Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980
23
Stjórnin
í Hollandi
hélt velli
Haají. 27. júní. AP.
HOLLENSKA rikisstjórnin fór i
dag fram á það við rikisstjórnir
nágrannalandanna. að þær settu
sameiginlega olíubann á
S-Afriku. Gerðist það aðeins
nokkrum klukkustundum eftir
að felld hafði verið i hoilenska
þinginu vantrauststillaga vegna
sama máls.
Vantraustið á stjórnina var
flutt vegna þess, að hún hafnaði
því að Hollendingar settu einhliða
olíubann á S-Afríku vegna stefnu
S-Afríkustjórnar í kynþáttamál-
um.
Ríkisstjórnin hét því hins vegar
að fara fram á það við Benelux-
löndin, Luxemburg og Belgíu, og
Norðurlöndin að þau stæðu saman
í víðtækara banni á S-Afríku.
200 drukknuðu
í fljótabáti
Dacca. Bangladcsh. 27. júní. AP.
FLJÓTABÁTUR, með meira en
500 farþega, sökk í dag á Meghna-
fljóti, um 30 km frá Dacca, eftir
árekstur við oliuskip og er talið að
allt að 200 manns hafi drukknað.
100 farþegum tókst að synda i
land eftir áreksturinn og öðrum
90 bjargaði áhöfn oliuskipsins.
Talið er víst að aðrir hafi farist i
fljótinu sem var óvenju straum-
þungt um þetta leyti.
vj I /
Veður
víða um heim
Akureyri 12 léttskýjaft
Amsterdam 19 skýjað
Aþena 34 heiðskírt
Barcelona 24 léttskýjað
Berlín 17 skýjað
BrUasel 20 skýjað
Chicago 33 skýjað
Feneyjar 18 rigning
Frankturt 18 rigning
Faareyjar 10 skýjað
Genf 16 rigning
Helsinki 19 skýjað
Jerúsalem 32 heiftskírt
Jóhannesarborg 19 heiftskirt
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt
Las Palmas 24 léttskýjað
Lissabon 25 heiðskirt
London 20 breytilegt
Los Angeles 32 heiðskfrt
Madríd 27 heiðskírt
Malaga 25 skýjað
Mallorca 23 skýjað
Miami 32 rigning
Moskva 25 heiðskírt
New York 28 skýjað
Ósló 15 skýjað
París 17 skýjað
Reykjavík 12 léttskýjað
Rio de Janeiro 28 rigning
Rómaborg 27 heiðskírt
San Fransico 21 heiðskírt
Stokkhólmur 18 skýjað
Tel Aviv 28 heiðskfrt
Tókýó 28 skýjaft
Vancouver 16 skýjað
Vfnarborg 19 akýjað
Vickers tekur við Rolls
London. 25. júní. AP.
BREZKA verkfræði og her-
gagnafyrirtækið Vickers tekur
við rekstri Rolls Royce-bif-
reiðafyrirtækisins samkvæmt
samkomulagi sem var gert í
dag. Sameiningin kostar Vick-
ers 354 milljónir punda.
Nýja fyrirtækið verður kall-
að Rolls Royce-Vickers. Vick-
ers varð fyrir barðinu á þjóð-
nýtingu skipasmiða- og flug-
véladeilda sinna fyrir nokkr-
um árum. Arður Rolls Royce
lækkaði í fyrra í 7 milljónir
punda.
1979 — OPEC samþykkir mestu
olíuverðshækkun í fimm ár.
1976 — Seychelleseyjar fá sjálf-
stæði.
1974 — Nixon og Brezhnev semja
í Kreml um samvinnu í húsnæðis-
málum, orkumálum og vísindum.
1966 — Brottflutningur banda-
rísks herliðs frá Dóminíkanska
lýðveldinu hefst.
1956 — Uppreisn verkamanna
bæld niður í Póllandj.
1950.— Norður-Kóreumenn taka
Seoul.
