Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 Guðjón B. Ólafsson, framkvæmdastjóri í Bandaríkjunum: „Barnaskapur að tala um að leita nýrra markaðsmöguleika“ „ÉG fer ekkert dult með þá skoðun mína, að ætli menn að gera einhverjar breytingar á því sölukerfi, sem ríkjandi er hér i Bandaríkjunum, i þá átt, að fjölga þeim aðilum. sem hér vinna. þá er ég ekki í minnsta vafa um það, að það verður neikvæð niðurstaða á þvi. Um það er ekki nokkur spurning. Allt tal um að brjóta niður þessi samtök, ef menn eru með það í huga, er mjög varhugavert og held ég að menn ættu að fara varlega í að mynda sér skoðanir á þvi, nema að mjög vel athug- uðu máli,“ sagði Guðjón B. ólafsson, framkvæmdastjóri Ice- landic Seafood Corporation, dótturfyrirtækis SÍS i Banda- rikjunum i samtali við Morgun- blaðið i fyrradag. Erindi Morgunblaðsins við Guðjón var að fá umsögn hans á frétt í Tímanum í fyrradag um að Bæjarútgerð Reykjavíkur hygðist leigja í Bandaríkjunum frysti- geymslur fyrir fisk til þess að rýma til í frystigeymslum fyrir- tækisins hér í Reykjavík. Jafn- framt sagði í fréttinni, að útgerð- arráð BÚR hafi falið fram- kvæmdastjóra BÚR að leita nýrra leiða í sölu á framleiðslu fyrirtækisins. Morgunblaðið spurði Guðjón, hvort þetta gæti verið lausn á vanda fyrirtækja hér heima, að geyma fisk í Bandaríkjunum og hvort slíkt myndi geta haft áhrif á markaðinn. Hann svaraði: „Þar sem ég er spurður að þessu, vildi ég gjarnan fá að koma því að, að mér finnst þetta tal heima um vandamál frystiiðn- aðarins, sölutregðu í Bandaríkj- unum o. fl., sem ég hefi séð af blöðum heima, sem berast mér yfirleitt hálfs mánaðar gömul, verulega villandi. Ég tel, að frumorsök þess vanda, sem nú er hjá frystihúsunum sé tilkominn vegna þess að allt of mikill hluti aflans kom á land á allt of stuttum tíma á árinu. Ég held að það sé afskaplega óhagkvæmt á þrennan hátt. í fyrsta lagi neyðir það fyrirtækin bæði heima og hér til þess að taka á sig ónauðsyn- legan og óeðlilegan geymslu- og vaxtakostnað. 1 Oðru lagi, og m.a. las ég það í viðtali við togaraskip- Markaðurinn er erfiður, en ekki eins svartur og ætla mætti af lestri íslenzkra blaða stjóra, sem veit það betur en ég, og mér fannst það mjög athygli- vert, að hann lýsti furðu sinni á því að sjómönnum væri leyft að veiða ótakmarkað í janúar, febrú- ar og marz, þegar veður væru vond og kostnaður við útgerðina verulega hár vegna skilyrða, en síðan væri slegið á alla veiði á sumrin, þegar aðstaða væri betri og kostnaður lægri. Þetta lýsir kannski vandamál- inu bezt. Markaðurinn hér vestra er þess eðlis, að við verðum að hafa þessa vöru á boðstólum alla 12 mánuði ársins. Við getum ekki farið til viðskiptavinarins og sagt: Kauptu nú allt núna, af því að það er búið að veiða svo mikið heima og í næstu 7 mánuði höfum við lítið sem ekkert handa þér. — Markaðurinn hér og uppbygging hans byggist á því að viðskipta- vinurinn geti treyst okkur, þegar þeir nota vöruna og það gerir hann allt árið. Það er því búið að búa til þennan mikla vanda, fyrst og fremst með því demba öllu þessu magni af þorski á land á þessum stutta tíma ársins. Það er mesti hluti vandans. Hitt er svo líka staðreynd, að við verðum því miður að beygja okkur fyrir í bili, að efnahagsástand almennt í Bandaríkjunum hefur leitt af sér samdrátt á bókstaflega öllum sviðum. Það er nú ljóst öllum, að það hefur orðið umtalsverður samdráttur í bílaiðnaðinum. Það hefur leitt til umtalsverðs sam- dráttar í stálvinnslu og er talið að einn af hverjum 6 eða 7 vinnandi mönnum í Bandaríkjunum hafi atvinnu beint eða óbeint af þess- um aðalatvinnuvegi landsmanna, stál og bílaiðnaði og nú í maí- mánuði var talið að um það bil ein milljón manna hafi misst atvinnuna. Þetta þýðir samdrátt á öllum sviðum. Það hefur líka í för með sér samdrátt hjá veit- ingahúsum og það þýðir almenn- an samdrátt í matvælaneyzlu í landinu og þar af leiðandi í sölu á öllum matvælum. Margir eiga erfitt með að skilja þetta, fólk