Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 32

Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980 Rannveig Jónsdóttir: Veljum Vigdísi Vigdís Finnbogadóttir er kona góðum gáfum gædd, þess vegna er henni ljóst að hún er ekki alvitur. Vigdís mun því, ef vanda ber að höndum, kalla til ráða hverju sinni vitrustu og hæfustu menn í máli hverju. Síðan mun hún sjálf taka ákvarðanir eftir bestu sam- visku eins og góður dómari gerir, er hann hefur hlýtt á öll sjón- armið allra málsaðila. Guð hjálpi þeim, þótt þekkingu hafi, sem telja sig geta ráðið fram úr öllum vanda einir. I aukunum mæii skella menn nú skollaeyrum við stjarnspekilegum grýlusögum um vald forsetans í varnarmálum og brosa góðlátlega við þeim öfundlausu konum, sem eru með vangaveltur um vanga- veltur nágranna okkar í Nato. Fólkið veit að það yrði ákvörðun þjóðarinnar allrar, ef til þess kæmi að herinn yrði látinn fara úr landi, en ekki ákvörðun forsetans. Menn eru jafnframt sannfærðir um, að það viti nágrannar okkar í Nato líka. Við könnumst öll við svipaðar aðferðir áður. í upphafi kosn- ingabaráttu núverandi forseta heyrðust oft raddir um það, að hann hefði verið hernámsand- stæðingur, en aldrei hefur hann flíkað þeim sjónarmiðum í for- setatíð sinni. Hinsvegar er öllum ljóst, að hann er þjóðernissinni og því mega menn ekki rugla saman við annað. Það er Vigdís líka, einlægur og sannur þjóðernis- sinni. Eins og tveir hinna fram- bjóðendanna, hefur Vigdís dvalist við nám og störf með öðrum þjóðum, en það er næsta nauðsyn- legt veganesti í þetta embætti, og má minna á það sem stendur í Hávamálum: „Sá einn veit, es víða ratar“. Því er ekki að neita að fólk verður víðsýnna, það lærir að kynnast menningu og sérkennum annarra þjóða með því að dveljast með þeim, en hvað mest verður auga þess glöggt fyrir sérkennum síns eigin lands og þjóðar. Þessa glöggskyggni og yfirsýn verður maður fljótt var við í fari Vigdís- ar. Hin góða menntun (hér er ekki verið að taia um prófgráður eins og ein löglærð kona virðist skilja að orðið menntun þýði, því að greinarhöfundur, eins og svo margir Islendingar, lítur á það orð í miklu víðari merkingu) og þekk- ing Vigdísar á öllu, sem íslenskt er, hefur sýnilega ennþá betur skírst í vitund hennar við dvöl hennar erlendis. Það er ekki af tilviljun einni, að fólkið í landinu til sjávar og sveita, fólk úr öllum hinum mörgu starfstéttum hér á höfuðborgar- svæðinu, tók höndum saman og skoraði á þessa konu hvað eftir annað að gefa kost á sér til forsetaframboðs. Vigdís er svo háttvís kona að hún hefði að sjálfsögðu aldrei gefið kost á sér fyrr en dr. Kristján Eldjárn, hinn mjög virti forseti, hefði lýst yfir að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs, en því miður sýndu ekki allir frambjóðendur slíka háttvísi. Vissulega var ekki skorað á Vigdísi að gefa kost á sér, fyrr en ljóst varð, að núverandi forseti yrði ekki áfram, og fólki fannst að ekkert hinna frambjóðendanna höfðaði til þess á svipaðan hátt og framboð Kristjáns gerði á sínum tíma. Um hæfni Vigdísar efumst við stuðningsmenn hennar ekki. Það hefur sýnt sig að hún fær aukið fylgi, hvar sem hún fer um, og yfirfull Laugardalshöllin, svo að fólk varð frá að hverfa, ber vott um aukinn