Morgunblaðið - 28.06.1980, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980
35
Tökum dæmi: í forsetaembættið
hefur valist herstöðvaandstæðing-
ur og einhvern tíma á valdaferli
hans kemst róttækur alþýðu-
bandalagsmaður í embætti dóms-
málaráðherra, sem jafnframt er
innsti koppur í búri innan sam-
taka herstöðvaandstæðinga. Sam-
tök herstöðvaandstæðinga semja
nú djúpa hernaðaráætlun. Þeir
ætla að standa fyrir fjölda-
samkomu í Reykjavík, sem flugu-
menn innan raða múgsins eiga að
snúa upp í uppþot. Að vísu nokkuð
gömul brella, en áhrifarík samt
sem áður. En í þetta skipti fæst
leynilegt loforð hjá forseta og
dómsmálaráðherra, að almenn
sakaruppgjöf fáist fyrir þá, sem
brjóta af sér meðan á mótmælun-
um stendur. Og viti menn forset-
inn kemur fram í sjónvarp daginn
eftir mótmælin og lýsir yfir í
nafni þjóðareiningar og sögulegra
sætta, að öllum, sem brotið hafa
af sér í þessu þjóðernislega upp-
þoti fái skilyrðislausa sakarupp-
gjöf. Enginn gæti stöðvað hann.
Það er umhugsunarvert hverju
forsetavaldið gæti komið til leiðar
í höndum óábyrgra aðila, ekki
satt?
Forsetinn skipar
menn í embætti
Ertu æstur í að veita þinginu
aukin völd, lesandi góður? Ég
fyrir mitt leyti er það ekki, að
minnsta kosti ekki fyrr en þingið
veitir mér aukin völd með því að
gera atkvæðarétt minn jafnan
atkvæðarétti allra annarra lands-
manna í alþingiskosningum. Og
ekki er óeðlilegt að ætla að þú sért
sama sinnis ef þú tilheyrir þeim
mikla meirihluta landsmanna,
sem hefur jafn skertan kosninga-
rétt og ég.
Það er meðal annars af þessum
sökum, sem staða forseta verður
svo sterk gagnvart þingmeirihlut-
anum og ríkisstjórninni, ef hann
tæki upp á að neita að skipa þá
menn í embætti sem ríkisstjórnin
óskaði.
Þingmeirihlutinn gæti að sjálf-
sögðu lagt lagafrumvörp fyrir
alþingi til að svipta forsetann
embættisveitingarvaldi sínu. En
sá er galli á gjöf Njarðar að það er
tímafrekt að samþykkja laga-
frumvörp, en auk þess þarf að fá
undirskrift forsetans til að þau
haldi gildi sínu, en hún fengist að
sjálfsögðu ekki. í slíku tilfelli
kæmi til þjóðaratkvæðis um frum-
varpið. En er ekki sennilegt, að
þjóðinni í ljósi fenginnar reynslu,
standi sami stuggur af að auka
vald þingsins eins og mér og þér,
lesandi góður.
Væri þá ekki vænlegra fyrir
þingmeirihlutann að fara samn-
ingaleiðina í þessum efnum? Þú
færð þetta frumvarp samþykkt og
þinn mann í embætti ef við fáum
okkar. Væri ekki athyglisvert ef
þingmeirihlutinn og ríkisstjórnin
neyddist til að minnka við sig
pólitískar stöðuveitingar.
Þingræðið
Þingræðið er að vísu tryggt í
stjórnarskránni, það er að segja,
ef þingið er mátulega samhent og
það er vilji forsetans að mynda
þingræðisstjórn. En þar sem úlf-
úðin og sundurlyndið milli þing-
flokka er eins mikið og á íslandi,
má spyrja hversu erfitt það væri
fyrir forseta að mynda utanþings-
stjórn ef honum stæði hugur til
þess. Það er vandasamt að mynda
starfhæfa þingmeirihlutastjórn
jafnvel, þegar forsetinn hefur á
því fullan hug.
En setjum sem svo, að forsetinn
ætlaði sér einmitt að mynda
utanþingsstjórn og hefði til þess
fulltingi og stuðning fámenns
hóps á þingi, sem hugsaði sér gott
til glóðarinnar að fá sína utan-
þingsmenn í embætti með hjálp
forsetans. Það yrði tæplega erfitt
að standa í vegi fyrir stjórnar-
myndun með því að fá röngum
flokkum eða mönnum umboðið á
Kári Arnórsson:
Kjör Vigdísar lyfti-
stöng fyrir þjóðina
röngum tíma. Ef við það bættist
að nokkrir þingmenn reru öllum
árum að því, að sem mest óbilgirni
væri sýnd í samningaviðræðum,
mætti hæglega búast við að utan-
þingsstjórn liti dagsins ljós að
endingu. Slík utanþingsstjórn
gæti verið forsetanum og minni-
hlutahópi á þingi mjög vilholl, ef
réttir aðilar veldust í hana. Ráð-
kænska forsetans og nokkurra
þingmanna gæti því reynst þing-
ræðinu erfiður fjötur um fót ef
rétt tækifæri byðust.