þurfi eftir sem áður að borða, en skýringin er sennilega sú að fólk kastar minna af mat nú, fer betur með hann, en Bandaríkjamenn eru þekktir af því að fara mjög ósparlega með matvæli. Þá getur þetta einnig komið fram í sölu- aukningu á tiltölulega ódýrari magafyllandi matartegundum eins og t.d. spagetti og makkarón- um, en almennt hefur þó orðið samdráttur í sölu á öllum mat og það er svolítill samdráttur hér í markaðinum hjá okkur. Ég held að það sé alveg sama hvað við gerum, það er þegar búið að reyna aliar leiðir, sem mögu- legar eru af þeim mönnum sem lifa við að stunda þennan mark- að. Að bæta við einhverjum nýjum afurðum til að gera ein- hverjar kúnstir, það er að mínum dómi ekkert minna en hreinasti barnaskapur. Og tal um það nú að það sé skyndilega hægt að finna einhverja nýja markaði, sem hafi verið okkur huldir á undanförn- um árum er jafnmikill barna- skapur. Menn verða bara að sætta sig við það, að þeir menn, sem vinna að útflutningi í sjávar- útvegsmálum á íslandi, hafa þeg- ar fundið þá markaði, sem hafa skilað okkur beztum árangri. Það eru engir felustaðir til í heimin- um. Allt tal um að gera einhverj- ar skyndiráðstafanir núna, annað hvort að flytja fisk með flugvél- um eða eitthvað annað, tel ég að sé fáranlegt." „Hitt er svo annað mál,“ sagði Guðjón B. Ólafsson, „að úr því að búið er að skapa þennan vanda, með því að landa hlutfallslega allt of miklum fiski á þessum stutta tíma, þá liggur það fyrir að það þarf að geyma fiskinn. Það er engin kúnst að fá geymslurými í Bandaríkjunum af því er meira en nóg fyrir frystan fisk. Þá er það bara spurningin — er ódýr- ara að geyma hann hér fyrir vestan eða flytja hann á milli Guðjón B. Ólafsson húsa á íslandi? Og það er einfalt reikningsdæmi og engin kúnst að reikna það. Mér finnst þó ekkert ólíklegt að það geti verið ódýrara, að geyma fisk hér fyrir vestan um þennan tímá. Ég reikna fastlega með því að meirihlutinn af þessum birgðum, sem valda þessum vanda heima í dag, verði kominn í magann á einhverjum viðskiptavini áður en árið er liðið. Á það er ég ekki svartsýnn. Ég get t.d. nefnt það að salan hjá okkur er afskaplega lík því, sem hún var á sama tíma í fyrra og í fyrra voru allir ánægðir með söluna. Hið eina, sem hefur breytzt er að framleiðslan var þetta miklu meiri heima." Morgunblaðið spurði Guðjón, hvort það gæti haft áhrif á verðið í Bandaríkjunum, ef birgðasöfn- unin ykist frá því sem væri. „Það má segja," sagði Guðjón, „að það hjálpar ekki. Vikulega birta opin- berir aðilar í Bandaríkjunum upplýsingar um birgðastöðu. Það segir sig sjálft á frjáisum mark- aði, þar sem verðmyndun ræðst af framboði og eftirspurn, að eftir því sem meiri birgðasöfnun er þá veikist markaðsstaðan. í tilfelli BÚR geri ég ekki ráð fyrir að verið sé að tala um meira en eina til tvær milljónir punda og slíkt magn getur ekki haft veru- leg áhrif á markaðinn. Eitt af því, sem við höfum til athugunar, er það, hvort væri skynsamlegra að byggja viðbót- argeymslur við flest okkar frysti- hús. Það liggur fyrir að flest af frystihúsum á okkar vegum eru með of litlar geymslur. Við erum með yfir 30 frystihús. Ef við gerum okkur það dæmi, að 30 frystihús bæta þriðjungi eða helmingi við sínar geymslur, eru við að tala um gífurlega fjárfest- ingu og það er vandamál að finna fjármagn til hennar. Þar af leiðandi erum við að velta fyrir okkur og skoða það, hvort við eigum að ráðast í þetta, eða reisa frystigeymslur hér í Bandaríkj- unum til viðbótar þeim, sem eru í dag. Hér er fjármagnið fáanlegt með þokkalegum vaxtakjörum og til tiltölulega langs tíma. Þetta kemur mjög til athugunar og kemur einnig til góða við vaxandi framleiðslu í framtíðinni. Erum við þá að tala um geymslu, sem tæki 10 til 20 milljón pund af fiski.