stuðning hér í höfuð- borginni. Eg sleppi öllu jafnréttistali að sinni, raunar þarf Vigdís ekkert á því að halda, enda virðist það tal allt í einu orðið svo viðkvæmt mál hjá sumum konum og þær fullyrða jafnvel að verið sé að spila á tilfinningar okkar og að við, sem styðjum Vigdísi, höfum tapað dómgreindinni. Svo langt getur þessi rökleysa gengið, að segja mætti mér, að hjá sumum fyrir- spyrjendum, sem héldu langar tölur sjálfir, hafi vopnin snúist í höndum spyrjanda þeim í vil er fyrir svörum sat. Það, sem ég met ekki hvað síst í fari Vigdísar er hinn næmi og einlægi skilningur hennar á manneskjunni í hvaða stétt og stöðu sem hún er og hin djúpa og sanna innsýn hennar í lífið allt. Það getur enginn öðlast í svo ríkum mæli nema í lífsins skóla, en í honum hefur Vigdís orðið að yfirstíga marga þrekraun, en stað- ið sig þar með sömu ágætum og öðrum skólum, — vaxið með vanda hverjum. Eg vil ljúka þessum línum með nokkrum rímuðum orðum til Vig- dísar. f Hvipmóti ertu fáiíuð og fðgur íhs þitt ber vitni um uppruna þinn. Orð þinnar tunxu ok sÍKÍldar söjrur seiðandi meitlast i huifa vorn inn. Ætíð með reisn þú höfðinu hcldur hafin þú ert yfir láxkúru þras. Utan- ok innanhúss verkunum veldur ok verður á setrinu laus við allt »hras“. Að makalaus sértu þeir æðrast nú yfir ok óttast þér lciðist þar. bara þú sjálf Nú einungis hjónafólk lífinu lifir menn lát'i það skína þú sért aðeins hálf. Duitmikla kona. oss da mi þú gefur dirfsku að sýna. huifrckki ok þor. Alla þú kosti svo heillandi hefur. sem hæfa. er verður þú forseti vor. Reykjavík. 26. júní 1980. Kristján P. Guðmundsson apótekari, Borgarnesi: Kjósum þann hæfasta Á morgun göngum við að kjör- borði og veljum okkur forseta. Engan betri ráðgjafa getum við haft við það val en eigin samvisku. Við hana á ekki að semja, henni ber að hlýða. Engin skoðanakönn- un getur leyst hana af hólmi. Úrslit síðustu alþingiskosninga urðu á allt annan veg en skoðana- kannanir sögðu fyrir og leiddu í ljós að í kjörklefanum kváðu kjósendur upp úrskurð eftir vand- legt endurmat. Pétur J. Thorsteinsson hefur reynst traustur og öruggur í ábyrgðarmiklum störfum sinum og á erfiðum tímum er þjóðinni mest nauðsyn á slíkum forystumanni. Þekkingu hans á íslenskum og alþjóðlegum málefnum dregur enginn í efa en jafnframt stendur hann utan hversdagsværinga tjórnmálanna og sér þau af víðari sjónarhóli. Þetta er það sem máli skiptir. Hins vegar er það óvirðing við embætti forseta íslands ef kyn- ferði frambjóðenda á að hafa áhrif á val til þess. Sýnum á morgun að við séum ein þjóð án tillits til kynferðis eða stjórnmálaskoðana. Verum stolt af því að vera samvisku okkar trú og kjósum því þann frambjóðanda sem samviskan segir okkur að sé hæfastur — hver sem hann er. Hans G. Andersen fulltrúi íslands í landgrunnsnefnd UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur tilkynnt Norðmönnum að Hans G. Andersen, sendiherra, verði fulltrúi íslands í landgrunnsnefndinni, sem ákveðið var að koma á fót í samning- um íslendinga og Norðmanna um lausn Jan Mayen-deilunnar. Hvor þjóð tilnefnir einn fulltrúa í nefnd- ina og sameiginlega verða þær að koma sér saman um oddamann. Norðmenn hafa ekki formlega til- nefnt sinn fulltrúa en talið er