Gæti þingiö losaö
sig við forsetann?
— Þingið er að sjálfsögðu eigi
með öllu varnarlaust í þessu
valdatafli. Þyki því forsetinn beita
valdi sínu of ötullega, á það tvo
kosti á að losa sig við hann og er
hvorugur góður.
Sá fyrri er að leysa forsetann
frá embætti áður en kjörtímabili
hans er lokið, en sú krafa þarf
samþykki meirihluta við þjóðar-
atkvæðagreiðslu, sem til er stofn-
að af 3/4 hlutum þingmanna í
sameinuðu þingi. En sá er hæng-
urinn, að hljóti krafan ekki sam-
þykki í þjóðaratkvæðagreiðslu, er
þing rofið og stofnað til nýrra
kosninga. Eins og vinsældir þings-
ins eru um þessar mundir, ráðlegg
ég þeim ekki að reyna þessa leið
jafnvel þótt ekki finnist á þingi 16
menn til að kæfa kröfuna í
fæðingu. Það þyrfti mikil undur
og stórmerki til að meirihluti
þjóðarinnar veldi þing sitt fram
yfir forseta.
Síðari kosturinn er sá, að þingib
samþykki stjórnskipunarlög, sem
takmarka vald forsetans frá því,
sem nú er. En slíkar stjórnar-
skrárbreytingar hafa í för með sér
þingrof og nýjar kosningar hljóti
þær samþykki beggja þingdeilda,
og síðan þarf að samþykkja þær
aftur á nýju þingi. En lögin þurfa
staðfestingu forsetans til að halda
gildi sínu, og það fengist að
sjálfsögðu ekki. Lögin þyrfti því
að samþykkja í þjóðaratkvæða-
greiðslu, en þar fengju þau án efa
óblíðar móttökur. Af þessu sést,
að þingmenn eru ekki öfundsverð-
ir þurfi þeir að losna við forset-
ann. Forsetinn gæti í flestum
tilfellum kviðbeygt þingið án þess
að það fengi rönd við reist.
Goðsögnin mikla
Af því sem á undan er ritað má
sjá, að allt tal um að forseti
íslands sé valdalaus puntfígúra er
goðsögn, og það sem meira er um
vert, hættuleg goðsögn. Trú al-
mennings á þessa markleysu þjón-
ar þeim tilgangi einum, að flýta
þeim degi að í þetta valdamikla
embætti setjist maður, sem beitir
valdi sínu þjóðinni til tjóns. Ég
ráðlegg því kjósendum að taka
með fyrirvara orðum þeirra
gasprara, sem vilja telja þeim trú
um að forsetinn sé ekkert meira
en veislustjóri yfir frauðvínssam-
kvæmum á Bessastöðum. Ég vil
einnig biðja þá að minnast þess,
að forsetinn gæti, ef hann beitti
valdi sínu, aðstoðað þjóðina upp
úr því fúafeni, sem stjórnlyndir og
valdaóðir alþingismenn hafa
sökkt henni í með hjálp óhefts
þingræðis. Og þessir sömu alþing-
ismenn hafa í raun ekkert sið-
ferðilegt umboð til að fara með
löggjafarvald þjóðarinnar, þar
sem réttur stórs hóps þjóðarinnar
er fyrir borð borinn sökum mis-
skiptingar atkvæða eftir lands-
hlutum.
En það hvernig forsetinn ætti
að beita valdi sínu til að fá fram
leiðréttingu á atkvæðaskiptingu
þjóðarinnar er efni í aðra grein.
Sú grein birtist væntanlega ekki
fyrr en eftir kosningar og þá
aðeins ef sá maður situr í forseta-
embættinu, sem hefur næga rétt-
lætiskennd til að skilja, að við
þetta ástand í atkvæðamálum
þjóðarinnar verður ekki unað deg-
inum lengur. Ég bið því kjósendur
að vanda val sitt í þessum kosn-
ingum.
