Morgunblaðið - 28.06.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980
47
Úlfar Þórðarson, formaður ÍBR
Það atriði er vakti hvað mesta athygli fyrsta kvöld iþróttahátiðarinnar var sýninj? eitt hundrað og sjötiu norskra kvenna sem sýndu fimleika.
Aliar voru konurnar komnar af léttasta skeiði, en en(?u að siður skein út úr andiitum þeirra kraftur og friskieiki, er þær framkvæmdu æfingar
sinar. Ljósm. Kristján.
Kirby
farinn
heim!
GEORGE Kirby, þjálfari
ÍA i knattspyrnu er farinn
heim tii Englands og mun
ekki hafa frekari afskipti af
Skagaliðinu í sumar. Hörður
Helgason mun taka við lið-
inu og stjórna þvi það sem
eftir er keppnistimabilsins.
Ástæðan fyrir hinni
skjótu brottför George Kir-
by er sú, að 4. deildar félagið
sem hann starfar hjá i Eng-
landi, Halifax Town, bauð
honum starf rekstrarstjóra,
en til þessa hefur Kirby
einungis verið framkvæmda-
stjóri. Varð Kirby að hverfa
þegar i stað til Halifax ef
hann hygðist þiggja boðiö,
sem hann gerði.
Hverjir
hreppa
ALLAR likur eru á þvi, að
Sigmar Þröstur óskarsson,
hinn sterki markvörður
Þórs i Vestmannaeyjum.
verði við nám í Reykjavik á
komandi vetri. Sigmar er
ákaflega sterkur markvörð-
ur, lék meðal annars með
ungiingalandsliðinu sem
náði 7. sæti á síðasta heims-
meistaramóti, sem fram fór i
Danmörku á siðasta vetri.
A.m.k. tvö lið hafa þegar
sýnt Sigmari áhuga. en það
eru Fram og Ármann.
Reikna má fastiega með þvi
að fieirí félög bætist i hóp-
inn áður en langt um liður.
hkj/gg
UL-mót
íslands
í golfi
U nglingameistaramót
íslands í golfi hefst í dag. Er
þetta í fimmta skipti sem
þessi keppni fer fram. Kepp-
endur verða rúmlega 60 að
þessu sinni, og þar á meðal
allir bestu kyífingar lands-
ins. Mótið fer fram á golf-
velli Keilis á Hvaleyrarholts-
vclli. Leiknar verða 36 holur
laugardag og sunnudag.
Keppnin hefst kl. 9.00.
Göngu-Víkingar Göngu-Víkingar
Takiö þátt í gönguferöum í tilefni af íþróttahátíö ÍSÍ.
Auglýstar gönguferöir eru:
Laugardag:
Kl. 11 og 13 Helgafell, Búrfell, Búrfellsgjá.
Kl. 13 Gönguferö frá Höskuldarvöllum um Sog yfir
Grænavatnseggjar, Móhálsadal og eftir Ketilstíg
yfir í Seltún (hverasvæöi Krisuvík)
Geldinganes.
Kl. 20 og 21
Sunnudagur:
Kl. 11 og 13
Helgafell, Búrfell Búrellsgjá.
í allar feröirnar fara bílar frá BSÍ.
Keppt er í 17 greinum íþrótta
Úlfar Þóróarson
endurkjörinn
Sumariþróttahátið tSl verður fram haldið af fullum krafti um alla
helgina. Alls er keppt í 17 greinum iþrótta á hátiðinni og jafnframt i
fjölmörgum flokkum. Þá fara fram mjög fjölmennar fimleikasýningar
og kom það glöggt fram á fyrsta degi hátiðarinnar hversu dugmiklir
og glsesilegir islensku fimleikafiokkarnir eru orðnir. Flokkar undir
stjórn Margrétar Bjarnadóttur og Jóninu Karlsdóttur stóðu sig með
mikilli prýði, svo og ungu stúlkurnar sem sumar hverjar voru aðeins
sex ára gamlar er sýndu undir stjórn Ágústinu Guðmundsdóttur og
Margrétar Kristjánsdóttur.
Konuflokkur undir stjórn Ást-
bjargar Gunnarsdóttur vakti líka
óskipta athygli áhorfenda. í gær-
kvöldi fór fram keppni í knatt-
spyrnu yngri flokka og var þar um
landshlutakeppni að ræða. Keppt
var í handknattleik, og frjálsum
íþróttum, badminton, borðtennis,
blaki, golfi, skotfimi, siglingum,
lyftingum, o.fl.
Nánar verður greint frá úrslit-
um í þessum greinum í íþrótta-
blaði Mbl. á þriðjudag.
Pósthús
Meðan Íþróttahátíðin stendur
yfir verður opið pósthús í Laugar-
dalshöllinni. Þar verða til sölu
póstkort, sem gefin hafa verið út í
tilefni hátíðarinnar og sérstakur
stimpill notaður. Einnig verður til
sölu takmarkað magn 1. dags
umslaga frá Íþróttahátíðinni 1970.
