Morgunblaðið - 28.06.1980, Page 30

Morgunblaðið - 28.06.1980, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 Auður Aðalsteinsdóttir: Athugasemd við grein Guðrúnar Egilson í Morgunblaðinu 12. júní Mér finnst það einkennilegur málflutningur að ætla kynsystr- um sínum að kjósa konu eingöngu vegna kynferðis hennar og glæsi- legs útlits. Ég býst varla við að ég eða jafnvel þú, Guðrún, fengjum mörg atkvæði í næstkomandi for- setakosningum þó við séum konur. Okkur skortir einfaldlega hæfi- leika Vigdísar til starfsins. Mér þykir líka þessi „stríðnistónn“ dálítið vafasamur í þessu tilfelli og heldur ótryggt vopn í höndum þess er beitir. Sjálfsagt hefur verið mikið hlegið yfir kryddaðri síldinni, en vantaði ekki útlist- ingar á stjórnarfarslegri reynslu hinna frambjóðendanna inn í samræðurnar? Frá mínum bæjardyrum séð þarf stjórnun endilega ekki að vera það sama og stjórnmál eða afskipti af þeim, og býst ég við að fleiri séu því sammála. Mér finnst Guðrún Egilsson þurfa að færa fram betri rök fyrir sínum málstað. Ég hef enga trú á að hún haldi í raun og réttu að konur og karlar kjósi Vigdísi vegna glæsilegs útlits hennar og kynferðis. Það hefur hingað til ekki verið neinni konu til fram- dráttar. Hins vegar hefur Vigdís persónutöfra sem hingað til hafa orðið mörgum þjóðhöfðingjum til framdráttar. Eða hefur Guðrún Egilsson heyrt sagt: „Nei, við kjósum ekki þennan mann, hann er of sjarmerandi til þess.“ Guðrúnu verður títtrætt um núverandi aðstæður í íslensku þjóðlífi og að reynsluleysi Vigdís- ar komi í veg fyrir að hún valdi embætti sínu á erfiðum tímum. Er hægt að dæma slíkt fyrirfram á svo lélegum forsendum? Þeir sem styðja Vigdísi gera það vegna persónuleika hennar, gáfna og þess hve vel hún hefur staðið sig á opinberum vettvangi — bæði í sínu starfi og annars staðar. — Ekki vegna þess að hún er kona. Málflutningur Guðrúnar hlýtur þess vegna að vera „opinn í báða enda.“ Halldór Þorsteinsson: Tímamót í sögu jafnréttismála Árið 1882 voru sett lög um kosn- irigarétt kvenna. Arið 1887 flytur Bríet Bjarnhéðins- dóttir fyrirlestur, um kjör og menntun kvenna. Árið 1899 tók Elín Jakobssen, fyrst íslenskra kvenna, próf frá Lærða skólanum. Árið 1910 tók Laufey Valdimars- dóttir stúdentspróf frá almenna menntaskólanum í Reykjavík. Árið 1980 býður Vigdís Finnboga- dóttir sig fram til forseta íslands. Hér er langt stórra högga á milli. Fyrir það eitt að hafa gefið kost á sér til framboðs við forsetakjör, standa ekki aðeins konur heldur þjóðin öll í stórri þakklætisskuld við Vigdísi Finngobadóttur, án til- lits til, hvort hún nær kjöri. Hún hefir gefið konum tækifæri til að sýna mátt sinn gegn hinu áberandi karlaveldi, — og ef þær nota ekki hið gullna tækifæri, sem nú býðst, gæti hvarflað að manni hvort konur hefðu nokkuð við kosningarétt og kjörgengi að gera, hvort það sé þeim ekki aðeins óþarfa munaður. 1 minningu móður minnar, sem kaus Guprúnu Lárusdóttur fyrst þegar hún bauð sig fram, þótt framsókarkona væri, gef ég Vigdísi Finnbogadóttur atkvæði mitt. Ef til vill verða einhverjir fleiri til að minnast móður sinnar á sama hátt. Sigmar Pétursson veitingamaður: Oheiðarleg vinnu- brögð I gær hófst nýr þáttur í kosn- ingabaráttunni. Þá byrjuðu stuðn- ingsmenn Guðlaugs Þorvaldssonar, með eða án hans vitundar, að hringja skipulega í kjósendur, einkum stuðningsmenn Péturs Thorsteinssonar, til þess að freista þess að fá þá til þess að skipta um skoðun. Talsmenn Guðlaugs halda því blákalt fram í þessum símtöl- um, að nú sé ekki lengur um að villast, kosningin snúist eingöngu um tvo frambjóðendur, tveir komi ekki lengur til greina. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það, að í fyrsa lagi er þetta alrangt, eins og þeir vita, sem eitthvað hafa hugsað um kosn- ingarnar, hvort heldur þeir leggja trúnað á gildi skoðanakannana eða ekki, og í öðru lagi er hér vísvitandi verið að rangtúlka möguleika kjós- enda, beinlínis verið að blekkja kjósendur. En þótt Guðlaugsmenn haldi að kjósendur láti slíkar símhringingar blekkja sig, þá á annað eftir að koma í ljós. Sigmar Pétursson. Kjósendur eiga sjálfir síðasta orðið, og þeir láta ekki skipulagðar símhringingar, eða annan slíkan áróður villa sér sýn á kjördegi. Þá kjósa þeir samkvæmt sinni eigin sannfæringu. Helgi Bernódusson: Skoðanakönnun — skoðanamyndun Auður Aðalsteinsdóttir Dagblaðið Vísir hefur nú birt skoðanakönnun sína, þá sem gerð var dagana 21.—23. þ.m. Þegar niðurstöður hennar eru skoðaðar, verður ekki hjá því komist að vekja sérstaka athygli á því, að notað er sama úrtak og unnið var eftir við síðustu skoðanakönnun. Nú er aftur verið að spyrja sama Geirþrúður Charlesdóttir: Látið stjórnast af sannfæringu ykkar í þessari vorkyrrð er þjóðin að búa sig undir að velja sér forseta, sem kjósa á 29. júní n.k. Öllum er okkur kunnugt, að 3 karlmenn og 1 kona, hafa gefið kost á sér til að gegna þessu virðulega embætti. Ég var stödd fyrir nokkrum dögum á fundi hjá einum fram- bjóðandanum til forsetakjörs. Þar töluðu nokkrir stuðningsmenn frambjóðandans og töldu hann að vísu hæfastan til þessa starfs. — Já, við lifum í lýðræðisþjóðfélagi, við njótum frelsis og megum hugsa og framkvæma skoðanir okkar, samkvæmt okkar eigin sannfæringu. Það hefir komið í huga minn aftur og aftur þessa dagana orðið sannfæring, — þegar ég geng að kjörborðinu nú í lok þessa mánað- ar, ætla ég að kjósa samkvæmt minni „eigin sannfæringu", og það vil ég benda ykkur á, að gera líka, kæru kjósendur. Á þeim framboðsfundi, sem ég minntist á áðan, sagði einn af stuðningsmönnum frambjóðanda í sinni ræðu í lýsingu sinni á forsetaframbjóðendum: Pétur Thorsteinsson hefir unnið mikið og gott starf fyrir land og þjóð á erlendri grund, en hann er svo lítið þekktur hér heima. — Ég finn ekki rök fyrir þessari skýringu hins ágæta ræðumanns, en rétt er það að Pétur Thorsteinsson og fjölskylda hans hafa verið búsett erlendis í mörg ár, en þau hafa ekki verið þar einungis sem skrautfjaðrir íslenzku þjóðarinn- ar. Nei, Pétur Thorsteinsson og frú hans hafa verið verðugir fulltrúar okkar lands og þjóð okkar til heilla. Það eru mikilvæg störf, sem Pétur Thorsteinsson hefir unnið, má þar nefna við- skiptasamninga sem átt hafa mik- ilvægan þátt í efnahagslegu sjálf- stæði þjóðarinnar. Ég hef einnig tekið eftir því að fólk segir, Pétur Thorsteinsson sé hæfasti maðurinn til að gegna embætti forseta Islands, en samt á ekki að fara eftir sinni eigin sannfæringu og veita honum brautargengi, heldur velja sér mann eða konu, sem semur frið innan þjóðarinnar. Við íslend- ingar erum ekki í stríði, en stöndum á tímum mikillar óvissu, tímum mikillar verðbólgu, — við semjum ekki um slíka hluti, við breytum ekki stjórnarskrá ís- lands, við kosningu forseta nú í júní. Forsetaembættið og Alþingi eru æðstu stofnanir þjóðarinnar. Pét- ur Thorsteinsson hefur gífurlega reynslu til að takast á hendur það starf sem forsetaembættið er. Þar þarf að vera maður með mikla þekkingu á þjóðmálum. Þar þarf mann, sem tekst á við vandann, sem upp kann að koma, og leysi þann vanda samkvæmt sinni þekkingu og reynslu. Ég vil ekki láta hjá líða að minnast á frú Oddnýju sem staðið hefir við hlið manns síns sem kona sendiherrans og fulltrúi okkar þjóðar, það hefir verið henni