líklegt að það verði Jens Eventsen, hafrétt- arfræðingur. Gert er ráð fyrir að fyrsta verk fulltrúa landanna verði að gera tillögu um oddamann nefnd- arinnar. Valdimar Guðmannsson, Bakkakoti: Unga fólkið tryggir Vigdísi sigur 29. júní n.k. fær íslenska þjóðin enn eitt tækifærið til að velja og hafna. í þetta skiptið veljum við forseta lýðveldisins, með aðsetri að Bessastöðum. Ekki er að efa að kosningar þessar verða mjög spennandi enda allir frambjóðendur vel færir um að taka þetta þýðingarmikla emb- ætti að sér, og ekki að efa að allir fari þeir í framboð með því hugarfari að reynast þjóð sinni vel og halda við þeirri virðingu, sem forsetaembættið hefur unnið sér meðal þjóðarinnar á undanförnum árum. Það hefur að sjálfsögðu vakið verðskuldaða athygli að einn frambjóðandinn er kona, kona sem hefur í gegnum starf sitt unnið sér geysi gott orð, kona sem hefur alla þá hæfileika sem við íslendingar krefjumst að forset- inn hafi og síðast en ekki síst kona sem þorir. Þetta eru staðreyndir sem þú ættir að hafa í huga þegar þú gengur að kjörborðinu 29. júní n.k. Eg álít að það sé kominn tími til að við Islendingar endurskoðum afstöðu okkar til embættisveit- ingar og viðurkennum í verki að konur eru á engan hátt neinn annars flokks starfskraftur. Heldur er spurning, hvað hver og einn vill gera, hvar við viljum beita hæfileikum okkar burtséð frá því hvort kona eða karlmaður á í hlut. Margir vilja líka halda því fram að þar sem Vigdís er ein- hleyp sé ekki hægt að kjósa hana, en ég vil spyrja þá sem þannig hugsa, hvort þeir ætli að svipta allt einhleypt fólk á landinu at- vinnu- og tjáningarfrelsi sínu. Sé svo, held ég að þeir ættu fyrst að kanna hvort þetta fólk skili yfir- leitt verr unnu verki en fólk sem er i sambýli við hitt kynið. Nú kunna sumir að halda, að ég vilji að fólk kjósi Vigdísi Finn- bogadóttur bara vegna þess að hún er kona, en svo er alls ekki. Það sem vakir fyrir stuðnings- mönnum Vigsídar er, að við telj- um hana hafa flesta kosti sem þarf til forsetaembættis af þeim fjórum frambjóðendum sem í boði eru, — því kjósum við Vigdísi Finnbogadóttur, þó að hún sé kona. Að lokum hvet ég alla stuðn- ingsmenn Vigdísar til þess að hefja nú baráttuna að fullum krafti. Ég vil líka benda á, að hún er yngst frambjóðenda, því er hún fulltrúi unga fólksins, það er því í okkar verkahring að tryggja kjör hennar 29. júní n.k. Berjumst drengilega fram til sigurs, veljum rétt, veljum Vig- dísi. 16. júní 1980. Áslaug Brynjólfsdóttir yfirkennari: Vigdís er vandanum vaxin Sameiningartákn Á kvennaárinu 1975 var í júní haldin fjölmenn tveggja daga ráð- stefna á vegum félaga S.Þ. og helstu kvennasamtaka landsins, sem hafa um 30.000 félagsmenn innan vébanda sinna og að stóðu konur á öllum aldri með ólíkar 'stjórnmálaskoðanir. Á þessari ráðstefnu var gerð ályktunin um kvennafrí 24. október. Ráðstefnan var sett með pomp og pragt í Háskólabíói að viðstöddu fjöl- menni með forseta íslands og ríkisstjórn í broddi fylkingar. Að- standendum ráðstefnunnar þótti mikils um vert að fá góðan kynni við setningarathöfnina, mann sem hinir sundurleitu pólitísku aðilar, sem að ráðstefnunni stóðu, gætu allir sætt sig við. Mörg nöfn voru nefnd, en ýmist þóttu menn of langt