Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 12

Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 Höfnin, Amsterdam. Dönsk ■ Sem stendur er sýning á danskri grafík í Norræna hús- inu, það er að segja á göngum uppi. Þarna eru tveir listamenn á ferð, sem báðir kunna vel til verka og vita hvað þeir eru að gera. Báðir hafa einnig skrifað bækur og lýst. Annar þeirra mun rekja ættir sínar allar götur til Islands, og á ég þá við hinn kunna listamann Sven Hav- steen-Mikkelsen. Hann er ann- ars gamalkunnur hér á landi, eftir að hafa myndskreytt ágæta íslandsbók eftir þann merka mann Martin A. Hansen. En svo langt man ég, að okkur hér á landi þóttu það góð tíðindi, er sú bók kom á markað. Sven Hav- steen-Mikkelsen sýnir þarna á göngum Norræna hússins 30 litografíur. Hinn listamaðurinn, sem í hlut á er Kjeld Heitoft, og hann er ekki eins þekktur hérlendis og félagi hans. Hann sýnir 19 myndir gerðar með þurrnál og stendur sig ágætlega. Þeir félag- ar hafa hvor sinn háttinn á, en aðferðir beggja flokkast undir grafík. Það er skemmtilegt, að einnig Kjeld Heltoft hefur gert myndir í bækur og ritað um myndlist H.C. Andersens, svo að eitthvað sé til nefnt. Það er annars óþarft að telja hér fram kosti þessara manna. Lífshlaup þeirra er skilmerkilega fram talið í sýningarskrá, og geta allir þeir, sem koma í Norræna húsið kynnt sér það. Það vill svo til, að ég þekki svolítið til myndgerðar Sven Havsteen-Mikkelsen úr ágætum bókum, sem hann hefur mynd- skreytt, og ég hafði mikla ánægju af að sjá þær litografíur, er hann sýnir. Ég hafði einkum og sér í lagi ánægju af þeim myndum, er tengjast Grænlandi, og einnig mætti nefna það hér, að mér finnast þessi verk vera sérlega dönsk í eðli sínu. Það er raunverulega viss skóli í mynd- list Evrópu, sem hér er á ferð og Iöngum hefur verið á döfinni hjá Dönum. Það má einnig finna áhuga þessarar myndgerðar hér hjá okkur. Því ætti þetta að grafík koma kunnuglega fyrir sjónir, en það hvorki rýrir né bætir þessi verk í sjálfu sér. Sven Hav- steen-Mikkelsen hefur örugga hönd á blýantinum, er hann frjálslega fer með fyrirmyndir og skapar skemmtileg og hógvær verk í grafík sinni. Kjeld Heltoft er nokkuð ólíkur félaga sínum í þurrnálarmynd- um þeim, er hann sýnir. Þær eru mjög gott handverk, og sumar hverjar erú eins og þrungnar óvissu og duttlungum mannlífs- ins. Hann er húmanisti, sem kann að nota listgrein þannig, að ekkert verði nema gott um hana sagt. Ég man ekki eftir að hafa séð myndir eftir Heltoft áður, en ég skal fúslega játa, að ég hafði ánægju og yndi af öllum mynd- um Heltofts. Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON Þetta er í heild skemmtileg sýning og hefði að mínu viti mátt hafa meira olnbogarúm. Það er varhugavert að sýna of mikið á göngunum þarna í Nor- ræna húsinu, og ég er viss um, að betur hefði farið um sumar þessar myndir, ef ekki hefði verið eins setinn bekkurinn og raun ber vitni. Þá verður þetta ekki lengra að sinni, og ég þakka fyrir ágæta stund í samveru með verkum eftir tvo listamenn, sem gaman var að komast í snertingu við, eða réttara sagt í snertingu við verk, sem lofa meistarana. Hafi þeir félagar báðir þökk fyrir þessa sýningu og vonandi lætur fólk þetta ekki fara ÍFam- hjá sér. Ágætur viðbætir á Listahátíð. Eiriksfjörður (nótt). Nær allir hjúkrunarforstjórar á landinu sóttu stjórnunarnámskeiðið. Út við gluggann standa Ingibjörg R. Magnúsdóttir deildarstjóri og prófessor Margaret E. Hooton frá Kanada. í fremstu röð f. v.: Pálfna Sigurjónsdóttir, Heilsugæslustöðinni i Asparfelli i Rvik. Sigriður Ingvarsdóttir, Sjúkrahúsinu Hvammstanga, Unnur Gigja Baldvinsdóttir, Heilsugæslustöð Vestmannaeyja, Ragnheiður Árnadóttir. Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Arnheiður Ingólfsdóttir, Sjúkrahúsi Keflavikur, Guðrún Guðnadóttir, Kleppsspitalanum, Ida Atladóttir Kleppsspitalanum, Guðrún Marteinsson St. Jósepsspitala, Landakoti. 