Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980
Hlutur vist-
manna á
Ránargötu 6
VEGNA greinar sem birtist í Mbl.
á fimmtudaginn var (26. júní) og
ber yfirskriftina: verndarheimili
fyrir áfengissjúklinga, leyfir ég
mér að biðja Mbl. fyrir eftirfar-
andi línum:
I greininni er rætt um Líknarfé-
lagið Skjöld. — Orðrétt er sagt:
Félagið hefur nú gert 30 áfengis-
sjúklinga að nýtum þjóðfélags-
þegnum, í stað þess að vera
verulegur baggi á samfélaginu
o.s.frv."
Undirritaður er einn af 20
mönnum, sem nú búa í húsinu
Ránargötu 6 og 6A. Ég hefi búið
þar nú samfellt síðan 6. janúar
1979.
• Mér þykir hlutur áfengissjúkl-
inga í nefndri grein, vera gerður
heldur ómerkilegur. Engu líkara,
en að það sé einhver maður eða
menn, sem sitja við takkaborð við
það að gera einhverja menn, að
því sem þeir vilja. — Hlutur
áfengissjúklinganna hlýtur þó að
skipta miklu máli, — þeirra eigin
vilji til þess að læknast.
Afengissjúklingar, sem notið
hafa hjálpar líknarfélagsins á
einn eða annan hátt munu trúlega
aldrei fá það fullþakkað. — En ef
fara á að nefna einstök nöfn
þeirra manna og kvenna, sem þar
hafa lagt hönd á plóginn, þá yrði
sá nafnalisti ekki bundinn við eitt
nafn heldur mörg nöfn. Þetta er
ekki sagt til þess að gera lítið úr
framlagi hvers og eins (með tilliti
til forsetakosninganna) heldur til
þess að benda á að hér unnu
margir að því að koma miklu
mannúðarmáli í höfn.
Að endingu vil ég þakka Skjald-
arfóiki fyrir hjálpina og húsa-
skjólið.
Gunnar Friðleifsson
Sjónvarp kl. 15.00
Iþróttahátíðin í Laugardal
Á dagskrá sjónvarps kl. 15.00 er bein útsending
frá Íþróttahátíðinni í Laugardal. Um 10 þúsund
þátttakendur frá öllum sérsamböndum ÍSÍ koma
fram á þessari íþróttahátíð. Hátíðin á að gefa mynd
af fjölbreytni íþróttalífsins í landinu og verða yfir
20 íþróttagreinar á dagskrá. Eru það bæði sýningar-
og hópíþróttir og einnig keppnisíþróttir. Auk mikils
fjölda íslenskra íþróttamanna og fimleikafólks,
kemur 150 kvenna fimleikasveit frá Noregi í
heimsókn og sýnir á hátíðinni. Árið 1970 var haldin
íþróttahátíð hér á landi með svipuðu sniði og var þá
þegar ákveðið að halda þessa að 10 árum liðnum.
Kynnir er Bjarni Felixson.
Hljóðvarp kl. 20.30:
Hestamennska
Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.30
er þátturinn „Það held ég nú“ í
umsjá Hjalta Jóns Sveinssonar.
Morgunblaðið hafði samband við
Hjalta og var hann inntur eftir
efni þáttarins. „Að þessu sinni
verður eingöngu fjallað um
hestamennsku í þættinum",
sagði Hjalti. „Ég ræði um hesta
og hestamennsku við þá Eyjólf
ísólfsson og Kristján Birgisson,
starfsmenn Hestamiðstöðvar-
innar í Dal, Mosfellssveit. Síðan
tala ég við Berg Haraldsson um
ferðalög á hestum og mun hann
fara með nokkrar vel valdar
hestavísur. Einnig slæ ég á
þráðinn til Stykkishólms og ræði
þar við Leif Jóhannesson um
fjórðungsmót hestamanna sem
verður á Kaldármelum 3.-6.
júlí.“
Sjónvarp kl. 22.00:
Billy the Kid
Á dagskrá sjónvarps kl. 22.00
er bandaríska kvikmyndin
„Vinstrihandarskyttan" sem var
gerð árið 1958. Paul Newman fer
með aðalhlutverkið. Morgun-
blaðið hafði samband við þýð-
anda myndarinnar, Jón O.