til hægri eða vinstri og ekki náðist samkomulag fyrr en nafn Vigdísar Finnbogadóttur var nefnt. Þá leystist málið af sjálfu sér því allir gátu fallist á að biðja Vigdísi að vera kynni, vegna þess, að hún var óflokksbundin og stóð utan við hið pólitíska dægurþras. Hún varð fúslega við þessari beiðni og þannig varð Vigdís Finnbogadóttir með persónu sinni nokkurs konar sameiningartákn hinna ólíku hópa sem að ráðstefn- unni stóðu. Brautryðjandi Orð hafa verið látin að því liggja í kosningabaráttunni, að Vigdís Finnbogadóttir hafi lítið sem ekkert gert fyrir konur vegna þess, að hún hafi ekki tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttu síðustu ára. Þessu vil ég mótmæla. Vigdís Finnbogadóttir hefur með for- dæmi sínu lagt þung lóð á vog- arskálarnar. Hún hefur rutt nýjar brautir með því að verða leikhús- stjóri fyrst íslenskra kvenna og síðast en ekki síst leggur Vigdís ómetanlega stóran skerf til jafn- réttisbaráttunnar með því að vera fyrsta konan í sögu lýðveldisins sem gefur kost á sér til forseta- Áslaug Brynjólfsdóttir kjörs. í kosningabaráttunni hefur athygli manna mest beinst að Vigdísi. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að því hærri og eftirsóknarverðari sem staðan er talin, því harðar er barist og þeim mun erfiðara eiga konur uppdrátt- ar. Það dylst því engum hvílíkan kjark, þrek og staðfesu Vigdís hefur sýnt í kosningabaráttunni. Makalaus kona I sjónvarpskynningu forseta- efna og einnig á öðrum vettvangi hafa mótframbjóðendur Vigdísar Finnbogadóttur og stuðningsmenn þeirra ekki verið sérlega höfðing- legir í hennar garð. Ef þeir eru spurðir beint, þá segja þeir að vissulega eigi að vera jafnrétti, auðvitað eigi kona að vera kjör- geng til forsetaembættis. En svo er strax farið að draga úr þessu umburðarlyndi með ýmsum hætti. Til dæmis með þeirri áherslu sem karlar í framboði leggja á að þeir séu ágætlega kvæntir menn og að það sé tveggja manna starf að fara með lyklavöld á Bessastöðum. Þar með er vikið að þeirri stað- reynd sem allir þekkja, að eina konan i framboði er ógift. Með þessu er reynt að hafa áhrif á hugmyndir manna um besta for- setaefnið með því að kynda undir nokkrum af þeim fordómum sem reynt hefur verið að kveða niður í jafnréttisbaráttu undanfarinna ára. Ætli mörgum hefði dottið í hug að velta vöngum yfir nauðsyn þess að hjón sætu á Bessastöðum, ef einhleypur karl væri meðal fram- bjóðenda? Ætli það hefði ekki þótt móðgun við karlkynið, að efast um, að vel kostum búinn karl gæti gegnt forsetastarfi með sóma án þess að hafa maka sér við hlið? Húsfreyjur á Bessastöðum hafa haft hlutverki að gegna. En það er mikill misskilningur að ætla, að ekki sé unnt með skynsamlegri skipulagningu og þeirri aðstoð sem forseta stendur til boða, að leysa alla þá hnúta sem upp kynnu að koma vegna þess að hann er makalaus. Vigdís Finnbogadóttir hefur margítrekað, að hún vilji ekki að menn kjósi sig vegna þess eins að hún er kona. Það er vel mælt og drengilega. En það er líka rétt, sem hún hefur sagt, að framboð hennar sé í þágu dætra okkar. Það verður til marks um að margt hefur breyst til hins betra á íslandi, ef Vigdís Finnbogadóttir verður kosin forseti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.