Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 36

Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 Ingibjörg Norðkvist, ísafirði: Hugleiðingar um forseta; kosningar og jafnrétti Það er víst að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um þessi málefni, en í trausti þess, að íslendingar eru vanir leysingum og lækjum, sem flæða út yfir farvegi sína, læt ég dropa mína detta. Hvað forsetakosningarnar varð- ar erum við íslendingar svo heppnir, að í framboði eru fjórir mjög hæfir einstaklingar. Þeir eru samt frábrugðnir hvor öðrum að því leyti hvaða störfum þeir hafa gegnt fram að þessu og á hvaða vettvangi þeirra lífshlaup hefur farið fram, en allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa gegnt störf- um fyrir land og þjóð af stakri trúmennsku og hæfileikum. Pétur Thorsteinsson h'efur verið diplóm- at og hefur töluverða reynslu og þekkingu á utanríkismálum og samskiptum Islands við erlendar þjóðir. Þeim sem þykir það skipta mestu máli, kjósa hann, geri ég ráð fyrir. Margir háskólamenn munu velja Guðlaug Þorvaldsson vegna kynna við hann sem vinsæl- an háskólarektor, einnig hefur hann verið sáttasemjari og ein- hverjir styðja hann e.t.v. vegna kynna við hann í því starfi. Albert Guðmundsson er einlitur stjórn- málamaður, harður sjálfstæðis- maður, þó svo hann hafi aldrei verið flokksþægur. Þeir sem vilja mann í forsetastól, sem e.t.v. lítur landsmálin einlitum flokksgler- augum, þeir kjósa hann. Ég tek það fram að þetta er ekki sagt honum til hnjóðs heldur væri þetta aðeins mannlegt. Vigdís Finnbogadóttir hefur kennt frönsku, starfað að ferðamálum og landkynningu og verið leikhús- stjóri. Hún er sögufróð, vel menntuð og hefur átt mikil og farsæl samskipti við margt fólk. Þessi atriði, sem ég hef tínt til eru það helsta, sem frambjóðend- ur hafa fengist við, og auðvitað er margt fleira lagt á vogarskálarn- ar, þegar farið verður að kjósa, svo sem eins og persónuleg kynni fólks af frambjóðendum og ýmis- leg góðvild, sem þeir hafa sýnt fólki á liðnum árum í sínum störfum. Aftur á móti er vonandi, að fordómar, Gróa gamla á Leiti og oflof hafi engin áhrif í forseta- kosningunum. Með oflofi á ég. t.d. við, þegar lýst er yfir, að einhver sé „maður fólksins". Ef það má segja þetta um einn af frambjóð- endum, má segja það um þá alla, ef byggja á á fyrri samskiptum þeirra við þjóðina hvers á sínu sviði. Sömuleiðis að einhver sé hæfastur, eða að einhver þeirra sé hæfari en annar til að skapa festu í þjóðlífinu o.s.frv. En nóg um það. Nú skal ræða jafnréttið. Eins og fram hefur komið, hafa frambjóð- endur sitthvað til brunns að bera, og helgast það mjög af því hvernig forsetaembættið er í eðli sínu og hefur verið. T.d. í síðustu forseta- kosningum bar fornleifafræðingur og þjóðminjavörður sigurorð af einlitum stjórnmálaskörungi (þar á ég við mann, sem hefur verið í einum stjórnmálaflokki og gegnt mikilvægustu störfum þjóðarinn- ar fyrir þann flokk). Af þessum ástæðum tel ég, að mikil breidd sé í framboðunum og eitthvað við allra hæfi, og er það skemmtilegt. Einnig er það at- hyglisvert, að íslendingar vilja ekki kjósa forsetann pólitískt og öll flokksbönd riðlast, og er engu líkara, en fólk njóti þess að losna af gamla flokksklafanum, þeir sem þannig er ástatt um, og er það vel. Ekkert er hægt að gera forsetaframbjóðanda verra en að ákveðinn stjórnmálaflokkur beini tilmælum til fólks um að kjósa hann. Það er næstum formúlan fyrir falli hans, ef svo má segja. Það hefur að undanförnu borið mikið á