Árni Th. Arnarson
Um næstu helgi fæst úr því
skorið hver kosinn verður forseti
íslenska lýðveldisins fyrir næstu
fjörgur ár. Sá forseti sem nú lætur
af embætti hefur verið mjög
ástæll með þjóðinni. Hinum hefur
tekist að setja alþýðlegan virðu-
leikablæ á forsetaembættið. Það
er mikis virði að sá virðuleiki
haldist og að því sé keppt að
varðveita þessi viðhorf til emb-
ættisins. Núverandi forseti hefur
sýnt og sannað að ekki sé það
forsenda fyrir því að gegna emb-
ætti forseta með sóma að viðkom-
andi hafi haft opinber afskipti af
stjórnmálum né verið í opinberri
stjórnsýslu.
Verðugur arftaki
Af þeim frambjóðendum sem nú
eru í kjöri finnst mér enginn muni
viðhalda eins vel þeim arfi sem
Kristján Eldjárn lætur eftir sig í
embætti, sem Vigdís Finnboga-
dóttir. Framboð hennar er fram-
komið nokkru seinna en hinna og
fyrir það fyrst og fremst að
alþýðumanna til sjávar og sveita
fannst vanta sinn fulltrúa. í
Kristjáni hafði almenningur fund-
ið sinn mann 1968 og svipuð
tilfinnig er nú gagnvart Vigdísi.
Málflutningur hennar hefur mest
snúist um að forsetinn sé maður
fólksins, maður þjóðarinnar væri
aðall forsetans. Samband hans við
þjóð sína væri það sem mestu máli
skiptir.
Mér finnst Vigdís hafa hvort
tveggja til að bera að hlíta kalli
þjóðar sinnar og geta tekið sjálf-
stæða ákvörðun. Hver forseti hlýt-
ur að sjálfsögðu að setja sinn svip
á embættið. Hann verður að vera
sjálfstæður í verkum sínum, þó
svo hann þyggi góðra manna ráð.
Fulltrúi nýrra tíma
Hvar sem Vigdís hefur komið í
þessari kosningahríð hefur hún
náð hylli almennings og að því er
virðist umfram aðra frambjóðend-
ur. Fundur Vigdísar á Akureyri
minnti um margt á glæsifund
stuðningsmanna Kristjáns 1968, í
hans heimahéraði þar sem bíla-
lestir komu hvaðanæva. Hún var
fyrst íslenskra kvenna til að gefa
kost á sér til embættis forseta. í
þessu framtaki hennar hygg ég að
rísi hæst barátta kvenna fyrir
jafnrétti. Fátt getur orðið meiri
hvatning til kvenna í að sýna að
þær telja sig jafningja karla. Því
er þess að vænta að konur standi
þétt að baki hennar í komandi
kosningum.
Embætti forseta íslands er
virðulegt starf og vandasamt. Það
á að vera ópólitískt og á engan
hátt háð pólitískri forystu eins né
annars flokks. Þjóðinni er nauð-
syn á að í embætti forseta veljist
sá maður sem hún getur verið
Kári Arnórsson
óhrædd um að ekki sé undir
handarjaðri stjórnmálaflokka eða
einstakra stjórnmálamanna. Á
Bessastöðum þarf að rækta ís-
lenska menningu og hlúa að henni
eins og gert hefur verið að undan-
förnu. Til þess tel ég Vigdísi
Finnbogadóttur best fallna af
þeim sem nú eru í kjöri.
Það yrði mikil lyftistöng ís-
lenskri þjóð næði hún kjöri. Kjör
Vigdísar yrði einn hlekkurinn í
endursköpun á forystu í íslenskum
þjóðmálum sem mikil þörf er
fyrir. Er þess að vænta að slík
endursköpun leiði til meiri far-
sældar en nú er. Með því að kjósa
Vigdísi ert þú kjósandi góður að
leggja hornstein að nýrri upp-
byggingu. Það getur þú gert með
góðri samvisku hvar í flokki sem
þú stendur.
Kári Arnórsson.
^(fvcljumVIGDÍSI
SKRIFSTOFUR STUÐNINGSMANNA
REYKJAVIK:
Laugavegi 17 Símar26114og 26590.
Forstööumaður: SVANHILDUR HALLDÓRSDÓTTIR
Vesturbergi 199. Sími 76899
Forstöðumaöur: ÁSLAUG BRYNJÓLFSDÖTTIR
SELTJARNARNES:
Vallarbraut 16. Sími 13206.
Forstöðumaður: SVEINBJÖRN JÓNSSON
MOSFELLSSVEIT:
Verslunin Þverholt. Simi 66960.
Forstöðumaður ANNA SIGGA GUNNARSDÓTTIR
AKRANES:
Húsi slysavarnarfélagsins. Simi 93-2570
Forstöðumaður: HRÖNN RÍKARÐSDÓTTIR
BORGARNES:
Snorrabúð, Gunnlaugsgötu 1. Sími 93-7437.
