Morgunblaðið - 28.06.1980, Síða 45

Morgunblaðið - 28.06.1980, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 45 VELVAKANDI SVARAR j SÍMA 10100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI ny tjjAmtoi-aa'ij ir ur í hug, — að hann væri manna hæfastur í þetta embætti. Og ég hef ekki skipt um skoðun heldur hefur margt orðið til þess að styrkja þessa sannfæringu mína. Ég álít að Guðlaugur sé sann- kallaður mannkostamaður. En það hafa svo margir fjallað um kosti hans og vel unnin störf að þar hef ég litlu við að bæta. — Einu þó. Hann hefur húmor og það tel ég góðan eiginleika, sem allt of fáir hafa. Því húmorslaus maður er leiðinlegur. Kristín sóm- ir sér vej hvar og hvenær sem er. Vilhelmína Böðvarsdóttir Safamýri 13, Reykjavík. • Kjósum Pétur Er þrístyrnið orðið hrætt við dómgreind þjóðarinnar? Kosn- ingabarátta forsetaframbjóðenda virðist mér vera að færast í óhugnanlegt horf. Svo sem kunn- ug er eru Albert, Guðlaugur og Vigdís alþekkt. Albert er alkunnur sem íþróttamaður, kaupsýslu- maður og stjórnmálamaður. Mér Þessir hringdu . . . • Ósæmilegur áróður Maður utan af landi hringdi og talaði um forsetakosningarnar. Segist hann hafa verið í Reykjavík að undanförnu og hafi sér blöskr- að sá geysilegi kosningaáróður sem forsetaframbjóðendurnir hafa í frammi. „Ég á ekki við neinn sérstakan því að þessu leyti eru þau öll á sama báti — ég get bara einfaldlega ekki borið virð- ingu fyrir fólki sem svona hagar sér,“ sagði hann. „Ég vil svo stinga uppá því að svona áróðursherferð- ir verði bannaðar í forsetakosn- ingum framvegis — stjórnmála- mennirnir geta leyft sér svona lagað því þeir eru að afla málefn- um fylgis en ekki eingöngu að hrósa sjálfum sér eða láta hrósa sér. Forsetaframbjóðanda er þessi aðferð, að mínu áliti, ekki samboð- in.“ SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á búlgarska meistaramótinu í fyrra kom þessi staða upp í skák Grodanov, sem hafði hvítt og átti leik, gegn stórmeistaranum Kirov: 18. Rf6+! — gxf6, (Nokkru skárra var 18. - Rxf6, 19. exf6 - Bxf6, þó að hvítur hafi samt sem áður vinningsstöðu eftir t.d. 20. Hxf6 — gxf6, 21. Hd3 - eð, 22. Dg3+ - Kgh8, 23. Dh4!) 19. Dg3+ - Kh8, 20. exf6! — (Nú opnast línur á bæði drottningu og kóng svarts og hann tapar óumflýjanlega miklu liði) — Dxg3, 21. fxe7+ og svartur gaf. finnst þess vegna lítt skiljanlegt hvers vegna hann telur sig þurfa að beita jafn geysilegum áróðri og hann hefur gert t.d. með glans- myndum út um allan bæ og borðum yfir aðalumferðargötur borgarinnar. Vigdís og stuðn- ingsmenn hennar telja sig þurfa að beita svipuðum aðferðum, — og þá er Vigdís vel þekkt um allt land af leikstarfsemi sinni og fleiru. Guðlaugur er einnig flestum vel kunnur — hann hefur verið rektor Háskóla íslands og ríkissátta- semjari. Eini frambjóðandinn sem raunverulega þurfti að kynna sig fyrir þjóðinni var Pétur Thor- steinsson. Hann hefur um langt skeið unnið stórmikilvægt starf fyrir íslensku þjóðina erlendis og var því lítið þekktur hér heima áður en hann bauð sig fram. Ég vona af heilum hug að þjóðin sé farin að sjá í gegn um áróð- ursmoldviðrið. Þjóðin má ekki við því að fá mann í forsetastól sem verður að sækja allt sitt stjórnun- arvit til annarra. Úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar er algert, — örlagatímar fara í hönd og standa reyndar þegar yfir. Við þurfum forseta sem þorir að taka af skarið þegar allt logar í ósamkomulagi á Alþingi og gæti forðað þjóðinni frá myrkviði kommúnismans. Það væru sannarlega gleðileg tíðindi ef Pétur Thorsteinsson næði kosn- ingu. — Kjósum hann öll. Ingjaldur Tómasson, verkamaður, Austurbrún 4 Reykjavík. Július Jónsson Mosfelli skrif- ar. Heiðraði velvakandi! Ég bið þig að birta þessar vísur með bestu kveðju til Baldurs Pálmasonar. Stjórnkænsku í blóði bar barðist hart að vonum. Indíra Gandhi aldrei var oft í leikhúsonum. Um leikhúsin aldrei tefldi tafl traustið vakti í þingsölum. Golda Meir sitt andlega afl átti í stjórnmálunum. Víst er það öllum íslenskum best að alstaðar leysist þörfin og Vigdís fái sér fljótan hest er fer inn í leikhússtörfin. J.J. Kveðja frá Keflavík eftir kynn- ingarfund Oddnýjar og Péturs Thorsteinssonar í Félagsbíói þriðjudaginn 23. júní 1980. Forseta nú fólkið velur — til forustu þann sem hæfan telur Ekkert gera unnt er betur enn að kjósa og styðja Pétur. Inn þá gengur kjörs í klefa, kenn þú ekki víls né efa. Atkvæði fær þitt — er sú von— aðeins Pétur Thorsteinsson. Björgólfur Stefánsson, Háholti 13, Keflavík. Velvakanda hafa borist þessar visur til birtingar. • „Ég kýs Albert vegna þess að: Hann bugast ei þótt braut sthál og bregðist flokkurinn, hans hjarta er göfugt, heilbrigð sál og hraustur skrokkurinn. Senn á stöðum Bessa býr Brynhildur, skáldið slynga, dugleg, fögur dyggðug, skýr, drottning Islendinga. Björg Bjarnadóttir.“ HÖGNI HREKKVÍSI „É120Ð \>EV BKK\ 0P HAPÐIP ViO 'AK&ROA ,ó/£XJAMDl ?.'* FRAMBQÐ GUÐLAUGS ÞORVALDSSONAR í Reykjavík Aöalskrifstofan Brautarholti 2, símar 91-39830, 39831, 22900, 29963, 29964. Skrifstofan í vesturbæ Sörlaskjóli 3, s. 25635. Skrifstofan í Breiöholti Gerðubergi 3—5 s. 77240. Utan Reykjavíkur Mosfellssv. Vezlunarmiöstööinni s. 66099. Akranes Skólabraut 21, s. 93-1915. Stykkishólmur Lionshúsiö. Sími 93-8456. Bolungavík Verkalýðshúsinu, s. 94-7425. Borgarnes Skúlagata 14, s. 93-7610. Patreksfjörður Aöalstræti 2, s. 94-1470. ísafjörður Hafnarstræti 2, s. 94-4103. Skagaströnd Borgarbraut 11, s. 95-4626. Sauðárkrókur Aöalgata 2, s. 95-5701. Siglufjöröur Grundargata 5, s. 96-71250. Ólafsfjöröur Kirkjuvegur 1, s. 96-62373. Dalvík Jónsínubúö s. 96-61477. Akureyri Strandgata 7, s. 96-25599. Húsavík Garöarsbraut 62, s. 96-41879. Seyöisfjöröur Austurvegi 11, s. 97-2167. Neskaupsstaður Strandgata 1, s. 97-7339 og 7439. Eskifjöröur Strandgötu 64, s. 97-6125. Reyöarfjörður Söluskáli Aðalsteins Eiríkssonar, * s. 97-4199. Fáskrúösfjöröur Hamarsgötu 3, s. 97-5117. Höfn, Hornafirði Höfðavegi 8, s. 97-8650. Vestmannaeyjar Skólavegi 13, s. 98-2341. Hella Verkalýöshúsiö s. 99-5028. Selfoss Austurvegi 38, s. 99-2166 og 2188. Grindavík Víkurbraut 19, s. 92-8577. Garður Garöbraut 83, s. 92-7082. Keflavík og Njarðvík Hringbraut 106, s. 92-1212. Hafnarfjöröur Reykjavíkurvegi 66, s. 91-53852. Garöabær Skátaheimilið Hraunhólum 12, s. 91-54255. Kópavogur Skemmuvegur 36, s. 91-77600 og 7,7700. Seltjarnarnes Baröaströnd 33, s. 91-29850. Sjálfboðaliðar látið skrá ykkur. Gerið skil í happdrættinu. Kosningaskrifstofur um allt land

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.