Morgunblaðið - 28.06.1980, Page 37

Morgunblaðið - 28.06.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 37 Helgi Guðjónsson verkstjóri - Minning Hinn 13. júní síðastliðinn lést á Landspítalanum Helgi Guðjóns- son verkstjóri, til heimilis að Hvammsgerði 3 í Reykjavík, að- eins sextíu og þriggja ára gamall. Hann var jarðsettur frá Foss- vogskirkju mánudaginn 23. júní, að viðstöddu geysilegu fjölmenni. Það verður ekki sagt með sanni að fráfall Helga hafi komið okkur, sem fylgst höfum með honum undanfarið, algerlega á óvart. En þó verður það oft svo er við heyrum lát mæts vinar á ágætum aldri að okkur setur hljóð og við fyllumst heilagri en vanmáttugri reiði gagnvart miskunnarlausum örlögum. Við erum einnig minnt óþyrmilega á þá staðreynd að í þessum annars svo ótrygga og síbreytilega heimi, sem við byggj- um, er eitt sem við fáum ekki Fædd 23. september 1892. Dáin 19. júní 1980. I dag verður til moldar borin Málfríður Árnadóttir frá Bjalla í Landsveit er lést 19. þ.m. 87 ára að aldri. Hér er lokið langri og starfs- samri ævi konu af aldamótakyn- slóðinni, sem skilað hefur landi sínu og þjóð drjúgu veganesti. Þegar litið er til baka yfir lífshlaup þess fólks, er átti þroskaár á fyrstu tugum þessarar aldar og þær miklu breytingar sem orðið hafa á lifnaðarháttum þess og þeirra sem nú eru á ungum aldri, verður manni ljóst hve mikla þrautseigju fólk hefur þurft að sýna til að yfirstíga þá erfið- leika er við var að etja. Húsmóðir með stórt heimili og mjög tak- mörkuð lífsþægindi sem kölluð eru í dag, hefur oft þurft að sýna mikla útsjónarsemi og fyrir- hyggju til að hlutirnir gengju eðlilega fyrir sig. Ég hygg að Málfríður á Bjalla hafi verið góður fulltrúi þess hóps er skilaði sínu hlutverki með sóma. Málfríður Árnadóttir var fædd að Skammbeinsstöðum í Holtum, dóttir hjónanna Árna Árnasonar og Þórunnar Magnúsdóttur er síðar bjuggu í Látalæti í Land- sveit, en þar ólst hún upp í glaðværum systkinahópi, með góðum nágrönnum, er hún minnt- ist síðar á lífsleiðinni með sér- stakri ánægju. Foreldra sína missti hún er hún var á ungum aldri og þurfti því ung að taka á sig umsjá heimilis þar eð hún var elst sinna systkina. Málfríður giftist Ingvari Árna- syni, sem látinn er fyrir nokkru. Þau hófu búskap á Bjalla í Land- sveit og bjuggu þar góðu búi í yfir 60 ár. Þeim varð 5 barna auðið, þeirra Arnþórs, Þórunnar, sem nú er látin, Ragnheiðar, Guðríðar og Svanfríðar. Auk þess ólu þau upp Þuríði Jónsdóttur. Heimili þeirra hjóna á Bjalla bar svipmót þeirra beggja, snyrti- mennska úti sem inni, bókakostur talsverður á heimilinu og þjóðleg- ur fróðleikur í hávegum hafður. Málfríður hafði mikinn áhuga fyrir allri ullarvinnu og voru ýmsir munir, er hún bjó til úr ullarvörum mjög smekklegir og báru vitni hagleiks og smekkvísi. Öll matargerð lá sérlega vel fyrir henni og geta eflaust margir er bar að garði hjá þeim hjónum að Bjalla borið vitni um það. Það er margs að minnast fyrir samtíðarmenn, þegar svo fullorðin kona sem Málfríður á Bjalla er kvödd, sem búin er að standa fyrir heimili er staðið hefur í þjóðbraut í yfir 60 ár. Það verður minnst af því tíundað