1948 — Júgóslavar reknir úr
Kominform — Loftflutningar
Breta og Bandaríkjamanna til
Berlínar hefjast.
1942 — Áttundi herinn hörfar til
E1 Alamein.
1941 — Þjóðverjar taka Minsk.
1919 — Þjóðverjar undirrita
Versaia-samningana.
1914 — Franz Ferdinand
erkihertogi og kona hans ráðin af
dögum í Sarajevo.
1910 — Fyrsta Zeppelin-loftskip-
ið, „Deutschland", ferst.
1902 — Roosevelt forseti fær
heimild þingsins til að kaupa
réttindi franska Panama-félags-
ins og ná yfirráðum yfir skurðin-
um.
1812 — Napoleon sækir yfir
Vilnu og Rússar flýja.
1797 — Frakkar taka íónaeyjar.
1787 — Hollenzkir uppreisnar-
menn taka Viihelmínu af Hol-
landi fasta nálægt Gouda.
1778 — Orrustan um Mon-
mouth.New Jersey.
1776 — Árás Breta hrundið við
Charleston.
1675 — Ósigur Svía við Fehrbell-
in fyrir Brandenborgurum.
1629 — Uppreisn Húgenotta lýk-
ur með Alais-friði.
1541 — Gray lávarður tekinn af
lífi fyrir landráð á íriandi.
Afmæli. Hinrik VII af Englandi
(1491-1547) — Jean Jacques
Rousseau, franskur heimspeking-
ur (1712-1778) - Luigi Pirand-
ello, ítalskt leikritaskáld (1867-
1936) — Richard Rodgers, banda-
rískt tónskáld (1902-1979).
Andlát. 767 Páll páfi I - 1855
Raglan lávarður, hermaður.
Innlent. 1851 Þingvallafundur í
banni stiftamtmanns — 1655 d.
Björn Jónsson á Skarðsá — 1847
f. Sveinbjörn Sveinbjörnsson
tónskáld — 1841 Kristján VIII
krýndur - 1849, 1853, 1855, 1895
Þingvaiiafundir — 1921 Rafstöð-
in við Elliðaár vígð — 1930
Þingslit á Lögbergi — 1947 Land-
búnaðarsýning — 1951 íslenzkur
sigur í 3ja landa keppni í frjáls-
um íþróttum — 1953, 1959 AI-
þingiskosningar — 1960 Bretar
flytja isl. varðskipsmenn sem
fanga úr „Northern Queen“ við
Grímsey — 1960 „Drangjökull"
ferst við Orkneyjar.
Orð dagsins. Eg veit ekki hvort
stríð er hlé á friði eða friður hlé á
stríði----Georges Clemenceau,
franskur stjórnmálaleiðtogi
(1841-1929).
Frakkar hafa gert
nií teindasprengj u
P»rís. 26. júní. AP.
VALERY Giscard d'Estaing,
Frakklandsforseti, sagði á
blaðamannafundi i dag. að
Frakkar hefðu smiðað og reynt
nifteindasprengju og að tekin
yrði ákvörðun um framleiðslu
hennar á næstu tveimur eða
þremur árum.
Á blaðamannafundinum vísaði
d’Estaing á bug þeim ásökunum
sumra Bandaríkjamanna, að
Frakkar væru erfiður samherji.
Hann sagði að utanríkisstefna
Frakka væri sjálfstæð, ekki hlut-
laus, og að þeir ætluðu sér að
standa vörð um frelsið í heimin-
um.
Búist er við, að brátt verði
teknar um það ákvarðanir hvernig
búnaði franska hersins verður
háttað á næstu tveimur áratugum
og eitthvað fram yfir aldamótin.
Einkum er um það rætt hvort
leggja eigi áhersluna á árásarmátt
kjarnorkuvopnanna eða á tak-
markaðri kjarorkuvopn eins og
t.d. nifteindasprengjuna.
