Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 11

Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 11 Avarp til þjóðarinnar Ég hef boðið mig fram við forsetakjör án hvatningar og tilmæla frá öðrum. Ég hef ekki verið knúinn til ákvarðanatöku af einum eða neinum. Þess vegna er ég engu öðru háður en samvisku minni, sem er traustasta vegarnesti hvers manns. Kjósendur mínir eru því ekki að kjósa yfir sig skoðanir áskorenda, sem hvergi koma fram opinberlega. Leyndardómar mínir eru engir. Það sem ég hef gert liggur opið fyrir öllum, afstaða til mála jafnt sem stefnumið. Eins og ég treysti íslenskri þjóð, getur hún treyst á sinn mann í forsetaemb- ætti. í Reykjavík er ég fæddur, í Reykjavík er ég alinn upp, og í Reykjavík hefur ævistarf mitt að mestu verið unnið. Ég hef talið mér skylt að reynast Reykjavík góður sonur. Jafnframt og engu að síður hef ég talið skyldu mína að gjalda íslandi gott uppeldi, menntunarríkt og framsækið. Enn sem fyrr er ísland land tækifæranna og land framtíðarinnar. Ég vil á þessum tímamótum nota margháttaða reynslu mína í þágu lands og þjóðar. Ég vil leiða hina ungu inn í nýja og bjartari framtíð, treysta samstöðu vinnandi handa og veita öldruðum hvíld með sæmd. Þannig tel ég að fósturlaunin verði best goldin því landi og þeirri þjóð sem ég á svo mikla þökk að gjalda. Góðir íslendingar! Ég vænti stuðnings ykkar í kjörklefanum á morgun. Éggekk til þessa framboðs einn og óstuddur, og í kjörklefanum eijgið þið aðeins við ykkur og samvisku ykkar. Við viljum að Island vaxi og eflist að allri virkt. Við erum hugumstór þjóð, og við viljum efla þróttmikið athafnalíf og farsælt menningarríkt mannlíf í þessu blessaða landi. f

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.