því í blaðagreinum, að tilmæli einstaklinga til kvenna um að kjósa Vigdísi Finnbogadótt- ur hafa bæði verið hártoguð og misskilin. í þessum útúrsnúning- um hefur þessum einstaklingum verið borið á brún að hafa skorað á konur að kjósa hana eingöngu vegna þess að hún er kona. Þetta hefur enginn sagt né skrifað og engum dottið í hug. Hinsvegar hefur konum verið bent á þetta tækifæri til að sýna í verki beinan stuðning við jafnréttishugsjónina með því að kjósa þann af fjórum hæfum frambjóðendum sem er kona. Það er sannarlega tími til þess kominn, að konur leggi vanmeta- kennd sína á hilluna hvað stjórn- unarstörf snertir og þar með það að vantreysta kynsystrum sínum til þeirra. Konur komast t.d. ekki á þing á meðan konur kjósa fremur karlmenn, ef um er að ræða val á jafnhæfum einstakl- ingum af báðum kynjum. Á meðan þessir fordómar eru enn við lýði, er ekki hægt að komast hjá því að tala um kynferði frambjóðenda, en í framtíðinni skiptir það von- andi ekki máli í vali þjóðarinnar á hæfum einstaklingum til hinna ýmsu stjórnunarstarfa. Þessir for- dómar vaða nú uppi því miður, en ef Vigdís Finnbogadóttir má ekki njóta þess í komandi kosningum, að hún er kona, þá má hún heldur ekki gjalda þess að hún er kona. Hún hefur sýnt kjark með því að rísa gegn þessum fordómum og lagt stórt lóð á vogarskálar jafn- réttisins með því að bjóða sig fram til þessa háa embætts og þar með gert meira fyrir dætur ís- lands en í fljótu bragði verður séð. Hulda Bjarnadóttir: Áfram, stelpur! Er baráttan um forsetaembætt- ið komin á trúðleikaplan, og er virðuleikinn á undanhandi fyrir græðginni að hreppa hnossið? Margur er farinn að brosa í kampinn að ýmsum þeim baráttu- aðferðum, sem hafðar eru frammi, því engu er líkara en að tvö forsetaembætti séu í boði en ekki bara eitt, og að frambjóðendur til forsetaembættis séu sjö en ekki bara fjórir. Þeir karlar, sem í kjöri eru hafi mjög hampað eiginkonum sínum sér til trausts og halds. Þær mæta með þeim á íramboðsfundum, sitja fyrir svörum og taka þátt í ræðuhöldunum. Þetta er allt í senn hjákátlegt, óréttlátt og ójafn leikur, þar sem einn frambjóðand- inn, Vigdís, er einn á báti. Hún hefir þar af leiðandi sex keppi- nauta við að glíma í stað þriggja, eins og ætti með réttu að vera, ef um fulla jafnréttisstöðu væri að ræða. Snúum dæminu við og gerum ráð fyrir að konurnar væru þrjár, en karlinn einn og þær allar giftar en hann einhleypur. Ætli það þætti ekki heldur óviðfelldið, svo ekki sé meira sagt, ef þær geystust á framboðsfundi með eiginmenn- ina upp á arminn sér til fulltingis og hjálpar við ræðuhöldin. Hrædd er ég um að myndi heyrast hljóð úr horni og ýmsum þykja leikur- inn ójafn og karlinn ofurliði bor- inn. Tökum annað dæmi. Hvað skyldu menn segja við því, að ef einhver væntanleg þingmannsefni tækju upp á því að hafa maka sína með sér til hjálpar við ræðuflutn- ing á framboðsfundum til Alþing- iskosninga? í öllum leikjum og keppnum eru vissar leikreglur. Það skiptir miklu máli að þær séu í heiðri hafðar og ekki hvað sízt þegar keppt er til forsetaembættis. Ég vek athygli á þessu af því að þetta er í fyrsta skipti og vonandi ekki það síðasta, að fólk af báðum kynjum er í forsetaframboði. Það er því mikilvægt atriði, ekki að- eins núna heldur um aila framtíð, að afdráttarlausar og heiðarlegar leikreglur séu markaðar þessu viðvíkjandi strax, áður en mis- mununin festir rætur og nær að sljóvga réttlætiskennd manna. Ætla mætti að þetta væri í fyrsta skipti í sögu þjóðarinnar að gengið væri til