Morgunblaðið - 28.06.1980, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980
11
Avarp
til þjóðarinnar
Ég hef boðið mig fram við forsetakjör án hvatningar og
tilmæla frá öðrum. Ég hef ekki verið knúinn til ákvarðanatöku
af einum eða neinum. Þess vegna er ég engu öðru háður en
samvisku minni, sem er traustasta vegarnesti hvers manns.
Kjósendur mínir eru því ekki að kjósa yfir sig skoðanir
áskorenda, sem hvergi koma fram opinberlega. Leyndardómar
mínir eru engir. Það sem ég hef gert liggur opið fyrir öllum,
afstaða til mála jafnt sem stefnumið. Eins og ég treysti
íslenskri þjóð, getur hún treyst á sinn mann í forsetaemb-
ætti.
í Reykjavík er ég fæddur, í Reykjavík er ég alinn upp, og í
Reykjavík hefur ævistarf mitt að mestu verið unnið. Ég hef
talið mér skylt að reynast Reykjavík góður sonur. Jafnframt og
engu að síður hef ég talið skyldu mína að gjalda íslandi gott
uppeldi, menntunarríkt og framsækið. Enn sem fyrr er
ísland land tækifæranna og land framtíðarinnar.
Ég vil á þessum tímamótum nota margháttaða reynslu mína
í þágu lands og þjóðar. Ég vil leiða hina ungu inn í nýja og
bjartari framtíð, treysta samstöðu vinnandi handa og veita
öldruðum hvíld með sæmd. Þannig tel ég að fósturlaunin verði
best goldin því landi og þeirri þjóð sem ég á svo mikla þökk
að gjalda.
Góðir íslendingar! Ég vænti stuðnings ykkar í kjörklefanum
á morgun. Éggekk til þessa framboðs einn og óstuddur, og í
kjörklefanum eijgið þið aðeins við ykkur og samvisku ykkar. Við
viljum að Island vaxi og eflist að allri virkt. Við erum
hugumstór þjóð, og við viljum efla þróttmikið athafnalíf og
farsælt menningarríkt mannlíf í þessu blessaða landi.
f