“ „Þar á móti kemur að þetta gæti hugsanlega haft áhrif á markaðinn, en það færi þó eftir því, hvernig haldið yrði á málun- um. Ef við upplýstum það hér, að þetta væri til að flytja geymslu- aðstöðu hingað sem annars væri á íslandi, þá ætti að að hafa minni áhrif. En allir hér vita um þær birgðir sem hér eru. Menn vita svolítið seinna um birgðir, sem eru heima, en þó eru hér engin leyndarmál í þessum bransa. Sá sem vill vita um birgðastöðuna heima, getur feng- ið það allt úr blöðunum heima. Því er þetta bara spurningin um daga eða vikur, sem tekur fyrir fréttirnar að berast. Markaðurinn er anzi erfiður, en hann er þó ekki eins svartur og ætla mætti af lestri íslenzkra blaða. Heima virðist vanta þann skilning að þetta hér vestra er tímabundið vandamál. Menn tala um að bandaríski markaðurinn hafi brugðizt. Af hverju tala menn ekki um það, að það er ekki hægt að selja meira til Rúss- lands, Bretlands eða Þýzkalands. Eftir sem áður stendur Banda- ríkjamarkaður upp úr öllu saman sem okkar bezti markaður og ég held að hann verði það áfram á næstu árum,“ sagði Guðjón B. Ólafsson. Þorsteinn Gíslason, forstjóri Coldwater í Bandaríkjunum: Nauðsynlegt að fyrirbyggja tímabundna offramleiðslu „FRYSTIHÚSIN hafa á undan- förnum mánuðum framleitt veru- lega umfram sölumoguleika og þvi safnað birgðum. Markaður fyrir frystan fisk er alls staðar tregur um þessar mundir,“ sagði Þorsteinn Gislason, forstjóri Coldwater Seafood Corporation, sölufyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna i Bandarikj- um i vjðtali við Morgunblaðið i fyrradag, er borin var undir hann frétt i Timanum i fyrradag um að útgerðarráð Bæjarútgerð- ar Reykjavikur hefði falið fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins að kanna nýja sölumöguleika á fiski og hefði i undirbúningi að leigja geymslur i Bandarikjunum til þess að leysa frystigeymslu- Coldwater hefur boðið að útvega frystigeymslur í Bandaríkjunum þrengsl fyrirtækisins hér i Reykjavik. „Þorskflök frá íslandi eru í mjög háu verði,“ sagði Þorsteinn, „og það er nauðsynlegt að fyrir- byggja tímabundna offramleiðsiu þeirra, sem myndi valda verð- hruni, og ef markaðinum yrði ofboðið þannig, gæti það tekið mörg ár að ná verðinu upp aftur. Hins vegar er engin fyrirstaða á að framleiða þorskblokkir úr þorskflökum, sem þó gefa minna verð. Sú stefna hefur verið tekin og kostar miklu minna í verðmæt- istapi en verðhrun á þorskflökum. Coldwater hefur næga notkunar- og sölumöguleika fyrir þorsk- blokkir, sem framleiddar eru núna, og afskipanir verða án tafa, að minnsta kosti fyrst um sinn.“ „Það er mikil þörf á að auka enn verulega sölur á karfa og ufsa til Bandaríkjanna, einkum vegna þess, að aðrir markaðir hafa lokazt. Sala Coldwater á þessum tegundum hefur margfaldazt á undanförnum árum og er í sífelld- um vexti. Hraðari söluaukningu, en verið hefur er tæplega unnt að ná, án þess að kolfella verðlagið." „Birgðasöfnun, sem starfar af Þorsteinn Gíslason því, að framleiðendur taka ekki tillit til takmarkana á sölumögu- leikum, eru alvarlegt vandamál," sagði Þorsteinn, „sem setja verð- lagið í hættu. Hins vegar getur stundum verið nauðsynlegt, að jafna út framleiðslu og sölusveifl- ur með talsverðu birgðahaldi um takmarkaðan tíma. Coldwater hefur boðið upp á að útvega frystigeymslur í Bandaríkjunum fyrir slíkar birgðir, þegar þess er óskað. Það leysir vandann um geymslurýmið, þegar slíkt birgða- hald er réttlætanlegt. Raunar hef- ur S.H. þegar hagnýtt sér slíka möguleika að nokkru leyti og reiknað er með, að það verði gert í talsvert ríkari mæli á næstu mánuðum, fyrir birgðir frá ýms- um frystihúsum innan Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna." „Flutningur birgða frá geymsl- um á íslandi í geymslur í Banda- ríkjunum hefur sem slíkur engin áhrif á markaðinn. Hins vegar er það augljóst, að framboð, sem fer langt fram úr því, sem markaður- inn getur tekið við, leiðir ævinlega til verðlækkana, þegar til lengdar lætur. Það er því algjörlega nauð- synlegt, að fyllstu samræmingar sé gætt milli framleiðslu hinna ýmsu tegunda freðfisks, og mark- aðsmöguleika þeirra.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.