Vöru- og sögusýning
í anddyri Laugardalshallarinn-
ar stendur yfir sýning á margvís-
legum íþróttavarningi, gömlum og
nýjum, svo og ýmsum sögulegum
minjum varðandi íþróttastarfið á
liðnum áragutum.
Viðurkenningarskjöl
Allir þátttakendur íþróttahát-
íðarinnar, svo sem þeir er verða
með í inngöngunni á Laugardals-
leikvanginn, keppendur, starfs-
menn, nefndarmenn o.s.frv. hljóta
allir sérstök litprentuð viðurkenn-
ingarskjöl til minningar um
Íþróttahátíðina 1980. Þessi viður-
kenningarskjöl verður hægt að fá
innrömmuð í Laugardalshöllinni
samdægurs gegn sérstakri
greiðslu.
Úlfar Þórðarson var endur-
kjörinn formaður íþrótta-
bandalags Reykjavikur á þingi
þess dagana 20. og 24. júní sl.
Auk Úlfars voru kjörnir i stjórn
bandaiagsins þeir ólafur Jóns-
son, Sæmundur Gíslason, Gunnar
Sigurðsson, Haukur Bjarnason,
Ásgeir Guðlaugsson og Haukur
Tómasson. Guðjón Oddsson og
Ari Guðmundsson voru kjörnir
varamenn tii tveggja ára.
A þinginu voru fjögur ný félög
tekin í samtökin, íþróttafélagið
Björk, en markmið þess að stuðla
að íþróttaiðkun vangefinna.
Iþróttafélag Heyrnadaufra, mark-
mið þess að efla útivist og íþrótta-
iðkun hjá heyrnardaufum, Iþrótta-
félagið Ösp sem hefur það mark-
mið að efla útivist og íþróttaiðkun
fyrir þroskahefta og Karatefélag
Reykjavíkur.
Samþykkt var að heimila stjórn
ÍBR að selja Reykjavíkurborg
eignarhlut sinn í Laugardalshöll-
inni. Einnig var samþykkt tillaga
þess efnis að 3% aðgangseyris
sundstaða borgarinnar renni til
Sundráðs Reykjavíkur. Þá var
samþykkt ályktun þess efnis að
skorað er á íþróttaráð borgarinn-
ar að sjá svo um að viðunandi
aðstaða skapist til iðkunar frjáls-
íþrótta í borginni.
„Bréfið frá Skíðaráði Akureyrar
var dropinn sem fyllti mælinn"
EINS OG fram kom á iþróttasiðu
Mbl. í gærdag hefur Sæmundur
óskarsson sagt af sér for-
mennsku i Skiðasambandi ís-
lands. Mbl. innti hann eftir því
hver ástæðan hefði verið.
— Ég tók að mér formennsku í
SKÍ til þess að vinna að framgangi
ýmissa áhugamála minna aðallega
vildi ég efla stuðning Skíðasam-
bandsins við landsliðsmenn okkar,
sem aldrei hefur verið meiri en í
stjórnartíð minni undanfarin tvö
ár. Enda mikið til þess kostað
bæði af tíma og fjármunum.
Kröfur til landsliðsmanna hafa
einnig vaxið eins og eðlilegt verð-
ur að teljast. Þeir eiga ekki
einungis að ná góðum árangri í
íþrótt sinni, heldur einnig að vera
öðrum keppendum til fyrirmyndar
í hvívetna. Nokkrir þeirra hafa
ekki staðist þessar kröfur, og hef
ég gagnrýnt það opinberlega eins
og kunnugt er. Mörgum varð
mikið um gagnrýni mína. Jafnvel
forystumönnum sem vel þekktu
til. Varla er unnt að kenna
viðbrögð þeirra og blaðaskrif við
sannan íþróttaanda en það er mál
þeirra við eigin samvisku.
Það var eingöngu fyrir tilmæli
flestra forystumanna skíðamála í
landinu og meðstjórnarmanna
minna að ég sagði ekki af mér
strax eftir þessi blaðaskrif í vor.
En segja má að bréf Skíðaráðs
Akureyrar hafi verið dropinn sem
fyllti mælinn. Ég hef ekki skap í
mér til að starfa fyrir fólk sem
þannig kemur fram. Og hef því
sagt af mér formennsku SKÍ enda
hefur áhugi minn á starfinu farið
sídvínandi að undanförnu og er nú
að engu orðinn.
Velunnurum mínum vil ég
þakka gott samstarf og ég vona að
aukaþing SKÍ, sem nú hefur verið
boðað til takist að mynda styrka
forystu á ný.
Það má geta þess að stjórnar-
menn í SKI fóru þess á leit við
Sæmund að halda áfram en hann
varð ekki við þeirri ósk. _ j,r