forsetakjörs, og falin hætta lægi í því að einhver harðsvíraður einvaldur yrði kos- inn forseti, og þjóðin hefði aldrei staðið frammi fyrir öðrum eins vanda og nú að velja sér þjóðhöfð- ingja, ef marka má alla þá prent- svertu og öll þau töluð orð, sem búið er að ausa yfir landslýð til kynningar og fræðslu á forseta- embættinu. Allt það væmnis- og mærðarþrugl um menn og mál- efni, sem því hefir verið samfara, er næstum farið að valda manni klígju. Ég veit ekki hvernig í ósköpunum við höfum farið að hingað til. Þó erum við búin að hafa forseta í 36 ár án alls fyrirgangs og hávaða. Er öll þjóð- in komin í kosningaleik, eða hvað? Ég efast um að fyrirfinnist hér á landi fólk komið til vits og ára, að það viti ekki nokkurn veginn í hverju störf forseta eru fólgin. Og ég veit ekki betur en að allir frambjóðendur séu sómafólk, sem hvert um sig gæti gegnt embætt- inu með prýði. En hvers vegna öll þessi læti? Það skyldi þó ekki vera að allur hamagangurinn stafaði af því að nú er kona í framboði í fyrsta sinn og af óttanum við hið mikla brautargengi hennar? Vigdís Finnbogadóttir hefir gengið fram á sviðið og býður sig fram til forsetakjörs fyrst allra ísl. kvenna. Vígreif og glöð búður hún úreltum hleypidómum og venjum byrginn og hefir djörfung og dug til þess að ganga fram fyrir skjöldu og seilast til þess jafnrétt- is og þeirra mannréttinda, sem hingað til hafa verið meira í orði en á borði. Með þessu fordæmi sínu gefur hún konum byr undir báða vængi til meira jafnræðis og mannréttinda. Við lifum í karlaþjóðfélagi, þar sem karlveldið er nær algert. Þeir sitja að öllum helstu embættum þjóðarinnar og ráða flestu, sem þeir vilja ráða. Ég held þeir megi vel við una þótt kona setjist á forsetastól. Fullum mannréttind- um er ekki náð meðan konur skipa hinn óæðri bekkinn og bera skarð- an hlut frá borði eins og dæmin sanna. Þrátt fyrir ótvíræðan laga- bókstaf, sem á að tryggja þeim jafnrétti til launa og starfa er sá lagabókstafur æði oft sniðgeng- inn. I flestum nefndum eða ráðum hinna ýmsu stéttarfélaga, sem fjalla um launakjör eru karlar í miklum meirihluta. Hinum megin við borðið eru viðsemjendurnir, þ.e. atvinnurekendur, eigendur fyrirtækja, forstjórar og fram- kvæmdastjórar, flestir karlar. Þetta segir sína sögu. Ef menn efast um orð mín er ekki lengra síðán en á laugardagskvöldið 21. júní sl. að brugðið var á skjáinn mynd frá fjölmennri launa- og kjaramálaráðstefnu. Ekki voru margar konur í því fríða liði. Ég kom ekki auga á neina. Margir hafa haldið fram að sú kosningabarátta sem nú er háð hafi verið drengileg en þó með örfáum undantekningum. Ég er ekki sammála þessu. Stuðnings- menn Guðlaugs Þorvaldssonar hafa rekið þann aulalega og óheið- arlega áróður að undanförnu, bæði leynt og ljóst, að baráttan standi fyrst og fremst milli Guð- laugs og Vigdísar og því sé atkvæðum léðum Albert eða Pétri kastað á glæ. Þessi skoðun byggist Enginn hinna háttvirtu karl- frambjóðenda virðist hafa komið auga á þetta misrétti í þjóðfélag- inu, eða þá að minnsta kosti þagað um það þunnu hljóði, mér vitan- lega, og gáfu þeir þó fögur loforð og fyrirheit um flest milli himins og jarðar. í sjónvarpsviðtalinu á dögunum voru allir karlarnir sammála um að hjón þyrftu að vera á Bessa- stöðum. Vitanlega, sjálfir eru þeir allir kvæntir. Merkilegt hvað Ind- iru Gandhi hefir tekist að stjórna einu fjölmennasta ríki veraldar. Og þó er hún ekki gift. Mér koma einnig í hug Golda Meir og Bandaranaike. Þær gátu verið við stjórnvölinn eiginmannslausar. Hver