Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 20

Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 20
HVAÐ EB AÐ GERAST UIVI HELGINA? 20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980 Fjölbreytt dagskrá Systra- félags Víðistaðasóknar í DAG milli kl. 14 og 17 verður Systrafélag Víðistaðasóknar með Sumargleði á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Dagskrá verður með fjölbreyttu sniði. Brynhildur Sig- urðardóttir formaður systrafé- lagsins flytur stutt ávarp og Sigurður Guðmundsson sóknar- prestur sér um helgistund. Skátar verða með tívolí o.fl., félagar úr Hestamannafélaginu Sörla teyma hesta undir börnum og ýmsir leikir verða fyrir börn. Auk þess munu trúðar koma í heimsókn. Þá mun kór Víðistaðasóknar syngja. Kaffi og aðrar veitingar verða á boðstóium í tjöldum á staðnum. Aðgangur er ókeypis. Kjarvalsstaðir: Mikil aðsókn að Listasýningunni Frá sýningu Gerðar Helgadóttur og Kristínar Jónsdóttur á Kjarvalsstöðum. LjóKin. Mhl. Emilia. MJÖG mikil aðsókn hefur verið að Listsýningunni sem nú stendur yfir að Kjarvalsstöðum. Þar sýnir Kristín Jónsdóttir, málverk og Gerður Helgadóttir höggmyndir og glugga. Auk þeirra á Ragnheiður Jónsdóttir nokkrar myndir á sýningunni. Sýningin er opin frá kl. 14 til 22 alla daga og verður henni haldið afram til 27. júlí. Íþróttahátíð Í.S.Í: Kynnisferð um Reykjanesfólkvang Laugardaginn 28. júní efna stjórn Reykjanesfólkvangs og Ferðafélag íslands til kynnis- ferðar um Reykjanesfólkvang. í desember 1975 var Reykja- nesfólkvangur stofnaður. Að honum standa eftirtalin sveitar- félög: Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Garðabær, Hafn- arfjörður, Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Selvogur. Fólk- vangurinn nær alla leið norður í Vífilstaðahlíð suður á Krísuvík- urberg og vestan frá Höskuld- arvöllum austur fyrir Grinda- skörð, þar sem Bláfjallafólk- vangur tekur við. Með þessu hefur það komist í framkvæmd að friðlönd og fólkvangar ná alla leið þvert yfir Reykjanesskag- ann úr Elliðaárvogi á Krísuvík- urberg. Ferðinni verður hagað þannig í stórum dráttum: ekið inn á Höskuldarvelli, gengið síðan meðfram Trölladyngju inn um Sog, upp á Grænavatnseggjar og niður á Lækjarvelli. Þar geta þeir, sem vilja, lokið göngunni og tekið sér far með bílnum í Krísuvík, en hinir halda göng- unni áfram yfir Móhálsadal um Ketilstíg, yfir Sveifluháls og koma niður hjá Seltúni þ.e. hverasvæðinu í Krísuvík. Leiðsögumenn í ferðinni verða þeir Eysteinn Jónsson frv. ráð- herra og Jón Jónsson, jarðfræð- ingur, en þeir eru manna kunn- ugastir um Reykjanesfólkvang- inn og Reykjanesskagann. Stjórn Reykjanesfólkvangsins vill með þátttöku sinni í þessari gönguferð kynna betur notagildi Fólkvangsins til gönguferða og útiveru fyrir almenning. í sumar verður unnið að því að merkja Fólkvanginn og ýmsa þekkta staði og verður að mestu unnið að þessu í Móhálsadal. Haldið verður áfram að lagfæra veg um dalinn í framhaldi af vegi þeim, sem lagður hefur verið að Djúpavatni. Akfær vegur um Móhálsadalinn mun gjörbreyta notagildi Fólkvangsins og um leið stöðva frekari náttúruspjöll af völdum ökuglaðra jeppaeig- enda. Stjórnin hefur ekki á dagskrá að gefa út upplýsinga- bækling og merkja gönguleiðir, en allt þetta fer að sjálfsögðu eftir getu og vilja viðkomandi sveitarfélaga. Gönguferðir um Fólkvanginn er liður í Íþróttahátíð Í.S.Í. sem stendur yfir þessa dagana og fá þátttakendur í gönguferðinni sérstakt viðurkenningarskjal Íþróttahátíðarinnar. Ferðin verður farin frá Um- ferðarmiðstöðinni að austan- verðu og hefst kl. 13.00. Þátttak- endum er bent á að vera vel búnir og hafa með sér nesti. Fjöldi listaverka á sölusýningu í GÆR var opnuð í Safnaðarheim- ili Árbæjarsóknar, sölusýning á 29 listaverkum eftir 24 þekkta og óþekkta listamenn. Þar er að finna verk m.a. eftir Katrínu Ágústsdóttur, batik, Ragnar Kjartansson, höggmynd, Sólveigu Eggerts, Ingvar Þorvaldsson, Jón Jónsson, bróður Ásgríms, auk margra annara listamanna. Til að mynda nokkra úr Árbæjarhverf- inu. Allir hafa listamennirnir gefið verk sín Bræðrafélagi Árbæjar- sóknar, sem stendur fyrir þessari sýningu, og rennur allur ágóði til byggingar Safnaðarheimilis. Sýningin er opin í dag frá kl. 13.00 til 23.00 og á morgun á sama tíma og þá mun Kvenfélagið vera með kaffisölu. Sölusýningin stendur aðeins þessa helgi. Eden Málverka- sýning Gunnar Gestsson listmálari á Stokkseyri hefur opnað mál- verkasýningu í Eden í Hvera- gerði. Á sýningunni verða 25 olíumálverk, og er þetta átt- unda einkasýning hans. Gunnar hefur málað í 40 ár, og hafa málverk hans verið mjög eftirsótt, m.a. til tæki- færisgjafa. Sýningunni lýkur sunnudag- inn 6. júlí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.