erum
ekki farnir að ræða þessi meiriháttar
mál, þá er útilokað að leggja eitthvert
mat á málið."
14% „gengisaðlög-
un“ á 3 mánuðum
28. MARS kostaði hver banda- í dag 28. júní kostar einn
ríkjadollar kr. 415,20 en 30. bandaríkjadollar kr. 473,60. Á
mars kostaði hver dollar kr. innan við viku hefur gengið sigið
429,70. Breytingin er 3,5%. Síð- um tæp 2%.
an þá hefur gengi islensku , , , . , , .
krónunnar sigið jafnt og þétt Á þremur manuðum hefur þvi
gagnvart bandaríkjadollar, og ^engi íslensku krónunnar gagn-
var verðið á dollarnum komið í vart bandaríkjadollar fallið um
kr. 465.00 23. júní. rúmlega 14%.
Enn óljóst hversu
mikið brauð hækka
BAKARAMEISTARAR halda félagsfund á sunnudaKskvöld þar sem fjallað verður
um þá beiðni stjornvalda, að bakarar falli frá ákvörðun sinni um hækkun verðs
svonefndra vísitölubrauða án samþykkis ríkisstjórnarinnar. Stjórnvöld munu vera
tilbúin að koma til móts við ýmsar óskir bakarameistara og er ekki ólíklegt að
ákvörðun bakarameistara um allt að 39% hækkun brauða verði a.m.k. frestað um
sinn. \ ..