Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 29 Edda S. Guðmundsdóttir fóstra: Tryggjum Vigdísi sigur 29. júní Að öðrum frambjóðendum í forsetakosningunum ólöstuðum tel ég einn tvímælalaust fremstan og færastan um að gegna embætti forseta lýðveldisins. Þessi fram- bjóðandi er Vigdís Finnbogadótt- ir, og hef ég ákveðið að styðja hana til forseta. Ég styð Vigdísi ekki endilega vegna þess að hún er kona, heldur sem manneskju, sem hefur sýnt að hún býr yfir traustri þekkingu á sögu okkar, listum og bókmennt- um og stendur djúpum rótum í íslenskri menningararfleifð. Þá styður það einnig þessa ákvörðun mína að Vigdís hefur árum saman gegnt erfiðu ábyrgðarstarfi af glæsileik, lipurð og festu og eign- ast tiltrú og óskorað traust þeirra er með henni unnu og best þekktu il. Það er sannfæring mín að reisn forsetaembættisins yrði mest í höndum Vigdísar Finnbogadóttur, þeirra sem nú eru í kjöri, og að hún héldi merki íslands á lofti af mestum myndarskap bæði innan- lands og utan. Islenska þjóðin hefur metið mjög mannkosti og hæfileika frá- farandi forseta dr. Kristjáns Eld- járns, og tel ég að Vigdís muni sóma sér best sem arftaki hans. Hinu má heldur ekki gleyma, að kosning Vigdísar í emþætti for- seta yrði sögulegur atburður í jafnréttisbaráttu nútímans og myndi vekja athygli á íslandi víðsvegar um heim. Ég hvet kjósendur til að styðja Vigdísi í kosningunum, og þá ekki Edda S. Guðmundsdóttir síst konurnar, sem nú sækja fram til jafnréttis í þjóðfélagi okkar. Kosning Vigdísar Finnboga- dóttur í æðsta trúnaðarstarf þjóð- ar okkar yrði merkur áfangi í þeirri sókn. Fylkjum okkur því um Vigdísi og tryggjum henni sigur 29. júní! Rannveig Löve: „Maður þjóðarinnar44 Mér er í barnsminni þegar ég las um afreksmenn og kvenskör- unga í íslandssögunni. Við höfum átt því láni að fagna að eiga á hverjum tíma ótalda afreksmenn og kvenskörunga, einnig nú. Af athygli og gagnrýni hefi ég fylgst með kosningabaráttunni til forsetakjörs. Allir hafa frambjóð- endur til síns ágætis nokkuð og allir treysta þeir sér til starfans, ella hefðu þeir ekki boðið sig fram og ættu sér enga stuðningsmenn. Senn líður að leikslokum. Ég trúi því ekki að nokkrum blandist lengur hugur um hver er fyrst og fremst maður þjóðarinnar eða „maður fólksins" eins og svo oft hefur verið komist að orði. Það er Vigdís Finnabogadóttir. Einar Ben. hefur ort fleiri fögur ljóð en Fáka. Hann segir í einu ljóða sinna: Rannveig Löve „I ndir brúnum búa i fridi hjartar stjörnur kulda og glóðar. Ættarmerki minnar þjóðar mærin ber i anda »k sviði.“ Og merkið ber Vigdís Finnboga- dóttir. Eftir að hafa setið fyrsta fund með Vigdísi Finnbogadóttur var ég spurð: Er hún forsetaleg? Spurningin kom mér á óvart, ég hafði ekki hlustað eða horft á Vigdísi til þess að fella mynd hennar í ákveðinn ramma. Eigi að síður fór ég í huganum yfir myndir þjóðhöfðingja okkar, svo og annarra en fyrst og fremst hún sjálf, einarðleg, röggsöm, einlæg og hlý, leiftrandi og frumleg. „Hún er það sem Stephan G. segir í einu þekktasta ljóði sínu: „frænka eldfjalls ox ishafs sif ji árfosN og hvers, dóttir lanKhoIts ok lynKmós landvers ok skers.