Morgunblaðið - 28.06.1980, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980
27
Fjölmenni á fundum
Péturs úti á landi
STUÐNINGSMENN Péturs
Thorsteinssonar hafa undanfarið
efnt til ýmissa funda með honum.
Fyrir nokkru voru Oddný og
Pétur Thorsteinsson á fundi í
Hótel Bjarkarlundi. Sóttu hann
kringum 10% íbúa í Reykhóla-
sveit. Sr. Valdimar Ilreiðarsson
talaði fyrir hönd stuðnings-
manna i héraðinu.
Þá var í síðustu viku efnt til
fundar á Selfossi. Á fjórða hundr-
að manns var á fundinum. Töluðu
þar Guðmundur Daníelsson rit-
höfundur, Magnús Karel Hannes-
son kennari og Þuríður Pálsdóttir
söngkona. Þá komu þau Oddný og
Pétur Tjorsteinsson við í Eden í
Hveragerði og þágu þar kaffiveit-
ingar. Enn var efnt til fundar og
þá í Stykkishólmi og sótti hann
fjölmenni. Á öilum fundunum
fluttu þau hjón ávarp, Pétur
svaraði fyrirspurnum, sagði skoð-
anir sínar á starfi forseta og
greindi frá starfi sínu.
Um 500 sóttu útifund
Vigdísar í Breiðholti
STUÐNINGSMENN Vigdísar
Finnbogadóttur efndu nýlega til
funda i Keflavik og Breiðholts-
hverfi í Reykjavík. Var fundur-
inn i Breiðholti haldinn sl.
sunnudag og var ákveðið að
halda hann utan dyra þar sem
veðurblíða var einstök.
Á fundinum í Hafnarfirði þar
sem Vilhjálmur Grímsson var
fundarstjóri, kynnti Jónas Jónss-
on búnaðarmálastjóri Vigdísi og
Hlíf Káradóttir söng nokkur lög
við undirleik Ragnheiðar Skúla-
dóttur. Þá talaði Vigdís og svaraði
fjölda fyrirspurna. Um 400 manns
sóttu fundinn.
Gunnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri greindi frá kosn-
ingastarfinu á fundinum í Breið-
holti og ávörp fluttu Heimir
Pálsson konrektor og Sigríður
Hagalín leikkona. Lúðrasveit Ár-
bæjar og Breiðholts lék og Vigdís
Finnbogadóttir flutti ræðu.
Guðlaugur heimsótti
fyrirtæki
Guðlaugur Þorvaldsson og Krist-
ín Kristinsdóttir heimsóttu Siglu-
fjörð fyrir nokkru og heimsóttu
þau ýmis fyrirtæki og stofnanir,
en þangað komu þau fljúgandi
frá Vestmannaeyjum. Þá flutti
Guðlaugur ávarp á torginu og
þakkaði Sverrir Sveinsson raf-
veitustjóri þeim hjónum fyrir
komuna til Siglufjarðar.
Meðal þeirra fyrirtækja er
heimsótt voru í Siglufirði má
nefna Síldarverksmiðja ríkisins,
Siglufirði
Hraðfrystihús Þormóðs ramma,
Hraðfrystihúsið ísafold, Siglósíld
og Húseiningar. Einnig óskuðu
þau sérstaklega eftir að heim-
sækja vistfólkið á ellideild sjúkra-
hússins. Ávarpaði Guðlaugur
starfsmenn á flestum stöðum og
svaraði spurningum. Þá hélt Guð-
laugur einnig fund með stuðnings-
mönnum og starfsmönnum á
kosningaskrifstofunni í Siglufirði
en þaðan var haldið til Grímseyj-
ar.
Reynir Jónasson við orgeiið.
Orgeltónleik-
ar í Neskirkju
REYNIR JÓNASSON kirkju-
orgelleikari efnir á morgun.
sunnudag. til orgeltónleika í
Neskirkju. Hefjast tónleikar
hans kl. 20:30.
Reynir Jónasson hefur frá
árinu 1973 starfað sem organ-
isti i Neskirkju, en auk þess
hefur hann stundað tónmennt-
akennslu í Álftamýrarskóla.