Edwald, og sagði hann meðal
annars. „Þessi mynd fjallar um
útlagann fræga, Billy the Kid, —
en í þessari mynd leikur ekki um
hann sá dýrðarljómi sem maður
á annars að venjast. Billy hefur
svo sannarlega notið þess að
fjarlægðin gerir fjöllin blá og
mennina mikla. — Myndin ger-
ist á nýbyggjatímanum, tíma
hinna hefðbundnu „vestra", en í
þessari kvikmynd virðist mér að
reynt sé að draga sannleikann
fram í dagsljósið og sýna
ástandið eins og það var á
þessum tímum."
Myndin er ekki við hæfi barna.
Útvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
28. júní
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi.
7.20 Bæn.
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Tónleikar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
8.50 Leikfimi.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 óskaiög sjúklinga. Krist-
in Sveinbjörnsdóttir kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
11.20 Að leika og lesa. Jónína
H. Jónsdóttir stjórnar barna-
tíma.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tiikynningar.
SÍODEGIO
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 I vikulokin. Umsjónar-
menn: Guðmundur Árni Stef-
ánsson. Guðjón Friðriksson,
óskar Magnússon og Þór-
unn Gestsdóttir.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vissirðu það? Þáttur í
léttum dúr fyrir börn á
öllum aldri. Fjallað um stað-
reyndir og leitað svara við
mörgum skrítnum spurning-
um. Stjórnandi: Guðbiörg
Þórisdóttir. Lesari: Arni
Blandon.
16.50 Síðdegistónleikar. Grig-
ori Feigin og Sinfóniuhljóm-
sveit Moskvuútvarpsins
Ieika Fiðlukonsert í d-moll
op. 44 eftir Nicolaj Miask-
ovsky; Alexander Dimitrieff
stj./ Rcnata Tebaldi og Mar-
io del Monaco syngja tvo
dúetta úr óperunni „Aida“
eftir Verdi með hljómsveit
Santa Cecilia-tónlistarskól-
ans í Róm; Alberto Erede stj.
17.50 Líkamsrækt ,og tilbúið
megrunarfæði. Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir talar
við Svövu Svavarsdóttur Magnúsdóttur ballettkenn-
heilsuræktarþjálfara, Báru ara og dr. Laufeyju Stein-
LAUGARDAGUR
28. júni
15.00 Íþróttahátíðin í Laug-
ardal.
Um 10 þúsund þátttakend-
ur frá öllum héraðs- og
sérsamböndum ÍSÍ koma
fram á þessari iþróttahát-
íð, sem á að sýna fjöl-
breytni íþrottalífsins í
landinu og verða yíir 20
íþróttagreinar á dagskrá.
bæði sýningar- og hóp-
íþróttir og keppnisiþróttir.
Auk hins óvenjumikla
fjölda islenskra
íþróttamanna og fimleika-
fólks kemur 150 kvenna
fimleikasveit frá Noregi í
heimsókn og sýnir á hátíð-
inni. Árið 1970 var haldin
íþróttahátið hér á landi
með svipuðu sniði og var
þá þegar ákveðið að halda
þessa að 10 árum liðnum.
Bein útscnding.
Kynnir Bjarni Felixson.
18.30 Fred Flintstone í nýjum
ævintýrum.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og
dagskrá.
20.35 Shelley.
Gamanþáttur.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
21.00 Dagskrá frá Listahátið.
22.00 Vinstrihandarskyttan.
s/h (The Left Handed Gun)
Bandarískur „vestri“ frá
árinu 1958. Aðalhlutverk
Paul Newman.
Myndin fjailar um útlag-
ann fræga, Billy the Kid.
Þýðandi Jón O. Edwald.
Myndin er ekki við hæfi
ungra barna.
23.40 Dagskrárlok.
grímsdóttur. Áður útv. 2.
f.m.
18.15 Söngvar í léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDID
19.00 Fréttir. Tiikynningar.
19.35 „Babbitt“ saga eftir Sin-
clair Lewis. Sigurður Ein-
arsson þýddi. Gísli Rúnar
Jónsson leikari les (30).
20.00 Harmonikuþáttur. Sig-
urður Alfonsson kynnir.
20.30 Það held ég nú! Þáttur
með blönduðu efni í umsjá
Hjalta Jóns Sveinssonar.
21.15 Hlöðuball. Jónatan Garð-
arsson kynnir ameríska kúr-
eka- og sveitasöngva.
22.00 1 kýrhausnum. Umsjón:
Sigurður Einarsson.
22.15 Veðurfrcgnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Kvöldlestur: „Auðnu-
stundir“ eftir Birgi Kjaran.
Höskuldur Skagfjörð les (2).
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.