“ Vigdís Finnbogadóttir brýtur blað í þróunarsögu þjóðar okkar. Það gerum við líka 29. júní 1980. Við kjósum Vigdísi. Menning Norðurlandanna kynnt í Bandaríkjunum í haust Á SÝNINGU, sem haldin verður í haust í Denver, Colorado í Banda- ríkjunum, verður menning Norður- landanna fimm kynnt á sýningu.sem Alþjóðlega menntamálastofnunin (IIE) stendur fyrir . Sýningardagar verða tveir og verður þá ýmislegt á boðstólum, haldnar verða kvik- myndasýningar og kynntir verða hefðbundnir dansar og söngvar frá Norðurlöndunum fimm með fleiru. „Hátíð hinna fimm svana" er eitt þeirra atriða, sem hæst ber á sýning- unni. Þar verður boðið til kvöldverð- ar og dansleiks háttvirtum embætt- ismönnum frá hverju hinna fimm landa. Tilgangur Alþjóðlegu mennta- málastofnunarinnar með sýningunni er tvíþættur: að kynna íbúum Colo- rado og nærliggjandi fylkja Norður- löndin, og í öðru lagi að afla fjár fyrir Klettafjalladeild Alþjóðlegu menntamálastofnunarinnar. Stofn- unin er ekki rekin í ágóðaskyni og er styrkt með almennum fjárframlög- um. Hún veitir fólki frá 120 löndum aðstoð við að fá styrki til náms í öðrum heimshlutum, hún er einnig ráðgefandi aðili í menntamálum, sér um útgáfustarfsemi og síðast en ekki síst þá annast stofnunin sýningar eins og þá er hér um ræðir. íslenzki aðilinn að undirbúnings- nefndinni er frú Helga McCarthy sem búsett er í Denver, Colorado. Fréttatilkynning (rá IIE. Ingibjörg Alberts- dóttir — Minningarorð Fædd 22. desember 1929. Dáin 19. júní 1980. Mig langar með fáum orðum að kveðja mágkonu mína Ingibjörgu Albertsdóttur, er lést í Borgar- spitalanum þann 19. júní sl. Inga eins og hún var ávallt kölluð var dóttir hjónanna Guðrúnar Guð- mundsdóttur frá Rauðasandi og Alberts Sw. Ólafssonar frá Bol- ungarvík, en þau bjuggu lengst af að Bergstaðastræti 9, þar sem hún ólst upp ásamt bróður sínum Sigmundi Jóhanni. Árið 1950 gift- ist Inga Sverri Einarssyni, tann- lækni og eignuðust þau þrjú börn: Ingibjörgu Hrefnu f. 1947, Einar Albert f. 1958 og Jónas Sturlu f. 1963, um það leyti hófust kynni okkar er við bjuggum saman að Blönduhlíð 14, og á ég góðar minningar frá þeim árum og æ síðan. Þau fluttust til Vestmanna- eyja nokkrum árum síðar og bjuggu þar, þar til gos hófst, að þau fluttu aftur til Reykjavíkur. Á heimili þeirra hjóna var ávallt gott að koma, enda þau gestrisin með afbrigðum. Fyrir um sex eða sjö árum fór Inga að kenna sjúkdóms þess er hún barðist við æ síðan. Hafði hún leitað sér lækninga bæði hér heima og erlendis og fékk hún enga bót. Fyrir um tveimur árum slitu þau Inga og Sverrir samvistum að hennar ósk. Um leið og ég votta börnum, tengdabörnum og barna- barni mína innilegustu samúð, vil ég sérstaklega þakka Sverri Ein- arssyni fyrir alla hans aðstoð og hjálp er hann veitti Ingu í veikind- um hennar allt til hinstu stundar. Mágkona. Þing norrænna st. Georgs gilda hald- ið í Reykjavík Dagana 30. júní til 4. júlí n.k. verður haldið hér í Reykjavik þing norrænna St. Georgs gilda. Þingið verður sett í Neskirkju mánudaginn 30. júni kl. 10.00 f.h. en þingstörf fara að öðru leyti fram á Hótel Loftieiðum. í sambandi við þetta þing munu um 300 erlendir gestir, gildisfé- lagar og makar þeirra, heim- sækja Reykjavik. St. Georgs gildin eru félags- skapur eldri skáta og maka þeirra svo og annarra velunnara skátahreyfingarinnar. Megin markmið gildanna er að styrkja skátahreyfinguna á þann hátt, sem beztur má vera hverju sinni. Auk venjulegra þingstarfa hafa verið skipulagðar skoðunar- ferðir um Reykjavík og nágrenni, ferð