Hefur hann stundað nám í
orgelleik hjá Antonio Corveir-
ar, organista í Hallgrims-
kirkju. i tónskóla þjóðkirkjunn-
ar, en þar heíur Reynir einnig
kennt. Á efnisskrá eru verk
eftir Bach. César Frank,
Boellmann og Messiaen.
Vinnuslys:
Maður fót-
brotnaði illa
MAÐUR fótbrotnaði illa, þegar
hann varð á milli tveggja röra sem
verið var að einangra hjá fyrir-
tækinu Berki í Hafnarfirði í
gærmorgun. Tildrög slyssins voru
þau að verið var að hífa upp 15 til
16 tommu rör, sem átti að ein-
angra, en það losnaði og féll niður.
Lenti annar fótúr mannsins á
milli enda rörsins, sem féll niður
og annars rörsenda og brotnaði
fótleggur mannsins skammt ofan
við ökkla.
Karlakór
Reykjavíkur
kom á fund
Péturs
ÞAU MISTÖK urðu í blaðinu í
gær að hluta af frétt frá fundi
Stuðningsmanna Péturs J. Thor-
steinssonar vantaði. Auk þess,
sem sagt var frá í fréttinni, flutti
Jóhann G. Jóhannsson, tónlistar-
maður, ávarp og frumsamið ljóð.
Hannibal Valdimarsson, fyrrver-
andi ráðherra, og fundarstjóri
afhenti Pétri J. Thorsteinssyni
gamlan pening fyrir hönd Magna
R. Magnússonar. Þennan pening
hafði afi Péturs, Pétur J. Thor-
steinsson, látið gera er hann
stundaði viðskipti vestur á Bíldu-
dal skömmu eftir aldamótin, en þá
hafði hann sína eigin myntsláttu.
Hannibal lét þau orð fylgja gjöf-
inni að þetta væri lukkupeningur,
um Ieið og hann óskaði Pétri til
hamingju með þessa skemmtilegu
Kjöf-
Þá kom Karlakór Reykjavíkur
óvænt í heimsókn og flutti í lok
fundarins nokkur lög, þar á meðal
eitt kínverskt, sem kórinn hafði
sérstaklega æft í þessu tilefni.
Með þessu vildu kórfélagar þakka
Pétri fyrir síðast, en það var
einmitt í Kína nu í vetur.
Aðalfundur Sölustofnunar lagmetis:
Albert í Hafnarfirði
Þörf á sérstöku sölu-
samstarfi framleiðenda
FRAMBOÐSFUNDUR stuðn-
ingsmanna Alberts Guðmunds-
sonar var haldinn i Hafnarfirði
fyrir nokkru og sóttu hann um
500 manns. Hófst hann kl. 21 i
Hafnarfjarðarbiói.
Fundarstjóri var Oliver Steinn
Jóhannesson bókaútgefandi. Stutt
ávörp fluttu Ólafur Pálsson hús-
asmíðameistari, Guðrún Óla Pét-
ursdóttir húsmóðir, Erna Krist-
indóttir húsmóðir, Gunnlaugur
Ingvason framkvæmdastjóri, Jón-
as Bjarnason læknir og Indriði G.
Þorsteinsson rithöfundur.
Þá skemmtu þau Sigurveig
Hjaltested og Sigfús Halldórsson
áheyrendum með söng og spili. í
lok fundarins töluðu hjónin Bryn-
hildur Jóhannsdóttir og Albert
Guðmundsson. Fundarstjóri sleit
síðan fundi og var í lokin sungið
ísland ögrum skorið. Lauk fundin-
um laust upp úr kl. 23.