Á árinu 1978 heimilaði Carter
Bandaríkjaforseti framleiðslu og
geymslu allra nauðsynlegra efna í
nifteindasprengju en hefur enn
ekki leyft endanlega smíði hennar
og notkun. Nifteindasprengjan er
að því leyti frábrugðin öðrum
kjarnorkusprengjum, að sprengi-
máttur hennar er miklu minni en
geislunin þeim mun öflugri. Hún
drepur því allt kvikt án þess 'að
vaida miklu tjóni á mannvirkjum.
Óvænt úrslit
í Bretlandi
Glascow. 27. júni. AP.
ÞJÓÐERNISSINNAFLOKK-
URINN skoski vann mikinn
sigur í aukakosningum sem
fram fóru í Glasgow í gær og
nærri tvöfaldaði fylgi sitt.
Verkamannaflokkurinn, sem
hélt þingsætinu, tapaði miklu
ásamt íhaldsflokknum.
Þjóðernissinnar, sem krefj-
ast heimastjórnar og meiri
hlutdeildar í olíugróðanum,
fengu 2.122 atkv. á móti 1308 í
síðustu almennu þingkosning-
um. Verkamannaflokkurinn
hlaut 4.092 í stað 8.542 og
íhaldsflokkurinn 707 í stað
1937 í síðustu kosningum.
Úrslitin eru taiin mikið áfall
fyrir stefnu stjórnar Margaret
Thatchers í innanlandsmálum
og ekki síður fyrir Verka-
mannaflokkinn, sem hefur
verið hrjáður af innbyrðis
átökum.
„Dauði prinsessu**
sýndur í Noregi
Ósló 25. júní. Frá fréttaritara Mbl.
HIN umdeilda kvikmynd „Dauði
prinsessu“ verður sýnd í norska
sjónvarpinu um mánaðamótin
ágúst—september. Norska ríkis-
útvarpið hafði haft myndina til
athugunar um næstum tveggja
mánaða skeið áður en ákveðið var
að sýna hana. Norskur iðnaður.
sem á mikilla hagsmuna að gæta i
Saudi-Arabiu, óttast mjög afleið-
ingarnar af þessari ákvörðun
enda hefur s-arabiskur ráðherra
þegar aflýst heimsókn til Noregs.
Mörg norsk fyrirtæki, sem hafa
viðskipti við Saudi-Araba, hafa
reynt að fá því framgengt, að
myndinni yrði hafnað, en ríkisút-
varpið norska segir hins vegar, að
myndin sé mjög forvitnileg og vel
gerð. Fyrirhugað er, að á eftir
sýningu myndarinnar verði um-
ræðuþáttur þar sem rætt verður
um þau atriði hennar, sem mestum
úlfaþyt hafa valdið.
Norsk stjórnvöld hafa ekki viljað
hafa nein afskipti af sýningu
myndarinnar og er haft eftir Reiulf
Steen, viðskiptaráðherra, að þau
muni reyna að skýra það út fyrir
S-Aröbum, að norska ríkisútvarpið
sé sjálfstæð stofnun, sem leggi sitt
eigið mat á hlutina. Viðbragða
S-Araba þurfti hins vegar ekki
lengi að bíða og hefur þarlendur
ráðherra aflýst opinberri heimsókn
SUMARUTSALA
&BÍLASÝNING
í 3 DAGA
Gefum 5% afslátt af verfli allra góflra, notaflra
bílal
+5%
+/5%
Sýnum auk þess glæsivagna að austan og vestan
Gefum 15 % afslátt af verfli þeirra gegn stafl-
/O greiflslu!
A M CONCORI) FIAT127
AMEAGLE FIA T132
\ AMSPIRIT FIATRITMO
POLONES
OG FRUMSYNING A ISLANDI: FtORlNO
Snattbíllinn snaggaralegi.
EGILL.
VILHJALMSSON HF.l
IDAV/D
S/GURÐSSON HF