mikil reynsla. S.l. 11 ár hafa Pétur og Oddný verið í nánum tengslum við forsetaembættið, þar sem Pétur hefir verið ráðuneytisstjóri. Þau hjón þekkja því gjörla af eigin reynslu hvert það starf er, sem þau nú bjóða þjóð sinni að takast á hendur. Ég hef ekki hugsað mér að hafa orð mín öllu fleiri, þessi ágætu hjón, frú Oddný og Pétur Thor- steinsson, kynna sig best sjálf, með einni virðulegu framkomu og þeirra mikla og margbrotna lífi sem þau hafa frá að segja. En að endingu: 29. júní n.k. göngum við að kjörborðinu og veljum mann sem skipar virðu- legasta og ábyrgðarmesta emb- ætti þjóðarinnar. Veljum þá eftir eigin sannfæringu. Veljum mann, sem búinn er mikilli þekkingu og reynslu í þjóðmálum og hefir staðið í nánum tengslum við forsetaembættið í mörg ár. fólkið. Augljóst er að við slík vinnubrögð gætir verulegrar tregðu á því að aðspurðir kjósend- ur lýsi því nánast opinberlega yfir að þeir hafi skipt um skoðun. M.ö.o. það er miklu líklegra að skoðanakönnun með nýju úrtaki hefði sýnt meiri sveiflu. Það eina sem mér virðist að unnt sé að lesa út úr þessari könnun er það að Pétur Thorsteinsson sé í stórsókn, einhver skriður sé á Albert, — annað ekki! Og það má líka leika sér með þessar tölur. Sé þeim, sem ekki höfðu tekið afstöðu, og þeim sem ekki vildu svara, bætt við í hlutföllum eftir aukningu, kemur út athyglisverð niðurstaða. Auðvitað er allt gott um skoð- anakannanir að segja, en samt sem áður eru þær mjög óheppi- legar við þessar forsetakosningar. Eins og reglum um forsetakjör er háttað, og frambjóðendur nú fjór- ir, hljóta skoðanakannanir eins og síðdegisblöðin hafa verið með, að vera mjög varhugaverðar. Þær eru skoðanamyndandi í þeim skiln- ingi, að hætt er við að menn gefi samvisku sína upp á bátinn, hætti að velta því fyrir sér í alvöru hver sé hæfastur að þeirra mati, og leiðist út í spekúlasjónir. Kjósi ég A gæti ég fellt B, jafnvel þótt mér finnist C hæfastur og mest að mínu skapi. Væru forsetakosn- ingar í tveimur umferðum (eins og t.d. í Frakklandi) þá væru þessar skoðanakannanir saklausar. En við skulum þó vona að Islendingar séu svo sjálfstæðir að þeir geti valið sér forseta eftir góðri samvisku og án aðstoðar síðdegisblaðanna. Og það má líka leika sér með þessar tölur. Sé þeim, sem ekki höfðu tekið afstöðu, og þeim sem ekki vildu svara, bætt við í hlutföllum eftir aukningu, kemur út athyglisverð niðurstaða. Gísli R. Stefánsson málari: Því er ég stuðn- ingsmaður Alberts Guðmundssonar? Þegar ég fyrst heyrði talað um Albert Guðmundsson var ég ungur drengur. Ég las grein í blaði með mynd af honum, þá ungum manni. Ég hreyfst af þessum unga íslend- ingi, sem orðinn var einn af fræknustu knattspyrnumönnum heims, og gat sér allsstaðar orð sem sérstakur drengskaparmaður í leik. Síðan hefi ég ávallt fylgst með Albert og séð hversu sjálf- stæður persónuleiki hann er. Hann hefir lagt fram bæði í borgarráði á alþingi tillögur oft einn og fengið samþykktar, svo sem um uppbyggingu húsnæðis fyrir aldraða, hjálpað þeim sem eru undir í lífinu og öðrum sjúkum. Því veit ég, að margir hugsa hlýtt til hans. Eiginkona hans, Brynhildur Jó- hannsdóttir, ættuð úr Skagafirði og Húnavatnssýslu. Sæmdar fólk og ljóðelskt er í hennar ætt. Hún er gáfaður og litríkur persónuleiki og einnig er hún falleg og verðug þess að verða húsmóðir að Bessa- stöðum. Skagfirðingar og Húnvetningar, Gísli R. Stefánsson sýnið metnað ykkar í að kjósa að Bessastöðum frændkonu ykkar. Islendingar, sameinumst um einn bezta mann og mesta mann, sem við eigum í dag — og bjóðum þau velkomin að Bessastöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.