hér, aðeins látið í Ijós haggað, við göngum öll sama veginn fyrr eða síðar. Það mun sennilega hafa verið síðla sumars 1979 að Helgi kenndi þess sjúkdóms er varð honum að aldurtila. Hann háði baráttuna við sjúkdóm sinn af æðruleysi og karlmennsku — og af slíkum lífsvilja og lífstrú að allt til þess síðasta ræddi hann um hvað hann ætlaði að gera er sér væri batnað. Helgi var fæddur 24. febrúar árið 1917 í Reykjavík og ólst þar upp. Faðir hans, Guðjón Jónsson, sem látinn er fyrir allmörgum árum, var austan úr Vestur- Skaftafellssýslu en móðir hans, Steinunn Magnúsdóttir, sem enn er á lífi, er ofan úr Borgarfirði. Helgi lærði kjötiðn í Danmörku og Svíþjóð og var meistari í þeirri iðngrein. Hann útskrifaði fjölda fyrir þann góða beina, er hún veitti þeim er að garði bar. Nánir vinir og ættingjar senda kveðjur og þakkir á þessum tíma- mótum og óska hinni öldnu heið- urskonu fararheillar. S.J. kjötiðnaðarmanna og var jafnan vakandi fyrir öllum nýjungum í grein sinni og þurfti þá að fara til útlanda til að endurnýja og auka við kunnáttu sína. Hann vann um tuttugu ára skeið í kjötbúðinni Borg en var svo um langt árabil verkstjóri hjá Sambandi ísl. sam- vinnufélaga. Árið 1947 kvæntist Helgi eftir- lifandi eiginkonu sinni, Borghildi Þórðardóttur frá Einarsstöðum í Stöðvarfirði. Þau eignuðust fjögur mannvænleg börn sem öll eru á lífi: Þórð, Guðjón, Þóru og Sól- veigu. Kynni okkar Helga hófust skömmu eftir að við hjónin flutt- umst frá Siglufirði til Reykjavíkur 1963 — en svo vill til að við Borghildur höfum þekkst frá æsku, milli foreldra okkar austur þar var mikil vinátta og hélst hún áfram með okkur börnum þeirra, þótt stundum liði langur tími milli samfunda. Ég þykist ekki taka of djúpt í árinni þótt ég fullyrði að Helgi hafi verið skarpgreindur hæfi- leika- og mannkostamaður. í störfum sinum naut hann mikils álits og trausts og var hann m.a. sendur nokkrum sinnum til út- landa á vegum fyrirtækis þess er hann vann hjá. Helgi átti mörg áhugamál og sýndi aldrei neina hálfvelgju í því sem hann fékkst við og fáir munu hafa ræktað garðinn sinn betur en hann. Skýrast kom þetta fram í því hvernig hann hlúði að heimili sínu því að allt lék í höndum hans og voru Borghildur og hann sam- hent í því að gera heimili sitt — jafnt ytra sem innra — að stað þar sem allir vildu koma. En til að slíkt megi verða þarf ekki einung- is hagar hendur — heldur og hlýtt hjartaþel. Það hefur margt verið sagt um íslenska gestrisni. Sumir telja aðal hennar það að setjast að borði er svignar undan dýrum krásum. Það er gott og blessað. En mér finnst hins vegar hin sanna gestrisni vera í því fólgin að hverjum finnist hann vera heima hjá sér þar sem hann kemur sem gestur. Slík var gestrisnin í Hvammsgerði 3 enda var þar löngum mjög gestkvæmt. Helgi hafði yndi af tónlist og söng, enda var hann músikalskur, lék ágætlega á píanó og var söngmaður góður. Hann var víð- lesinn og fróður og átti gott bókasafn. Hversdagslega var Helgi hæglátur en hann gat einnig glaðst á góðum stundum og verið hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. Hann fylgdist vel með í landsmálum og öðrum