Forstöðumaður ÓSK AXELSDÓTTIR
HELLISSANDUR:
Keflavíkurgötu 7. Sími 93-6690
Forstöðumaður ÓMAR LÚÐVÍKSSON
GRUNDARFJÖRÐUR:
Grundargötu 18. Sími 93-8718
Forstöðumaður JÓNA RAGNARSDÓTTIR
STYKKISHÓLMUR:
Skúlagötu 14. Sími 93-8317.
Forstöðumaður ÞORSTEINN AÐALSTEINSSON
PATREKSFJÖRÐUR:
Aðalstræti 15. Sími 94-1455
Forstöðumaður: BJARNI ÞORSTEINSSON O FL
BOLUNGARVfK:
Hafnargötu 79. Simi 94-7418.
Forstöðumaður: HERDÍS EGGERTSDÓTTIR.
ÍSAFJÖRÐUR:
Austurvegi 1. Simi 94-3121.
Forstöðumaður: JÓRUNN SIGUROARDÓTTIR
HVAMMSTANGI:
Melavegi 15. Simi 95-1486
Forstöðumaður: EYJÓLFUR MAGNÚSSON.
BLÖNDUÓS:
Brekkubyggð 34 Sími 95-4310.
Forstööumaður: VIGNIR EINARSSON
SAUÐARKRÓKUR:
Skagfirðingabraut 8. Slmi 95-5798
Forstöðumaður: HEIÐMAR JÓNSSON
SIGLUFJÖRÐUR:
Gránugötu 4 Simi 96-71319
Forstöðumaður: HERMANN JÓNASSON
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Túngötu 15. Sími 96-62306
Forstöðumaður: RAGNHEIÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR
DALVÍK:
Skiðabraut 3. Simi 96-61229.
Forstöðumaður: SVANHILDUR BJÖRGVINSDÓTTIR
AKUREYRI:
Strandgötu 19. Sími 96-25233 og 25980
Forstöðumaður. HARALDUR M SIGURÐSSON
HÚSAVÍK:
Laugabrekku 22 Sími 96-41731
Forstöðumaður: ÁSTA VALDEMARSDÓTIR
VOPNAFJÖRÐUR
Kolbeinsgötu 16. Simi 97-3275.
Forstöðumaður: BJÖRN BJÖRNSSON
SEYÐISFJÖRÐUR:
Norðurgötu 3. Simi 97-2450
Forstöðumenn: VIGDÍS EINARSDÓTTIR
og ODDBJÖRG JÓNSDÓTTIR
EGILSSTAÐIR:
Laugavöllum 10. Simi 97-1585
Forstöðumaður: EINAR RAFN HARALDSSON
NESKAUPSTAÐUR:
Tónabæ við Hafnarbraut. Simi 97-7204
Forstöðumaður: VALUR ÞÓRARINSSON
ESKIFJÖRÐUR:
Bleikárhlið 59. Sími 97-6435
Forstöðumaður: SIGRÍÐUR KRISTINSDÓTTIR.
REYÐARFJÖRÐUR:
Kaffistofu Björns og Kristjáns. Sími 97-4271.
Forstöðumaður: HELGA AÐALSTEINSDÓTTIR
HÖFN í HORNAFIRÐI:
Miðtúni 21 (Miðgarði). Simi 97-8620
Forstöðumaður ERLA ÁSGEIRSDÓTTIR
VESTMANNAEYJAR:
Miðstræti 11. Simi 98-1139.
Forstöðumenn EIRÍKUR GUÐNASON
og HRAFNHILDUR ÁSTÞÓRSDÓTTIR
HELLA:
Freyvangi 23. Sími 99-5869
Forstöðumaður: HERMANN PÁLSSON
SELFOSS:
Þórstúni 1. Simi 99-2251.
Forstöðumaður: GRÍMUR BJARNDAL
GRINDAVÍK:
Heiðarhrauni 44. Simi 92-8494
Forstöðumaöur SÆUNN KRISTJÁNSDÓTTIR
KEFLAVfK:
Hafnargötu 34. Sími 92-2866
Forstöðumaður: VILHJÁLMUR GRÍMSSON
HAFNARFJÖRÐUR:
Reykjavlkurvegi 60. Simi 54322.
Forstöðumaður: GUÐRÚN EINARSDÓTTIR.
GARÐABÆR:
Safnaðarheimili Garðabæjar. Sími 45466.
Forstöðumaður: ÁSLAUG ÚLFSDÓTTIR
KÓPAVOGUR:
Auðbrekku 53 Simi 45144
Forstöðumaður: ERLA ÓSKARSDÓTTIR.