AÐALFUNDUR Sölustofnunar
lagmetis var haldinn 24. júní sl.
eins og frá hefur verið skýrt í
Morgunblaðinu. Á fundinum
voru kynnt störf sérstakrar
nefndar er unnið hefur að
endurskoðun laga um Sölustofn-
un lagmetis. í fréttatilkynningu
Sölustofnunar segir m.a. um
störf þessarar nefndar og fleira:
í niðurstöðum nefndarinnar og
einnig í þeim umræðum, sem urðu
á aðalfundinum, kom fram að
almennt samkomulag virðist vera
um að þörf sé á sérstöku sölusam-
starfi lagmetisframleiðenda og að
Sölustofnun lagmetis skuli starfa
áfram og þá einbeita sér eingöngu
að sölumálum. Einnig var almenn
samstaða um að framleiðendur
taki sjálfir að sér sem mest af
ábyrgð og skyldum vegna stofnun-
arinnar með sem minnstum af-
skiptum ríkisvalds.
I hinum nýja hugmyndum um
lög fyrir Sölustofnun Lagmetis og
þjóunarsjóð lagmetisiðnaðarins
kemur fram, að rétt sé að undir-
strika nauðsyn þess, að Þróunar-
sjóður starfi áfram undir sér-
stakri stjórn. Yrði hlutverk hans
þá fyrst og fremst að efla lagmet-
isiðnaðinn. í því sambandi má
benda á að komið hefur í ljós að
undanförnu, að það eru fremur
heimavandamálin, sem hamla
aukinni sölu á lagmeti á erlendum
mörkuðum heldur en örðugleikar
á sölunni sjálfri. Má þar til dæmis
nefna vandamál vegna hráefnis og
fjármagnsskort svo eitthvað sé
nefnt.
I lok þessa mánaðar lætur Gylfi
Þór Magnússon af framkvæmda-
stjórn Sölustofnunar lagmetis.
Hann hóf störf hjá stofnuninni
Gylfi Þór Magnússon fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar lag-
metis lætur af störfum um næstu
mánaðamót.
árið 1973 og þá sem skrifstofu-
stjóri en síðar tók hann við
framkvæmdastjórastarfi. Á aðal-
fundinum þakkaði Lárus Jónsson
stjórnarformaður Gylfa fyrir góð
störf fyrir Sölustofnun. Sagði Lár-
us að Gylfi Þór Magnússon hefði
staðið sig frábærlega og þá tví-
eflst einmitt þegar mest blés á
móti í starfi, sem stundum hefur
ekki verið leikur einn. Fundar-
menn tóku undir þessi orð Lárusar
Jónssonar með lófataki.
LAUGAR9AGSMARKAÐUR
DODGE DIPLOMAT 1978
einstakur lúxusbíll ek.
aðeins 6500 km.
LADA 1500 árg. 1980
ekinn 7 þús. km.
LANCER árg. 1977
ekinn 31 þús. km.
SIMCA 1100 GLS árg. 1979
ekinn 6 þús. km.
SIMCA 1100 GLS árg. 1978
ek. 30 þús. km.
VW PASSAT árg. 1976
sjálfskiptur.
DODGE ASPEN SE 1979
4 dyra ekinn 10 þús. km.
útv.+segulb.
CHEVROLET
CONCURS 1977
2 dyra ek. 25 þús. km.
rafm.rúöur, læsingar o.fl.
VW 1200 L ......... 1976
VW 1200 ......... 1971
MAZDA pick up árg. 1977
ek. 47 þús. km. Fallegur.
LANCER .......... 1975
CIRTOÉN DS ...... 1971
DODGE DART .... 1976
DODGE ASPEN . .. 1977
BUICK ........... 1974
SIMCA 1508 S árg. 1977
ek. 37 þús. km. mjög vel
með farinn bíll. Rauður.
DODGE Aspen station 1979
nýr og ónotaður bíll með
miklum fylgihlutum. Hag-
stætt verð.
SIMCA 1100 S .... 1974
CHEVROLET pick up 1972
DATSUN 1200 .... 1973
SIMCA 1100 station 1976
SIMCA 1100 5 dyra 1977
RENAULT 16 1975
FIAT 127 .......... 1974
AUDI 100 LS ....... 1977
FORD Torino ....... 1970
VOLVO 145 1974
SIMCA 1307 GLS árg. 1978
ek. 29 þús. km. Fallegur bíll.
Gulur.
Opið laugardaga kl. 10 til 17.
CHRYSLERSALURINN
Suðu: landsbraut 10, sími 83330 — 83454