Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980
17
Magnús Finnbogason bóndi:
Óumdeild-
ur foringi
Þegar ég leiði hugann að eðli og
uppbyggingu starfs forseta ís-
lands get ég ekki annað en orðið
sammála Albert Guðmundssyni
alþingismanni og forsetafram-
bjóðanda í því að starfið er
hápólitískt í eðli sínu. Hitt er
annað mál, að ég tel að starfið sé
þess eðlis, að það megi undir
engum kringumstæðum verða
flokkpólitískt. Mér finnst útilokað
að þeir aðilar sem hafa helgað líf
sitt pólitísku vopnaskaki í þágu
einstakra flokka geti í einu vet-
fangi upphafið fyrri fortíð og
orðið hlutlausir dómarar yfir
mönnum og málefnum.
Fyrir mér fór eins og mörgum
fleirum, að nafn Guðlaugs Þor-
valdssonar varð ansi ofarlega í
huga. Ég taldi þá og hefi sann-
færst um siðan að hann væri sá
maður sem líklegastur væri til
þess að axla þessa byrði og valda
henni. Það sem fyrst vakti athygli
mína á Guðlaugi, var þegar hann
hlaut yfirburða kosningu í rekt-
orsstarf Háskóla íslands. Ég átti
þess enga von, að jafn ungur
maður og hann var þá, væri jafn
óumdeildur foringi eins og kosn-
ingin sýndi, en hitt er meira virði,
að hann reyndist vandanum full-
komlega vaxinn. Ég veit ekki
hvort okkur er það öllum ljóst, að
í hans rektorstíð varð veruleg
stefnubreyting í málefnum Há-
skólans, lagður var grunnur að
tengingu náms á Háskólastigi við
atvinnuvegi þjóðarinnar í miklu
ríkara mæli en áður hafði tíðkast,
þetta mun þeim mun meira metið
sem lengra líður og árangur kem-
ur í ljós.
Að fá mann í forsetastól sem
megnar að setja niður deilur og
sameina þjóðina til átaka, það er
hvorki meira né minna en lífs-
nauðsyn okkar unga lýðveldi. Sá
maður, sem slíkur hlutverki á að
valda verður að gjörþekkja ís-
lenska þjóðarsál, hann verður að
þekkja af eigin raun lífsbaráttu til
lands og sjávar, hann verður að
geta komist milliliðalaust í beint
samband við alþýðu þessa lands.
Áskorun
Undirritaður skorar á alla ætt-
ingja og gamla kunningja á Aust-
urlandi og víðar, að kjósa afreks-
manninn Albert Guðmundsson og
frú í embætti forseta á Bessa-
stöðum. Með beztu kveðju til allra
vina og ættingja.
Sigurjón Jónsson,
borgarstarfsmaður
Asparfelli 8.
(Lolli í Val)
sem hann hefur til að bera komu
vel fram þar, það kom mér því
ekki á óvart, þegar hann hvað
eftir annað hlaut viðurkenningu
fyrir prúðmennsku í leik með
liðum stórþjóðanna.
Sá baráttuandi og drenglyndi
hefur fylgt þessum afreksmanni
síðan, og því fagna ég að hann
gefur kost á sér í forsetakosning-
unum.
Við þurfum vandaðan, góðan
dreng á Bessastaði. Ég þekki ekki
aðra frambjóðendur og vil ekki að
þessi orð séu skilin þannig að ég sé
að veitast að þeim. En Albert geta
menn treyst. Hann er bróðir í
hverjum leik.
Nú er síðari hálfleikur í þessari
kosningabaráttu og ég vil hvetja
félaga mína, unga og gamla, til að
leggja sig alla fram. Þá vinnst
sigur.
Jónas Bjarnason
lýst sér best í því að hann hefur
verið forsvars- og baráttumaður
fyrir þá sem minnst mega sín í
okkar hörðu lífsbaráttu, sjúka og
aldraða. Ég er sannfærður um að
drengskapur hans og kjarkur til
að taka á málefnum breytist ekki
verði hann forseti íslands, heldur
magnist þessir eiginleikar hans á
þeim víða vettvangi, sem hið nýja
embætti spannar.
Ég hef hér að framan rætt
lítillega um frama Alberts sem
íþróttamanns og stjórnmála-
manns, en þriðja atriðinu má
ekki gleyma í þessari upptaln-
ingu, en það er viðskiptavit hans
og frami á því sviði. Ég held að
það væri ómetanlegur styrkur
fámennri þjóð okkar að hafa í
embætti forseta mann, sem hefur
vit á og opin augu fyrir viðskipta-
hlið tilverunnar. Gæti hann, væri
rétt á málum haldið, haft víðtæk
áhrif í rétta átt.
Ég sagði áðan að það hefði
gustað af Albert sem stjórnmála-
manni og íþróttamanni, og ég
efast ekkí um að hann yrði
litríkur starfsmaður í embætti
forseta íslands.
Ég heiti á alla þá, sem vilja hag
þjóðarinnar beztan í komandi
forsetakosningum, að kjósa Al-
bert og Brynhildi til forseta-
starfa. Séu kjósendur óráðnir,
hugsi þeir sig vel um í kjörklefan-
um, áður en þeir setja merki sitt
fyrir framan nöfn annarra fram-
bjóðenda.
Megi Guð og gæfan gefa að
Albert og frú Brynhildur verði
næstu forsetahjón að Bessa-
stöðum.
MIKILVÆGUSTU
SPURNINGAR
LfFSINS
Hvers vegna er
heimsástandið
slæmt?
— Hvers vegna stríö?
— Hvers vegna hallæri?
— Hvers vegna sjúkdómar?
— Átt þú sök aö máli?
Islaivd
fyrir Krist
NÝTT — NÝTT — NÝTT
Ljósastofa JSB
OPNUM
mánudaginn 14. júli glæsilega
ljósastofu í nýjum húsakynnum aö
Bolholti 6, 4. hæö.
Við bjóðum upp á:
hina viöurkenndu þýzku Sontegra ljósabekki, góÖa baðstöÖu með
nuddsturtum frá Grohe. Saunabaö, setustofa.
7 daga kúrar
Ath. verð aðeins 20 þús.
Þeir sem þegar eiga pantaða tíma, staðfesti pantanir
sínar sem fyrst.
Hjá okkur skín sólinn allan daginn — alla daga.
Líkamsræk tin
Jassballettskóla Báru
sími 83730.