2. röð: Dagbjört bórðardóttir, Reykjalundi, Bergljót Lindal, Heilsuverndarstöð Reykjavikur, Anna Guðrún Jónsdóttir, Kristneshæli, Guðlaug Sigmarsdóttir, Sjúkrahúsinu á Húsavik, Steinunn Sigurðardóttir, Sjúkrahúsi Akraness, Ásthildur Einarsdóttir Sjúkrahúsi Akraness, Konný Kolbrún Kristjánsdóttir, Heilsuverndarstöð Akureyrar. 3. röð: Sigriður Þorvaldsdóttir, Heilsugæslustöðinni í Árbæ, Sigurveig Georgsdóttir, Heilsugæslustöð Flateyrar, Jóhanna Brynjólfsdóttir Heilsugæslustöð Suðurnesja. Hrefna Jóhannsdóttir, Landspftalanum. Bjarney Tryggvadóttir, Vifilsstöðum, Kristjana Ragnarsdóttir, Sjúkrahúsi Selfoss, Selma Guðjónsdóttir, Sjúkrahúsinu i Vestmannaeyjum, Kristún Guðmundsdóttir, Sjúkrahúsinu ísafirði, Sigurlin Gunnarsdóttir, Borgarspitala, Vigdis Magnúsdóttir Landspitalanum, Hanna Maria Gunnarsdóttir, Borgarspitalanum. 4. röð: Helga Sigurðardóttir, Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum. Þuriður Ingimundardóttir, Sólvangi i Hafnarfirði, Gunnhildur Sigurðardóttir St. Jósepsspitala Hafnarfirði. Rannveig Þórólfsdóttir Hrafnistu, Sveinfriður Sigurpálsdóttir, Sjúkrahúsinu á Blönduósi og Svala Bjarnadóttir, Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Á myndina vantar Elisabetu Ingólfsdóttur, Borgarspitala og Guðrúnu Sigurðardóttur Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað. Hér standa framan við viskufuglinn. ugluna þær próf. Marga- ret Hooton frá McGill Háskóla, sem kennir hjúkrunar- fræðingunum stjórnunarfrseði og Ingibjörg R. Magnús- dóttir, deildar- stjóri i hoil- brigðisráðun- eytinu, sem er námskeiðs- stjóri. Ljósm. Ol.K. Mag. Stjórnendur hjúkrun- ar sitja á skólabekk Um leið og heilsugæsla hverskonar batnar og verður meiri og tækniþróun vex á sviði læknisfræði, vex tilkostnaður og umfang þjónustunnar svo hratt, að allar þjóðir — jafnvel þær rikustu — sjá sig tilneyddar að leita eftir því að koma þessari mikilvægu þjónustu betur fyrir. Þar hafa stjórnendur hjúkrunar stóru hlutverki að gegna. Flestir þeir, sem hafa slíka stjórn á hendi i sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum um allt land, hafa setið tvær vikur á námskeiði um stjórnun, sem heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið og námsbraut í hjúkrunarfræði i Háskóla Islands efndu til. Þetta er í annað sinn, sem slíkt námskeið er haldið og áhugi hjúkrunarforstjóranna er slíkur að 34 voru þar mættir, en aðeins stjórnendur hjúkrunar í 2 sjúkrahúsum og 3 heilsugæslustöðvum úti á landi sáu sér ekki fært að koma. Þarna voru hjúkrunarforstjórar frá stærstu sjúkrahúsunum, svo sem Landspitala og Borgarspítala, jafnt sem þeir er stýra hjúkrunarstörfum á 30 rúma spitölum. Til fyrirlestrahalds á námskeið- inu var fenginn prófessor Marga- ret Hooton frá MacGiIl háskólan- um í Kanada, sem er hér nú í fjórða skiptið við kennslu í hjúkr- unarfræði í Háskólanum. Að af- loknu þessu námskeiði ætlar hún að dvelja mánuð við endurskoðun á námsefni í hjúkrunarfræði með viðkomandi námsefni. Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deildarstjóri í heilbrigðisráðu- neytinu og námsbrautarstjóri H.I., sem var frumkvöðull þessa námskeiðs og stjórnar því, sagði Margaretu Hooton mikinn hval- reka fyrir hjúkrunarmenntun hér. Hún kvaðst hafa leitað til Ottawa um aðstoð fyrir 6 árum vegna kennslu í stjórnun við námsbraut- ina í Háskólanum. Ráðuneytið kanadíska sendi Margaretu til íslands og greiddi fyrir tvær fyrstu ferðir hennar, en McGill háskólinn launin hennar. í þetta skiptið er hún hér í 3 mánuði, alveg á vegum H.í. Um tilefni þessa stjórnunar- námskeiðs fyrir hjúkrunarfor- stjóra sagði Ingibjörg: — Við vildum að hjúkrunarforstjórarnir, sem bera hitann og þungann af hjúkrunarþjónustunni í landinu og þá um leið rekstri heilbrigðis- stofnana, gætu notið fræðslu þess- arar menntuðu konu. Það vakti líka fyrir okkur að kynna fyrir þessum stjórnendum hjúkrunar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.