til Vestmannaeyja, ferð um Suðurland og að loknu þinginu lengri ferðir svo sem til Norður- lands og í Skaftafell, svo nokkuð sé nefnt. Meðal efnis, sem rætt verður á þinginu, sem og öðrum þingum, er Flóttamannahjálp Aino Marie Tigerstedt í Nepal. Á vegum Gildisfélaganna á Norðurlöndum er séð fyrir skólagöngu ákveðins fjölda flóttabarna frá Tíbet. Þá verða rædd málefni Frí- merkjabankans, en öll frímerki, sem Gildunum berast á einn eða annan hátt, eru seld og ágóðinn notaður til að efla og styrkja skátastarfið. Varaforseti alþjóðasamtaka st. Georgs gildanna, Per Mikkelsen, mun ræða um alþjóðasamtökin, en einn íslendingur, Björn Stef- ánsson, á sæti í stjórn samtak- anna. Þing sem þetta eru haldin annað hvert ár á Norðurlöndun- um til skiptis. Núverandi Lands- gildismeistari á íslandi er Hrefna Tynes. Fréttatilkynning frá Landgildisstjórn skáta- hreyfingarinnar. Pétur er minn óskaforseti Tilefni þess, að ég sting niður penna er það, að í Dagblaðinu 25. þessa mánaðar er birt af mér mynd á tali við Albert Guð- mundsson og í texta undir mynd- inni segir, að ég sé pottþéttur kjósandi hans. Þetta er ákaflega leiður misskilningur hjá blaða- manni Dagblaðsins, þó ég meti Albert mjög mikils, þá er minn óskaforseti Pétur J. Thorsteins- son. Að lokum þetta. Ég vona að kjósendur þekki kjarnann frá hisminu. Kjarninn er Pétur J. Thorsteinsson. Kjósum hann öll. Hjálmar Júliusson. Dalvik. Múrviðgeröir sími 84736. Get tekið að mér aö leysa út vörur fyrlr innflutn- ingsfyrlrtæki. Tilboö sendist Mbl. merkt: „Vörur — 563“. húsnæöi i boöi XjvAJ AAA. 3 Sandgerði. til sölu 3ja herb. neöri hæö 85 ferm., sér inngangur ásamt bílskúr. íbúðin er í ágætu ástandi. Lítiö áhvílandi. laus fljótlega. Úrvalið er hjá okkur Eignamiölun Suöurnesja Hafnargötu 57, sími 3868. Heimatrúboðiö Óöinsgötu 6a. Almenn samkoma á morgun kl. 20.30. Allir velkomnir. UTIVISTARFERÐI 2 Sunnud. 29. júní kl. 13. Selatangar, sérstæö strönd meö gömlum verstöövaminjum. o.fl. Fararstj. Jón I. Bjarnason, fcinnig ganga á Stóra-Hrút (375 m.) Verð. 5000 kr. Fariö frá B.S.I., bensínsölu (í Hafnarf. v. kirkjug.) Sumarleyfisferðir. Hornstrandaferöir: Hornvfk 11,—19. júlí (eöa 10.— 20.) og 18.—26. júlí (eöa 17,— 27.) Granlandsferöir, 17. og 24 júlf og 7. ágúst. Útivist, s. 14606. Krossinn Æskulýössamkoma í kvöld kl. 8.30. aö Auöbrekku 34, Kóp. Alllr hjartanlega velkomnir. FERDAFELAG IÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11796 og 19533. Dagsferðir laugardag 28. júní: 1. kl. 13. Stjórn Reykjanes- fólkvangs og Feröafélag íslands efna til kynnisferöar um Reykja- nesfólkvang. Ekiö inn á Höskuldarvelli. Gengiö þaöan upp á Grænavatnseggjar og niöur á Lækjarvelli, síöan yfir Móhálsadal um Ketilstíg aö Sel- túni (hverasvæöinu í Krísuvík). Leiösögumenn: Eysteinn Jóns- son fyrrv. ráöherra og Jón Jónsson, jarófræðingur. Fariö veröur frá Umferöamiö- stööinni aö austanveröu. Verð kr. 5000/— greitt v/ bflinn. Stjórn Reykjanesfólkvangs og Feröafélag íslands. 2. kl. 20. Skarösheiöin (1053 m) — Kvöldganga. Fararstjóri: Tómas Einarsson. Verð kr. 6000,— Dagsferðir sunnudag 29. júní: 1. kl. 10. Hvalfell — Glymur (852m). Fararstjóri: Siguröur Kristjánsson. Verö kr. 5000,— 2. kl. 13. Brynjudalur — göngu- ferö. Fararstóri: Einar Halldórs- son. Verð kr. 5000 — EFÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.