málum líðandi stundar og hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum en fáa hef ég þekkt réttsýnni og sanngjarnari í dómum. Hann vildi láta hvern njóta þess er hann átti. Er ég lít yfir farinn veg minnist ég með gleði en þó jafnframt söknuði allra þeirra ánægju- stunda sem við hjónin áttum með Helga og Borghildi þau liðlega Hún Pálína í Skinnum varð bráðkvödd 21. júní. Hún hafði verið sæmilega heilsugóð um ævina, að undantekinni þungri legu fyrir rúmlega tuttugu árum. Þá var henni lengi vel ekki hugað líf. En Pálina varð rúmlega sjötug. Og er það ekki sæmilegur aldur? Pálína var fædd í Skinnum 16. september 1907. Voru foreldrar hennar Jón Jónsson bóndi í Skinn- um, d. 1956, og Guðrún Kristjáns- dóttir kona hans, d. 1965, þá komin yfir nírætt. Auk Pálínu eignuðust þau hjón dæturnar: Kristjönu og Bergþóru, sem báðar eru á lífi og eiga heimili sitt í Skinnum. Sjálf var Pálína þar alla ævi. Hún var ógift, en eignaðist fimmtán ár er leiðir okkar lágu saman. Ég minnist þess er Helgi var sestur við píanóið i Hvamms- gerði 3 og allir tóku lagið. Eða þegar setið var yfir kaffibolla og rabbað um daginn og veginn. Ekki hvað síst minnist ég ferðar. — og raunar fleiri en einnar — er við hjónin fórum með Helga og Borg- hildi austur í Vík í Mýrdal í heimsókn til Magnúsar, bróður Borghildar. Það var yndislegt veð- ur — eins og það best getur orðið á Islandi. Við ókum um slóðir sem Helga voru kunnar. Mér hefur aldrei fundist frásagnarhæfileikar hans njóta sin betur en þegar hann var að fræða okkur um ýmsa staði og atburði þeim tengda. Ég gæti haldið áfram að rifja upp minningar frá fimmtán ára sam- vistatíma enn um langa stund en læt hér staðar numið. Við hjónin þökkum Helga og Borghildi fyrir allt. Minningin um vammlausan dreng lifir. Borghildur og börn hennar hafa mikið misst. En þeim má það vera huggun í harmi að þau gerðu allt er í þeirra valdi stóð til að létta ástkærum eiginmanni og föður stríðið gegn þeim er enginn fær sigrað — og tíminn leggur græð- andi smyrsl á flest sár. Við hjónin vottum Borghildi, börnum hennar og öðrum vanda- mönnum dýpstu samúð okkar. Flosi Sigurhjörnsson eina dóttur: Báru Sigurjónsdóttur, sem er búsett í Kópavogi og gift þar. Ég var lengi nágranni Pálínu sálugu. Það nágrenni var gott, og best þegar mest reið á. Hún var hjálpsöm kona, gestrisin og af- skiptalaus um annarra hagi. Hún mun aldrei hafa lagt stein í götu annarra manna. Hennar er því minnzt með þakklæti fyrir allt sem liðið er. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Með innilegum samúðarkveðj- um frá mér og fjölskyldu minni. A.B.S. Guðlaugur fær okkar atkvæði! Sverrir Einarsson, knattspyrnumaður. Sigurkarl Aðalsteinsson, knattspyrnumaður. Leifur Harðarson, blakmaður. Halldór Arason, knattspyrnumaður. Bjarni Gunnar Sveinsson, körfuboltamaður. Hilmar Viktorsson, körfuboltamaður. Lovísa Sigurðardóttir, badmintonmaður. Steinar Petersen, badmontonmaður. Ólafur H. Jónsson, handboltamaður. Eggert Steingrímsson, knattspyrnumaður. Málfríöur Árna- dóttir - Minning Pálína Jónsdóttir Skinnum - Minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.