skipar fyrir um eldhús- störfin á Bessastöðum er algert aukaatriði. Þar er vitanlega valinn maður í hverju rúmi. Við erum búin að eiga 3 karlfor- seta í röð. Mér finnst kominn tími til þess að við eignumst kvenfor- seta. Við eigum margar mikilhæf- ar konur, sem eru starfi þessu vaxnar engu síður en karlar. En það gæti orðið bið á því, að konur gæfu kost á sér í þetta embætti, ef illa tekst til nú, og væri það miður farið. Við skulum ekki átakalaust gefa körlum eftir forsetastólinn. Þeir sjómenn, sem urðu til þess að skora á Vigdísi að gefa kost á sér til forsetakjörs, eiga þakkir skildar. Þeir hafa skráð nöfn sín í Islandssöguna sér til verðugs lofs. Einnig þeir mörgu frjálslyndu og víðsýnu karlar, sem hafa stutt að framboði hennar með ráðum og dáð, en ég held að hið mikla fylgi Vigdísar sé ekki hvað minnst karlþjóðinni að þakka, enn sem komið er að minnsta kosti. Svo ekki er þeim öllum alls varnað, blessuðum, guði sé lof. Það eru bráðum 5 ár liðin síðan konur gerðu garðinn frægan og fyrst og fremst á mjög svo vafa- sömum skoðanakönnunum sem þó, ef réttar eru, benda til að þriðj- ungur þjóðarinnar sé óráðinn. Jafnvel alþingismenn ganga fram fyrir skjöldu og hvetja menn til að „brjóta" hornstein lýðræðisins og kjósa gegn sannfæringu sinni. Það hlýtur að verða dapurleg reynsla fyrir u.þ.b. 70% íslenzku þjóðarinnar, að vakna til þess á mánudagsmorgun, að þeir hafi söfnuðust saman á Lækjartorgi hinn eftirminnilega dag, 24. október 1975, og héldu stormandi útifund með glæsibrag jafnrétt- ismálum sínum til framdráttar. Sá fundur vakti heimsathygli, og vakti konur víða um lönd til umhugsunar um réttindamál sín. En síðan ekki söguna meir. Allt datt í dúnalogn. — Og Þyrnirós- arsvefninn varir enn —. Ég fullyrði að engu verulegu máli skiptir á erlendum vettvangi, hver hinna háttvirtu karlfram- bjóðenda yrði kosinn forseti, hversu mætir og gegnir menn sem þeir eru allir saman, og ég efa ekki ágæti þeirra, heldur er það svo algengt og þykir auk þess alveg sjálfsagt að karlmaður skipi þenn- an sess, að það vekur enga sér- staka athygli. Aftur á móti, ef kona yrði kosin forseti íslands yrði það heimsfrétt, sem fara myndi eins og eldur í sinu um heilsbyggð alla, og það yrði ekki einungis íslenzkum konum til brautargengis til fullra mannrétt- inda og jafnræðis, heldur og konum víðs vegar um heiminn, og myndi skipa ísiandi á fremsta bekk þjóðlanda. Vigdísi treysti ég bezt til þess að verða ástsæll og virtur forseti. Hún myndi sitja Bessastaði með fallegu og manneskjulegu látleysi. Það yrði sómi við konur landsins og karla einnig, ef fyrsta konan, sem býður sig fram til forseta- kjörs, yrði valin forseti. Ég get líka orðað þetta á annan veg: Það væri háðung fyrir íslenzkar konur um langa framtíð, ef hún næði ekki kosningu. Og að síðustu: Áfram stelpur! Tökum höndum saman eins og á Kvennadaginn 24. október 1975. Látum drauminn rætast, og velj- um Vigdísi. Hennar sigur er okkar sigur. kastað atkvæði sínu á glæ, já, 70% því það er ekki nema einn sem kemst að. Nei, íslendingar ógilda ekki atkvæði sitt, hvern sem þeir kjósa, og enginn skal ljúga því að mér að ég sé að gera órétt, þótt ég kjósi ekki Guðlaug og komi ef til vill Vigdísi að. Mig gildir einu, hvert hinna þriggja kemst að, ef þjóðin er svo ólánsöm að hafna hæfasta manninum, Pétri Thor- steinssyni. EFÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU VI GLYSINGA SIMINN KK: 22480 Eiríkur Briem: Verða 70% atkvæða ónýt?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.